Tíminn - 03.02.1972, Síða 2
2
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 3. febrúar 1972
BSRB-deilan
Það kom fram I umræð-
unum á Alþingi um launa-
deilu BSRB, að opinberir
starfsmenn eru lengur að
komast i hámarkslaun en
sambærilegir starfsmenn á
frjálsum vinnumarkaði. Það
tekur opinberan starfsmann
12 ár i staðinn fyrir 2 ár hjá
þeim samanburðarstéttum,
sem um er aö tefla. For-
sætisráöherra sagði,að hann
teldi þennan 12 ára tlma al-
gera fjarstæöu, og rikis-
stjórnin hefði hoðiö að leiö-
rétta þetta þegar I stað.
Fjármálaráöherra uppiýsti,
að ríkisstjórnin hefði boðiö
þetta fram til BSRB skrif-
lega I sfðustu viku, en BSRB
hefði hafnað þvi boöi. Rikis-
stjórnin hefði einnig látið
koma fram á fundi hjá sátta-
semjara, að hún væri til
viðræðu um aö leiörétta
lægstu launin. Það er einnig
I samræmi við málefna-
samning og fyrirheit rikis-
stjórnarinnar um að bæta
kjör hinna lægst launuðu.
Rikisstjórnin mun hins
vegar berjast gegn því að
launahækkanir teygi sig upp
I efstu launaflokka og hún
mun eftir megni reyna að
koma I veg fyrir þær launa-
hækkanir eftir að geröur
hefur verið allsherjarsamn-
ingur til tveggja ára við
aöildarfélög ASt, sem túlka
má sem röskun á þvl jafn-
vægi við kjör opinberra
starfsmanna, sem ASl telur
sig hafa náð fyrir ýmsa'
starfsstéttir I allsherjarsam-
komulaginu I dcsember.
f umræðunum á Alþingi las
f jár mála ráðherra upp
greinargerð um launakjör
innan BSItB, sem gerð hefur
vcrið sameiginlega af
fulltrúum BSIIB og fjár-
málaráðuneytisins miðað við
30 ára gamlan mann, verða
laun rlkisstarfsmanna I
verkamannsvinnu þann 1. 7.
1972, 4,3% hærri en Dags-
brúnarmanns, en hins vegar
verða laun þess slöarnefnda
kominn 2,6% upp fyrir rlkis-
starfsmanninn l.marz 1973.
Fríðindin svara til
6% kauphækkunar
Un höfuöatriöi I þessu
máli, sem ekki má með
neinu móti fram hjá horfa
og BSRB hefur viöurkennt
áður, er að kaup rikisstarfs-
manna mcgi a.m.k. veröa
6% lægra en almenni mark-
aðurinn tilgreinir hverju
sinni, vegna atvinnuöryggis
og verðtryggingar á lífeyris-
sjóði, og þaö kom fram I
kjarasamningunum, sem
gerðir voru I des. 1970, aö þaö
bæri aö meta þetta til tekna.
Það kemur fram I greinar-
gerðinni, að nú eru rikis-
starfsmenn yfirleitt hærra
launaðir á vinnumarkaö-
inum, en óhagstæöastur
viröist samanburöurinn vera
hjá iönaöarmönnum i þjón-
ustu rikisins.
—TK
ÚTUNGUNARVÉL
Lítið notuö 600 eggja
útungunarvél til sölu. Upp-
lýsingar gefa I sima kl. 9—10
árdegis Jón M. Guðmundsson,
Reykjum, Mosfellssveit og
undirritaður.
Halldór Hafstað,
Útvik, Skagafirði.
Simi um Reynisstað.
Skaup og skottuferð
Landfara hefur borizt eftir-
farandi bréf, sem hefur aö
geyma smávægilegar eftir-
hreytur um áramótaskaupiö
svonefnda og átök þau, sem
um þaö urðu á sinum tima:
„Landfari saell.
Ýmsir hafa deilt harkalega
um áramótagleði sjónvarps-
ins-sem var nú raunar heldur
þunn „gleði”. Þetta var
þó allbærileg skemmtun „til
sins brúks”, til að mynda á
sunnudagskvöldi, ekki lakari
en Mister Frost. Hljómsveit
Eydals er ágæt, en svo oft
hefur hún verið i sjónvarpi, að
varla var ástæða til aö sækja
hana til Akureyrar. Það eina,
sem kom á óvart, var aö sjá
Asu aftur, fyrrum þul. Það var
skemmtilegt.
Einhver ólafur segir i Vel-
vakanda, að „yfirgnæfandi
meirihluti fólks sé áreiöanlega
harðánæður með hann (þ.e.
gamlaársþáttinn)’.’ Hvaðan
veit maðurinn þetta? Hefur
hann talað viö „yfirgnæfandi
meirihluta fólks”? Full-
yrðingar út i bláinn.
A gamlaárskvöld á sjón-
varpið ekki aðsýna söngva- og
músikþætti mestanpart,
heldur ýmsa viðburöi ársins i
spéspegli-á sviðaöan hátt og
Flosi hefur gert - fyrir bann-
færingu. Hinu er ekki aö neita,
að Flosi var mistækur - en
hver er þaö ekki? En margar
hugmyndir hans voru ágætar
og komu á óvart. I landi
TRÚLOFUNARHRINGAR
Fljót afgreiðsla.
Sendum gegn póstkröfu
GUÐM. ÞORSTEINSSON
gullsmiður, Bankastr. 12
Kaupi
víxla og stutt skuldabréf
fyrir vörur og peninga.
Upplýsingar í síma
20555 kl. 5—7 e.h., alla
virka daga.
SAMYINNUBANKINN
■!!:lÍl
IMÍh i ðf n III,
kunningsskaparins má helzt
ekki hneyksla neinn.
