Tíminn - 07.05.1972, Qupperneq 5
Sunnudagur 7. mai 1972.
TÍMINN
5
0.fx .
Pi NÖZUM
SAMA MEÐAL ?
Jæja, það fór þa þannig, að
William Rogers utanrikisráð-
herra fékk ekki að sjá þjóðardýr-
gripina sjálfa — handritin.
Nemendur í Háskólanum sáu
fyrir þvi, að minni skilst. Það er
erfitt, að sjá, hvað Einar Ágústs-
son utanrikisráðherra og fylgdar-
menn hans gátu annað gert úr þvi
sem komið var — annaö en að
snúa við — en atvik sem þetta
vekur samt hjá manni ærið
margar spurningar.
I fyrsta lagi gæti maður spurt,
hvaðan þessu unga fólki kemur sá
réttur að taka hús á Árnagarði,
loka þar dyrum, hengja upp fána
og borða og banna siðan öðrum
inngöngu.
1 öðru lagi gæti maður spurt,
hverskonar öryggisgæzla það er,
sem lætur það viðgangast að
þptta unga fólk fái tækifæri til
þess að koma sér þarna fyrir með
plögg sin og fána — án þess að
lögreglan gerði minnstu tilraun
til þess að fjarlægja það.
t þriðja lagi gæti maður spurt
húsráðendur Árnagarðs.hvað þeir
hafi gert til þess að koma i veg
fyrir það, að hús væru tekin á
þeim á pennan hátt, og
ennfremur hvort þeir hafi ekkert
við það að athuga, að þetta sama
fólk fái óhindrað inngöngu inn i
Arnagarð i framtiðinni.
t fjórða lagi gæti maður spurt,
hvort lögreglan hafi kallað ein-
hverja þátttakendur fyrir-
sátursins i Árnagarði til yfir-
heyrslu og hvaða hegningar liggi
við þvi athæfi sem þvi, að leggja
undir sig opinberar byggingar og
banna öðrum lögmætan umgang
um þær?
t fimmta lagi gæti maður spurt,
hvort þetta unga fólk hafi aflað
sér heimildar stjórnarvalda i
Norður-Vietnam til þess að
hengja upp þjóðfana þess rikis á
byggingar hér upp á Islandi.
I sjötta lagi gæti maður spurt,
hverju það sæti að handtaka það
fólk, sem gerir aðsúg að lögreglu
með nöglum og bensini úti á þjóð-
vegi og varnar öðrum veg-
farendum vegarins, en sleppa
siöan þegjandi og hljóðalaust.
t áttunda lagi gæti maður spurt
dómsyfirvöldin hér i landinu,
hvað þau ælti nú til bragðs að
taka varðandi saksókn á hendur
forsprökkunum.
Sovétríkin stefna að því að auka
fiskveiðar sínar um 20% á
drabilinu fram til 1975
I norska blaðinu Fiskaren
frá 13. april 1972 segir meðal
annars: Sovétrikin ráðgera að
auka framleiðslu á fiski um
allt að 20% fram til ársins
1975. Aðaláherzla verður lögð
á að bæta veiðarfæri, leitar-
tæki og fullnýtingu skipastóls-
ins.
Gert er ráð fyrir, að fram-
leiðsla á fiski verði orðin 10
millj. tonna árið 1975, en var
7.8 millj. tonna árið 1970.
Á árunum 1965 til ársins 1970
jókst niðursuðuhráefnið úr 2.5
millj. tonna i 3.5 millj. tonna,
og er áætlað að auka þennan
þátt um 32% til 40% á sama
timabili. Á árunum frá 1965 til
1970 hafa verið lagðar milljón-
ir rúblna i fiskiðnaðinn. Af
þeim fjárhæðum, sem fram
hafa verið lagðar, hafa farið
um 70% i uppbyggingu skipa-
stólsins. Mörg hundruð skip
hafa verið smiðuð, en fram til
ársins 1975 er gert ráð fyrir, að
smiðuð verði mörg hundruð
skip til viðbótar, og verða þau
stærri og kraftmeiri, og talað
er um, að i úthafstogurum
þeim, sem ráðgert er að
byggja, verði vélaorka þeirra
frá 3800 til 7000 hestöfl. Full-
komin fiskileitartæki verða i
þessum skipum, og ekkert til
sparað til þess að gera þau
sem allra bezt úr garði.
Hinn nýi úthafsfloti (Super-
floti) verður af ýmsum gerð-
um, og er reiknað með, að
skipin geti verið á miðunum 60
til 80 daga, án þess að þurfa að
leita hafnar. Gömlu gufu
togararnir verða teknir úr
umferð, og nýir dieseltogarar
koma i staðinn. Jafnframt
verða smiðaðir miðlungsstórir
togarar, sem einnig verða
búnir til veiða með hringnót og
kraftblökk.
Katamaraskuttogarar
verða teknir i notkun eftir
langan reynslutima. Flutning-
a af miðunum til hinna ýmsu
hafna verða endurbættir, svo
að fiskurinn komi til þeirra
hafna, sem bezt er hverju
sinni. Verða með úthafsflotan-
um ýmsar gerðir skipa, svo
sem leitarskip, viðgerðaskip
og rannsóknaskip.
