Tíminn - 12.07.1972, Blaðsíða 15

Tíminn - 12.07.1972, Blaðsíða 15
Miftvikudagur 12. júli 1972 TÍMINN 15 VVSÍ fagnar ráð- stöfunum til að draga úr verðbólgu 1 framhaldi af viðræðum for- manns og framkvæmdastjóra Vinnuveitendasambands tslands við forsætisráðherra s.l. mánu- dagsmorgun var boðað til síð- degisfundar i fulltrúaráði Vinnu- veitendasambands tslands til að fjalla um bráðabirgðaráðstafanir þær, er rikisstjórnin hyggst gera i kaupgjalds- og verðlagsmálum i þvi augnamiði að stöðva vixl- hækkanir kaupgjalds- og verð- lags. Samþykkti fundurinn af þvi til- efni eftirfarandi ályktun: Stjórnarfundur Vinnuveitenda- sambands tslands haldinn 10. júli 1972 hefur rætt tillögur þær um bráðabirgðaráðstafanir i verð- lags- og kaupgjaldsmálum, sem rikisstjórnin hyggst gera og for- sætisráðherra afhenti formanni samtakanna i dag. Vegna ónógs tima til athugunar á þessum ráðstöfunum og óljóst er, hvaða áhrif þær hafa á at- vinnureksturinn, telur fundurinn sig ekki geta tekið afstöðu til ein- stakra atriða, en fundurinn fagn- ar þvi, að gerðar skuli ráðstafanir til að draga úr verðbólgu og kostnaði við slikar ráðstafanir skuli ekki mætt með nýjum skattaálögum. Fundurinn vill þó sérstaklega mótmæia neitunarvaldi þvi, sem einstökum verðlagsnefndar- mönnum er fengið samkvæmt til- lögunum og telur slikt brjóta i bága við grundvallar hugsjónir lýðræðsisþjóðfélags”. (Frétt frá VVSÍ) VERULEG LÆKKUN A LANDBÚNAÐARVÖRUM Vegna útgáfu bráðabirgðalaga rikisstjórnarinnar um verð- stöðvun hefur verð nokkurra landbúnaðarvara lækkað frá og með deginum i dag, vegna hinna auknu niðurgreiðslna. Þannig lækkaði mjólk um kr. 1.00 á hvern litra i hverskonar umbúðum, kindakjöt frá kr. 18.90 pr. kg. upp i 19.50 kr. eftir teg- undum. Verö á kartöflum lækkar um kr. 5.20 pr. kg. Ferðamálaráðstefnan á Norðurlandi ÓV—Kcykjavik Fjórðungssamband N o r ð - lendinga og ferðamálafélögin á Norðurlandi efna til ráðstefnu um fcrðamál, sem haldin veröur taugardaginn 15. júli kl. 13,30 i Haungreinahúsi Menntaskólans á Akureyri aö Möðruvöllum. Á ráðstefnunni flytja fram- söguerindi Brynjólfur Ingólfsson, ráðuneytisstjóri, Björn Friðfinns- son, framkvæmdastjóri og Jóhann Sigurjónsson, mennta- skólakennari. Meginverkefni ráð- stefnunnar verður umræður um eflingu ferðamála á Norðurlandi og ferðamálaáætlun. Ráðstefnan er opin áhugamönnum um ferða- mál. íslenzk folöld skírð úr kampavíni á þýzkum Koland Heller heitir þýzkur maður, og eiga þau hjónin, hann og kona hans, islenzkt stóð á búgarðisínum rett utan við Ilannóver. Á þjóðhátiðar- daginn efndi Bandalag is- lendinga i Norður-Þýzkalandi að venju til samkomu, og sá islendingafélagið i Hannóver um mótið að þessu sinni. Mcðal gesta á mótinu var ræðismaður íslendinga i Hannóver, dr. Werner Blunck, og kona hans, og Roland Heller og kona hans. Svo vi 11 til, að fyrsti gestur- inn, sem menn kunna að nefna með nafni, þeirra sem Hannóver á öldum fyrr var is- lenzkur ábóti, Nikulás, sem gisti borgina á Jórsalaferð um miðja tólftu öld. Islendingamót þetta var haldið i húskynnum róðrar- klúbbs á