Tíminn - 30.04.1972, Qupperneq 5
Sunnudagur 30. april 1972
TÍMINN
,3 ■
1. maí ávarp Alþjóðasambands frjálsra
verkalýðsfélaga
1972
Verkafólk um viða veröld!
A alþjóðlegum baráttudegi
verkalýðsins 1. mai kallar Al-
þjóðasamband frjálsra verka-
lýðsfélaga ykkur enn á ný til
baráttunnar fyrir réttlæti og
virðingu hinum vinnandi
manni til handa. I þessari bar-
áttu verðum við að sameinast
og tengja krafta okkar yfir
landamærin til hjálpar hinum
veiku og kúguðu.
Andstæðingar vorir láta
ekki landamæri hindra at-
hafnir sinar — við verðum að
mæta þeim á alþjóðlegum
vettvangi brynjaðir hug-
sjónum okkar og órofa sam-
heldni. Við höfnum grund-
vallarreglum, sem byggðar
eru á eigingirni, gróöafikn og
arðráni annarra. Einkunnar-
orðin: „Hver er sjálfum sér
næstur”, eru ekki okkar kjör-
orð. Að undanförnu hefur unga
fólkið sýnt æ greinilegar hvar i
sveit það vill skipa sér. Æskan
gengur i lið með okkur i bar-
áttunni fyrir nýju þjóðfélagi,
þjóðfélagi, sem okkur finnst
við eiga hlutdeild i — þjóð-
félagi, þar sem réttlæti,
bræðralag og félagsleg gildi
eru hafin til vegs, — ekki
auður, óhóf og forréttindi, né
nokkur maður beygður undir
þvingandi kúgunarvald skrif-
finnskualræðis. Auðvaldsöflin
eru sterk, rikisauðvaldsöflin
eru sterkari, en við erum
ákveðin i að reka þau á undan-
hald skref fyrir skref, unz viö
höfum unnið verkamanninum
rétt til að móta nýjan og rétt-
látari heim.
1. mai i ár, lýsum við yfir at-
vinnulýðræði sem markmiði
okkar, rétti vinnandi fólks til
að hafa hönd i bagga um allar
þær ákvarðanir, sem bein
áhrif hafa á afkomu þess.
Leiðirnar að þessu marki eru
margar, farartálmarnir
einnig. En verkalýðsfélögin
eru staðráðin i aö gera at-
vinnulýðræði að veruleika.
Þau krefjast meðákvöröunar-
réttar i fyrirtækjunum, i þjóð-
félaginu og á alþjóðavett-
vangi. Til þess að þessar
kröfur náist fram þarf ÞINA
liðveizlu.
Við okkur blasa verkefni,
sem krefjast afstööu af okkar
hálfu: Pólitisk kúgun og ein-
ræði, tillitsleysi til almennra
mannréttinda og réttar verka-
lýðsfélaga, kynþátta undirok-
un eins og hún er iðkuð i ýms-
um hlutum heims og sérstak-
lega af minnihlutastjórn S-
Afriku i eigin löndum og i
Namibiu, djúpið, sem staðfest
er milli rikra og fátækra, milli
stétta eða þjóða, hinar brýnu
kröfur þriðja heimsins, þörfin
fyrir varanlegan frið og af-
vopnun. Þessi verkefni og við-
brögð hinnar frjálsu verka-
lýðshreyfingar við þeim,
verða meginverkefni 10.
heimsþings ICFTU nú i
sumar. Lausnir þessara verk-
efna verða uppistaðan i stefnu
okkar og kröfugerð i framtið-
inni.
Við vitum að þessar kröfur
munu mæta andstöðu atvinnu-
rekenda, rikisstjórna, hags-
munahópa. Baráttan verður
hörð, hún mun krefjast fórna.
Til að efla styrkleika okkar
verðum við aö skipuleggja þá,
sem enn standa utan samtaka.
Ef þú ert félagi i frjálsu
verkalýðsfélagi, minnstu þá I
dag þeirra sem áunnu þér
þessi réttindi, ef þú býrö viö
harðstjórn og átt i baráttu
fyrir þessum réttindum,
mundu aö ICFTU stendur þér
við hlið. Alþjóðleg samheldni
þýðir, að við verðum að hjálpa
hvert öðru — gerum þetta að
kjörorði voru 1. mai.
1. maí ávarp B.S.R.B.
Stjórn Bandalags starfs-
manna rikis og bæja sendir
öllum launamönnum kveðjur
og heillaóskir á hátiðis- og
baráttudegi launþega.
