Tíminn - 07.05.1972, Síða 12
12'
TÍMINN
Sunnudagur 7. mai 1972.
er sunnudagurinn 7. mai 1972
HEILSUGÆZLA
Slökkviliöiö.'og sjúkrabifreiðar
fyrir Reykjavik og Kópavog.
Simi 11100.
Sjúkrabifreið i Hafnarfiröi.
Simi 51336.
Slysavaröstofan i Borgar-
spitalanum er opin allan
sólarhringinn. Simi 81212.
Tannlæknavakt er i Heilsu-
verndarstöðinni, þar sem
Slysavarðstofan var, og er
opin laugardaga og sunnu-
daga kl. 5-6 e.h. Simi 22411.
Apótek llafnarfjarðar er opið
allá virka daga frá kl. 9-7, á
laugardögum kl. 9-2 og á
sunnudögum og öðrum helgi-
dögum er opið frá kl. 2-4.
Kvöld, nætur og helgarvakt:
Mánudaga-fimmtudaga kl.
17.00-08,00. Frá kl. 17,00 föstu-
daga til kl. 08,00 mánudaga.
Simi 21230.
Upplýsingar um
læknisþjónustu i Reykjavik í
erú gefnar i sima 18888.
I.ækningastofur eru lokaðar á
laugardögum, nema stofur á
Klapparstig 27 frá kl. 9-11 f.h.
Simi 11360 og 11680. — Um
vitjanabeiðni visast til
helgidagavaktar. Simi 21230.
ónæmisaðgeröir gegn mænu-
sótt fyrir fullorðna fara fram i
Heilsuverndarstöð Reykjavik-
ur á mánudögum frá kl. 17-18.
Kvöld- og helgidagavörziu
apóteka I Reykjavik vikuna 6-
12.mai annast Lyfjabúðin
Iðunn, Garðs Apótek og Háa-
leitis Apótek.
Kvöld og helgidagavörziu
lækna i Keflavík dagana 6.mai
og 7.mai annast Kjartan
Ólafsson.
Næturvörzlu i Keflavik 8,mai
annast Arnbjörn óíafsson.
KIRKJAN
Langholtsprestakall.
Guðsþjónusta fellur niður, en
kirkjan verður opin til bæna-
halds milli kl. 2 og 3. Séra
Sigurður Haukur Guðjónsson.
ÝMISLEGT'
Aðalskoðun bifreiöa i
lögsagnarumdæmi Reykjavik
mai 1972. Mánudaginn K.mai
R-5701 — R-5850.
FLUGÁÆTLANIRj
Flugfélag tslands h.f.
Innanlandsflug. Sunnudag er
áætlun til Akureyra (3 ferðir)
til Vestmannaeyja (2 ferðir)
til Hornafjarðar, lsafjarðar og
til Egilsstaða. Mánudag er
áætlun til Akureyrar (4 ferðir)
til Vestmannaeyja (2 ferðir)
til Húsavikur, isafjarðar,
Patreksfjarðar, Þórshafnar,
Raufarhafnar, Egilsstaða og
til Sauðárkróks. Millilanda-
flug. Sunnudag — Sólfaxi fer
frá Keflavik kl. 09.00 til Osló
og Kaupmannahafnar og
væntanlegur aftur til Kefla-
vikur kl. 16.45 um daginn.
Mánudag — Sólfaxi fer frá
Keflavik kl. 08.30 til Glasgow,
Kaupmannahafnar og
Glawgow og væntanlegur til
Keflavikur kl. 18.15 um
kvöldið.
FÉLAGSLIF*
Fyrrverandi nemendur
I.öngumýrarskóla. Vinsam-
lega hringiö i eitthvert eftir-
talinn númera fyrir mánu-
dagskvöld: Regina 51525,
Lára 30686, Þuriöur 32100,
Sigrún 52350, Guðrún 37295,
Björg 82931, og Þórey 37414.
Stjórnin.
Kvenfélag Laugarnessóknar.
Heldur sina árlegu kaffisölu i
Klúbbnum fimmtudaginn
ll.mai, uppstigningadag.
Félagskonur og aörir velunn-
arar félagsins eru beðnir að
koma kökum og fl. i Klúbbinn
frá 9-12 Uppstigningadag.
Upplýsingar i sima 34727 hjá
Katrinu og 15719 hjá Guðrúnu.
Styrkið félagsheimilið.
Óháði Söfnuöurinn. Kvenfélag
og Bræðrafélag safnaðarins.
Félagsvist næstkomandi mið-
vikudagskvöld lO.mai kl. 20.30
i Kirkjubæ. Góð verðlaun,
kaffiveitingar. Takið með
ykkur gesti. Kvenfélag Óháða
safnaöarins.
Frá Guðspekifélaginu.
Lótursfundurinn er á mánu-
dagskvöld kl. 21 i Guðspeki-
félagshúsinu. Sigvaldi
Hjálmarsson flytur erindi sem
nefnist „Tiundi bróðirinn”.
