Tíminn - 17.06.1972, Page 17
Laugardagur 17. júní 1972.
TÍMINN
17
valsliðio komið
í 3. sæti í 1. deild
- Hermann Gunnarsson lék aðalhlutverkið, skoraði
tvö mörk og átti þátt í tveimur þegar
liðið sigraði
Valur sigraði Viking 4:0 á
Laugardalsvellinum s.l. fimmtu-
dagskvöld. Leikur liðanna var
nokkuð liflegur og skemmtilegur
á köflum. Með þessum sigri er
Valsliðið komið upp i 3. sæti i
deildinni. en aftur á móti eru
Víkingarnir enn i neðsta sæti, án
þess að hafa skorað mark.
Hermann Gunnarsson, bezti
maður vallarins,átti mestan heið-
ur af sigri Vals. A 11. min. lék
hann skemmtilega með knöttinn
að Vlkingsmarkinu, dró að sér
varnarmenn Vikings, svo að
Alexander Jóhannesson var
óvaldaður inn I vitateig — sendi
þá Hermann knöttinn til Inga B.
Albertssonar, sem skoraði.
Aftur var Hermann á ferðinni á
15. min. Þá átti hann þrumuskot
af 35 m færi. Diðrik varði, en fékk
knöttinn framan á fingurgómana,
svo að fingur á vinstri hendi fóru
úr liði, svo að hann þurfti að yfir-
gefa leikvöllinn.
A 20. min. skora svo Valsmenn
Víking 4:0
sitt annað mark og var þar
Hermann enn á ferðinni. Hann
fékk sendingu inn i vitateig — lék
á tvo varnarmenn, með þvi að
vippa knettinum með hægri fæti
yfir á vinstri siðan með vinstri
afturá hægri og skaut siðan hnit-
miðuðu skoti i hliðarnetið. —
Ekki voru fleiri mörk i fyrri
hálfleik, sem var mjög jafn og
skiptust liðin á að sækja.
Vikingar sóttu stift fyrstu 15.
min. i siðari hálfleik, en tókst ekki
að koma knettinum i netið, þótt
sæmileg tækifæri sköpuðust. En
aftur á móti tókst Valsmönnum
að skora mark. Hermann komst
einn inn fyrir Vikingsvörnina og
skaut að marki, markvörður
varði skot hans, en hélt ekki
knettinum, sem hrökk til Her-
manns aftur og þá sendi Her-
mann hann strax i netið.
Fjórða og siðasta mark Vals
skorar svo Ingi B., þegar hann
fékk knöttinn óvænt frá mark-
verði. Aðdragandinn að markinu,
Pétur Björnsson, formaður Golfklúbbs Ness tekur við bikarnum, sem
sendiherra Bandarikjana, Luther Eeplogle, gaf til keppni i golfi hér á
landi. Sendiherran. fer aifarin frá islandi I dag.
Flugvél
Framhald
af bls. 24
loftferðasamningi landanna að
lenda á Spáni, og þvi eigi spánsk-
ar flugvélar að fá að lenda á fs-
landi.
Ferðaskrifstofunni Sunnu þykir
leitt, að farþegar hennar hafa á
þennan hátt orðið fyrir óþægind-
um vegna aðgerða yfirvalda”.
Birgir Þorgilsson hjá Flugfé-
lagi íslands sagði við blaðið i gær,
að fyrirtæki hans kæmi þessi af-
staða Spánverja undanlega fyrir
sjónir, þar sem hér
Birgir Þorgilsson hjá Flugfé-
lagi Islands sagði við blaöið i gær,
að fyrirtækinu kæmi þessi af-
staða Spánverja undarlega fyrir
sjónir, þar sem hér hefði verið
um að ræða isl. farþega, sem voru
að fara til Mallorku til þess að
eyða þar fémunum sinum. Á hinn
bóginn hefði það ekki komið til
greina að senda flugvélina án
lendingarleyfis.
Seint i gærkvöldi bárust Timan-
um svo þær fréttir, að spænsk
yfirvöld hefðu á siðustu stundu
loks fallist á, að veita leyfi fyrir
þeirri einu ferð, sem Sunna hafði
sótt um. Þá var búið að gera ráð-
stafanir til að fá þotu frá BEA til
að sækja Mallorka-farþegana.
Veitingum og mat hafði verið
komið fyrir um borð i þotunni og
var allt ,,klárt" fyrir Islandsferð-
ina. BEA hefur ótakmörkuð rétt-
indi til flugs bæði til Islands og
Spánar.
Sendiherrann
gaf golfmönn-
um bikar í
kveðjuskyni
Luther I. Replogle, sendiherra
Bandarikjana hér á landi s.l. þrjú
ár7kveður tsland i dag fyrir fullt
og allt, en hann lætur af störfum
fyrir aldurssakir.
Hann afhenti i gær Pétri
Björnssyni, formanni Golfklubbs
Ness, stóran og vandaðan silfur-
bikar, sem hann sagði að væri
kveðjugjöf sin til islenzkra golf-
manna. Sjálfur hefur sendi-
herrann leikið mikið golf hér á
landi og kynnzt mörgum
íslendingum i þvi sambandi.
Hann óskaði þess, að keppt yrði
um liikarinn á sem flestum golf-
völlum. Yrði haldin forkeppni á
einhverjum velli og siðan ávallt
úrslitakeppni (holukeppni) á velli
Golfklúbbs Ness, og að þessi
keppni yrði öllum opin.
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
llér sézt bezti framlinuspilari Vikings, Hafliði Pétursson, reyna að spyrna knettinum fram hjá Sigurði
Dagssyni, sem var vel á verði og varði. (Tlmamynd Róbert)
var,að Hermann og lngvar Elias-
son, léku þrihyrning inn i vftateig
og þaðan skaut Hermann að
marki, markvörður varði, en
missti knöttinn til Inga B. Þetta
skeði á siðustu min. leiksins.
Valsliðið sýndi oft skemmtileg
tilþrif i leiknum, sóknin er alltaf
hættulegasti hluti liðsins og gerðu
Halldór Signrðsson
látinn
Halldór Sigurðsson, annar
aðalstofnandi Knattspyrnu-
félagsins Þróttar, lézt i Land -
spitalanum I morgun, 74 ára að
aldri.
Halldór var einn af aðalhvata-
mönnum Þróttar, þegar félagið
var stofnað 5. september 1949 á
Grimsstaðarholti. Hann vann
mikið starf fyrir félagið þar og
einnig eftir að félagið tók nýja
félagssvæðið við Sæviöarsund i
notkun. Með andláti Halldórs
hefur Knattspyrnufélagið Þróttur
misst einn af sinum beztu drengj-
um.
framlinumennirnir marga
skemmtilega hluti með Hermann
i fararbroddi. Þá átti Bergsveinn
Alfonsson, góðan leik og sömu-
leiðis h. bakvörðurinn Vilhjálmur
Kjartansson.
Vikingsliðið virðist vera i öðr-
um heimi þessa dagana, og á
örugglega mestan þátt i þvi, sú
pressa, sem hvilir á liðinu
vegna þess, að þvi hefur ekki tek-
izt að skora mark i 7 siðustu leikj-
um sinum. Beztu menn liðsins
voru: Jóhannes Báröarson, Guð-
geir Leifsson, Gunnar Gunnars-
son og Magnús Þorvaldsson.
SOS
Lísa Ronson setti þrjú
íslandsmet í snndi
í Bandaríkjunum
- miklar líkor að hún keppi hér 1. og 2. júlí
í landskeppni við (ra
Lisa Ronson Pétursdóttir
(Rögnvaldssonar, leikari og
fyrrverandi frjálsiþrótta-
kappa), sem er búsett i
Bandarikjunum, setti þrjú ný
Islandsmet i sundi nú i
vikunni. Metin, sem húnsetti,
eru i skriðsundum — timarnir
á nýju metunum, eru 1.04,8 i
100 m. skriðsundi, 2.21,6 I 200
m. skriðsundi og 4,56,4 i 400
m. skriðsundi.
Miklar likur eru á að Lisa
komi hingað til landsins i lok
júni, til að keppa með islenzku
landsliðssveitinni, sem mætir
trum i landskeppni 1. og 2. júli
n. k. Mun hún styrkja islenzka
landsliðið mikið, þegar þaö
mætir trum i Laugardals-
sundlaugunum. Viö segjum
nánar frá keppninni siðar.SOS
HERHAKN HGFIIR SKORAB
61HÖRK í 1. DEILDARLEIKJUM
Hermann Gunnarsson skoraði
sitt 60. mark i 1. deild, þegar lfð
hans, Valur, sigraði Viking á
fimmtudagskvöldið. Fyrir þann
leik var hann, ásamt Ellert
Schram KR, markhæsti 1.
deildar-spilarinn með 48. mörk.
En nú hefur Hermann skotizt
fram úr Ellert og má búast við,
aö hann skori meira af mörkum i
sumar, þvi að deildarkeppnin er
rétt að hefjast.
Við hjá Iþróttasiöunnihöfð-
um samband við Her-
mann og spurðum hann,
hvenær hann hafi leikið sinn
fyrsta 1. deildarleik: — Það var
gegn KR 1963 og skoraði ég þá
mitt fyrsta mark i 1. deild. Við
unnum KR þá 2:0
— Þaö eru svo margir eftir-
minnilegir leikir, sem ég hef
leikið I 1. deild. Eins og t.d. úr-
slitaleikurinn i Islandsmótinu
1967, þegar Valur sigraöi Fram
2:0 og leikur, sem ég lék með
Akureyringum gegn KR 1970, —
þá unnum við 6:3. Við höfðum yfir
4:0, en KR-ingum tókst að
komast i 4:3.
— Ég hef skorað mest 4 mörk i
1. deildarleik, það var 1964, þegar
Valur sigraði Fram 7:3. Einnig
skoraði ég fjögur mörk gegn
Vfking 1970, en þá lék ég með
Akureyrarliðinu. Sama ár
skoraði ég einnig sex mörk með
þeim i leik gegn Vestmannaeyjum
þegar við .sigruðum þá 6:0 i
bæjarkeppni.
SOS.