Tíminn - 05.04.1972, Qupperneq 1
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
SeNDIBILASTÖDIN HT
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
76. tölublað — Miðvikudagur 5. apríl!972 — 56. árgangur
Komið inn til lendingar á þeirri braut á Keflavikurflugvelli, sem er fullkomin að líjngd og útbúnaði eins og krafist er á alþjóðaflugvöllum.
(Timamynd Gunnar)
Ríkisstjórnin samþykkir
lengingu þverbrautarinnar
Breytir í engu stefnu ríkisstjórnarinnar að því er dvöl varnarliðsins hér snertir
— Róðherrar Alþýðubandalagsins létu gera sérstaka bókun
Ríkisstjórnin samþykkti i gær að taka tilboði Bandarikjastjórnar um
lengingu þverbrautarinnar á Keflavikurflugvelli, og afhenti Einar
Ágústsson utanrikisráðherra sendifulitrúa Bandarikjanna svar rikis-
stjórnarinnar. Á fundi ríkisstjórnarinnar lýstu ráðherrar Alþýðu-
bandalagsins sig andviga þvi að taka tilboði Bandarikjastjórnar og létu
bóka athugasemd.
Fréttatilkynningar rikis-
stjórnarinnar um mál þetta fara
hér á eftir.
„Einar Ágústsson utanrikis-
ráðherra afhenti i dag sendifull-
trúa Bandarikjanna, Theodore
Tremblay, svar við greinargerð
þeirri er bandariski sendiherrann
afhenti 27. marz s.l. um lengingu
þverbrautar á Keflavikurflug-
velli og aðrar framkvæmdir þar.
í svarinu segir, að rikisstjórn
Islands samþykki ofangreindar
framkvæmdir. Jafnframt er bent
á það ákvæði i málefnasamningi
rikisstjórnarinnar að varnar-
samningurinn skuli tekinn til
endurskoðunar eða uppsagnar I
þvi skyni, að varnarliðið hverfi
frá Islandi i áföngum og að þvi
stefnt að brottför liðsins eigi sér
stað á kjörtimabilinu, og tekið
að samþykkt á framlengingu
þverbrautarinnar breyti i engu
stefnu rikisstjórnarinnar að þvi
er dvöl varnarliðsins hér snerti.
A rikisstjórnarfundi greiddu
ráðherrar Alþýðubandalagsins
atkvæði gegn þvi, að ofangreindu
tilboði Bandarikjanna yrði tekið
og létu bóka ágeing af sinni
hálfu.,,
Afstaða Alþýðubanda-
lagsins
I siðari fréttatilkynningunni
segir svo:
,,A fundi rikisstjórnarinnar i
morgun létu ráðherrar Alþýðu-
bandalagsins bóka eftirfarandi:
„Ráðherrar Aiþýðubanda-
lagsins, Lúðvik Jósefsson og
Magnús Kjartansson, j.ýsa sig
andviga þvi, að tilboöi Banda-
rikjastjórnar um fjárframlög til
framkvæmda á Keflavikurflug-
velli verði tekið, með svofelldri
bókun:
1. Við teljum að stefna beri að
þvi að gera Keflavikurflugvöll að
mikilvægum lendingarstað fyrir
almennt farþegaflug yfir
Norður—Atlantshaf og að miða
beri allar framkvæmdir á vellin-
um við það manmið. Þvi hlutverki
Framhald á bls. 12
ÍBílar hækkal
jum 10-12% j
■ Timanum barst i gær svo- ■
■ hljóðandi fréttatilkynning 2
■ frá fjármálaráðuneytinu: ■
H „Ráðuneytið hefur i dag 2
■ gefið út reglugerð um inn ■
' flutningsgjaíd af bifreiðum 2
■ og bifhjólum. Gjaldið hefur ■
1 verið ákveðið 25% af cif- "
■ verði og er áætlað, að það ■
2 valdi 10-12% verðhækkun á 2
■ bifreiðum. ■
b Tekjur af gjaldi þessu 2
■ munuverða notaðar til vega- ■
I gerðar skv. vegaáætlun 1972. Z
■ Fjármálaráðuneytið, 4. april ■
; 1972” ;
Brunað niður Seljalandsdal á
Skiðalandsmótinu á Isafirði...
...og tekið á móti tslandsmeist-
arabikar i Laugardalshöllinni.
íþróttir ó bls. 15,
16, 17 og 18
í blaðinu í dag
Nixon í erfiðleikum vegna ITT-mólsins — sjó erlent yfirlit d blaðsíðu 9
Fékk súkkulaðibita
sendan niður í gjána
- rætt við Magnús Má Magnússon, sem féll í 40 metra gjá á Vatnajökli
Klp—Reykjavík.
— Ég get nú ekki sagt að vistin þarna niöri hafi verið vistleg, en
það var litið hægt að kvarta yfir þvi i þetta sinn, sagöi Magnús Már
Magnússon, 17 ára gamall nemandi I Menntaskóla Reykjavikur, en
á skírdag hrapaði hann niður um sprungu á Vatnajökli og varð að
dúsa i sprungunni i nær 4 tima, þar til þyrla frá Varnarliðinu kom og
bjargaði honum upp.
— Við vorum sex saman úr
Flugbjörgunarsveitinni, sem
gengum á jökulinn á skirdag og
ætluðum niður i Grimsvötn til
að skoða verksumerkin þar, en
notuðum um leið ferðina sem
æfingu og vorum þvi vel útbún-
ir, sagði Magnús, er við náðum i
gær tali af honum á Borgar-
sjúkrahúsinu.
Við vorum bundnir þrir og
þrir saman, og ég var fremstur i
öðrum hópnum. Við áttum að-
eins eina brekku eftir niður, að
vötnunum, þegar jörðin
opnaðist allt i einu fyrir fótum
mér og ég hrapaði niður. Við
vorum búnir að krækja fram hjá
nokkrum sprungum, en þessa
sáum við ekki, þvi að snjór var
yfir henni.
Félagar minir, sem voru á
eftir mér, náðu að stöðva sig á
siðustu stundu, og hékk ég þá I
lausu lofti svona 10 metrum frá
yfirborðinu. Ég veit ekki hvað
ég var lengi þar, en þó nógu
lengi til þess að mér var farið að
sortna fyrir augum og átti erfitt
með andardrátt.
Fyrst reyndi ég að klóra mig
upp með aðstoð félaga minna,
m.a. með þvi að höggva för I
vegginn, en hann molnaði jafn-
harðan niður, svo ég gafst upp
við það.
Einum 30metrum fyrir neðan
mig sá ég pokann minn og dótið
á syllu, og tók ég það ráð að láta
Framháld á bls. 1 2
Hugað að Magnúsi Má á Vatnajökli, eftir að tekist hafði að ná
honum upp úr rúmlega 40 metra djúpri jökulsprungunni, með
hjálp björgunarþyrlunnar. (Ljósm. Varnarliðið)