bökkum vatnsins Maschsee, og sótti það fólk frá Göttingen, Hannóver, Ham- borg.Lýbiku og Kil. Var i upp- hafi þess haldinn aðalfundur bandalagsins, og F'ranz E. Siemsen ræðismaður einróma kjörinn formaður þess, en það búgarði hefur hann reyndar verið allt frá stofnun þess árið 1967. Þjóðhátiðarfagnaðinum stýrði Bjarni Thoroddsen, for- maður Islendingafélagsins i Hannóver, sem skammstafast HAFIS, og var Haraldur Karlsson veizlustjóri, en aðal- ræðumaður Birgir Finnsson. Þótt þjóðhátiðarfagnaður- inn færi vel fram, var þó næstn dagur öllu sögulegri. Roland Heller og kona hans, sem kunn eru að mikilli gestrisni við Is- lendinga, buðu öllum móts- gestum heim á sunnudaginn eftir þjóðhát.og var það margt manna, sem streymdi að bú- garði þeirra f Schmarrie eins °g, byggðarlagið heitir. Að sjálfsögðu voru hinir islenzku. hestar húsbændanna skoðáðir, og sýndu Sunn- lendingar þar reiðmennsku sina, en folöld voru skirð úr kampavini, og mun ekki veg- legri foraldaskirn hafa farið fram i annan tima. Ekki fylgir það sögunni, hvað börnin voru látin heita, en sjálfsagt hafa það verið valin nöfn að fegurð og munu vel gefast. '1 V 1 L i4 M í *>«* m. v ^4 * 12 W 41 Æ • $ 'M M i Þrjátiu ný.ir sjúkraliðar útskrifuðust frá l.andspitalanuni I fyrradag. A inyndinni sjáum við þennan friða hóp ásaint kennurum. (Timamynd-llóbert) Frá aðalfundi Stéttarsambandsins: Samþykkt einróma að leggja efnahagsraðstöfununum lið Aðalfundur Stéttarsambands bænda stóð yfir fram eftir kvöldi á mánudag, og voru efnahagsráð- stafanir rikisstjórnarinnar rædd- ar á lokuðum fundi. Aö umræðum loknum var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða: Vegna tilmæla rikisstjórnar- innar um frestun á gerð verðlags- grundvallar vill aðalfundur Stéttarsambands bænda 10/7 ’72 taka fram eftirfarandi: 1 stjórnarsáttmálanum var þvi heitið ,,að kjör bænda yrðu sam- bærileg við launakjör annarra vinnandi stétta”. Þótt nokkuð hafi miðað í rétta átt skortir verulega á. að fullu jafnrétti sé náð. En með tilliti til þeirrar nauðsynjar, sem talin er vera á þvi að stöðva kapphlaupið á milli kaupgjalds og verðlags, lætur aðalfundurinn óátalið þótt gerð nýs verölagsgrundvallar sé frestað fram til næstu áramóta, enda verði bændum tryggt það verðlag, sem felst i framreiknuð- um verðlagsgrundvelli, sam- kvæmt gildandi reglum miðaðvið 1. september n.k. Fundurinn áskilur bændum allan rétt til að krefjast leiðrétt- E B—R ey k j a v ík. Siðustu þrjá mánuði, april, mai og júni, var selt áfengi hér á landi fyrir læpar 358 milljónir króna. A sama timabili i fyrra seldist áfengi fyrir 267,5 milljónir króna. Er söluaukningin 34.19% miðað við sama tima i fyrra. Ekki er þó þar með sagt, að áfengisneytendur hér séu það 1 44. tölublaði Lögbirtinga- blaðsins eru auglýst til umsóknar embætti héraðsdómara viö bæjarfógetaembættin á Akureyri og i Kópavogi, og embætti saka- dómara við sakadómaraem- bættið i Reykjavik. Um er að ræða eitt dómaraembætti á inga á grundvellinum um næstu áramót. 