Tíminn - 12.07.1972, Blaðsíða 16

Tíminn - 12.07.1972, Blaðsíða 16
y Umsjón: Alfreð Þorsteinsson Agnst skóp hinn rétta landskeppnisanda Islenzku unglingarnir veittu dönskum allharöa keppni í ílestum greinum - fyrri dagur 64:42 Agúsit Agústsson, fyrirliöi islenzka liðsins, sigraöi i 800 m hlaupi. Hann tók geysilegan endasprett og sigraöi örugglega. (Tímamynd Róbert) tm Kriörik Þór Óskarsson, sigraöi i langstökki. stökk 0,02 m. (Timamynd Kóbert) ÖK-Keykjavik. islen/.ku unglingarnir tóku for- ystu eftir fyrstu grein lands- keppninnar viö I)ani á l.augar- dalsvellinum i fyrrakvöld. Þetta var jal'nframt fyrsta landskeppni þjóöanna i þessari grein, þar sem keppt er meö venjulegu lands- keppnisformi, tveir frá hvorri þjóö i hverri grein. Borgþór Magnússon tók forystu i hlaupinu og lengdi stöðugt bilið i mark og timi hans 15,0 sek. er sá sami og islenzka unglinga- metið og bezti timi lslendings i ár. Vilmundur Vilhjálmsson réði ekki við hina ágætu dönsku spretthlaupara i 100 m. hlaupinu, enda hai'a þeir hlaupið á 10.9 sek. Axel Mathiesen sigraði örugglega á 10,9 og Ole Lysholm tryggði tvö- faldan danskan sigur. Alnafni skákmannsins fræga Bent Larsen var sterkastur i kúluvarpinu, varpaði 13,40 m. sem nægði til sigurs, en allir keppendur nema Grétar voru langt frá sinu bezta. Utkoman i kúluvarpinu verður þó að teljast góð. Grétar Guðmundsson varð annar og Guðni Halldórsson þriðji. Betra en búizt var við. Annar islenzkur sigur kom i langstökkinu, en Friðrik Þór Óskarsson tók forystu strax i fyrsta stökki, 6,92 m. og það nægði til sigurs. Daninn Peter Johan sen, sem stokkið hefur yfir 7 metra varð að láta sér nægja annað sætið. Mestir voru yfirburðir Dana i 300 m. hlaupinu, en langhlaupin hafa ávallt verið veikasta grein islenzkra frjálsiþróttamanna. Þórólfur Jóhannsson frá Akur- eyri kom þó á óvart, en hann sigraði Einar Óskarsson og varð þriðji Þórólfur er enn i sveina- flokki, þ.e. verður 16 ára á þessu ári. Henn er mikið efni. Mikil barátta var i 400 m hlaupinu milli Vilmundar og Dananna, sem lauk með sigri Westergaard, sem hljóp á sinum bezta tima i sumar og það gerði Vilmundur einnig , 51 sek. Vil- mundur getur betur, en hann hefur ekki gengið algerlega heill til skógar undanfarna daga. Kringlukastið olli töluverðum vonbrigðum, Danir unnu tvö- faldan sigur en vonazt hafði verið til þess.að Óskar Jakobsson yrði a.m.k. annar. En hvorki hann né Guðni Halldórsson náðu sér á strik og voru langt frá sinu bezta. Anægjulegasta grein kvöldsins var 800 m. hlaupið, Danirnir Karsten Jensen ogSvendMalchau héldu forystunni fyrstu 600 m. og hraðinn var fremur lélegur. Það var auðséð, að þeir ætluðu sér að sigra Agúst Asgeirsson, fyrirliða islenzka liðsins á taktik. En Ágúst kunni ráð við þvi, þegar rúmir tvö hundruð metrar voru i mark, tók hann geysilegan endasprett og áður en Danirnir höfðu áttað sig var hann kominn næstum 10 metrum framúr, og þótt Jensen reyndi allt hvað af tók, að ná fyrirliða islenzka liðsins, tókst það ekki og hann sigraði á sinum bezta tima, 1:56,2 min. við gifur- legan fögnuð áhorfenda. Svona eiga 800 m. hlaup að vera! Hástökkið var jafnt og skemmtilegt. Elias stökk aðeins 1,75 m. en hann hefur átt við meiðsli að striða og hefur ekki náð sér enn. Karl West var aftur á móti i essinu sinu, sigraði lakari Danann auðveldlega og háði harða baráttu við Peter Johansen um sigurinn. Þeir stukku báðir 1,95 m. og voru jafnir. Það er jafnframt bezti árangur Karls, sem átti bezt 1,90 áður. I auka- stökkum um fyrsta sætið sigraöi Jóhansen eftir mikla baráttu. Danir sigruðu auðveldlega i 4x100 m. boðhlaupi og timarnir voru slakir. Staðan að loknum fyrri degi er, — Danir 64 stig og Islendingar 42. Aðeins lakara en við hér á Timanum höfðum spáð. Spá okkar brást fyrst og fremst i kringlukasti. llOm.grindahlaup: (St) Borgþór Magnússon 1 15,0 Karl A. Jörgensen D 15,8 Peter Johansen D 15,9 Magnús G. Einarsson 1 19,5 100 m. hlaup: Axel Mathiesen D 10,9 Ole Lysholm D 11,2 Vilmundur Vilhjálmsson I 11,4 Hannes Reynisson 1 11,8 Kúluvarp: Bent Larsen D 13,40 Grétar Gúðmundsson I 13,04 Guðni Halldórsson 1 12,90 Michael Henningsen D 12,71 Langstökk: Friðrik Þ. Óskarsson I 6,92 Peter Johansen D 6,83 Erling Hansen D 6,54 Karl West I 5,96 3000 m hlaup: Bjarne Peterson D 8:42,6 Per Bagge D 8:48,6 Þórólfur Jóhannsson I 9:21,8 Einar Óskarsson 1 9:33,0 400 m. hlaup: Bo Westergaard D 50,8 Vilmundur Vilhjálmsson 1 51,0 Lars Ingemann D 51,9 Borgþór Magnússon I 54,2 Kringlukast: Erling Hansen D 41,44 BentLarsenD 40,93 Óskar Jakobsson I 38,32 Guðni Halldórsson 1 36,47 800 m hlaup: Agúst Asgeirsson I 1:56,2 Carsten Jensen D 1:57.1 Svend Malchau D 2:02,8 Böðvar Sigurjónsson 1 2:05,8 4x100 m. boöhlaup: Danmörk 43,3 CAksel Mathisen, Bjarne Lund- gaard, . Ole Lysholdt, Helge Svenningsen) tsland 45,0 fVilm. Vilhj., Elias Sveinss. Bor- þór Magnúss., Friðrik Þ.) Hástökk: Peter Johansen D 1,95 Karl W. Fredriksen I 1,95 Gert H. Nielsen D 1,85 Elias Sveinsson I 1,75 Fjr'rsla landskeppni stnlkna: Lára setti met í 100 m grind! OE—Reykjavik. Islenzkar stúlkur, sem nú þreyttu sina fyrstu landskeppni. stóðu sig eftir atvikum vel, enda eru danskar stúlkur og hafa verið framarlega i frjálsum iþróttum. Af átta greinum, sem keppt var i unnu dönsku stúlkurnar tvöfald- an sigur i helming þeirra. Varla Ilér á myndinni sést Lára Sveinsdóttir koma i mark rétt á eftir Súsönnu, 1100 m grindahlaupi. Lengst til vinstri er Lisalotte, sem varö þriöja. (Timamynd Róbert) er hægt að segja, að um yfir- burðasigur hafi verið að ræða nema i einni grein, kringlukast- inu. ÞarnáðiAase Jensen ágætum árangri, kastaði 42,16 m. Lára Sveinsdóttir stóð sig bezt islenzku stúlknanna, varð önnur i tveimur greinum, 100 m grinda- hlaupi og i 200 m hlaupi, en i fyrr- nefndu greininni setti hún nýtt islenzkt met, hljóp á 15,2 sek. Hún var aðeins hársbreidd frá sigri i báðum greinunum. Lára er i stöð- ugri framför og EF hún heldur áfram á þessari braut verður gaman að sjá hana á næstá ári. Ragnhildur Pálsdóttir stóð sig og með ágætum i 800 m hlaupinu, hin hálfislenzka Loa Ólafsson sigraði að visu i hlaupinu og hljóp mjög vel, en Ragnhildur tryggði annað sætið og var aðeins hálfa sekúndu frá Islandsmetinu, hljóp á 2:22,5 min. Lilja Guðmunds- dóttir náði og sinum bezta tima. Ólöf ólafsdóttir var þriðja i spjótkastinu og náði sinum lang- bezta árangri 34,30 m. Hún var óheppin, eða þær dönsku heppn- ar, þvi að Aase Jensen, sem varð önnur, kastaði nákvæmlega jafn- langt, en næstbezta kast hennar var betra. 1 4x100 m boðhlaupi setti islenzka boðhlaupssveitin lands- sveitarmet, hljóp á 50,1 sek. 100 m grindahiaup: Susanna Flensborg D 15,1 Lára Sveinsdóttir I 15,2 Liselotte Hansen D 16,1 Kristin Björnsdóttir I 16,5 Kringlukast: AaseJensenD 42,16 AnneJensenD 35,70 Guðrún Ingólfsdóttir I 29,64 Ólöf ólafsdóttir 1 25,88 400 m hlaup: Tone Kyhn D 59,1 Britta Kalund D 59,8 Ingunn Einarsdóttir I 61,7 Björn Kristjánsdóttir 1 64,4 AnniMöllerD 64,7 800 m hlaup: LoaÓlafssonD 2:18,8 Ragnhildur Pálsdóttir 1 2:22,5 Hanne Rothhausen D 2:24,0 Lilja Guðmundsdóttir 1 2:28,6 200 m hlaup: Lisbeth Nielsen D 26,1 Lára S v einsdóttir 1 26,3 Tone Kyhn D 26,6 Kristin Björnsdóttir I 27,5 Spjótkast: AnneJensenD 39,39 AaseJensenD 34,30 Ólöf ólafsdóttir I 34,30 Svanbjörg Pálsdóttir I 32,04 Langstökk: Liselotte Hansen D 5,51 Solveig Hansen D 5,39 Hafdis Ingimarsdóttir 1 5,34 Sigrún Sveinsdóttir 1 5,23 1x100 m. boöhlaup: Danmörk 49,4 TLisbeth Nielsen, Anni Möller, Tone Kyhn, Britta Kalund) Island 50,1 (Lára Sveinsdóttir, Sigrún Sveinsd., Hafdis Ingimarsd., Kristin Björnsd.)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.