Tíminn - 05.04.1972, Síða 7
Miðvikudagur 5. april 1972
TÍMINN
7
Enn beðið eftir Páskahrotu
Trollbátur úr Vestmannaeyjum að veiðum viðEyjar. Múkkinn fær greini
lega slóg til að éta frá bátnum (Timamyndir Gunnar)
ÞÓ-Reykjavik.
Sjómenn hafa lengi beðið
spcnntir eftir páskahrotunni. En
þó að komið sé fram yfir páska,
hefur sá guli ekki látið sjá sig i
rikum mæli ennþá. Ef páska-
hrotan fer ekki að koma, er hætt
við, að eftirtekjan verði rýr hjá
mörgum sjómanninum, og þá
helzt þeim, sem stundað hafa
netaveiðar i vetur.
Við verðum bara að vona að
þorskurinn fari að ganga i rikari
mæli upp á landgrunnið, og þessa
Haoana hafa nokkrir bátar fengið
ágæta veiði, en hjá flestum er
veiðin samt treg. Meira en
mánuður er eftir af vetrarvertið,
og aprilmánuður hefur oft verið
gjöfull, og þar að leiðandi má
svartsýnin ekki vera of mikil hjá
mönnum.
Fyrir stuttu kom blaðamaður
Timans aðeins við i Vestmanna-
eyjum og hitti þar að máli tvo
menn, sem mikið hafa komið
nálægt fiskinum i vetur — en
ólikum tegundum.
Þegar okkur bar að garði i
fiskimjölsverksmiðju Einars
Sigurðssonar, var verið að bræða
i óða önn, og virtist bræðslan
ganga vel hjá körlunum.
Vélarnar möluðu þarna með
sinum venjulega hávaða, og
þurrkararnir gengu sinn vana
gang.
Bogi Sigurðsson verksmiðju-
stjóri sagði, að þeir hefðu tekið á
móti fyrstu loðnunni þann 21.
febrúar, og er þeir hefðu hætt
móttöku 8. marz, hefði verið búið
að taka á móti 35.700 tonnum.
Bræðslan hefur gengið ágæt-
lega, og bjóst Bogi við, að henni
myndi ljúka i lok mánaðarins,
Unnið er á tviskiptum vöktum og
brætt allan sólarhringinn, en um
40 manns starfa i verksmiðjunni.
Bogi sagði okkur,að nýting væri
ósköp svipuð og i fyrra. Bjóst
hann við, að út úr þessum 35.700
tonnum myndu fást um 5 þús.
tonn af mjöli, en ekki gat hann
svarað þvi, hve mikið lýsi fengist
úr þessu magni.
Hjörtur Hermannsson
verkstjóri tók á móti okkur i
Fiskiðjunni, en þar var verið að
vinna af fullum krafti við fiskinn.
Sjóveður var gott þennan dag og
aðeins tveir bátar i höfninni i
Vestmannaeyjum, sem er fremur
óvenjulegt.
Hjörtur segir okkur, að fram til
þessa hafi verið nægilega mikið
hráefni hjá þeim.
—Hafið þið nógu margt fólk?
—Það svona gengur, meðan
fiskiri er ekki meira en raun ber
vitni. Helzt er það að okkur vanti
karlmenn, en ef páskahrotan
kemur, vantar okkur fólk eins og
vant er. Alls starfa hjá okkur 110
konur og 40 karlmenn.
—-Hvernig hefur fiskurinn verið
hjá ykkur i vetur?
—Okkar afli hefur töluvert
byggzt á linufiski, og eins og allir
vita, er hann mjög góður. Um
Hjörtur Ilertnannsson verkstjóri
netafiskinn er það að segja, aö
hann hefur verið góður miðað við
gæftir.
—Hvað getið þið hjá Fiskið-
junni annað miklum fiski á dag?
—Mest eetum við afkastað 200
tonnum, en þá verðum við lika að
vinna fiskinn i fljótunnar pakkn-
ingar. Annars höfum við gengið
þetta 50 - 110 lestir á degi hver-
jum, en hjá okkur leggja upp 22
bátar, og töluvert af þeim eru
trolthátar.
Bogi Sigurðsson verksmiðjustjóri
vetur, sumarVOR
og haust
FljúgiÓ utan i vor
.
■.'í-.ííí?.:
i'Vyfiýý:
.
Á öllum árstímum býður Flugfélagið yður
tíðustu, fljótustu og þaögilegustu ferðirnar
og hagstæðustu kjörin með þotuflugi til
Evrópulanda.
Nú er tími vorfargjaldanna. Venjuleg far-
gjöld lækka um þriðjung til helztu stór-
borga Evrópu.
Það borgar sig að fljúga með Flugfélaginu
Hvergi ódýrari fargjöld.
ÞJÓNUSTA - HRAÐI - ÞÆGINDI