Tíminn - 12.07.1972, Blaðsíða 19

Tíminn - 12.07.1972, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 12. júli 1972 TÍMINN 19 Bráðabirgðalög Farfabt.al,d stig. skal oinnig lia-tt það, sem mnti ani or. Á blaöamannat'undinum sagði forsætisráöherra m.a.: ..Bráöabirgðalög þessi eru sett til þess að freista þess að stöðva þá þróun vixlhækkanaverðlags og kaupgjalds, sem nú virðist blasa við. ef ekkert verður að gert. Eins og kunnugt er hækkaði kaupgreiðsluvisitalan og þar með verðlagsuppbót á laun um nær 8 stig (úr 109,3 f 117,0) hinn 1. júni s.l. Samvkæmt siðustu áætlunum Hagstofu lslands má búast við, að kaupgreiðsluvisitalan myndi að öllu óbreyttu hækka um 5,5 til 6 stig hinn 1. september n.k. Þær kostnaðarbreytingar, sem þessu fylgja, yrðu útflutningsatvinnu- vegunum þungar i skauti, enda benda áætlanir til þess. að afkoma sjávaútvegsins standi i járnum þegar við núverandi kostnaðarlag (K-visitala = 117) án þess að tillit sé tekið til þeirrar aflaminnkunar frá fyrra ári, sem nú virðist liklegust. Auk þess mvndu slikar breytingar launa án efa kalla fram frekari verðhækkunarkröfur hjá þeim atvinnugreinum, sem eiga sér einkum markað innanlands: og þar með héldi áfram sá varhuga- verði vixlgangur verðbólgunnar, sem fyrr eða siðar hlyti að grafa undan afkomu atvinnuveganna, valda vaxandi halla i viðskiptum þjóðarinnar út á við og tefla atvinnuörvggi og þar með fram- búðarhagsmunum almennings i tvisýnu. Rikisstjórnin hefur að undan- lörnu rætt leiðir til lausnar þessa gamalkunna og margslungna vanda og hefur i þvi sambandi tekið upp viðræður við aðila vinnumarkaðarins, enda er ljóst, að án samráðs og samvinnu við þá er vart hægt að búast við árangri á þessu sviði. ör vöxtur tekna og eftirspurnar hefur einkennt þróun efna- hagsmála undanfarin misseri og á siðustu mánuðum hefur gætt mikils þrýstings á allt verðlag og framleiðslukostnað. Hér fléttast margt saman: ört vaxandi eftirspurn heima fyrir i kjölfar mikilla grunnkaupshækkana i árslok 1971, gengishækkanir helztu viðskiptalanda okkar i Evrópu, skattbreytingar o.fl. öll þessi atriði hniga til verðhækkunar, sem svo magnast i núgildandi kerfi visitölu- bindingar kaupgjalds. Hér er um flokið samhengi að ræða og mikil þörf á að kanna allar aðstæður og horfur svo rækilega sem frekast er kostur, ef leita á varanlegri úrræða en til þessa hafa fundizt. Af þessum sökum þótti rikis- stjórninni rétt að gripa til tima- bundinna efnahagsráðstafana meðan á itarlegri könnun vandans stæði. Hugmyndir þær um bráðabirgðaráðstafanir, sem hér fá ákveðið form i bráða- birgðalögum, höfðu áður verið kynntar samtökum launþega, bænda og vinnuveitenda”. Ráðstefna sambandsstjórnar Alþýðusambands Islands og stjórnar allra svæðasambanda innan þess og formanna sérsam- bandanna fjallaði um efni bráða- birgðalaganna og samþykkti samhljóða ályktun með öllum atkvæðum, þar sem Segir m.a.: ..Ályktar ráðstefnan, að þeir aðilar, sem að henni standa, láti umræddar aðgerðir óátaldar af sinni hálfu, en leggja hins vegar áherzlu á,að i þeirri afstöðu felst ekkert afsal neinna þeirra réttinda eða kjarabóta, sem i gildandi kjarasamningum aðila vinnumarkaðarins felast”. Aðalfundur Stéttasambands bænda fjallaði um efni bráða- birgðalaganna á fundi sinum 10. þ.m. og gerði m.a. svohijóðandi samþykkt þar um: ..Lætur aðallundurinn óátalið þótt gerð nýs verðlagsgrund- vallar sé frestað fram til næstu áramóta, enda verði bændum tryggt það verðlag. sem felst i lramreiknuðum v e r ð 1 a g s - grundvelli samkvæmt gildandi reglum miðað við j. september n.k.” Jaínframt hefur meginefni bráðabirgðalaganna verið kynnt fulltrúum frá Vinnuveitenda- sambandi tslands og Vinnumála- sambandi Samvinnumanna. Stórn Vinnuveitendasambands Islands hefur komið saman til fundar og gert ályktun, þar sem fagnað er ráðstöfunum gegn verðbólgunni en lýst andstöðu við það ákvæði bráðabirgðalaganna að veita hverjum verðlags- nefndarmanni neitunarvald. Ólafur Jóhannesson, forsætis- ‘ ráðherra, sagðist lita svo á, að viðbrögð allra þessara aðila væru jákvæð. Ályktanir ASt og Stéttar- sambands bænda hefðu verið samþykktar samhljóða. Þannig yrði hann að telja, að viðtæk sam- staða hafi náðst um þessar aðgerðir rikisstjórnarinnar, en mest væri þó um vert, að það svigrúm, sem þær veittu, mætti nýtast sem bezt til þess að finna varanlegri úrræði. Meginviðfangsefnið i efnahags- málum á næstu mánuðum. sagði ráðherrann, verður að hemja