Brýnasta mál opinberra
starfsmanna er, að þeir fái
fullan samningsrétt til jafns
við aðra og afnám lögskipaðs
gerðardóms i kjaramálum.
Enn er þaö jafn brýnt verk-
efni og áður fyrir launþega-
samtökin að tryggja við-
unandi lágmarkslaun. Þau
skref, sem stigin hafa verið i
þeim efnum, ná of skammt.Tíl
þess að von sé um nægilegan
árangur i þessu lifshagsmuna-
máli, verður að taka upp nýjar
baráttuaðferðir með samstöðu
allra launþegasamtaka.
Opinberir starfsmenn
leggja áherzlu á, að ekki verði
hvikað frá verðtryggingu
launa og greiðslu fullrar
verðlagsuppbótar.
Yfir þjóðina velta nú
stöðugar verðlagshækkanir,
eins og fyrirsjáanlegt var,
þegar verðstöðvun lyki.
Ný úrræði verður að reyna
til þess að stöðva verðbólgu-
þróunina. Stjórn B.S.R.B.
hefur áður bent á það úrræði,
að allar peningalegar til-
færslur, skuldir og innstæöur,
laun og vextir verði tengdir
réttri visitölu, en gengið gefið
að mestu leyti frjálst.
Stjórn B.S.R.B. itrekar hér
með fyrri ábendingar sinar i
þessu efni og telur óverjandi
að ekki séu reyndar nýjar
leiðir i efnahagsmálum, þegar
óöfluga virðist stefna að enn
einni gengislækkun til stór-
tjóns fyrir allan almenning.
Opinberir starfsmenn
leggja ennfremur áherzlu á:
að öllum starfsmönnum verði
tryggð aöild að lifeyris-
sjóðum og eftirlaunarétti og
komið veröi á verötryggingu
allra lifeyrissjóða,
að komið verði á hagstofnun
launþega,
að við endurskoðun á skatta-
kerfinu veröi þess gætt, að
skattar komi réttlátlegar
niður en nú er og til að
tryggja slikt betur verði
skatteftirlit hert og komið i
veg fyrir undandrátt,
að stjórnvöld og samtök opin-
berra starfsmanna geri
sameiginlegt átak til aö
koma á skipulagöri starfs-
hæfingu og félagsmála-
fræðslu til að mæta á hag-
kvæman hátt kröfum nýs
tima um breytta starfs-
háttu.
Stjórn Banda','.gs starfs-
manna rikis og bæja telur, að
launþegasamtökin verði sifellt
að leita nýrra leiða i kjarabar-
áttunni i samræmi við
breyttar aðstæður og þjóð-
félagshætti og að samstarf og
samstaða allra launþega-
samtaka sé alger forsenda
fyrir árangri i baráttunni fyrir
bættum lifskjörum.
Ávarp 1. maí nefndar verkalýðsfélaganna
í Hafnarfirði
tslenzk verkalýðshreyfing
treystir samtök sin 1. mai i ör-
uggri vissu þess og vitund að
grundvöllur allra kjarabóta,
allrar sóknar samtakanna
byggist á þvi að samtökin séu
vakandi, heilsteypt og sterk.
A þessum vordegi er ís-
lenzka þjóðin stödd á örlaga-
stundu, útfærsla landhelginn-
ar i 50 milur verður orðin stað-
reynd að fjórum mánuðum
liðnum.
Verður þar að veruleika
krafa verkalýðssamtakanna
og reyndar þjóðarinnar allrar.
Þjóðarnauðsyn krefst þess-
ara aðgerða, þar sem fiski-
miðin eru þýöingarmestu auð-
lindirnar sem Islendingar
hafa til lifsbjargar.
Þvi hlýtur verkalýös-
hreyfingin að gera útfærslu
landhelginnar i 50 sjómilur að
aðalefni á hátiðarhöldum sin-
um 1. mai 1972.
Fyrsti mai er baráttudagur,
skal þess minnst nú, að tvær
meginkröfur verkalýðsins,
sem settar hafa verið fram og
barist fyrir á undanförnum
árum þ.e. stytting vinnuvik-
unnar i 40 klukkustundir og
mánaðarorlof, hafa nú náö
fram að ganga.
Er rikisstjórninni þökkuð
framganga hennar fyrir þvi,að
svo skuli hafa tekist til en
jafnhliða skal hún minnt á
fyrirheit sin um 20% kaup-
máttaraukningu.
Krefjast veröur þess, að
verðhækkunarskriöan veröi
stöðvuð og allar hækkanir á
lifsnauðsynjum almennings
bannaðar.
Hafnfirzk alþýða.
Fram til baráttu.
