Tíminn - 18.05.1972, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 25. maí 1972.
TÍMINN
5
HÓPFERDf« 1972
Forsiðan á vönduðum kynningarbæklingi útsýnar.
ÚTSÝN fer líka
til MALLORCA
Nýlega er komin út 18 sumar-
áætlun ÚTSÝNAR um hópferðir
til útlanda. Áætlunin er litprentuð
og hin vandaðasta að öllum frá-
gangi. Greinir þar frá fjölda hóp-
ferða á vegum Útsýnar, en auk
þeirra annast ferðaskrifstofn
móttöku erlendra ferðamanna,
sem til Islands koma og farmiða
sölu og hvers konar ferðaþjónustu
fyrir einstaklinga, sem fara úr
landi.
ÚTSÝN hefur gert samning við
Flugfélag Islands um leigu á
þotum félagsins með farþega
Útsýnar til COSTA DEL SOL —
Sólarstrandar Spánar — isumar.
Verða ferðirnar i fyrstu hálfs-
mánaðarlega en siðan vikulega i
ágúst og september. Gefst far-
þegum Útsýnar þá kostur á að
dvelja i 1, 2, 3 eða 4 vikur og búa i
Skemmdar-
verk í
Khöfn
Mikil skemmdarverk voru unn-
in á húsnæði dótturfyrirtækis
bandariska rafeindahringsins
Honeywells i Kaupmannahöfn að-
faranótt sl. sunnudags.
Kveikt var i skrifstofuhúsnæði
byggingarinnar. en vegna
eldtraustra veggja og glugga,
náði eldurinn ekki að breiðast út.
Miklar skemmdir urðu þó af hita
og reyk.
Lögreglan vinnur nú að rann-
sókn málsins, en hefur litið orðið
ágengt. Sultukrukka og benzin-
kútur eru ein gögnin, sem lög-
reglan hefur undir höndum, en
rannsóknarlögreglumenn hafa
látið hafa eftir sér, að brotizt hafi
verið inn i bygginguna með kú-
beini og benzini siðan hellt yfir öll
gólf. Hefði eldurinn náð að breið-
ast út,hefði það valdið milljóna-
tjóni.
Talið er liklegt,að andstæðingar
stefnu Bandarikjastjórnar i
Vietnam hafi staðið fyrir
skemmdarverkunum, en Honey-
wells hafa framleitt elektrónisk
tæki i flugvélar og önnur hergögn.
NY LOG UM HEILBRIGÐIS-
EFTIRLIT í LANDINU
nýtizkuibúðum eða hótelum.
Vinsældir Costa del Sol fara si-
vaxandi. Auk náttúrufegurðar og
hins rómaða loftslags, sindrandi
baðstranda og vinsælla skemmti-
staða, hefur Costa del Sol enn
aukið á fjölbreytnina fyrir fólk á
öllum aldri með risavöxnum
skemmtigarði TIVOLI, spænskri
útgáfu af Tivoli i Kaupmanna-
höfn. Nú þegar eru margar ferðir
Útsýnar til Costa del Sol i sumar
nærri uppseldar.
Auk ferðanna til Costa del Sol
heldur útsýn uppi ferðum til
Costa Brava á Spáni i hverjum
mánuði. Er þá farið um London
og dvalizt i Lloret, sem er
fjörugur og vinsæll baðstaður
skammt fyrir norðan Barcelona.
Það ber og til nýlundu, að Útsýn
tekur nú upp vikulegar ferðir til
Mallorca með brottför á hverjum
laugardegi. Flogið er með Flug-
félagi Islands til Lundúnaflug-
vallar og nokkru siöar með risa-
þotu BOAC—flugfélagsins,
Boeing 747, til Mallorca. Þar geta
farþegar valið um nýtizkuhótel
eða ibúðir i Palma Nova, skammt
frá Palma, og stanzað i London á
heimleið.
Mikil eftirspurn er eftir Kaup-
mannahafnarferðum Útsýnar,
sem verða i hverjum mánuði.
Þeir, sem þangað halda, eigá völ
á framhaldsferðum með öðrum
ferðaskrifstofum, t.d. Tjæreborg,
sem Útsýn hefur umboð fyrir.
