Tíminn - 12.07.1972, Blaðsíða 5

Tíminn - 12.07.1972, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 12. júli 1972 TÍMINN 5 Sumarferð Framsóknarfélaganna í Reykjavík Aðalfararstjóri Eysteinn Jónsson, forseti Sameinaðs Alþingis ferðar sinnar. Að þessu sinni verður farið til Hveravalla. Lagt verður af stað frá Hringbraut 20 kl. 8 að morgni. Farið verður um Þingvelli, Laugardal, að Gullfossi, Hvítárvatni og á Hveravelli, sem eru aðalviðkomustaður- inn. i bakleið er áætlað að koma til Geysis i Haukadal. Þátttakendur verða að vera vel að heiman búnir með nesti. Farmiðinn kostar 750 krón- ur fvrir fullorðna og 550 fyrir börn innan 10 ára. Miðar eru seldir á skrifstofu Framsókn- arfélaganna Hringbraut 20, simi 24480 og i afgreiðslu Tim- ans i Bankastræti 7, simi Sunnudaginn 22. júli efna F'ramsóknarfélögin i Reykja- vik til hinnar árlegu sumar- Nauðsynlegt er^, að menn tryggi sér farmiða sem fyrst, þarsemerfitt er að fá lang- ferðabifreiðar meö stuttum fyrirvara. Eysteinn Jónsson Úr aðalskipulagi Akureyrar um ferðamál: Flestir ferðamenn skoða Lystigarðinn og kirkjuna Norræna töl- fræðibókin SB—Reykjavik Sérfræðingar þeir, sem unnið hafa að gerð aðalskipulags fyrir Akureyri 1972-1992 hafa nú lagt fram greinargerðir sinar, mikla lesningu, sem reynist hafsjór fróðleiks. Við munum reyna aö birta glefsur úr þessum greinar- gerðum, einkum Akureyringum til upplýsingar. í þetta sinn gripum við niður i greinargerð um ferðmál á Akureyri. Sendir voru út itarlegir spurningalistar, bæði til ferða- fólks og ferðaskrifstofa. Ferðamennirnir voru bæði is- lenzkir og erlendir og á öllum aldri. Um 65% þeirra ætluðu að- eins að dvelja 1-2 daga á Akur- eyri. Fram kom, að flestir skoðuðu Lystigarðinn og kirkjuna. Þvi næst komu Nonnahús, Náttúru- gripasafnið Daviðshús og Amts- bókasafnið. Einnig var minnzt á útsýnisskifuna við Klapparstig- inn, mjólkursamlagið og verk- smiðjur SIS svo og Slippstöðina. F’erðalög um nærliggjandi héruð, meðan stanzað var, voru litil og beindust einkum að Mývatni. Flestir segja það hafa vakið at- hygli sina, hvað Akureyri sé fallegur og snyrtilegur bær. Það helzta, sem ferðafóikið hafði yfir að kvarta, var að matur og minjagripir væri dýrt, gæzla á tjaldstæðinu væri léleg og litið af keramikvörum væri á boðstólum. Einnig var minnzt á skort á is- lenzkum sérréttum á matsölu- EB—Reykjavík Norræn tölfræðihandbók, sem gefin er út af Norræna ráðinu, er komin út, og er þetta 10. árgangur hennar. Þetta rit er einkum ætlað til kynningar á Norðurlöndum sem heildar i öðrum löndum, og er það þvi á ensku, með sænskum skýringum. Ritið nær yfir mjög vitt upp- lýsingasvið. Það er 252 blaðsiður og i þvi eru 174 töflur auk linurita og korta. I hverri töflu eru sam- bærilegar tölur fyrir Norðurlönd um það efni, sem hún fjallar um, og að sjálfsögðu eru þar með tölur fyrir Island, sem Hagstofan hefur látið i té, þó ekki i öllum töflum. Handbókin er til sölu i Hagstof- unni. Hún kostar 250 krónur. Um þessar mundir er unnið af krafti við gerð Oddsskarðsganganna Nú eru jarðgangagerðarmennirnir komnir nokkra metra inn f fjallið Verkið hefur sótzt allsæmilega. Það, sem helzt hefur tafið fyrir verkinu eru miklar