Sunnudagsferðin 7.mai
Fuglaskoðunarferö suður með
sjó. Farið verður um
Garðskaga, Sandgerði,
Hafnarberg og viðar. Brottför
kl. 09.30 frá B.S.t. Verð kr.
400.00. Ferðafélag tslands.
Kvennadeild Flugbjörgunar-
sveitarinnar. Siðasti fundur
veröur haldinn i Félags-
heimilinu miðvikudaginn
lO.mai kl. 20.30. Rætt verður
um borðhaldið, spurninga-
þáttur og fleira. Mætum allar.
Stjórnin.
60 ára hjúskaparafmælieiga i dag 7.mai hjónin Ingibjörg
Bessadóttir og Hóseas Björnsson, Skipasundi 48 Rv.
Vestur spilar út T—K i 4 Sp.
Suðurs.
A S AK5
y H A1065
4 T 952
* L K53
A
¥
♦
*
S 93 A S 1072
H 873 ¥ H DG4
T KDG86 4 T 1074
L D86 * L AG92
A S DG864
¥ H K92
♦ T A3
* L 1074
Spilarinn var ekki alltof bjart-
sýnn um árangur, en fyrsta
lykilsspil hans var að gefa T—K,
og þegar V hélt áfram i litnum
hafði S stjórn á spilinu. Hann tók
á T—As, þrisvar tromp og var inn
i blindum. Nú trompaði hann T og
A, sem ekkert átti nema L og Hj.,
var nú undirbúinn fyrir lokaspil.
Tveir hæstu i Hj. og siöan 3ja Hj.
og spilið var i höfn, þegar A var
inni. Hann varð að spila frá L sinu
og spilarinn fékk þvi að skipta
yfir i L eftir að hafa fengið á T—K
en það er nokkuð erfitt að finna þá
vörn við borðið - og reyndar heföi
skipti i L hjálpað spilaranum i S
ef hann heföi átt L—G, en ekki ti-
una eins og var i spilinú.
Þessi staða kom upp i skák 1897
milli Cousel og Mayer, sem hefur
svart og á leik.
1.-Rb3+! 2.cxb3 - Hfc8+ 3. Kbl -
Dxf2! - Dxf2! 4. Dd3- Dxg2! 5. Rf3
-Ba6 6. De3 - Dc2+ 7. Kal - Be2 8.
Hd4 - BxF: 9. Dxf3 - Dcl+! 10.
Hxcl - Hxcl mát.
Fáskrúðsfjörður:
Búnir að synda
200 metrana
2500 sinnum
ÞÓ-Reykjavik
Fáskrúösfirðingar ætla ekki að
gera það endasleppt i Norrænu
sundkeppninni, þvi er við
höfðum samband við Fáskrúðs-
fjörð i gær, var búið að synda 200
metrana þar 2500 sinnum. Það
þýðir að hver ibúi i kauptúninu
hafi synt 200 metrana 3.4 sinnum
en ibúar á Fáskrúðsfirði eru ekki
nema 728.
Okkur var sagt á Fáskrúðsfirði,
að nú stæði til að fara að loka
sundlauginni á staðnum, og
ástæöan fyrir þvi, væri hinn geig-
vænlegi kostnaður við kyndingu
laugarinnar. Fáskrúðsfjörður
mun ekki vera eini staðurinn,sem
á i vandræöum með að halda
sundlauginni opinni vegna mikils
oliukostnaðar við upphitun, og
væri athugandi fyrir viökomandi
aðila, að athuga hvort ekki væri
hægt að gera einhverjar úrbætur i
þeim efnum.
BELTIN
UMFERDARRAD
YFIRBORÐ
Ég var um daginn að hlusta á
fréttir i útvarpi, siðan naut ég
þeirra einnig með augum og eyr-
um I sjónvarpi á eftir. Þær sner-
ust að verulegu leyti um ferð
Bandarikjamanna til tunglsins nú
fyrir skemmstu, svo það var ekki
nema von, að ýmsir þankar
kæmu upp i kollinn á mér þetta
kvöld, um leið og ég gekk hérna út
I hliðið og virti fyrir mér yfirborð-
ið á skörðum mánanum.
Þeir voru i seinheppnara lagi,
geimfararnir, sem voru að flakka
þarna núna i þetta sinn. Til að
byrja með gekk tunglferjan ekki
á öllum og einn geimfaranna
komst ekki almennilega undir
yfirborðið á geimfötunum sinum.
Svo gekk hálfgert i brösum að
losa tunglferjuna frá yfirborði
geimfarsins, þegar hlutverki
hennar var lokið, svo að tunglfar-
ið hlunkaðist ekki niður á yfirborð
tunglsins eins og til stóð, heldur
er nú á sporbraut um það.