þrýsting eftirspurnar á verðlag og framleiðslukostnað, tryggja afkomu atvinnuvega og greiðslu- stöðu landsins gagnvart útlöndum. Með bráðabirgða- lögunum er spyrnt við fótum gegn verðbólguþróuninni með það fyrir augum, að ná sem beztum tökum á þessu mikilvæga viðfangsefni. Þjóðin hefur búið við mikið góðæri síöustu tvö til þrjú ár. Kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilanna jókst um meira en 16% á árinu 1971 og útlit er fyrir svipaða aukningu í ár. Vöxtur þjóðartekna var 12 til 13% á árinu 1971, en varla er að vænta meiri aukningarþjóðartekna i ár en 6 til 7%. Þótt- slikur vöxtur þjóðartekna sé að visu mikill, hvort sem er á alþjóðlegan mælikvarða eða samanborið við okkar fyrri reynslu, er ljóst, aö útgjaldafyrir- ætianir þjóðarinnar i heild stefna fram úr þessari aukningu. Þessi munur á aukningu eftirspurnar og framleiðslu felur i sér mikið vandamál og hér er án efa að finna nokkra undirrót þeirrar verðþenslu, sem gætt hefur i landinu á siðustu mánuðum. Eigi að koma i veg fyrir, að þessi þróun auki verðbólgu og greiðsluhalla viðútlönd og valdi á endanum tekjuskerðingu hjá almenningi, er nauðsynlegt að snúast við vandanum nú þegar á skipulegan hátt, en hann er að tryggja farsælt jafnvægi i þróun þjóðarbúskaparins: jafnvægi milli mismunandi markmiða og hagsmunahópa. Ólafur sagði, að þessi bráða- birgðalög og ráðstafanirnar, sem þeim fylgdu, væru byggðaráspá. Ef þeir útreikningar, sem liggja til grundvallar og sparnar stæðust , þá væri það ekkert sem launþegar gæfu eftir eða tæku á sig. Það er stefnt að þvi, að reyna að halda kaupgreiðsluvisitölunni i 117 stigum en fari hún yfir 119,5 stig og fari að halla á launþega fá þeir það bætt, sem umfram er 119,5 stig. Engin ákvörðun hefur verið tekin um það enn, hvaða fram- kvæmdir verða skornar niður skv. heimild bráðabirgðalaga- nna. Ákvörðun um það verður tekin i samráði við undirnefnd fjárveitinganefndar, en forsætis- ráðherra sagði, að fyrir valinu yrðu þær framkvæmdir, sem hvort eð er yrði ekki i ráðizt á árinu annað hvort vegna þess að undirbúningi að þeim er ekki lokið, eða vinnuafl til þeirra skortir. Ráðherrann svaraði ýmsum spurningum fréttamanna á fundinum og verður nánar rætt um þær siðar. Ráðskona L’ng kona með 3 börn óskar eftir vinnu á góðu heimili í sveit eða kaupstað. Góður skóli æskilegur i nágrenni. Til- boð merkt: Rómar 1334 sendist afgreiðslu Timans fyrir 1. ágúst. Robby Kiselier luigsar djúpt — en þó ekki nægilega djúpt. þvi skákin fór i bið og verður tefld á ný kíukk an 17 i dag. (I.jósm. SSÍ — llelgi Sveinbjörnsson.) Einvígið Kramhald af bls. 3. fyriralla. Reyndar hefði einvigis- málið lengi verið tvísýnt, en þó ótrúlegt væri þá heföu Skáksam- bandsmenn i rauninni aldrei verið hræddir að ráði Guðmundur sagði, að það færi ekki á milli mála, að það þyrfti að lagfæra nokkur atriði i höllinni og yrði reynt að gera það fyrir riæstu umferð. Guðjón Ingvi Stefánsson, fram- kvæmdastjóri SSt sagði, að umgangur væri meiri i höllinni, en búizt hefði verið við. T.d. leti mjög hátt i harmónikustólnum, sem væru næst veggnum og kæmi jalnvel til greina að fjarlægja þá. Sagði Guðjón, að þeir hjá Skáksambandinu væru nú allir katir og hressir, enda engin furða, þar sem máiið væri komið i höfn eftir 7. mánuði. Yfirdómarinn Lothar Sehmidt, sem varð að fara til Þýzkalands vegna veikinda sonar sins fyrir helgina, kom til landsins i tæka tið i gær, og var hann þvi yfir- dómari i 1. umferðinni i stað Guðmundar Arnlaugssonar, aðstoðardómara. dráttarvél MF Massey Ferguson } i Áratuga dygg þjónusta við bændur í flestum löndum heims hefur gert Massey Ferguson að sígildri dráttarvél. Vegna útbreiðslunnar eru landbúnaðartæki um allan heim hönnuð með Massey Ferguson í huga. Eigendur MF þurfa því ekki að hafa áhyggjur þótt ný tæki komi á markaðinn. Tengingarnar passa. Þess vegna er Massey Ferguson örugg fjárfesting. Traust þjónusta og rómuð ending tryggja hátt endursöluverð. .. MF • Massey Ferguson er léttbyggð og kraftmikil. þrítengibeizli eða dráttarkrók. • Hún er aflmest ailra dráttarvéla miðað við þyngd. •Kraftmikil Perkins dieselvólin er sérstaklega gangörugg Jarðvegsþjöþpun helzt þvi í lágmarki. hvernig sem viðrar, og fjölbreyttur tæknilegur búnaður •Hin mikla dráttarhæfni MF fæst með þungatilflutningi á tryggir mikil vinnuafköst. SUÐURLANDSBRAUT 32 • REYKJAVlK • SlMI 86500 • SlMNEFNI ICETRACTORS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.