rigningar, sem hafa verið á Austurlandi undanfarið. Rign ingin hefur valdið því, að vont hefur verið að koma öllu efni frá sér. A myndinni t.v. sjáum við gangnamunnann Eskifjarðarmeginn. A myndinni tíl hægri sjást nokkur tæki er notuð eru við gangnagerðina. Einnig sést i opið, og hvar núverandi vegur liggur yfir Oddskarð i kvos- inni fyrir ofan jarðgöngin. stöðum. Ferðaskrifstofurnar svöruðu þvi til, að helztu möguleikar Akureyrar á sviði ferðamála, lægju á sviði vetrariþrótta, skiða- ferða bæði sumar og vetur, ráð- stefnuhalds, skólaferðalaga, auk- inni þjónustu við skemmtiferða- skip og stuttra ferðalaga i þvi sambandi. Helztu aðfinnslur ferðaskrif- stofufólks voru þær, að matur væri hvorki nógu góður né rifleg- ur i Sjálfstæðishúsinu, er komið væri þangað með hópa, þjónusta við ferðafólk á leiðinni til Mývatns væri slök, leiðsögumenn illa að sér og bilakostur lélegur. Þá væri oft erfitt að fá leigubila. Þá fannst þeim, að nauðsynlegt væri að hafa golfkylfur tilleigu á golfvellinum fyrir ferðamenn. Ferðamennirnir hrifast^að áhti ferðaskrifstofufólksins, mest af Goðafossi, Dimmuborgum, Öskju, Námaskarði, Mývatns- sveit, fuglalifi í Grimsey og út- sýni úr bátum af Akureyrar- polli. En gallinn við að njóta alls þessa er, að léleg aðstaða er á öllum stöðunum fyrir ferðamenn, vegirnir til Mývatnssveitar vond- ir og skortur á bátum til siglinga á Pollinum. SÓKN GEGN EYÐINGARÖFLUNUM Það er algengt, að félög og samtök taki að sér dreifingu fræs og áburðar á land, sem blásið hefur upp eða er i hættu af völd- um uppblásturs. Sums staðar hafa lika einstaklingar sinnt svip- uðu verkefni á skipulegan hátt. Dæmi um það er framtak þeirra Kjartans Árnasonar læknis og Aðalsteins Aðalsteinssonar full- trúa i Höfn i Hornafirði.. tfyrra fengu þeir frá Land- vernd eina lest áburðar og hundr- að kflógrömm af fræi, sem þeir fóru með inn i Staðarfjöll, austan Jökulsár i Lóni, og sáðu þar i rofabörð, þar sem gróðurlendi hefur verið að eyðast. Þetta kom prýðilega upp, og við athugun i vor kom á daginn, að gróðurinn heldur velli. Fengu þeir aö þessu sinni tvær lestir áburðar og hundrað og sjötiu kilógrömm af fræi, sem þeir dreifðu á sama hátt SILDARVERÐIÐ HÆKKAR EKKERT í DANAAÖRKU Þó-Reykjavik I siðustu viku seldu 36 islenzk sildveiðiskip afla sinn i Danmörku og Þýzka- landi. Alls var afli þessara skipa 2280 lestir, og meðal- söluverðið i vikunni var kr. 11.24. Heildarsöluverðmætið var þvi kr. 25.629.395. 36 skipanna seldur i Dan- mörku, en eitt þeirra, Jón Kjartansson, seldi i Þýzka- landi og fékk skipið engu hærra verð þar, en fékkst i Danmörku. Astæðan fyrir þessu lága sildarverði er fyrst og fremst sú, að sildin hefur verið frekar smá. Nú gera menn sér hinsvegar vonir um, að stærri sfld fari að veiðast á Norðursjávar- miðum, en fiskifræöingar telja samt, að ekki muni veiðast stór sild þar i jafn rikum mæli og i fyrra. Hæsta m^öalverðið i siðustu viku fékk Öskar Halldórsson RE, er hann seldi 7.1 lest 5. júli fyrir 203 þús, og meðalverðið er kr. 28.72. Gisli Arni fékk lang- hæstu heildarsöluna i vik- unni, skipið seldi 86.2 lestir 4 júli fyrir 1.9 millj. kr.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.