Tíminn - 18.05.1972, Síða 17
Fimmtudagur 25. maí 1972, TÍMINN 17
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
FÁIR VEÐJA Á DAVIÐ
í VIÐUREIGNINNI
VIÐ GOLÍAT
Eini skugginn á ferðinni er fjarvera Akurnesinga, segir Albert Guðmundsson
Albert Guðmundsson,
formaður KSt.
Einkaskeyti frá Alfreö Þorsteins-
syni i Briíssel.
tslenzka landsliðið, sem mætir
Belgiumönnum i fyrri leiknum
hefur verið valið. Einn nýliði er i
liðinu, Ölafur Júliusson frá Kefla-
vik, annars er liðið þannig
skipað: Sigurður Dagsson,
Jóhannes Atlason, Ólafur
Sigurvinsson, Marteinn Geirsson,
Guðni Kjartansson, Einar
Gunnarsson, Asgeir Eliasson,
Guðgeir Leifsson, Elmar
Geirsson, Hermann Gunnarsson,
Ólafur Júliusson.
Samkvæmt þessari uppstillingu
er ljóst, að liðið muni leggja
mikla áherzlu á varnarleik, eins
og sjálfsagt og eðlilegt er. t stuttu
viðtali sagði Albert Guðmunds-
son, formaður "KSt, að eini
skugginn,sem boriðhefði á i ferð-
inni, væri fjarvera leikmanna frá
Akranesi. Þeir hefðu reynzt góðir
félagar og væri leitt, að þeir gætu
ekki verið með. Um leikinn sagði
Albert, að ekki væri við þvi að
búast, að islenzka liðið gæti
staðizt Belgiumönnum snúning.
Þeir væru meðal fjögurra beztu
liða Evrópu um þessar mundir, i
toppæfingu, en islenzka liðið væri
rétt aö hefja sina sumarvertið.
En piltarnir myndu reyna að gera
sitt bezta. Meira væri ekki hægt
að krefjast af þeim.
Þvi má bæta við að lokum, að
mikið er skrifað um leikinn i
belgiskum blöðum. Blaðamenn
fengu veður af brottvikningu
Akurnesinga úr liðinu og voru
mættir á flugvellinum i Brússel,
þegar islenzka liðið kom þangað á
þriðjudagskvöld og spurðu farar-
stjóra isl liðsins spjörunumar.
Nú eru sjálfir leikirnir eftir,
viðureign Daviðs og Goliats og
það eru ekki margir, sem veðja á
Davið þessu sinni. Leikurinn
hefst kl. 7 eða 19 að islenzkum
tima og verður leikið i flóðljósum
á velli Standard i Liége.
Ólafur Júliusson — leikur sinn fyrsta landsleik i kvöld. A myndinni sést
Ólafur i leik i 1. deild gegn Akureyri.
Úr hnattreisu í
landsleik í Belgíu
Elmar Geirsson
hefur gert víðreist
Kinkaskeyti frá Alireð Þorstéins
syni i Brússel.
Meðal islenzku leikmannanna,
sem mæta Belgiumönnum i kvöld
er Elmar Geirsson, úr Fram, sem
dvelst við nám i Þýzkalandi og
leikur þar með Berlinarliðinu
Hertha Zeelendorf.
Elmar er nýkominn úr hnatt-
reisu með þýzka liðinu — lék það
m.a. i Manila á Filippseyjum i
Ástraliu, Nýja—Sjálandi, Singa-
pore og Tahiti. Sagði Elmar, að
þessi för hefði verið mjög lær-
dómsrik og gaman hefði verið að
koma til þessara landa. Mest kom
mér á óvart.sagði hann, þegar ég
lék i Perth i Astraliu,að hrópað
var úr áhorfendastúkunni
„Áfram Elmar”. Vissi ég ekki
hvaðan á mig stóð veörið, en
skýringin er sú,að i Perth búa
allmargir tslendingar.
Elmari gekk vel i þessum
leikjum og skoraði mörk i flestum
þeirra. Og nú fær Elmar að reyna
sig á nýjum vigstöðvum i kvöld á
móti sterkari mótherjum.
Vonandi tekst honum með
hraða sinum og krafti að gera
usla i liði Belgiumanna.
Tekst Elmari aö gera usla hjá
„rauðu djöflu'num”
Hefvarla hafttímatilað
átta mig
segir Olafur Jiilíusson
nýliðinn í ísl. landsliðinu
Einkaskeyti frá Alfreð
Þorsteinssyni i Brússel.
„Atburðarásin hefur verið svo
hörð, að ég hef varla haft tima til
að átta mig á hlutunum, sagði
Ólafur Júliusson tvitugur Kefl-
vikingur, eini nýliðinn i lands-
liðinu i stuttu viðtali.
Ólafur sagðist hafa orðið mjög
undrandi, þegar hann var beðinn
að taka þátt i þessari landsleikja-
för með aðeins tveggja daga
fyrirvara, og það hafi komið sér
enn meira á óvart, þegar hann
hafi svo verið valinn úr hópnum
til að leika. Ólafur, sem er bróðir
Rúnars Júliussonar, knatt-
spyrnumanns og hljómlistar-
manns, hefur vakið verðskuldaða
athygli i siðustu leikjum. M.a.
hafði framkvæmdastjóri skozka
liðsins, Mortons, áhuga á að sjá
hann leika með liðinu, en úr þvi
varð þó ekki. Um leikinn i kvöld
sagði Ólafur, aö hann yrði án efa
mjög erfið raun, þvi að Belgiu-
menn ættu eitt bezta landslið
Evrópu.
Það munaði
bara einum
A iþróttasiðunni i gær, stillti
Timinn upp þvi liöi, sem hann
taldi liklegast að mundi leika við
Belgiumenn i Liége i kvöld. Er
ekki annað hægt að segja, en að
Timinn hafi staðið sig vel, þegar
hann brá sér i gerfi „einvalds” og
valdi liðið — það munaði bara
einum i þetta sinn.
Timinn hafði Óskar Valtýsson i
staðinn fyrir ólaf Júliusson — en
hann leikur sinn fyrsta landsleik i
kvöld. Sagt er frá þvi, hvernig
landsliðið verður skipað, annars
staðar á siðunni. SOS
Yfirlýsing frá Knattspyrnuráði Akraness:
Það er hægt að bæta fyrir margt
- en þetta verður ekki bætt
Vegna brottvikningar Akurnes-
inga úr landsliðinu, viljum við
taka fram eftirfarandi:
Leikmenn I.A. hafa mætt mjög
vel til landsliðsæfinga i allan
vetur, og hafa stundum verið
fleiri en helmingur þeirra, sem
mætti, þannig að þeir verða
aldrei sakaðir með neinni sann-
girni um slælega mætingu, þótt
þeir hafi þurft að aka um 200 km.
til og frá æfingum.
Við viljum ennfremur taka
fram, að þjálfari I.A. náði sam-
komulagi við einvaldinn, er hann
var hér staddur með liði sfnu
I.B.K., um að alla fimmtudaga
mættu þeir hér með sinu liöi, en
leikdagar Litlu—bikarkeppn-
innar voru allir ákveðnir á
laugardögum og var hún skipu-
lögð af I.B.H. um páskana. Rik-
harður benti á, að fimmtudagur-
inn væri sér æfingadagur A—lið-
sins, siðasta æfing fyrir leik og
sleppti hann ekki landsliðsmönn-
unum burtu þann dag. Einvaldur-
inn lýsti sig fyllilega samþykkan
þessu og taldi,að það gerði ekkert
til, þótt þeir kæmu ekki til æfinga
á þessum dögum, enda langt að
fara. Formaður knattspyrnu-
ráðsins, Magnús Kristjánsson,
var vitni að þessu samtali ein-
valdsins og þjálfara I.A.
Rikharðs Jónssonar.
Næsta fimmtudag hélt ein
valdurinn samkomulagið og
enginn var boðaður á landsliðs-
æfingu, en þar næsta fimmtudag,
það var 4. mai, boðaði hann alla
landsliðsmennina suður til
æfinga, hafði samband við
Rikharð og tjáði honum, að þetta
væri eini dagurinn, sem þeir gætu
kamið allir saman og fengið
æfingu á grasi,áöur en leikið væri
við MORTON. Rikharður taldi
þetta sjálfsagt og hafði samband
við landsliðsmennina og þeir
mættu allir.
Við teljum, að það sé sama og
semja við stjórn K.S.I. og semja
við einvaldinn, og þegar ábyrgir
aðilar semja standa þeir við það,
sem samið er um. Við teljum, að
einvaldurinn hefði átt að tilkynna
stjórn K.S.I. um þetta samkomu-
lag, en komið hefur i ljós,að þeir
hafa ekki hugmynd um það fyrr
en þeir lesa það nú. Við teljum,að
til ýmissa kringumstæða eins og
fyrr voru nefndar þurfi að taka
tillit, eins og við fúslega gerðum.
Litla—bikarkeppnin er okkar
æfingamót fyrir Islandsmótið,
sett á m.a. af formanni K.S.l. eins
og meistarakeppnin, en þessi mót
komast orðið ekki fyrir vegna
árekstra hvert við annað, eins og
nú skal greina.
Við áttum leik við I.B.K. sam-
kvæmt niðurröðun laugardaginn
13. mai og var það siðasti leikur
mótsins. Við fréttum á þriðju-
degi, að meistarakeppnin milli
I.B.K. og l.B.V. hefði verið
ákveðin á sama degi og tfma og
við áttum að leika, og höfðum þvi
samband við formann I.B.K.,
sem er einvaldur K.S.I., og full-
yrti hann, að leikurinn i Litlu—
bikarkeppninni yrði samkvæmt
áætlun, sama fullyrti hann siðar i
vikunni, þó svo að búið hafi verið
að ganga frá þvi við I.B.V.,að
leikurinn i meistárakeppninni
yrði á umræddum stað og tima.
Fimmtudaginn 11. mai, á upp-
sligningardag, boöar hann, þrátt
fyrir gefið loforð, landsliösmenn-
ina suður, en við erum hér með
séræfingu A—liðs samkvæmt
áðurnefndu samkomulagi við ein-
valdinn og i góðri trú um, að liðið
fengi ein leik i viðbót áður en það
færi hálft til Belgiu.
Siðan skeður það, að Rikisút-
varpið tilkynnir léik i Keflavik i
meistarakeppninni, um frestun á
leik við l.A. var aldrei beðið og
umgengnin við okkur i þessu máli
verður okkur lengi minnisstæð.
Strax á föstudagskvöldið ákveður
þjálfari t.A. æfingu A—liðs og B—
liðs á sunnudag og mættu þar allir
landsliðsmennirnir samkvæmt
ósk hans og knattspyrnuráðs.
Einvaldinum var tilkynnt þetta
strax um kvöldið og svarið var,
að þeir tækju afleiðingunum.
Það má bæta þvi við, að er ein-
valdurinn var að boða mennina
suður á uppstigningardag, benti
einn þeirra honum á, að sam-
kvæmt margnefndu samkomu-
lagi ættu þeir að æfa með liði sinu
á fimmtudögum og bað hann aö
tala við þjálfarann, en svarið var
að hann hefði ekkert við hann að
tala, sem hann og aldrei gerði.
K.R.A. hefur aldrei verið til-
kynnt um það hverjir hafa verið
valdir til landsliðsæfinga, né
nokkurt samband verið haft við
okkur á nokkurn hátt, utan fundar
á Hótel Sögu, sem þjálfarinn var
boðaður á, en enginn frá ráðinu
sjálfu. Stjórn K.S.I. vill að tekið
sé tillit til hennar og er það eðli-
legt, en hvaða tillit tekur hún til
annarra stjórna, sem gegna ekki
minna hlutverki. Leikmenn I.A.
gegndu sinni yfirstjórn og eiga
þeir þakkir skildar, þeir voru allir
tilbúnir að fara til Belgíu, enda
búnir að fá sér gjaldeyri, þeir
hefðu einnig getaö mætt í Reykja-
vik siðar um daginn, en það bað
enginn um það. Formaður K.S.l.
náði sambandi við einn leikmann-
anna eftir itrekaðar tilraunir, til
hvers? Og aftur við sama mann
til að tilkynna honum um brott-
vikninguna, mörgum klukku-
timum áður en formleg tilkynn-
ing kom, en hann talaði aldrei viö
formarm I.A.
Lokakaflinn er svo, að stjórn
K.S.l. er kölluð saman og það er
lagt fyrir hana, að enginn Akur-
nesingur hafi mætt á þessa sið-
ustu æfingu, og eins og formaður-
inn hefur lýst yfir i blööunum
gætu þeir strækað á að fara út á
siðustu stundu, væri þvi ekki um
annað að gera en setja þá út og
velja nýja menn og var það sam-
þykkt. Engin fyrirspurn! einn
greiddi atkvæði gegnum sima,
ekkert mótatkvæði. Enginn
greiddi atkvæði með fyrirvara, ef
fengnar upplýsingar myndu
breyta afstöðu þeirra, en timinn
var naumur og hraðinn enn meiri
þvi hringja þurfti út. Hugdetta
Erh. á bls. 5