Tíminn - 26.04.1972, Síða 3
Miðvikudagur 26. april 1972
TÍMINN
3
FLOKKSINS SLITIÐ
Skólanefnd og nýútskrifaðir nemenduri vinstri Knslinn r’etursson,. Sigurður Jakobsson,
Felagsmálaskólans. Skólanefndin sitjandi, talið frá Magnús Kristinsson, Egill Thorarensen, Þorvaldur
vinstri, Björn Björnsson, Eiríkur Tómasson og Jón Hafberg, Arni Ómar Bentsson, A myndina vantar
Sveinsson. Standandi eru útskrifaðir nemendur frá| Finnbjörn Bjarnason.
FÉLAGSMÁLASKÓLA FRAMSÓKNAR-
ÞÓ-Reykjavík
Félagsmálaskóla Fram-
sóknarflokksins var slitið á
mánudagskvöldið að Hótel Esju.
Skólanum sléit Eirikur
Tómasson, einn af skólanefndar-
mönnum. I upphafi máls sins
sagði Eirikur, að hann, Jón
Sveinsson og Björn Björnsson
hefðu verið kjörnir til að sjá um
skólahaldið i vetur. Sagði
Eirikur, að þeir hefðu tekið þetta
að sér með nokkurri tregðu
i fyrstu þar sem
Jónatan Þórmundsson hefði
stjórnað skólanum svo einstak-
lega vel áður. En fyrir hvatningu
Jónatans m.a. tóku þeiríélagar
skólastjórnina að sér.
Skólahaldið byrjaði mánu-
daginn S.nóvember og voru fundir
haldnir á mánudagskvöldum.
Fyrrihluta vetrar var kennd
fundarsköp og ræðumennska, en
siðari hlutann var kynning á
hinum ýmsu þjóðfélagsmálum
og i þvi sambandi heimsóttu
margir þekktir menn skólann,
fluttu erindi um mörg þau mál,
sem ofarlega eru á baugi og
svffruðu fyrirspurnum. Nú siðast
heimsótti forsætisráðherra,
Ólafur Jóhannesson skólann,
ræddi hann um stjórnmálavið-
horfið og á eftir svaraði hann
fyrirspurnum.
Alls munu um 50 manns hafa
sótt skólann i vetur, en út-
skrifaðir voru 7.
Frá skólaslitum Félagsmálaskóla Framsóknar-1 sóknarflokksins, Tómas Arnason, gjaldkera
flokksins. 1 ræðustól er Eirikur Tómasson. Við borðið Framsóknarflokksins og Steingrfm Hermannsson,
má sjá Halldór E. Sigurðsson, fjármálaráðherra, 1 ritara Framsóknarflokksins.
Þráinn Valdimarsson, framkvæmdastjóra Fram-[ (Timamyndir___Gunnar)
1710 félagar í Starfs-
mannafélagi ríkisstofnana
KJ-Reykjavik
Aðalfundur Starfsmannafél-
ags rikisstofnana var haldinn
13.april og var Einar Ólafsson
útsölustjóri endurkjörinn for-
maður.
1 skýrslu stjórnar kom m.a.
fram, að haldnir voru þrir
fræðslufundir fyrir trúnaðar-
menn á siðasta starfsári, sem
stóðu yfir frá einum upp i þrjá
daga. Merkur áfangi i baráttu
félagsins náðist með tilkomu
orlofs- og menningarmið-
stöðvarinnar að Munaðarnesi
og styrkir það mjög aðstöðu
félagsins til aö efla hvers-
konar fræðslustarfsemi.
Alls eru nú skráðir 1710
félagsmenn.
Stjórn félagsins var sjálf-
kjörin fyrir næsta kjörtima-
bil:
Með Einari eru i aðalstjórn
þau Sigurður Ó. Helgason,
Tollstjóraskrifstofunni, Guð-
mundur Sigþórsson Innkaupa-
stofnun rikisins, Agúst Guð-
mundsson, Landmælingum,
Helga Ivarsdóttir
Landspitalanum, Ólafur
Jóhannesson Veðurstofunni og
Einar Stefánsson Vita og
Hafnarmálaskrifstofunni.
