Tíminn - 07.06.1972, Page 3
Miðvikudagur 7. júni 1972
TÍMINN
3
Austurstræti 12, sem Listasafnið lét i makaskiptum fyrir Fram-
sóknarhúsið (Timamynd Róbert)
Listasafnið fékk
Framsóknarhúsið
í skiptum fyrir
Austurstræti 12
KJ-Reykjavik.
Makaskipti hafa orðið á Fram-
sóknarhúsinu við Frikirkjuveg
Nýr formaður
Húsnæðismálastjórnar
Sigurður Guðgeirsson hefur
verið skipaður formaður Hús-
næðismálastjórnar rikisins, og
Þráinn Valdimarsson hefur verið
skipaður varaformaður. Nýkjörin
Húsnæðisstjórn kom svo saman á
fyrsta fund sinn i gær.
(Glaumbæ) og húseigninni Aust-
urstræti 12.
Listasafn rikisins átti Austur-
stræti 12, en fékk Framsóknar-
húsið i skiptum fyrir þá húseign,
og Framsóknarfélögin i Reykja-
vik fengu Austurstrætishúsið.
Samningar um þessi makaskipti
hafa verið undirritaðir og á næst-
unni mun Listasafnið skýra frá
þeim hugmyndum, sem uppi eru
um Framsóknarhúsið, og hvernig
eigi að notfæra það fyrir safnið.
Listasafnið hefur á undanförnum
árum fengið inni i Þjóðminjasafn-
ingu, en eignast nú eigið hús á
góðum stað i borginni.
Drangey:
Mergð af geldfugli,
afarlélegt varp
G.ó.-Sauðárkróki. um orsakirnar, og láta sumir sér geldfugli við eyna, sé varpinu til
Jón Eiriksson, bóndi I Fagra- detta i hug að mergð sú, sem er af baga.
nesi, er aðalsigmaður okkar
Skagfirðinga og raunar hinn eini,
sem getur kallazt reyndur sig-
maður. Hann segir þá sögu, að
varp sé nú með langminnsta móti
i Drangey, þótt mikið sé þar um
geldfugl.
Jón var úti i Drangey með eitt
úthald, sem kallað er, átta menn.
Voru sex þeirra úr sveitinni, en
tveir af Sauðárkróki. I fyrra
fengu þeir Jón og félagar hans
um sjö þúsund egg á vikutima, en
nú var eggjafengurinn aðeins
einn þriðji af þeirri tölu, rétt á
þriðja þúsund egg, á svipuðum
tima.
Enginn veit, hvað þvi veldur, að
varpið er svo rýrt i Drangey að
þessu sinni. En menn geta sér til
Margmenni á biyggjunni
- ásamt eldfimum efnum
Skömmu eftir að hátiöa-
höldum á sjómannadaginn var
lokið á Akureyri, var Torfu-
nefsbryggju, þar sem múgur
og margmenni haföi verið fyrr
um daginn til þess að horfa á
kappróður og hlusta á leik
lúðrasveitar, skyndilega lokaö
að fyrirlagi slökkviliðsstjór-
ans.
Orsökin var sú, að á bryggj-
unni voru geymdar um hundr-
að tunnur af eldfimum,
kemiskum efnum, sem hætta
var talin stafa af, ef þar væri
óvarlega farið meö eld. Efni
þessi höfðu verið sett þarna á
bryggjuna fyrir helgina.
Slökkviliösstjórinn lét halda
vörð á bryggjunni fram á
mánudag, að efnin voru flutt
brott.
Hvers vegna er varpið i Drangey aðeins þriðjungur þess, sem verið hefur undanfarin ár?
Hafnarfjarðarganga
á sunnudaginn
Hin nýja miðnefnd andstæðinga
bandariskra herstöðva á islandi
hefur ákveðið að boða til friðsam-
legrar göngu og útifunda n.k.
sunnudag 11. júni, til að knýja á
um brottför varnarliðsins.
Gangan hefst i miöbæ Hafnar-
fjarðar með stuttu ávarpi siðdeg-
is kl. 19. Gengið verður frá
Hafnarfirði til Kópavogs og þar
haldinn stuttur útifundur við bió-
ið. Guðmundur Sæmunds-
son flytur ávarp og Böðvar Guð-
mundsson mun standa fyrir bar-
áttusöngvum.
Þá verður gengið niður i miðbæ
Reykjavikur og haldinn útifundur
við Menntaskólann við Tjörnina,
sem hefst væntanlega laust fyrir
kl. 23.
A þessum fundi veröur Njörður
P. Njarðvlk lektor fundarstjóri,
en fjórir menn flytja ávörp: Cecfi
Haraldsson kennari, varafor-
maður SUJ, Elias Jónsson, blaða-
maður á Timanum, Kjartan
Ólafsson framkvæmdastjóri og
Tryggvi Aðalsteinsson, formaður
Iðnnemasambands Islands.
Þeir, sem ætla aö fá bllfar sfð-
degis á sunnudag frá Reykjavlk
til Hafnarfjarðar i sambandi við
gönguna, eru beðnir að skrá sig
hið fyrsta I skrifstofu samtak-
anna, Kirkjustræti 10, simi 23735.
Aðalfundur SH:
Samdráttur í heildarframleiðslu, en
aukning á flökum og fiskblokkum
A aðalfundi Sölumiðstöðvar
hraðfry stihúsanna, sem stóð
dagana 31. mai og 1. júni, kom
fram, að heildarframleiðsla
hraðfrystihúsanna innan SH árið
1971 var 72,970 lestir, en þaö var
2% minna magn en árið áður.
Varð samdrátturinn vegna minni
framleiðslu á heilfrystum fiski og
dýrafóðri, en framleiðsla fisk-
flaka og fiskblokka var 58,042
iestir, sem er 1200 lestum meira
en árið á undan.
A siðasta ári var útflutningur
SH 68, 269 lestir, eða 15,4% minni
en árið á undan. Clif-verðmæti út-
flutningsins var 4,706 millj. kr.
Mest var sclt til Bandarikjanna,
eða 39,464 lestir. Til Sovét-
rikjanna voru seldar 17,403 lestir,
til Bretlands 2,991 lest til Vestur-
Þýzkalands 965 lestir og til Japan
2,851 lest.
Rekstur fyrirtækja Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna er-
lendis gekk veí á siðasta ári.
Ileildarverðmæti seldra afurða
hjá Coldwater Seafood Corpor-
ation i Bandarikjunum nam 5072
millj. kr, og jókst um 50% frá
árinu áður.
Unniö er að stækkun fiski-
iðnaðarverksmiðju Coldwater i
Cambridge Maryland. Verk-
smiðjan verður stækkuð um
helming og veröur eftir
stækkunina 20 þúsund fermetrar
að flatarmáli.
Fyrirtæki SH i London, Snax
(Ross) Ltd., rekur nú 24 „Fish &
Chips” búðir i London, og er
heildarvelta þeirra árið 1971 53,4
millj. kr.
A sfðasta ári hækkaöi verðlag
sjávarafurða á öllum helztu
mörkuðum.
1 stjórn S.H. fyrir starfsárið
1972/73 voru kjörnir:
Gunnar Guðjónsson, formaður,
Einar Sigurðsson, varaformaður
Guðfinnur Einarsson, ritari,
Einar Sigurjónsson,
Gisli Konráðsson,
Ingvar Vilhjálmsson,
Ólafur Jónsson,
Rögnvaldur Ólafsson,
Tryggvi Ófeigsson.
Sjávarútvegs-
ráðherra
ræðir land-
helgismálið
A mánudagskvöldið mætti
sjávarútvegsráðherra Lúðvik
Jósefsson á almennum fundi sjó-
manna og útvegsmanna, sem
haldinn var á tsafirði. A fundin-
um var rætt um landhelgismálið.
1 kvöld, miðvikudagskvöld
mætir ráðherrann á fundi á
Reyðarfirði með sjómönnum og
útvegsmönnum af Austfjörðum,
og verður þar einnig rætt um
landhelgismálið.
A föstudaginn er samskonar
fundur i Vestmannaeyjum og sið-
ar i vikunni er ráðgerður fundur
sjávarútvegsráðherra með sjó-
mönnum og útvegsmönnum á
Norðurlandi.