Eitt verksmiðjuskip, að
stærð 43000 tonn, hefur hafið
veiðar, og hefur það um borð
16 skip, sem sjósett eru þar
sem veiðarnar fara fram
hverju sinni. Skipþetta er búið
þeim fullkomnustu fiskileitar-
tækjum, sem til bekkist. auk
þess sem hvert skip er búið
hinum fullkomustu tækjum.
Framleiðsla niðursuðuvara
getur verið 150.000 niðursuðu-
dósir á dag, auk annarrar
framleiðslu. 600 manns eru
um borð i skipinu.
Fiskrækt -i eldistjörnum er
nú 68.000 tonn, en áætlunin,
sem gerð hefur verið, gerir
ráð fyrir, að árið 1975 verði
fiskur úr eldistjörnum 170.000
tonn. Verður lögð sérstök
áherzla á framleiðslu dýrari
fisktegunda, og þá aðallega
fiska af laxaættinni.
A timabilinu frá 1966 til 1970
unnu i fiskiðnaðinum 136verk-
fræðingar og tæknifræðingar á
móti hverjum 1000 mönnum,
sem i iðnaðinum vinnu. A um
ræddu timabili jókst fram-
leiðslan um 30 til 40%, og er
búizt við svipaðri aukningu á
árunum fram til 1975.
Af framansögðu er auðséð,
að stórþjóð eins og Rússar
ætlar ekki að minnka sóknina
á úthöfin, svo að smáþjóð eins
og við verður að gæta réttar
sins i hvivetna.
Að framan segir frá aukn-
ingu skipastóls, sem er fyrir
mörg hundr. skipa. Ef ekkert
lat verður á, hvernig fer þá, ef
ekki verður spornað viö of-
veiðinni, hvort heldur er um
að ræða okkar litlu fiskimið
eða fiskimið annarra þjóða?
Gjöreyðing blasir við, nema
þjóðirnar verði það framsýn-
ar, að þær reisi skorður við i
tima.
Ingólfur Stefánsson.
1 niunda lagi gæti maður spurt,
hversvegna unga fólkið valdi
endilega Arnagarð til fyrirsáturs-
ins. Úr þvi að það var svona
skeflilegt að Rogers snerti á
handritunum — þar sem um há-
heilaga gripi er að ræða að manni
skilst — var þá ekki eins skelfi-
legt, ef ekki skelfilegra, að honum
skyldi leyfast að virða fyrir sér
fornminjar okkar — sem sjálfsagt
eru heilagar lika.
I tiunda lagi gæti maður spurt
hver það var, sem lagði til rútu-
bilana sem fólkið notaöi til
ferðarinnar suður á Álftanes og
hvort sá aðili beri ekki einhverja
ábyrgð á lögbrotum þess þar?
Já, þær eru margar
spurningarnar sem vakna, þegar
svona lagað kemur fyrir. Og eins
og fyrri daginn er þess ekki aö
vænta.að nein svör fáist við þeim.
Ég hef verið að lesa mér ofur-
litið til um Mússólini og Hitler
upp á siðkastiö, og ég fæ ekki
varizt þeirri hugsun, að að-
ferðirnar , sem mótmælendur
notuðu i Árnagarði minntu
talsvert á þær methóöur, sem
æstustu fylgismenn þeirra félaga
notuðu á þá aðila, sem þeir töldu
sér óvinveitta.
Það bar ekki ósjaldan við, að
SA sveitir Hitlers og svart-
stakkar Mússólinis tækju hús á
fólki — likt og mótmælendur
gerðu við húsráðendur i Arna-
garði — hleyptu upp fundum and-
stæðinga sinna með ólátum og
fyrirgangi og vörnuðu öðru fólki
vegarins.
1 þá daga var verið að verja hin.
helga málstað nazismans og
fasismans, eins og það var kallað.
Nú virðist mér,að samskonar
aðferðir séu viðhafðar til þess að
mótmæla fasismanum, sem
Rogers er talinn fulltrúi fyrir.
Tilgangurinn (hver sem hann
nú er) helgar meðalið, var einu
sinni sagt.
Páll lleiðar Jónsson
Verkakvennaféiagtð Framsókn
Tekið á móti umsóknum i ölfusborgir i
sumar á skrifstofunni frá og með þriðju-
deginum9. mai, til og með laugardeginum
13. mai. Afgreitt frá 10-12. Ekki á öðrum
tima. Pantanir ekki afgreiddar i sima.
Þær félagskonur, sem ekki hafa verið áður
i ölfusborgum ganga fyrir.
BRdun ”6006n
BRAUN - “6006,, með synkrónisku
platínuhúðuðu blaði, nýja rakvélin,
sem veldur þáttaskilum í rakvéla-
tækni, fæst í raftækjaverzlunum í
Reykjavík og víða um land.
BRAUN-umboðið:
RAFTÆKJAVERZLUN ÍSLANDS HF.
SÍMI 17975 OG 17976, REYKJAVÍK
EINU SINNI ENN VEGNA ASK0RANA
Tríð Steina Steingríms leikur
GÖMLU GÓÐU LÖGIN
"frá því hérna á árunum"
(með hæfilegri sveiflu)
fyrir matargesti okkar n.k.
mánudags og þriðjudagskvöld
Borðpantanir hjá yfirþjðni
sími 11322
VEITINGAHÚSIÐ
ÓDALÉ
VIÐ AUSTURVÖLL