Tíminn - 07.05.1972, Blaðsíða 1
IGNIS
KÆLISKÁPAR
RAFTORG
SÍMI: 26660
RAFIÐJAN
SIMI: 19294
Heildarafli
landsmanna 98
þús. lestum
meiri en í fyrra
ÞÓ-Reykjavík.
Heildarafli landsmanna fyrstu
þrjá mánuði ársins varð alls
482.121 lest, og er það rúmum 98
þús. tonnum meira en fyrstu þrjá
mánuðina 1971, en þá var hann
383.790 lestir. Það sem kemur
aflanum svona mikið upp á við, er
hinn mikli loðnuafli i vetur.
Heildarbolfiskaflinn var á
þessu timabili 180.774 tonn, á móti
176,492 þús. tonnum i fyrra.
Rækjuaflinn var 2371 lest, en var
fyrstu þrjá mánuðina i fyrra 3273
lestir.
115 fórust
í flugslysi
NTB-Palermo
115 manns fórust, er itölsk far-
þegaflugvél rakst á fjall skömmu
áður en hún átti að lenda á flug-
vellinum við Palermo á Sikiley.
Eldblossar sáust, og sprenging
heyrðist i margra kilómetra fjar-
lægð frá slysstaðnum, þegar flug-
vélin le'nti á fjallinu. Vélin, sem
var af gerðinni DC-8 var á leið frá
Róm til Palermo. Allir tiltækir
læknar og sjúkrabilar i borginni
voru fluttir áleiðis á slysstaðinn
aðfararnótt laugardags, en
brakið er dreift á stóru svæði, og
er ekki reiknað með að neinn hafi
komizt lifs af. Allir i flugvélinni
voru Italir, nema ein flugfreyjany
sem var belgisk.
Fischer samþykkir
Loks virðist útséð um að allt
heimsméistaraeinvígið verði haldið
í Reykjavík og hefjist 2. júlí
ÞÓ-Reykjavik
Bandariski skák-
snillingurinn Robert
Fischer tilkynnti i
gærmorgun, að hann
ætlaði sér að tefla ein-
vigið um heims-
meistaratitilinn i skák
við Boris Spassky i
Reykjavik. Paul
Marshall, lögfræðing-
ur Fischers, sendi
þessa tilkynningu til
Reuters fréttastof-
unnar.
Þegar við höfðum
samband við Guð-
mund G. Þórarinsson,
forseta Skáksam-
bands íslands, sagði
hann, að engin til-
kynning hefði enn
borizt frá Alþjóða-
skáksambandinu i
Amsterdam, en hann
átti von á staðfesting-
unni þaðan.
Guðmundur sagði, að nú
væri liðið meira en ár, síðan
farið hefði verið að ræða um
að halda einhvern hluta
heimsmeistareinvigisins hér á
landi. Það var i febrúar 1971,
að rætt var um að halda ein-
hvern hluta kandidatakeppn
innar hér, en sem kunnugt er
varð ekkert úr þvi. Svo var
það i september s.l., að farið
var að ræða þann möguleika
að halda heimsmeistareinvig-
ið hérlendis. Siðan hefur geng-
ið á ýmsu, miklar og flóknar
samningaviðræður hafa átt
sér stað, eins og t.d. sam-
komulagið Belgrad-Reykja-
vik, sem fór út um þúfur, en nú
virðist málið vera komið i ör-
ugga höfn.
Að lokum sagði Guömundur,
að margvislegur undirbúning-
ur væri nð framundan, og þar
væri að finna erfiðleika, en á
þeim yrði aö sigrast.
Gert er ráð fyrir, að einvigið
milli þeirra Spasskys og
Fischers hefjist i Reykjavik 2.
júli næstkomandi, og verður
teflt þriðja hvern dag. Ef allar
24 skákirnar verða tefldar,
mun einvigið standa langt
fram i ágúst.
Yfir grindina
Það er að verða æ
algengara að islenzkir
hestar hérlendis séu
þjálfaðir i alls konar
þrautum, s.s. að stökkva yfir
grindur. Myndin var tekin i
Mosfellssveit á föstudags-
kvöldið, þegar verið var að
þjálfa hesta þar i allskonar
þrautum. (Timamynd
Gunnar)
Framkvæmdaáætlun 1972:
Hækkar um 1244
EB-Reykjavik.
Iteildarf járhæð framkvæmda-
áætlunar fyrir þetta ár nemur 2.
milljörðum 22 millj. kr., en
hcildarfjárhæð áætlunarinnar i
fyrra nam 778 milljónum kr., og
er hér um 160% hækkun að krónu-
tölu að ræða, en miðað við al-
menna verðhækkun fjármuna-
myndunar milli áranna er
hækkunin allt að 130% að raun-
gildi.
