Tíminn - 05.03.1972, Síða 2
JL JLX» JLJLl 'l i 'l
Sunnudagur 5. marz 1972.
félagsins verður haldin föstudaginn 10.
marz 1972 i Skiphól, Hafnarfirði og hefst
kl. 8.30.
Skemmtiatriði:
Karlakór starfsmanna Vélsm. Héðins
syngur.
Gamanþáttur.
Aðgöngumiðar afhentir i skrifstofu félags-
ins að Skólavörðustig 16.
Árshátiðarnefnd
Fermingarbarnið og spurningatíminn
Nú eru þau námskeið hafin fyr-
ir löngu þennan veturinn, sem
öldum saman hafa gengið undir
yfirskriftinni „spurningar”.
Þá eiga börnin, sem nú er farið
að nefna táninga, eftir nýjustu
tizku af enskum uppruna ((teen-
ager), að fá fræðslu um höfuð-
atriði i kristilegri trúfræði og sið-
fræði hjá prestum safnaðanna.
Og nú eru þessi námskeið i fullum
gangi.
Þetta fór fram áður fyrr og viða
enn á þann hátt, að presturinn
hlýddi yfir Barnalærdóm — Fræði
HEIMSFRÆGAR
LJÓSASAMLOKUR
6 og 12 v. 7” og 5%”
BÍLAPERUR, fjölbreytt úrval.
Viðurkennd vestur-þýzk tegund.
Heilsala — Smásala
Sendum gegn póstkröfu um land allt.
31 SMyCILL Ármúla 7. - Sfmi 84450
Nú er rétti tfminn
til að endurskoða tryggingarupphæðir
á hvers konar brunatryggingum.
Á þessum árstíma er ársuppgjöri lokið og því hægt að sjá, með hægu móti,
verðmæti vörubirgða, véla, áhalda og annarra tækja.
Öllum forsvarsmönnum verzlunar- og iðnfyrirtækja er því nauðsynlegt að
taka til endurskoðunar tryggingarupphæðir og tryggingamál fyrirtækja sinna.
Starfsfólk Aðalskrifstofunnar, Ármúfa 3,
og umboðsmenn leiðbeina um hagkvæmt
fyrirkomulag á hvers konar tryggingum.
ÁRMÚLA 3. SÍMI 38500
SAMVIIMNUTRYGGirVGAR
Lúthers, lét börnin læra svör viö
nokkrum spurningum um trúar-
brögðin og tilveru guðs.
Nýlega hefur þessi námskeiðs-
timi verið lengdur hér i Reykja-
vik og hefst nú fyrir jól eöa i
nóvember. Áður voru börn ekki
boðuð hér fyrri en eftir hátiðar til
fermingarundirbúnings, og viða
úti um land var þessi námstimi á
vegum kirkjunnar aðeins nokkrar
klukkustundir — oftast á prests-
setrunum.
Ekki fer þó betur en svo, að nú
eru börn nýkomin frá altari frem-
ingarhátiðar farin að ræða það á
fundum sinum i skólum — fram-
haldsskólum, að leggja beri kirk-
juna niður sem þjóðfélagsstofnun
og segja sig opinberlega úr kirkj-
unni og stofna til samtaka um
slikar framkvæmdir.
Auðvitað er ekki hægt að taka
slikan barnaskap krakka alvar-
lega. Og það eru algjör mistök að
prenta frásagnir um þessa óvita
og þeirra ,,hi og hæ” á framsið-
um blaöa, með myndum, likt og
þarna sé um þjóðhöfðingja að
ræða. Jafnvel þótt segja megi að
framferði þjóðhöfðingja geti ver-
ið litlu betra.
En spurningin um „Spurninga-
námskeiðin” gæti verið þessi:
Eiga börn að ráða öllu um sinn
undirbúning i trúarlegu og sið-
legu tilliti?
Hvernig gætu þau vitað hvað
væri þeim fyrir beztu?
Er það rétt að láta þann hugs-
unarhátt, sem segir:
„Enga fyrirhöfn, enga ábyrgð,
engan hátiðleika” ráða sem
mestu á þessum námskeiðum.
Eiga samverustundir ferm-
ingarundirbúningsins að vera
skemmtun fremur en fræðsla og
æfing i lotningu og tilbeiðslu?
Þetta er aðeins til umhugsunar.
En eitt er vist — þarna þárf að
finna einhvern meðalveg, sem
gerir fermingarundirbúninginn
þýðingarmikinn, án þess að gefa
hann leiðinlegan.
Upplausn og aðgjörðaleysi, þar
sem börnin sjálf vita hvorki upp
né niður og læra litið eða ekki
neitt um hið eina nauðsynlega,
það er að segja persónuleika «g
anda Krists, gildi hans fyrir ham-
ingju og heillir einstaklinga og
þjóða — slfkar samverustundir
verða litilsvirði og gætu skapað
virðingarleysi og voða gagnvart
þvi sem heilagt er.
Spurningatiminn má svo sann-
arlega ekki verða aftur köld og
stöðnuð yfirheyrsla eins og hon-
um oft hefur verið lýst á timum
„þuíulærdómsins” og „kversins”
sem kallað var.
En þá hafði hann samt festuog
virðuleika, hátiðlegan bakgrunn
lotningar og tilbeiðslu.
Þann virðuleika má námskeið
fermingarundirbúningsins ekki
missa.
Ég veit um barn, sem tók það
fyrir að neita þvi að fermast. Nú
ráða börn svo miklu. En nú gerði
það fyrir ömmu sina að taka full-
an þátt i starfsemi og anda undir-
búningsins. Fyrir það er hún
mjög þakklát nú á fullorðins-
árum.
„Það sem erfiðast var, er
mér nú mikilsverðast”, segir
hún. Og hennar börn hafa rækt
sinn undirbúning sérstaklega vel,
með þátttöku i fræðslu, söngvum,
bænum, ábyrgð og gerð fer-
mingarbókar. En þetta ættu að
vera fastir liðir i fermingarundir-
búningi barna.
Hins vegar hefur nútiminn,
með alla sina tækni fullkomið
svigrúm til að gera spurningar-
timana lika skemmtilega, með
kvikmyndum, sem auðvitað verð-
ur að velja og nota við hæfi,
hljóm- og tónflutningi jafnveí
klassiskra verka snillinganna,
ásamt kórsöng og sálmum.
Allt slikt er alveg sjálfsagt að
nota. En aldrei ættu tækin að
skyggja á tilganginn, heldur vera
i þjónustu hans. Og tilgangurinn
er að leiða barnið til Krists og
kenna þvi, að ekkert i heimi hér
er mikilsverðara en að fylgja
honum, eiga hann að fyrirmynd,
frelsara og verndara.
Það eru þvi mikil forréttindi i
samfélagi þjóða að vera skirður,
það er að segja vigður til þátttöku
og starfa i kirkju hans og fjar-
stæða að vanmeta það.
En kirkja er samfélag þeirra,
sem helga sig góðleika, sann-
leika, réttlæti og fegurð og bera
þau ljós á brautir annarra.
Arelius Nielsson.
Ljósmæður
Árshátið verður haldin i Domus Medica,
laugardaginn 11. marz kl. 19,30. Miðar
seldir þar fimmtudaginn 9. marz kl. 5—7
Atvinna
Óskum að ráða verkamenn i bygginga-
vinnu. Upplýsingar i sima 96—21822.
NORÐURVERK H F
Tæknifræðingar
Óskum að ráða tæknifræðinga. Upplýsing-
ar i sima 96—21822.
NORÐURVERK H.F.
Félag jarniönaöarmanna
Arshátíð
Árelíus
Níelsson: