Tíminn - 05.04.1972, Side 6
6
TÍMINN
Miðvikudagur 5. april 1972
Jackie neitar
Jackie Onassis hefur borið til
baka staðhæfingar Christians
Cafarakis í bók hans Hin
stórkostlegu Onassishjón, um,
að árið 1970 hafi legið við hjóna-
skilnaði þeirra Jackie og Aris,
☆
Heppin drengur
Litill drengur sat nafnlaus og
alslaus á barnaheimili i La Paz i
Bolivíu. Ekkert var vitað um
foreldra hans, og framtiðar-
horfur litla drengsins voru
siður en svo góðar. Það eina,
sem vitað var um drenginn, var,
að hann væri af indlánaættum.
Þá gerðist það, að vesturþýzki
utanrikisráðherrann Walter
Scheel kom til borgarinnar með
konu sinni. Þeim hjónum var
meðal annars sýnt barna-
heimilið, þar sem litli indiána-
drengurinn dvaldist. 1 dag býr
litli drengurinn þar ekki lengur ,
heldur á heimili Scheels I Bonn.
Hann hefur fengið nafn og er
nefndur Simon Martin, systur
hans Cornelia og Andrea
Gwendolyn eru átta ára og 17
mánaða. Framtið Simons litla
er þvi björt, og sannarlega mun
bjartari heldur en þegar ráð-
herrahjónin fundu hann á
barnaheimilinu í Boliviu.
og hjónabandinu hafi verið
bjargað með þvi, að Jackie elti
Ari til Parisar frá New York, og
kastað sér grátandi i faðm hans,
og beðið hann um að silja ekki
við sig. Jackie segir, að
Cafarakis, sem segist hafa verið
þjónn um borð i snekkju
Onassis, sé manni sinum alls ó-
kunnur, og viti ekkert um þau
hjón ,sem hann geti staðhæft og
borið á borð fyrir fólk sem
hreinan sannleika.
☆
Hús lækka í veröi fyrir
gamalt fólk.
Yfirvöld i Frakklandi kanna nú
möguleika á þvi, að lækka verð
á húsum, ef þeir, sem hyggjast
kaupa húsið, eru komnir yfir
viss aldursmörk. Er jafnvel
talað um, að húsaverðið geti
lækkað um helming eða þrjá
fjórðu i þessu tilviki. 1 athugun
þessari, sem gerð er til þess að
bæta úr lifsskilyrðum eldra
fólks, er talað um, að fólk, sem
komið er á eftirlaunaaldur og
kaupi sér húsnæði, geri það
einungis fyrir sjálft sig til að
búa i þann tima, sem það á enn
eftir ólifað. Ekki er reiknað
☆
með, að fólkið arfleiði siðan
börn sin eða ættingja að
húsnæðinu. Þegar viðkomandi
aðili deyr, er meiningin, að hús-
næðið gangi aftur til seljandans,
sem einna helzt kemur til greina
að verði banki, eða tryggingar-
félag. Hugmyndin er sú, að á
þennan hátt geti gamalt fólk
komiztmeð auðveldum hætti yf-
ir húsnæði fyrir sjálft sig, sem
það getur notazt við fram til
dauðadags, og þurfi ekki að
hafa neinar húsnæðisáhyggjur.
Að sjálfsögðu má búast við, að
verðhúsnæðisins, hvert svo sem
það nú er, verði þvi hærra, sem
reikna má með að hinn nýi eig-
andi, noti það lengur, eða þvi
yngri sem kaupandinn verður,
þvi dýrara verður húsiö.
#
Forsetinn komst
ekki í afmælið
Jackie Gleason gamanleikari
bauð Nixon forseta i 56 ára
afmælið sitt ekki alls fyrir
löngu. Afmælið átti að vera i
Fort Lauderdale i Flórida. Þvi
miður komst forsetinn ekki i
veizluna, þar sem hann var
erlendis, en sem betur fer
komst afmælisgjöfin frá honum
i hendur afmælisbarnsins. Hann
fékk golfsett með merki for-
setans á.