Af öðrum hópferðum, sem
Útsýn hefur á boðstólum og lýst
er i áætluninni, má nefna
Júgóslaviuferð, ferð til Grikk-
lands með dvöl á Rhodos,
Rússlands-ferð með dvöl i
Leningrad, Moskvu, Odessa og
Yalta, og siglingu um austanvert
Miðjarðarhaf með viðkomu á
helztu sögustöðum Grikklands og
tsrael.
Klp—Reykjavik.
Arið 1969 voru samþykkt ný lög
á alþingi um nýtt fyrirkomulag
heilbrigðiseftirlits i landinu.
Hefur verið unnið að gerð lag-
anna að undanförnu, og hafa þau
veriö samþykkt og gefin út.
Lög um heilbrigöiseftirlit voru
fyrst gefin út árið 1902, en veru-
legar breytingar á þeim voru
ekki gerð fyrr en árið 1940. Til
þessa hefur hvert sveitarfélag
veriö með sina sérstöku nefnd i
þessum efnum, og þvi oft misjöfn
lög á hverjum stað.
Með þessari nýju reglugerð eru
lögin samræmd og bætt viö
nýjum. Ná þessi lög yfir allt
landið,lofthelgi og landhelgi. Eru
þau viðtæk, en hér skal greint frá
þeim helztu.
I sérhverju sveitarfélagi skal
vera heilbrigðisnefnd, öll kosin af
sveitarstjórninni, og skal héraðs-
læknir vera ráðunautur hverrar
nefndar i héraði hans.
Vald hverrar heilbrigðis-
nefndar skal vera mjög viðtæk i
sambandi við framkvæmd alls
eftirlits i umdæminu. Sveitar-
stjórnum ber að leita umsagnar
hennar um allar ráðstafanir, er
varða hollustuhætti á einn eða
annan hátt.
Akranes Framhald af bls. 17. .
formannsins um, að þeir myndu
svikjast undan á siðustu stundu
og neita að fara út, kemur ekki
heim og saman við þaö traust,
sem hann virðist bera til þessara
manna. Eigi hann við forystuna
þökkum viö fyrir okkur og teljum,.
að reynsla siðustu ára sýni, að
þetta er mjög óverðskuldað.
Lokaorð okkar i þessu máli eru
þvi þau, að stjórn K.S.t. hefur á
fundi sinum ákveðið að víkja úr
landsliðinu nær helmingi liðs
okkar fyrir að mæta ekki á eina
æfingu, þá sfðustu, en hitt var allt
i fullu samráði við einvaldinn,
sem er fulltrúi K.S.I. viðvikjandi
landsliðinu. En það mætti heldur
ekki einn Reykvikingur á siöustu
æfinguna og við spyrjum, hvaða
lög gilda um þá, eða hann?
Við fullyrðum einnig, að okkar
menn hafi ekki siðri mætingu hjá
landsliðinu heldur en aðrir þeir
aðilar, sem stundað hafa æfingar,
þrátt fyrir að 8 til 9 klukkustundir
fari i hverja ferð.
Við lýsum allri ábyrgð i þessu
máli á hendur einvaldinum fyrir
að ganga á gefin loforð, og skýra
stjórn K.S.I. ekki frá þvi sam-
komulagi, er hann hafði gert við
þjálfara l.A. undir vitni, og stjórn
K.S.I. fyrir fljótfærni og
óskammfeilni, aö refsa aðeins
fimm af sex er ekki mættu á
þessa siðustu æfingu.
Það er hægt að bæta fyrir
margt, en þetta veröur ekki
bætt.Hér rikir algjör samstaða,
en mikil gremja er hér vegna af-
greiðslu K.S.I. á þessu máli.
Ef afsökun sjötta mannsins
hefur verið gildari, hvers vegna
vissi stjórnin ekkert um fjarveru
hans og afsökun þegar hún tók af-
stööu til hinna fimm?
Finnst stjórn K.S.l. mikið
samræmifþvi að vikja mönnum,
sem mætt hafa vel til æfinga
undanfarið, þótt þeir komi ekki á
umrædda siðustu æfingu, en taka
svo menn, sem aldrei hafa mætt
til æfinga.
Það er tvennt ólikt að hafa
valdið og kunna að beita þvi.
Knattspyrnuráð Akraness.
Magnús Kristjánsson, formaður
Rikharður Jónsson, þjálfari.