Aðvörun um stöðvun
atvinnurekstrar vegna
vanskila á söluskatti
Samkvæmt kröfu tollstjórans i Reykjavik
og heimild i lögum nr. 10, 22. marz 1960,
verður atvinnurekstur þeirra fyrirtækja
hér i umdæminu, sem enn skulda sölu-
skatt fyrir janúar og febrúar s.l., og nýá-
lagðan söluskattfrá fyrri tima, stöðvaður,
þar til þau hafa gert full skil á hinum van-
greiddu gjöldum ásamt áföllnum dráttar-
vöxtum og kostnaði. Þeir, sem vilja kom-
ast hjá stöðvun, verða að gera full skil nú
þegar til tollstjóraskrifstofunnar við
Tryggvagötu.
Lögreglustjórinn i Reykjavik, 28. april
1972.
Sigurjón Sigurðsson.
ísl. verkalýðsfálögin styðja
þýzka verkalýðssambandið
Eftirfarandi simskeyti var sent
föstudaginn 28. april til Þýzka
Verkalýðssambandsins:
„Það er sameiginleg ósk verka-
fólks um allan heim.að dregið
verði úr spennu og viðsjám rikja
FERMINGAR
Langholtskirkja
Fermingarbörn sunnudaginn 30. april kl. 10:30.
Asta Björk Rikharðsdóttir, Nökkvavogi 28
Rlinbet Rögnvaldsdóttir, Langholtsvegi 104
Ingibjörg Loftsdóttir, Alfheimum 58
Kristln Astþórsdóttir, Efstasundi 17
Linda Hrönn Rikarðsdóttir, Nökkvavogi 28
Sofia Kristln Siguröardóttir, Rauöageröi 14
Súsanna Helen Daviösdóttir, Einarsnesi 20
Arni Hrafnsson, Alfheimum 66
Björgvin ómar Glslason, Alfheimum 19
Guöbjörn Sigvaldason, Skipasundi 12
Guöjón Þór Rafnsson, Ljósheimum 14
Halldór Lórus Pétursson, Gnoöarvogi 42
Hjalti Eggertsson, Langholtsvegi 103
Ingólfur Kristinsson, Sólheimum 40
Magnús Bergmann Magnússon, Þórufelli 8
Pétur Astvaldsson, Efstasundi 86
Sigmundur GuÖmar Sigurjónsson, Alfheimum 32
Sigurgeir Vagnsson, Eyjabakka 16
Þorleifur Siguröur Asgeirsson, Safamýri 34
Þorsteinn Grétar Hjartarson, Goöheimum 2
Þórir Barödal, Rauöalæk 59
Þórir Kristján Flosason, Ljósheimum 20
Altarisganga miövikudaginn kl. 20:30
i milli, jafnframt að óska vin-
samlegri og nánari samskipta
þjóða.
Vér undirritaöir viljum þvi per-
sónulega lýsa yfir eindregnum
stuðningi viö vestur-þýzk verka-
lýðssamtök,sem vinna að þvi að
samningar þeir, sem núverandi
rikisstjórn V-Þýzkalands hefur
gert við Austur-Evrópurikin,
Sovétrikin og Polland, verði
endanlega staöfestir.
Með sáttarkveðju.
Björn Jónsson, forseti Alþýöu-
samb. tslands
Snorri Jónsson, framkvstj.
Alþýðusamb. tslands
Eövarð Sigurðsson form.
Verkamannasamb. tsl.
Benedikt Daviðsson form.
Sambands byggingam.
Jón Sigurösson form. Sjó-
mannasambands Isl.
Einar ögmundsson form.
Landssamb. vörubifrstj.
Magnús Geirsson form.
Rafiðnaöarsambands tsl.
Þórólfur Danielsson form. Hins
isl. prentarafélags
Guöjón Jónsson varaform.
Málm-og Skipasmiðasamb. tsl.”
Tvöfaldazt
Framhald
af bis. 20.
legt aö öllum félagsmönnum I
samvinnuféllögunum yrði gefinn
kostur á að gerast hluthafar i
bankanum.
Endurkjörnir voru I bankaráð
þeir Erlendur Einarsson forst.,
formaöur, Hjörtur Hjartar
frkv.stj., varaform, og Vilhjálm-
ur Jónsson frkv.stj., og til vara
Asgeir Magnússon frkv.stj.,
Hjalti Pálsson frkv.stj. og Ingólf-
ur ólafsson kf.stj.
Endurskoðendur voru kjörnir
þeir óskar Jónatansson aðalb. og
Magnús Kristjánsson fyrrv.kfstj.
Hálínað
•rvtrk
þáhafiii
SamrinnnhtnkhHi