Blessaöur góðborgarinn má
ekki fyrtast. Hálfyröi og loð-
mulla - það er lóöið.
H.G”
hann viss um, aö gert sé ráð
fyrir, að Alþingi fylli tólf
manna flokk sinn á þessum
vetri, enda ekki skylda. Þá
mun það einnig hafa verið
samþykkt, að menntamála-
nefndir þingsins fjalli og segi
álit sitt um þá heiðurslauna-
menn, sem einstakir þing-
menn bera fram tillögur um.
Tólfta heiðursskáidið.
Og hér kemur bréf I tilefni af
umræðum á Alþingi rétt fyrir
jólin um heiðurslaun handa
listamönnum - svohljóðandi:
„1 flaustursverkum tíma-
þrots siðustu þingdaga fyrir
jólin urðu fremur óviður-
kvæmilegar umræöur um
fjölgun heiöurslaunþega 1
listamannaflokki Alþingis.
Gott var þó að einhver tak-
mörk voru sett um fjölda laun-
þega, og ætti talan tólf aö vera
yfrin, og okkur við hæfi um
langa framtlð-
Nú eru það ellefu menn, sem
njóta þessara sérstöku
heiðurslauna Alþingis, en
fljótlega mun tólfta mann-
inum verða bætt við sam-
kvæmt hinni nýju Alþingis-
samþykkt. Hver hann, skuli
verða ætti ekki að orka tvl-
mælis, þótt hann hafi ekki
verið nefndur, svo vitað sé, en
hann er Guðmundur Böðvars-
son á Kirkjubóli I Hvltárslöu.
Um verðleika hans I þetta
heiðurssæti er óþarft að fjöl-
yröa. Að hlutlausu mati held
ég, að varla verði um þaö
deilt, að Guðmundur Böðvars-
son sé veröugastur þeirra,
sem imprað hefur veriö á, til
aö hljóta þd viðurkenningu,
sem hér um ræðir -að verða
einn af þeim tólf, sem heiðurs-
launin geta náð til. Allur rök-
stuðningur til þess ætti að vera
óþarfur, svo sjálfsagt virðist
þetta vera.
Veröur nú fróðlegt að sjá,
hvaöa mat menntamála-
frömuðir vorir á Alþingi
leggja á menningargildi
skáldskaparverka vorra I árs-
byrjun 1972.
G. Þ.”
Landfari leggur ekki til
þeirra mála, sem drepið er á i
ofanbirtum bréfum, en ekki er
Námskeið I stjórnun og áætlanagerð fyrir fram-
kvæmdaaðila við Ibúðabyggingar og verktaka I
byggingariðnaöi.
Húsnæðismálastofnun rlkisins I samvinnu við Stjórn-
unarfélag tslands gengst fyrir námskeiöi I stjórnun og
áætlanagerö fyrir framkvæmdaaðila viö Ibúða-
byggingar og verktaka I byggingariönaði.
Tilgangurinn með námskeiðinu er að gefa aðilum kost
á stuttu en yfirgripsmiklu og sérhæfðu námskeiði um
það, hvernig bezt megi skipuleggja verk við Ibúða-
byggingar og I byggingariðnaði almennt, meö þaö fyrir
augum aö nýta sem bezt fjármagn, vinnuafl o.fl. þætti,
sem máli skipta. Lögð verður áherzla á að kynna þær
kröfur, sem Húsnæöismálastofnun rlkisins gerir til
þeirra framkvæmdaaðila, er leita eftir framkvæmda-
lánum hjá henni.
Efni námskeiðsins verður:
Almenn stjórnun, leiðbeinandi Hörður Sigurgestsson,
rekstrarhagfr.
Hönnunarskipulagning, leiðbeinandi dr. Kjartan
Jóhannss. verkfr.
Hönnun, leiðbeinandi Hilmar Ólafsson, arkitekt.
Útboð, tilboð og verksamningar, leiðbeinandi Skúli
Guðmundss. verkfr.
Staðlar, leiöbeinandi Höröur Jónsson, verkfræðingur.
Gerð verkáætlunar.leiðbeinandi Egill Skúli Ingibergss.
verkfr.
Gerð kostnaðaráætlunar, leiðbeinandi Siguröur P.
Kristjánss. tæknifr.
Gerð greiðsluáætlana, leiðbeinandi Sigurður R.
Helgason, rekstrarhagfr.
Námskeið þetta verður á tlmabilinu 18. febrúar—11.
marz, alls um 30 tlmar.
Námskeið þetta verður haldiö að Skipholti 37. Nánari
upplýsingar verða gefnar I sima 8-29-30. Væntanlegir
þátttakendur skrái sig I síma 8-29-30 fyrir 10. febrúar
n.k.
HÚSNÆÐISMALASTOFNUN rikisins
LAUGAVEGI77, SÍMI22453
KLÆÐASKÁPAR
mm
HATUN 4A
VIÐ NÓATÚN.
SÖLU SKRIFSTOF A
KÁ í REYKJAVÍK
SÍMI 2 18 30.
FJORAR MISMUNANDI
GERÐIR TIL NOTKUNAR
í SVEFNHERBERGI OG
FORSTOFUR.
FRAMLEIÐANDI
KÁ SELFOSSI
Hentar við allar aðstæður og
hægt er að velja um allar
helztu viðartegundir. Verðið
er fast og miðað við afgreiðslu
heim að húsi.
SÁUÐ I>IÐ
SKÁPANA
í hinu nýja happdrættis-
húsi DAS? í»eir voru frá
K.Á.
Fyrsta flokks vinna.
Rennihurðir, fatahengi,
hillur og útdregnir bakkar.
Komið og sjáið úrvalið.