Tíminn - 30.04.1972, Qupperneq 20
Frá aöalfundinum á fimmtudagskvöldiö. Ev. bankaráðsmennirnir Vilhjálmur Jónsson og Hjörtur
Hjartar. Kristleifur Jónsson bankastjóri I ræðustól, þá Erlendur Einarsson bankaráðsformaður og
Asgeir Magnússon fundarstjóri. (Tfmamynd G.E.)
Frá aðalfundi Samvinnubankans:
Heildarinnlán i Samvinnubank-
anum námu i árslok 1971 1041
m.kr. og nam innlánsaukningin
190 millj. kr. á árinu eða 22.3%.
Heildarútlán bankans jukust um
156 millj. kr. á árinu og námu 827
milij. i árslok. Lausafjárstaöa
bankans hélzt góð allt árið, og
námu innstæður viö Seölabank-
ann 208 millj. um áramótin, þar
af 193 millj. á bundnum reikningi.
Fjármagnsstreymi gegnum
bankann jókst um 43.5% nam 18.5
milljöröum. Viðskiptareikning-
um fjölgaöi um 3100 og voru umm
31000 talsins i árslok.
Rekstursafkoma bankans varð
svipuö og áriö á undan. Tekjuaf-
gangur til ráöstöfunar nam 3.601
þús. kr., til afskrita var variö
1.295 þús. kr., en í sjóöi voru lagö-
ar 2.305 þ. kr. Eigiö fé bankans
nam 25.978 þús. I árslok.
Samþykkt var á fundinum aö
koma á fót Stofnlánadeild sam-
vinnufélaga við bankann, en
stjórnarfrumvarp um þaö efni
liggur nú fyrir Alþingi. Hlutverk
hennar veröur aö veita sam-
Heildarinnstæður hafa tvöfaldazt
á s.l. árum og eru nú 1041 millj.
Aöalfundur Samvinnubankans
var haldinn i Sambandshúsinu,
Reykjavík, fimmtudaginn 27.
april sl. Fundarstjóri var kjörinn
Asgeir Magnússon frkv.stj., en
fundarritari Pétur Erlendsson
skrifstj.
Formaöur bankaráös,
Erlendur Einarsson forstjóri,
flutti skýrslu um starfsemi bank-
ans, hag hans og afkomu á árinu
1971, og rakti nokkuð þróun efna-
hagsmála almennt. Kom þar
fram aö mjög aukin umsvif eru i
allri starfsemi bankans. Innstæö-
ur I bánkanum hafa meir en tvö-
faldazt á sl. 3 árum, þær hafa
vaxiö úr 501 millj. kr. i 1041 millj.
kr., eöa um 540 millj. (108%).
Innlánsaukningin á sl. ári nam
190 millj. kr. A árinu var gengiö
frá kaupum bankans á fasteign-
inni Bankastræti 7, ásamt lóðar-
réttindum fyrir nýbyggingu. Eitt
útibú var stofnaö á árinu,- Háa-
leitisútibú, sem er 11. útibú bank-
ans, en þaö fyrsta i Reykjavik. A
miöju sl. ári lét Einar Agústsson
bankastjóri af störfum viö bank-
ann, er hann tók viö ráöherra-
embætti, en hann hafði veitt
bankanum, og þar áður Sam-
vinnusparisjóönum, forstööu i
samfellt 15 ár, og voru honum
færðar sérstakar þakkir fyrir
langt og heilladrjúgt starf. Þá
voru ennfremur bornar fram
þakkir til Halldórs E. Sigurösson-
aralþ.m., sem veriö haföi kjörinn
endurskoöandi bankans allt frá
stofnun hans, og sem látið hafði af
störfum á árinu.
Kristleifur Jónsson banakstjori
lagði fram endurskoðaöa árs-
reikninga bankans og skýröi þá.
vinnufélögunum stofnlán til
verzlunarhúsabygginga o.fl.
Akveðin vará fúndinum heimild
til handa bankaráði um aö auka
hlutafé Samvinnubankans i allt
aö 100 millj. kr., og taliö æskilegt
aö öllum félagsmönnum I sam-
vinnufélögunum yröi gefinn kost-
ur á aö gerast hluthafar I bankan-
um.
Akveöin var á fundinum heim-
ild til handa bankaráöi um aö
auka hlutafé Samvinnubankans I
allt að 100 millj. kr., og taliö æski-
Frh. á bls.5
Sunnudagur 30. april 1972
Enn fór
rafmagnið
SB—Reykjavik
Norðanrokið I Reykjavik i
fyrrinóít náði yfir 10 vind-
stigum i verstu hryðjunum.
Miklar skemmdir uröu viða
á húsum, er þakplötur tók af
og rúður brotnuðu. Sömu
sögu er að segja úr Kópa-
bogi. Engin slys urðu þó á
fólki. Rafmagnið fór af,
vegna skemmda i spenni-
stöðinni við Geitháis.
Einna mestar munu
skemmdirnar hafa orðið á
Tónabæ, en þar fuku margar
plöturaf þakinu. Einnig fuku
plötur af Flugfrakt á Sölv-
hólsgötu, hjá Agli
Vilhjálmssyni og af tré-
smiðaverkstæði Mjólkur-
samsölunnar og lenti ein
þeirra inni i svefnherbergi
hjóna i Skipholti. Rúður
brotnuðu i Bókhlöðunni, Miö-
bæjarmarkaðnum og Veð-
deild Landsbankans og
timbur fauk á bil við Mýrar-
götu og stórskemmdi hann.
Um fimmleytiö i gær-
morgun fór rafmagnið af
Reykjavik og nágrenni
vegna bilunar við Geitháls.
Þegar gripa átti til varateina
þar, vann rokið einnig á
þeim. Rafmagnsleysið varði
i rúma tvo tima.
.i.
Fáum nú sendingu af girðingarefni
með hverju skipi.
Þegar komið:
Túngirðingarnet5 og 6 strengja, ýmsar
gerðir.
Gaddavír ,,MOTTO". Lóðagirðingar-
net. Hænsnanet-múrhúðunarnet. Verk-
smiðjugirðingarnet. Minka og refanet.
Járnstaurar. Tréstaurar.
Á leið til landsins:
BEKAERT túngirðinganet með
slönguhnút, 6 strengja.
Fjölbreytt úrval af plasthúðuðum net-
um fyrir skrúðgarða o.fl.
Ýmsar gerðir og stærðir.
Finnskir tréstaurar.
m
MJÓLKURFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Símar: 11125 11130