Tíminn - 07.07.1972, Síða 16
16
TÍMINN
Föstudagur 7. júli 1972
: ■
■</' ‘
wm
Ricky Bruch, 1,99 m á hæð og 130 kíló aö þyngd, sýnir hina réttu
stcllingu kringlukastarans.
JÓ\ HJALTALÍN KOMIH
Jón Hjaltalín er kominn heim
frá Sviþjóð og byrjaður aö æfa af
kappi með landsliðinu i hand-
knattleik. Landsliðið, sem er að
undirbúa sig undir ÓL-leikana i
Mönchen, er farið að æfa fimm
sinnum i viku, og verður æfinga-
prógrammið hjá liðinu keyrt á
fullu fram að OL-leikunum.
verður mikið af æfingaleikjum,
og leikmenn liðsins fá nóg að
gera. T.d. fer landsliðið i
keppnisferðalag til Noregs og V-
Þýzkalands i lok júli til að leika
vináttuleiki við þjóðirnar.
Leiknir verða fjórir leikir i ferð-
inni á fimm dögum.
Þess er ekki langt að biða, að
landsliðið verði endanlega valið
fyrir ÓL-leikana. Biða menn
spenntir eftir að fá að vita, hvaða
leikmenn eiga að halda uppi
heiðri islenzkra i þróttamanna á
leikunum. Það má segja, að
islenzka landsliðið i handknatt-
leik verði „augasteinninn okkar”
á ÓL-leikunum.
SOS.
Jón Hjaltalin.
Ellert Schram gerist
þjálfari á Sauðárkróki
Ellert Schram I leik gegn-Kefla-
vík i fyrra.
Ellert B. Schram, fyrrum fyrir-
liði landsliðsins i knattspyrnu,
mun i sumar þjálfa yngri flokka
U.M.F. Tindastóls á Sauðárkróki.
Það verður áreiðanlega upplifg-
andi fyrir ungu knattspyrnu-
mennina á Króknum að fá Ellert
sem þjálfara i sumar, en hann
mun dveljast á Sauðárkróki fram
á haust. Þá hefur skotið upp
þeirri hugmynd, að Ellert muni
leika með 3. deildarliði Tinda-
stóls, en það er óvist að svo veröi.
Ellert er einn fjölhæfasti knatt-
spyrnumaður sem Island hefur
átt. Hann byrjaði að leika með
meistaraflokki KR 1957, þá aðeins
18 ára gamall, og lék siðast með
KR-liðinu i fyrra, eins og menn
eflaust muna. Þá kom hann inn i
KR-liðið þegar það var i fall-
hættu, og eftir að hann byrjaði að
leika með liðinu, tapaði það ekki
leik og hélt sér uppi i 1. deild. Ell-
ert hefur leikið 268 meistara-
flokksleiki með KR. Þá hefur
hann leikið 23 landsleiki, lék sinn
fyrsta landsleik 1959.
SOS.
Rickj Brnch jafnaði
heimsmet Silvesters!
Tekst honum að bæta heimsmetið og kasta yfir 70 m
OE-Reykjavik
A DN-Galan í Stokkhólmi i
fyrrakvöld kastaði Ricky Bruch
kringlunni 68,40 m, sem er heims-
metsjöfnun. Staðfesta metið á
Jay Silvester.USA. Hann hefur að
visu kastað yfir 70 metra eða 70,38
en sá árangur hefur ekki veriö
staðfestur sem heimsmet.
Þetta var hápunktur þessa
mikla iþróttamótsá Olympiuleik-
vanginum, en Ricky náði þessu
afreki i fyrsta kasti. Annar I
keppninni varð Evrópu-
meistarinn og fyrrverandi
Evrópumethafi, Tékkinn Ludvig
Danek, en hann kastaði 65,30 m.
Eins og kunnugt er keppir
Ricky á Afmælismóti FRl á
Laugardalsvellinum i byrjun
næstu viku, og þá verður fróðlegt
að vita hað hann gerir. Sænska
frjálsiþróttasambandið hringdi á
skrifstofu FRt i gær og spurðist
fyrir um það, hvort ekki væru
fleiri en einn kasthringur.
Sviarnir hafa nefnilega heyrt, að
hér blási svolitið og búast þvi við
að Ricky nái hinu langþráða 70
metra marki hér. Þetta hefur
verið draumatakmark kringlu-
kastara um áraraðir, og vonandi
fáum við að sjá heimsmet i
Reykjavik eftir helgina.
1,99 m á hæð og vegur 130 kíló!
Ricky Bruch er 26 ára gamall,
fæddur 2. júli 1946. Hann er 1,99 m
á hæð og vegur 130 kiló! Hann
vakti fyrst athygli 1964, er hann
kastaði 52,36 m, þá 18 ára gamall,
en siðan hefur hann bætt árangur
sinn jafnt og þétt og á nú heims-
metið ásamt Silvester.