A fundinum voru m.a. sam-
þykktar ályktanir, þar sem
fagnað er endurskoðun laga
um samningsrétt opinberra
starfsmanna, Fordæmdur er
úrskurður meirihluta Kjara-
dóms I launadeilu heildarsam-
takanna við fjármálaráð-
herra. Lögð er áherzla á
endurskoðun starfsmats-
kerfisins og mótmælt er harð-
lega þeim drætti, sem orðið
hefur á endanlegri röðun
starfsmanna i launaflokka.
Fagnað er nýju orlofslögunum
og lögð er áherzla á, að komið
verði á skipulagðri starfs-
hæfingu og félagsmála-
fræðslu, til að mæta á hag-
kvæman hátt kröfum nýs tima
um breytta starfsháttu. Auk
þess voru samþykktar
ályktanir um lifeyrissjóð og
lifeyrisréttindi opinberra
starfsmanna.
Einar Ólafsson.
SUMARIÐ KOMIÐ
Á NESKAUPSTAÐ
19 stiga hiti í fyrradag —
Bátar þaðan fiska mjög vel
BG-Neskaupstað.
Sumarveðrátta hefur verið á
Neskaupstað siðustu daga, og i
fyrradag komst hitinn upp I 19
stig I forsælu, sem er einstakt á
þessum árstima. Eldri menn
segja að þeir muni ekki slikan
góðviðriskafla i annan tima.
Jörð er orðin marauð og er
unnið að öllum framkvæmdum,
eins og hásumar væri. Mikil aur-
bleyta er á veginum um Odds-
'karð, og þessa stundina er hann
lokaður öllum bifreiðum nema
jeppum.
Aflabrögð Noröfjarðarbáta
hafa veriö mjög góð undanfarið.
Smábátar, sem reyndu fyrir sér
með linu i góðviðrinu um daginn,
hafa rótfiskað. Þeir hafa fengiö
allt upp i 1,5 tonn á 5 bjóð, og
þykir einstakt á þessum árstima.
Það mun vera langt siðan
smábátar hafa hafið róðra jafn
snemma. Gifurlegur fjöldi trillu-
báta mun róa frá Neskaupstað I
sumar og eru menn nú i óða önn
að búa trillurnar til róðra.
Skuttogarinn Barði landaði 112
lestum af fiski i fyrradag eftir 5
daga útivist. í gær lönduðu hér
netabátarnir Sveinn Svein-
björnsson, sem var með 60 lestir
og Björg með 20 lestir. Þessir
tveir netabátar hafa fengið um
400 lestir hvor, en þess má geta aö
Sveinn stundaöi loðnuveiðar fyrst
I stað. Togbáturinn Birtingur
landaði 45 lestum af fiski fyrir
helgina.
Miklar skipakomur hafa veriö
hér undanfariö, og bæði til að
lesta og losa.
ALLTMEIRAOG MINNA
BR0TIÐ 0G BRAMLAÐ
EFTIR HELGARNAR
segja eigendur húsanna á horni Nóatúnsog Laugavegar
Kl.p-Reykjavfk
A sunnudaginn sá vegfarandi,
sem leiö átti um Nóatún, hvar
nokkrir strákar voru aö leika sér
aö þvf aö brjóta rúöur I húsi
Trésm. Vfðis á horni Nóatúns og
Laugarvegs. Káiiaöi hann á lög-
regluna og kom hún fljótiega á
staðinn, en þá hlupu strákarnir I
allar áttir og iögreglan náöi
engum þeirra.
Við höfðum samband við
Guðmund Guðmundsson eiganda
hússins, og sagöi hann okkur, að
um þessa helgi hefðu veriö
brotnar 6 rúður i húsinu.
— Þetta er orðið stórt vanda-
mál hjá okkur. Það eru brotnar
hér rúður um flestar helgar og
aldrei næst i nokkurn mann. Þó
að þaö hafi verið einhverjir smá-
krakkar, sem gerðu það i þetta
sinn, eru það nú samt yfirleitt
eldri krakkar, sem gera þetta.