Einar Agústsson ræðir
um landhelgismálið
á almennum fundi í Keflavík í kvöld
Einar Agústsson, utanrikisráð-
herra, flytur framsöguræðu á
fundi um landhelgismálið, sem
Samband ungra framsóknar-
manna og FUF i Keflavik gengst
fyrir i Aðalveri i Keflavik I kvöld,
fimmtudag, kl. 21.
Framsögumenn auk Einars
veröa Már Pétursson, formaður
SUF, og Pétur Einarsson.
Fundurinn er öllum opinn með-
an húsrúm leyfir, og verða al-
mennar umræður að framsögu-
erindum loknum, auk þess sem
frummælendur svara fyrirspurn-
um.
I reglugeröinni er að finna
mörg ný ákvæði, eins og t.d. um
eftirlit með olíuflutningum i
námunda viö vatnsból, og svo um
staðsetningu oliugeyma. Þá eru
ný ákvæði um reyk, mengaðar
gufur, hverskonar eiturtegundir,
hávaða og titring, sem öll miða að
þvi að vernda lif og heilsu
almennings og koma i veg fyrir
óþarfa óþægindi á vinnustööum
og utan þeirra, eins og t.d. á
heimilum og útiverustöðum.
Gerðar eru rikari kröfur en
áður til meðferðar hverskonar
úrgangs og frárennslis. Bannað
er að láta skólp falla i vötn, ár og
læki. Nær þetta ekki aðeins til
meðferðar skólps. heldur og
einnig til meöferðar sorps og
neyzluvatns. Og ekki aðeins yfir
þéttbýliskjarnann eins og áður,
heldur einnig yfir einstaka
sveitabæi, sumarhús, hótel, sölu-
skála og opinber tjaldstæði.
Ákvæði eru um skyldur iðn-
fyrirtækja til að hreinsa á eigin
kostnað eigin úrgang, fastan eða
fljótandi, á fullnægjandi hátt,
áður en honum er veitt i almenn-
ingsskólpveitur eða fluttur á
almenningssorpstæði.
Mörg önnur ákvæði og reglur
eru i þessum nýju lögum, bæði
hvað varðar einstaka þætti og
skipulag þessara mála. I hverri
heilbrigðisnefnd skal t.d. sitja
fundi se'rstakur fulltrúi verka-
fólks, „umsjónarmaður vinnu
staða”. Heilbrigðiseftirlit rikis-
ins mun verða til ráðneytis yfir-
stjórn heilbrigðismála og heil-
brigðisnefndunum, og mun þaö
verða til yfirumsjónar,
samræmingar og skipulagningar
fyrir allt landið.
19. leikvika — leikir 14. og 15 mai 1972
Úrslitaröðin: XXI — XI1 — ÍXX — X2X
1. vinningur: 10 réttir — kr. 73.500.00
Nr. 2866 nr. 11.403
2. vinningur -- 9 réttir — kr. 3.100.00
nr. 1858+ nr. 4245 nr. 22305
nr. 2840+ nr. 17394 nr. 22551
nr. 2973 nr. 19379 nr. 26975
nr. 4210 | nr. 19508+ nr. 27553
nr. 27697 nr. 43552
nr. 28845+ nr. 43777
nr. 34011 nr. 43840
nr. 36120 nr. 48040
Kærufrestur er til. 5 júni. Vinningsupphæðir geta
Iækkaö, ef kærur veröa teknar til greina. Vinningar fyrir
19. leikviku verða póstlagðir eftir 6. júní.
Handhafar nafnlausra seðla (merktir +) verða að
framvisa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar
um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir greiðsludag
vinninga.
GETRAUNIR — íþróttamiðstöðin — REYKJAVtK
AÐALFUNDUR LÍFEYRISSJÓÐS
ATVINNUFLUGMANNA
verður haldinn að Háaleitisbraut 68, i
kvöld kl. 20,30.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf
önnur mál
Stjórnin
LANDROVEREIGENDUR og aðrir jeppaeigendur. Eigum liggjandi farangursgrindur á allar jeppabifreiða. — Sendum gegn póstkröfu — fyrir- gerðir
Mánafell h.f., Laugarnesvegi 46, Simi 84486
BÆNDUR - Island - Danmörk
13 ára dönsk stúlka óskar eftir að dvelja á
islenzku sveitaheimili i hálfan mánuð i
sumar, þar sem eru hestar. Meðgjöf eða
skipti á uppihaldi i Danmörku. Tilboð
sendist blaðinu sem fyrst merkt: ísland -
Danmörk 1331