Hér er Ricky i eldhúsinu, en
miklar sögur fara af þvi, hve
mikið hann snæðir hverju sinni.
liíiwraar að skýrast í 2. defld
Nú um helgina verða leiknir
fjórir leikir i 2. deild, og má búast
við, að iínurnar fari að skýrast
eftir þessa leiki. Liðin sem eru
taplaus, Akureyri og FH, leika á
heimavöllum. Þaö verður eflaust
erfiðari leikur hjá FH-liðinu, sem
mætir Völsungum, heldur en hjá
Akureyringum, en þeir fá Ar-
mcnninga i heimsókn. Við skulum
lita nánar á leikina fjóra og sjá
hvar þeir verða leiknir.
I kvöld fer einn leikur fram i
Hafnarfirði. Þar mætast Haukar
og Þróttur kl. 20.00. Þróttarliðið
er sigurstranglegra i leiknum,
það hefur ekki tapað nema einum
leik og verður að vinna i kvöld, ef
það ætlar ekki að missa af lestinni
i baráttunni um 1. deildarsætið.
Haukaliðiðhefur leikið fimm leiki
i 2. deild og mátt þola tap i fjór
um. Liðið er i fallhættu enn sem
komið er, og verða Haukarnir að
vinna ieikinn i kvöld til að komast
úr hættu.
Liðin sem eru i öðru og þriðja
sæti i 2. deild, FH og Völsungur,
mætast á morgun i Hafnarfirði kl.
15.00, og má örugglega búast við
miklum baráttuleik. Ef liðin ætla
að blanda sér i baráttuna um 1.
deildar sætið i ár, verða þau að
leggja hart að sér. FH-liðið hefur
enn ekki tapað leik i 2. deild, og
verður þvi fróðlegt að vita, hvort
hinum liflegu framlinumönnum i
liði Völsunga tekst að stöðva sig-
urgöngu FH,
Annað lið i 2. deild, sem ekki
hefur enn tapað leik, verður i eld-
linunni um helgina. Það er Akur-
eyrar-liðið, sem fær Armenninga
i heimsókn á morgun kl. 16.00.
Það verður erfitt fyrir lið Ár-
manns að leika á heimavelli Ak-
ureyringa, sem ekki hafa tapað
leik á heimavelli i ár. Akureyrar-
liðið, sem féll úr 1. deild i fyrra,
stefnir að þvi að endurheimta 1.
deildar sætið i sumar. Ármanns-
liðið sem hefur verið i baráttunni
um 1. deildar sætið s.l. tvö ár, er i
einhverjum öldudal um þessar
mundir. Þó getur farið svo að
leikmenn liðsins nái saman á Ak-
ureyri og verði fyrstir til að sigra
Akureyrarliðið á heimavelli.
Isafjarðarliðið, sem ekki hefur
unnið leik i 2. deild, fær erfitt við-
fangsefni á morgun. Leikmenn
liðsins þurfa að leika á grasvelli á
Selfossi, og verður það mikil til -
breyting fyrir leikmennina, þvi
að þeir æfa ekki á grasi. Sel-
fyssingar eru lfka erfiðir heim að
sækja, hafa leikið tvo leiki á
heimavelli og unnið þá báða
glæsilega,-en aftur á móti hefur
þeim ekki gengið eins vel á úti-
velli. Leikurinn á Selfossi hefst kl.
16.00 á morgun. SOS.
18. og 19. júlí.
Bandariska landsliðið i
handknattleik er væntanlegt
til Islands eftir hálfan mánuð.
Liðið, sem tekur þátt i ÓL-
leikunum eins og islenzka
liðið, kemur hingað við á leið-
inni til Rúmeniu, þar sem
Bandarikjamenn taka þátt i
handknattleiksmóti. Banda-
riska liðið mun leika hér tvo
landsleiki, dagana 18. og 19.
júli, og fara leikirnir fram i
iþróttahúsinu i Hafnarfirði.
Eftir leikina við Bandarikin
verður svo islenzka landsliðið,
sem fer á ÓL-leikana, valið.
Siðan fer sá hópur i keppnis-
ferðalag til Noregs og V-
Þýzkalands og leikur fjóra
leiki i ferðinni.
Af þessu má sjá, að islenzka
liðið, sem æfir vel, verður
komið i góða æfingu, þegar
liðið tekur þátt i ÓL-leikunum,
en þar verður liðið i riðli með
A-þjóðverjum, Tékkum og
Túnismönnum.
SOS.
Björgvin Björgvinsson skorar i landsleik gegn Bandarikjunum
1970.
Bandaríska landsliðið í hand-
knaifleik kemnr eför 1/2 mán.
- leikur tvo landsleiki við ísland í íþróttahúsinu í Haínarfirði,