Þessir hafa sjálfsagt séð brotnar
rúður þegar þeir komu að húsinu,
og hafa þvi bara haldið þvi
áfram. Þetta hefur versnað um
allan helming siðan Glaumbær
brann, hver svo sem ástæðan er
fyrir þvi.
Þeir hjá Mjólkurfélagi Reykja-
vikur, sem eru i sambyggðu húsi
við Viði, sögðu okkur, að það væri
orðin hreinasta plága, hve mikið
væri brotið og illa gengið um viö
húsið eftir helgar. Stundum hefði
aðkoman verið herfileg og væri
þetta ekkert að lagast.
Þarna væri stundum allt i gler-
brotum eftir nóttina og andyrið
angaði eins og i gömlu náðhúsi.
Það ráð hefur verið tekið að setja
rimlahliö fyrir andyrið en það
fengi ekki einu sinni að vera i
friði, þó rammbyggt væri, frekar
en svo margt annaö á þessum
slóðum.
Hlanforir tungunnar?
Óhætt er að fullyrða, aö fáir
veröa fyrir meira hnjaski I starfi,
en blaðamenn, og fárra starf mun
vera ótryggara einkum þar sem
pólitiskar skyndisólir eru látnar
hafa forra'ö yfir þeim, eöa
duttlungar einir eru látnir ráöa
mati á hæfni og starfsgetu hins
hraðvirka hóps. Auk þess liggur
þessi hópur undir gagnrýni,
einstaklinga utan úr bæ, ef svo
má aö oröi komast, ýmist fyrir
sjónarmiö eöa meöferö málsins,
og fræg eru þau orö helzta
frammámanns landsins I bók-
menntum, sem I viötali lýsti þvl
yfir, aö blööin væru yfirleitt full
af ómerkilegum og illa skrifuöum
greinum — einskonar hlanforir
tungunnar, þótt ekki væru þaö orö
mannsins.
Burtséö frá þejisu eru svo að
berast fréttir utan úr heimi, sem
sýna, aö yfirleitt búa blaðamenn
hvarvetna undir sama hripleka
þakinu. Formaöur blaðamanna-
félagsins I Tékkóslóvaklu,
Valenta aö nafni, hefur lýst þvl
yfir, og væntanlega fullur stolts,
aö nú sé búiö aö reka 265 hægri-
menn úr blaðamannafélaginu,
allar götur slðan Dubcek var viö
völd. Nærtækari hreinsanir án
skýringa hafa átt sér staö.
Eölilegt er, að Blaöamanna-
félag tslands gef.i gaum þeirri
veiku stööu, starfslega séö, sem
blaöamcnn eru f á hvcrjum tlma.
Þaö gerir nú kröfu um rökstudda
skilgreiningu á ástæðum fyrir
uppsögnum og hótar að beita
höröu, verði ekki staðið þannig að
þessum hlutum, að mann-
sæmandi og viðunandi sé. Þessu
til grundvallar liggur, að blaða-
mennskan er ekki fag I þeirrl
veru, sem nýtur löggildingar á
borð við þau, sem ástunduð eru I
iðnaði og öðrum viðurkenndum
greinum innan verkalýðssam-
takanna. Félagið hefur þvi ekki
annaö aO lcita en mn á við eftir
þeirri samstööu sem veitir þvl
styrk gegn ofriki.
Blaðamenn og starfsmenn
annarra fjölmiðla hafa vaxandi
skyldum að gegna við almenning.
Leitað er á almennan markað og
rekstur þessara stofnana byggist
á viðskiptum við almenning.
Þetta er þvf ekki lengur
spurning um að reka 265 hægri
menn úr þessu blaðamanna-
félaginu eða hinu, eða ástundun
hópuppsagna á einstökum
blöðum, heldur spurning um það
hvernig starfshópur eins og
blaöamenn rækja skyldur sfnar
við hinn almenna borgara. Það
atriði stendur raunar öliu ofar I
þessu hvikula starfi — hitt getur
svo verið gamanmál, hvort blöð
t.d. séu meiri hlanforir tungunnar
nú eða i þá tfð, þegar skrif þelrra
byggðust að einum hluta a
pcrsónulegu nlði um verulega og
imyndaða andstæðinga.
Svarthöfði.