Tíminn - 07.05.1972, Side 2

Tíminn - 07.05.1972, Side 2
2 TÍMINN Sunnudagur 7. mai 1972. Rauði krossinn Ileykjavikurdeild. SUMARDVALIR Þeir, sem að ætla að sækja um sumardval- ir fyrir börn hjá Reykjavikurdeild Rauða kross íslands, komi i skrifstofuna, öldu- götu4, dagana 8. og9. mai kl. 9-12 og 13-18. Tekin verða börn fædd á timabilinu 1. júni 1965 til 1. sept. 1963. Ætlunin er að gefa kost á 6 vikna eða 12 vikna sumardvöld. Stjórn Iteykjavikurdeildar, Rauða kross islands. UTBOÐ Tilboð óskast i smiði og uppsetningu loft- ræsikerfis i stöðvarhús Laxá III við Laxá, S. Þingeyjarsýslu. Útboðsgögn verða afhent gegn 1.000 kr. skilatryggingu á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen s.f., Ármúla 4 og skrifstofu Laxárvirkjunar, Akureyri, frá og með 8. mai. O Verzlunin GELLIR selur v-þýzkar úrvalsvorur frá ITT SCHAUP-LORENZ. Kynnist tæknilega fullkominni framleiðslu. Ferðaviðtæki, segul- bond, STEREO-hljómtæki og sjónvörp. Það borgar sig að kaupa það vandaða. Veitum heiðruðum viðskiptavmum okkar fu11- komna varahluta- og viðgerðaþjonustu. Verzlunin GELLIR Garöastræti 11 simi 20080 „Guð það hentast heimi fann”, að vita sem fæst um framhaldið. Hann hlýtur að hafa sinar ástæð- ur fyrir þvi, eins og hinu, að við munum og vitum flest ekkert eftir þvi, hvað við vorum og hvaöan við komum. Ekki þar fyrir, að hann banni leit og rannsóknir eftir megni manns á þokuslóðum mannlegrar hugsunar. Og allir þeir stærstu og langskyggnustu hafa lifað á mörkum tveggja eöa fleiri ver- alda og horft til allra átta með engla og spámenn að viðmælend- um og til leiösögu. „Timinn er peningar”, segja margir nútimamenn. Og það er aldrei nema satt. En hann er ó- endanlega miklu meira. Timinn er efnið, sem eilifðin er mynduð úr. Hinn frægi og vitri erkibiskup Svia talaði einu sinni á barna- samkomu i litlu fiskiveri. A predikunarstólnum fann hann dá- litið stundaglas. „Hvað minnir stundaglasið ykkur á? ” spurði biskupinn. „Það minnir á dauðann”, svaraöi eitt af börnunum. Þá baö biskupinn einn af drengjunum að koma til sin og snúa glasinu. Og meðan sand- kornin sáldruðust löturhægt nið- ur, flutti hann ógleymanlegt ávarp til barnanna um gildi lifs- ins og komu dauðans og auðlegð eilifðarinnar. Ein setning úr þeirri ræöu má gjarnan komast hér að: „Minúturnar fljúga fram hjá. Fyllum þær eilifð: Tryggð, elsku og gleöi”. Oft er furðulegt, hvernig gott og gáfað fólk getur þráttaö og deilt um Krist og kristindóm, alls kon- ar umbúöir og aukaatriöi, sem hlaöizt hefur um þessa æðstu vizku lifsins á leiðinni gegnum aldirnar. Meira aðsegja Kristur Drottinn sjálfur er dæmdur úr leik af mis- vitrum mönnum vegna einhverra kenninga, sem kirkjuþing og þröngsýnir prelátar löngu liðinna alda hafa lagt honum i munn. Sumir telja hann og lifsskoðun hans bera ábyrgð á grimmdar- æði, ofsóknum, skelfingum og kúgun styrjalda og heimsdrottna. Ekkert er fjarri sanni. En vita skulu menn að meira aö segja „Faðir vorinu” hefur verið snúið upp á djöfulinn- og striö og mann- dráp háö i nafni Krists. Þess vegna verða allir að gæta sin I Stundaglasið Margir tala um himnariki eilifðar, sem taki við eftir likams- dauöann. • Og vissulega eru þar vegir til allra átta samkvæmt kenningum Krists: „Sjá, ég lifi og þér munuð lifa”. „Sjá, ég fer burt aö búa yður stað”. „t húsi mins him- neska föður eru margar ibúðir”. — Fyrirgefið mina þýðingu að orðalagi. En hann sagði lika: „Sjá, himnariki er hið innra i yður”, notið hverja stundina til að skapa það og móta. Gæfuhöllin er sem sagt i eigin barmi, lögð i hendur persónuleikans og er þó hluti hans og timinn er verksvið og verkfæri i senn. Og eilífðin metur verkið og verður mótuð af þvi aö einhverju leyti fyrir hvern einstakling. Mér skilst þvi, að sá, sem gaf lff i þessum heimi, hljóti aö telja það mest og æöst að verja timanum rétt. Og þá þurfum við ekki að hafa, hvorki áhyggjur né vanga- veltur yfir þvi, sem við tekur. myrkviði mannvonzku og fræði- iðkana, sem afvegaleiða — jafn- vel heilaga. Guðsrikið, hugsjón Jesú Krists er frelsiog friður, sem ber ávöxt i kærleika. Það er merkið á hans yfirskrift. „Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá,” sagöi hann sjálfur. Ög það eru ávextirnir, sem stundaglasið þarf að minna á til þroska og efl- ingar. Þar sem ekki er frelsi og friður þar rikir ekki andi Krists og þar er ekki guðsriki, jafnvel þótt það væri i kirkju hans og við- altari hans. Og þar sem frelsi og friður rik- ir, þar er Kristur á ferð og guðs- rikishugsjón hans göfguð, jafn- vel, þótt sú hending tækist, að það væri i borg eða landi, þar sem enginn væri skirður og fermdur og nafn hans hefði aldrei verið nefnt. Kraftur þessa nafns, andi þessa æðsta persónuleika i mann- slikama bæri þar ávexti og hlyti þvi að vera þar að verki i réttri notkun stundanna, timans, sem mannlif er mótað i og mótað af. Kristnir menn, kristnar þjóðir hafa sorglega oft svikið þennan kraft og falsað merki hans yfir aðgerðum sinum og ætlunum. En þrátt fyrir öll mistök og hörm- ungar, sem þar hafa orðið, getur enginn neitað þvi, að meðal krist- inna þjóða hefur kærleikur, sann- leikur og réttlæti samt náð hæst á vegum mannkyns, þótt enn sé óralangt að takmarki Kristhug- sjónarinnar. „En af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá”. Og ávextir anda og kenninga Krists eru: Kærleikur, gleöi, friður, biölund, gæzka, góð- vild, trúmennska, hógværð og bindindi. Eftir magni þessara auöæfa i sálum og samfélagi verðum viö dæmd á vegum stunda — og ei- lifðar. Arelius Niesson. KÓRÓNA

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.