Tíminn - 07.05.1972, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Sunnudagur 7. mai 1972.
Rauði krossinn
Ileykjavikurdeild.
SUMARDVALIR
Þeir, sem að ætla að sækja um sumardval-
ir fyrir börn hjá Reykjavikurdeild Rauða
kross íslands, komi i skrifstofuna, öldu-
götu4, dagana 8. og9. mai kl. 9-12 og 13-18.
Tekin verða börn fædd á timabilinu 1. júni
1965 til 1. sept. 1963.
Ætlunin er að gefa kost á 6 vikna eða 12
vikna sumardvöld.
Stjórn Iteykjavikurdeildar,
Rauða kross islands.
UTBOÐ
Tilboð óskast i smiði og uppsetningu loft-
ræsikerfis i stöðvarhús Laxá III við Laxá,
S. Þingeyjarsýslu.
Útboðsgögn verða afhent gegn 1.000 kr.
skilatryggingu á Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen s.f., Ármúla 4 og skrifstofu
Laxárvirkjunar, Akureyri, frá og með 8.
mai.
O
Verzlunin GELLIR selur v-þýzkar úrvalsvorur
frá ITT SCHAUP-LORENZ. Kynnist tæknilega
fullkominni framleiðslu. Ferðaviðtæki, segul-
bond, STEREO-hljómtæki og sjónvörp.
Það borgar sig að kaupa það vandaða.
Veitum heiðruðum viðskiptavmum okkar fu11-
komna varahluta- og viðgerðaþjonustu.
Verzlunin
GELLIR
Garöastræti 11 simi 20080
„Guð það hentast heimi fann”,
að vita sem fæst um framhaldið.
Hann hlýtur að hafa sinar ástæð-
ur fyrir þvi, eins og hinu, að við
munum og vitum flest ekkert eftir
þvi, hvað við vorum og hvaöan
við komum.
Ekki þar fyrir, að hann banni
leit og rannsóknir eftir megni
manns á þokuslóðum mannlegrar
hugsunar. Og allir þeir stærstu og
langskyggnustu hafa lifað á
mörkum tveggja eöa fleiri ver-
alda og horft til allra átta með
engla og spámenn að viðmælend-
um og til leiösögu.
„Timinn er peningar”, segja
margir nútimamenn. Og það er
aldrei nema satt. En hann er ó-
endanlega miklu meira. Timinn
er efnið, sem eilifðin er mynduð
úr.
Hinn frægi og vitri erkibiskup
Svia talaði einu sinni á barna-
samkomu i litlu fiskiveri. A
predikunarstólnum fann hann dá-
litið stundaglas.
„Hvað minnir stundaglasið
ykkur á? ” spurði biskupinn. „Það
minnir á dauðann”, svaraöi eitt
af börnunum.
Þá baö biskupinn einn af
drengjunum að koma til sin og
snúa glasinu. Og meðan sand-
kornin sáldruðust löturhægt nið-
ur, flutti hann ógleymanlegt
ávarp til barnanna um gildi lifs-
ins og komu dauðans og auðlegð
eilifðarinnar.
Ein setning úr þeirri ræöu má
gjarnan komast hér að:
„Minúturnar fljúga fram hjá.
Fyllum þær eilifð: Tryggð, elsku
og gleöi”.
Oft er furðulegt, hvernig gott og
gáfað fólk getur þráttaö og deilt
um Krist og kristindóm, alls kon-
ar umbúöir og aukaatriöi, sem
hlaöizt hefur um þessa æðstu
vizku lifsins á leiðinni gegnum
aldirnar.
Meira aðsegja Kristur Drottinn
sjálfur er dæmdur úr leik af mis-
vitrum mönnum vegna einhverra
kenninga, sem kirkjuþing og
þröngsýnir prelátar löngu liðinna
alda hafa lagt honum i munn.
Sumir telja hann og lifsskoðun
hans bera ábyrgð á grimmdar-
æði, ofsóknum, skelfingum og
kúgun styrjalda og heimsdrottna.
Ekkert er fjarri sanni. En vita
skulu menn að meira aö segja
„Faðir vorinu” hefur verið snúið
upp á djöfulinn- og striö og mann-
dráp háö i nafni Krists. Þess
vegna verða allir að gæta sin I
Stundaglasið
Margir tala um himnariki
eilifðar, sem taki við eftir likams-
dauöann.
• Og vissulega eru þar vegir til
allra átta samkvæmt kenningum
Krists: „Sjá, ég lifi og þér munuð
lifa”. „Sjá, ég fer burt aö búa
yður stað”. „t húsi mins him-
neska föður eru margar ibúðir”.
— Fyrirgefið mina þýðingu að
orðalagi.
En hann sagði lika:
„Sjá, himnariki er hið innra i
yður”, notið hverja stundina til að
skapa það og móta. Gæfuhöllin er
sem sagt i eigin barmi, lögð i
hendur persónuleikans og er þó
hluti hans og timinn er verksvið
og verkfæri i senn. Og eilífðin
metur verkið og verður mótuð af
þvi aö einhverju leyti fyrir hvern
einstakling.
Mér skilst þvi, að sá, sem gaf lff
i þessum heimi, hljóti aö telja það
mest og æöst að verja timanum
rétt. Og þá þurfum við ekki að
hafa, hvorki áhyggjur né vanga-
veltur yfir þvi, sem við tekur.
myrkviði mannvonzku og fræði-
iðkana, sem afvegaleiða — jafn-
vel heilaga.
Guðsrikið, hugsjón Jesú Krists
er frelsiog friður, sem ber ávöxt i
kærleika.
Það er merkið á hans yfirskrift.
„Af ávöxtunum skuluð þér þekkja
þá,” sagöi hann sjálfur. Ög það
eru ávextirnir, sem stundaglasið
þarf að minna á til þroska og efl-
ingar. Þar sem ekki er frelsi og
friður þar rikir ekki andi Krists
og þar er ekki guðsriki, jafnvel
þótt það væri i kirkju hans og við-
altari hans.
Og þar sem frelsi og friður rik-
ir, þar er Kristur á ferð og guðs-
rikishugsjón hans göfguð, jafn-
vel, þótt sú hending tækist, að það
væri i borg eða landi, þar sem
enginn væri skirður og fermdur
og nafn hans hefði aldrei verið
nefnt. Kraftur þessa nafns, andi
þessa æðsta persónuleika i mann-
slikama bæri þar ávexti og hlyti
þvi að vera þar að verki i réttri
notkun stundanna, timans, sem
mannlif er mótað i og mótað af.
Kristnir menn, kristnar þjóðir
hafa sorglega oft svikið þennan
kraft og falsað merki hans yfir
aðgerðum sinum og ætlunum. En
þrátt fyrir öll mistök og hörm-
ungar, sem þar hafa orðið, getur
enginn neitað þvi, að meðal krist-
inna þjóða hefur kærleikur, sann-
leikur og réttlæti samt náð hæst á
vegum mannkyns, þótt enn sé
óralangt að takmarki Kristhug-
sjónarinnar.
„En af ávöxtunum skuluð þér
þekkja þá”. Og ávextir anda og
kenninga Krists eru: Kærleikur,
gleöi, friður, biölund, gæzka, góð-
vild, trúmennska, hógværð og
bindindi.
Eftir magni þessara auöæfa i
sálum og samfélagi verðum viö
dæmd á vegum stunda — og ei-
lifðar.
Arelius Niesson.
KÓRÓNA