1 gær stóðu nefndarfundir yfir til hádegis, en aðalfundurinn hélt áfram eftir hádegi, og var þá m.a. samþykkt eftirfarandi ályktun frá laganefnd, meö öllum þorra atkvæða nema einu: Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1972telur það miður farið, að frumvarp til nýrra laga um Framleiðsluráð landbúnaðarins o.fl. náði ekki fram að ganga á siðasta Alþingi Fundurinn minnir á eftirfar- andi: 1. 1 janúar 1972 upplýsir Hagstofa tslands.að meðaltekjur kvæntra bænda á aldrinum 25-66 ára hafi verið 78,9% af tekjum verka- manna, sjómanna og iðnaöar- manna árið 1970 og 74,6% árið 1969. 2. I málefnasamningi núver- andi rikisstjórnar segir m.a. „Lögin um Framleiðsluráð landbúnaðarins verði endur- skoðuð i samráöi við Stéttarsam- band bænda og að þvi stefnt, að Stéttarsamb. semji við rikis- stjórnina um kjaramál bænda- stéttarinnar og verðlagningu bú- vara. Miðað skal jafnan við það, að miklu sólgnari i vimugjafa sinn nú en i fyrra, þar sem áfengið hefur hækkað allmikið i verði. I Reykjavik var áfengi selt i april, mai og júni fyrir 269,5 millj. kr., á Akureyri fyrir 33,4 millj. kr., lsafiröi fyrir 10,1 millj., Siglufirði fyrir 5,2 millj., Seyðis- firði fyrir 8,1 millj., Keflavik fyrir 18,6 millj., og i Vestmanna- eyjum fyrir 14,1 millj. hverjum stað. Koma embætti þessi i stað fulltrúa starfa við em- bættin, sem jafnframt verða lögð niöur, samkvæmt lögum, er sam- þykkt voru á siðasta þingi. Um sóknarfrestur um öll embættin er til 25. júli og veitast þau frá 1. ágúst. kjör bænda verði sambærileg við launakjör annarra vinnandi stétta .” Meö visun tilþessa skorar fund- urinn á rikisstjórnina að tryggja framvarpinu um Framleiðsluráð afgreiðslu á fyrrihluta næsta reglulegs Alþingis og gera jafn- framt nauðsynlegar ráðstafanir lil að tryggja bændum það jafm rétti, sem um er fjallað i tilvitnun ákvæðis stjórnarsáttmálans. Miklar umræður urðu um mörg mál á aðalfundinum. Allt útlit var fyrir i gær, að fundurinn stæði fram á kvöld eða nótt og að ágreiningur yrði um siðasta málið sem lá fyrir, sem var stækkun Bændahallarinnar. Þjóðminja vörður stöðvar popphátíð í Viðey ÓV—Reykjavik Eins og menn muna, þá hélt hljómsveitin Ævintýri hljómleika við Árbæjarsafn- iðfyrir réttu ári og heppnuð- ust þeir mjög vel. Ekki alls fyrir löngu sótti svo hljóm- sveitin Náttúra um leyfi til að halda popp-hátiö mikla F Viðey og hafði hljómsveitin gert allar nauðsynlegar undirbúningsráðstafanir, svo hátiðin mætti fara vel fram. Stóð til, aö hátið þessi yrði haldin um aðra helgi, 22.-23. júli og höföu allar beztu hljómsveitir á Reykjavikur- svæðinu gefið vilyrði sitt fyrir þvi, að koma fram. En þegar átti svo að hefja fram- kvæmdir, strandaði hátiðin á leyfi þjóðminjavarðar, og við það situr. Eru meðlimir hljóm- sveitarinnar að vonum leiðir yfir þessu — og svo er vist örugglega um fleiri, en ekki er að spyrja að þeim, sem völdin hafa og efalaust hefur þjóðminjavörður sinar gildu ástæður fyrir að leggjast gegn þessu fyrirtæki. Áfengissalan síðustu þrjá mánuði: 34.19% AAEIRA ÚR BUDDU ÁFENGIS- NEYTENDA en á sama tíma í fyrra Þrjú dómaraembætti

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.