Kemur þetta fram i skýrslu
fjármálaráðherra um fram-
kvæmda- og fjáröflunaráætlun
þess opinbera fyrir þetta ár, sem
iögð var fram á Alþingi á föstu-
daginn. Segir i skýrslunni, að
þessi samanburður hafi þó litla
raunhæfa þýðingu, þar sem
áætlunin sjálf nái ekki yfir nema
hluta lánsfjáröflunar til opin-
berra framkvæmda og fjár-
festingarlánasjóða. Áætlunin
sjálf nemi nú mun meiri hluta af
þessari heild, eða 56% á móti 30%
Mörg
fordæmi
um
seinkun
skattskrár
i fyrra árs áætlun, eða 27% i
reynd árið 1971. Heildarlánsfjár-
öflunin muni samkvæmt áætlun
hækka um 25% frá reynd fyrra
árs. Eða úr 2.887 milljónum kr. i
3.605 milljónir króna. — Að visu
má búast við, að einhverjar lán-
tökur eigi eftir að koma til skila
siðar á árinu, sbr. hækkun á sið-
asta ári úr 2.572 millj. kr. sam-
kvæmt áætlun i 2.887 milljónir
króna, segir i skýrslunni. Enn-
fremur segir þar:
„Innan ramma áætlunarinnar
sjálfrar nemur innlend fjáröflun
1.390 milljónir kr., en erlend 632
milljónir kr. Er hér um að ræða
tvöföldun innlendrar fjáröflunar.
Er ráðgerð mikil aukning á sölu
verðtryggðra spariskirteina, og
verður það fé notað til beggja
deilda áætlunarinnar. Auk 200
millj. kr. útgáfu spariskirteina i
desember s.1., er ráðgérð ný út-
gáfa að fjárhæð 500 milljónir kr.
Ekki er talið fært að leggja meira
Engar kvikmyndasýningar
verða um hvítasunnuna
SJ-Reykjavik.
Engar sýningar verða i kvik-
myndahúsum i þrjá daga um
hvitasunnuna, föstudaginn 19,
laugard. 20. og sunnud. 21.mai.
Ástæðan fyrir þessu er sú, að nú
voru kvikmyndasýningar á skir-
dag, sem til þessa hefur verið fri-
dagur hja sýningarmönnum.
Þann dag hafa þeir haldið aðal-
fund sinn og stundum árshátið.
Hafa þeir nú fengið fri föstudag
fyrir hvitasunnu i staðinn.
Þann dag halda þeir nú fram-
haldsfund og framvegis verða
aðalfundir þeirra og árshátiðir ef
haldnar eru, þann dag. ,,Nú
höfum við fri i þrjá daga um
páska og lika þrjá daga um hvita-
sunnu”, sagði Óskar Steindórsson
formaður Félags sýningarmanna
við kvikmyndahús. „Það er
ágætt, og einnig heppilegt að hafa
aðalfundinn um hvitasunnuna,
þvi að félagið er landsfélag og þá
er hægara fyrir menn utan af
landi að koma i bæinn en um
páska.”
Um 100 manns eru i félagi
sýningarmanna, sem er 26 ára
gamalt.
milljónir
á skuldabréfamarkaðinn, og eru milljónir kr., en á siðasta ári var
þvi til viðbótar ráðgerðar erlend- aðeins áætlað 80 millj. kr. erlent
ar lántökur að fjárhæð 632 lánsfé.”
Ak, Reykjavik-laugardag. — Þar
sem Morgunblaðið flutti þá fregn
i gær að „óhuggulega langt” væri
þar til skattskráin kæmi, og ekki
ijóst.hve það orðalag ættilangan
drátt fram yfir lögákveðinn tima,
20.júni, ef til vill nokkra mánuöi,
sneri Timinn sér til Halldórs
Sigfússonar skattstjóra i Reykja
vik og innti hann eftir þvi,
hvernig horfði með útkomu skatt-
skrárinnar.
Skattstjóri kvaðst ekki geta
nefnt ákveðinn dag i þessu sam-
bandi. Þó væri sýnt, að fram-
lagningu skattskrárinnar mundi
seinka nokkrar vikur frá lögá-
kveðnum tima, en hann væri
20,júni.
Mörg fordæmi eru um það frá
fyrri tið, sagði skattstjóri, að
skattskrá hafi seinkað vegna sið-
búinna löggjafa. Auk þess hafði
flutningur skattstofunnar i nýtt
húsnæði á siðasta hausti truflandi
áhrif á starfsemi stofnunarinnar.