V
Nixon — feröalög —
kosningar
Nixon forseti Bandarikjanna
gerir nú ymislegt til þess að
komast sem allra oftast fyrir
augu bandariskra kjósenda,
enda standa forsetakosningar
fyrir dyrum þar i landi. 1 ráði
er, að hann fari til Moskvu i
mái, og má þá búast við, að ekki
liði svo nokkur sú fréttaútsend-
ing sjónvarpsátöðva i Banda-
rikjunum, að Nixon beri ekki
fyrir augu áhorfenda. Þá segir
sagan, að Nixon sé að undirbúa
enn eitt ferðalag, og eigi það
eftir að vekja enn meiri athygli
heldur en Kina-ferðin og Mosk-
vuferðin. Það ferðalag á að vera
til Kúbu. Nixon mun nefnilega
vilja bregða sér i heimsókn til
Castrós einræðisherra á Kúbu.
KissingeraðstoðarmaðurNixons
hefur núsettá fót skrifstofu, þó
með mikilli leynd, sem á að
vinna að undirbúningi Kúbu-
ferðarinnar. A skrifstofunni
starfa nokkrir sérfræðingar og
grennslast þeir nú fyrir um það,
hvort Castró myndi segja já eð
nei, ef Nixon vildi koma i
heimsókn til hans.
Var 48 merkur
12 kilógramma barn, eða 48
marka, fæddist i Dezful I Iran
ekki alls fyrir löngu. Frá þessu
er skýrt i þarlendu biaði
Kayhan International. 1 blaðinu
segir, að móðir þessa ótrúlega
stóra barns, Masoumeh, 32 ára
að aldri, hafi gengið með soninn
i 10 mánuði, og læknar segi, að
hann hafi orðið svona stór vegna
þess, hve matlystug móðirinn
var um meðgöngutimann.
Ekkki gat móðirin alið Ahamad
Reza á venjulegan hátt, heldur
varð að taka hann með keisara-
skurði. Áður hafði Masoumeh
alið sex börn, en ekkert þeirra
var neitt i áttina eins stórt og
Ahmad Reza. Masoumeh sagð-
ist hafa óskað þess að eignast
sjöunda barnið, og segir enn-
fremur, að sonurinn hafi farið
langt fram yfir það, sem hún
þorði að vona. Enginn getur nú
furðað sig á þvi, svo ekki sé
meira sagt. Hér sjáið þið svo
mynd af þessum einstaklega
stóra dreng.
Hauskúpuþjófur
Þegar lögreglan i Flórens ræðst
inn til Mario Carlini til þes að
gera hjá honum húsleit, þar sem
grunur lék á, að hann hefði tekið
þátt i allmörgum innbrotum
kom nokkuð i ljós, sem fáir
höfðu vist búizt við. Ekkert
fannst af þvi, sem lögreglan
leitaði að, en i þess stað fann
lögreglan 21 hauskúpu. Mario
Carlini viðurkenndi, að hann
hefði lagt það i vana sinn að
ræna hauskúpum úr gröfum, og
selja þær siðan fólki, sem
safnaði slikum hlutum.
Ekkert er eins sárt og að vera
ekki boðið i veizlu, sem maður
mundi aldrei geta hugsað sér að
fara i.
Einn sunnudagsmorgunn hringdi
siminn hjá konu einni i borginni
Ókunn rödd spurði, hvort hún
hefði séð myndina i sjónvarpinu
kvöldið áður.
— Já, það gerði ég reyndar, svar-
aði konan undrandi.
— Sjáið þér til, sagði röddin. — Ég
horfði á meira en helminginn, en
sofnaði svo. Engin af vinkonum
minum sá hana, svo ég hringdi
bara i eitthvað númer. Hvernig
endaði myndin?
— Þau fengu að eigast að lokum.
— ó, en dásamlegt! Siðan lagði
hún á.
Verðbólga er það, þegar hlutur
sem við keyptum fyrir nokkrum
árum á 100 krónur, bilar og það
kostar 150 krónur að gera við
hann.
Það er skylda gestgjafa að láta
— Hjónabandið verður nú ekki
aiveg pappirslaust!
gestum sinum liða eins og þeir
væru heima hjá sér — þó hann
vildi innilega óska, að þeir væru
það.
Dómarinn: — Þér gerðuð mistök,
þegar þér köstuðuð súpuskálinni i
höfuð konu yðar.
Akærði: — Já, en ég vissi ekki, að
postulinið væri svona verðmætt.
DENNI
DÆAAALAUSI
Ég er alls ekki hræddur við inn-
brotsþjófa. Ég vil bara fá læs-
ingu, sem krakki getiir ekki opn-
að.