En þetta var nú ekki allt grá-
bölvað. Einn geimfaranna komst
naumast milli yfirborðanna á
gallanum sinum, en það mátti
vist ekki tæpara standa, og sann-
aðist þá sem endranær, að mikið
er skraddarans pund. Tunglferj-
an fór i gang og niður á yfirborö
unglsins. Þeir drösluðu tunglbiln-
um út á yfirborö tunglsins, settu
hann saman og komu sér fyrir á
yfirborði hans. Svo óku þeir hon-
um til og frá um yfirborð tungls
ins og lýstu yfirboröi þess munn-
lega fyrir þeim, sem sátu á yfir-
borði jarðar, jafnframt þvi, sem
þeir söfnuðu sýnishornum af yfir-
borði tunglsins til að fara meö
niður á yfirborð jarðar.
1 fyllingu timans hurfu geim-
fararnir aftur undir yfirborð
tunglferjunnar og hófu hana á loft
frá yfirborði tunglsins, unz þeir
tengdust yfirborði geimfarsins.
Siðan fór sem fór um tunglfarið.
Mig uggir, aö þeir hafi verið
farnir að hlakka tilaöstigaafturá
yfirborð jarðar, þótt þeir væru
kaldir og rólegir á yfirborðinu.
Þeir sáu yfirborð tunglsins fjar-
lægjast, en yfirborð jarðar nálg
ast. Eins og vanalega var hættu-
legasta andartakið, þegar þeir
brutust i gegn um yfirborð gufu-
hvolfsins,en allt fór vel sem fyrr,
þótt þeir kæmu harkalegar niður
en ýmsir fyrirrennarar þeirra.
Geimfarið fór ekki nema litillega
undir yfirborð sjávar, en skaut
strax upp aftur og rétti sig við og
flaut svo kyrrt á yfirborðinu þar
til þyrlur komu geimförunum til
hjálpar. Þegar þeir svo stigu á
yfirborð herskipsins, var þeim
ákaft fagnaö, enda ferð þeirra
mjög vel heppnuð á á yfirborðinu
að minnsta kosti.
Og enn verður manni á að lyfta
augum sinum til himins. Þar
blasir við manni yfirborð tungls-
ins, svalt, róandi og rómantiskt.
Fótspor bandariskra geimfara
verða seint afmáð þar. Og þótt
mannkyn máist út, mun tunglið
halda áfram að stafa birtu til
jarðar einmitt á þeim tima, þegar
hennar er mest þörf: 1 myrkrinu.
Og ekki verður annað séð, en að
þvi standi nákvæmlega á sama
um geimferðir — á yfirborðinu.
Sigurður Hreiðar.
Tveim flugvélum rænt
NTB-New Orleans og Los
Angeles.
Tvær bandarlskar farþegaflug-
vélar voru i ræningjahöndum i
gærmorgun. ónnur flugvélin er i
eigu Eastern Airlines. Vopnaður
maður neyddi flugstjórann til að
lenda á flugvelli við Washington,
en véhn var á leiðinni frá
Pennsylvania til Florida. A flug-
vellinum fékk ræninginn 300 þús-
und dollara og fallhlifar, sigarett-
ur og matarbirgðir. Farþegarnir
fengu að fara úr flugvélinni i
Washington. Þegar flugvélin var
komin á loft, heimtaöi ræninginn
aö lenda aftur og fá peningana I
stærri seðlum. Stóö vélin á flug-
vellinum meðan starfsmenn flug-
félagsins stóðu i ströngu með að
ná peningunum i réttum stærðum
út úr bönkum.
Siöan var haldið til New Or-
leans, og þar var vélin siðast þeg-
ar til fréttist.
Hinni flugvélinni var rænt
skömmu eftir flugtak i Salt Lake
City. Er hún af gerðinni DC-8, og
* eru 63 farþegar um borð.
Náunginn, sem þarna var að
verki, heimtaði, að flogið yrði til
Los Angeles og þaðan til Hanoi.
Hann sagðist vera meðlimur
samtaka, sem berðust móti
heimsveldisstefnu Bandarikja-
stjórnar, og væri hann að mót-
mæla loftárásum á Norður-VIet-
nam. Sagði hann, að ef loftárás-
irnar hættu ekki fyrir 4,júli yrði
Nixon myrtur. í Los Angeles var
manninum sagt, að ekki væri
hægt að fljúga þessari flugvélar-
tegund yfir Kyrrahaf. Þá bað
hann um að vera fluttur til Kúbu.
/AupJVs
Auglýsingastofa Timans er I
Bankastræti 7 simar 19523 — 18300.
Móðir okkar tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR SOFFIA ÞÓRARINSDÓTTIR
Skaftahlið 10,
verður jarðsungin mánudaginn 8.mai kl. 13.30 frá Foss-
vogskirkju.
Böövar Jónasson
Erna Aradóttir
Sigriður Soffia Böðvarsdóttir
Ragnheiður Aradóttir Sigurður Þ. Guðmundsson.
Innilegar þakkir til allra þeirra.sem veittu mér samúð,
vináttu og hjálp við andlát og útför eiginmanns mins.
GUÐMUNDAR STEFÁNSSONAR
frá Stóru-Seylu, Skagafirði
Sérstakar þakkir færi ég læknum, hjúkrunariiði, starfs-
fóiki og sjúklingum á Kristneshæii.
Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg Björnsdóttir.