Tíminn - 12.07.1972, Blaðsíða 7

Tíminn - 12.07.1972, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 12. júli 1972 TÍMINN 7 og stjúpföður, Ari Onassis, fannst henni, að hún þyrfti aö nota timann til þess aö læra betur itölskuna. Hún fór þó ekki að leita að auglýsingum um itölskukennsku, heldur fór hún i hljómplötuverzlun og keypti sér nokkrar plötur með itölsku fyrir byrjendur og svo fann hún eina plötu með mynd af fallegum ungum manni, Gianni Nazzaro, en hann er efstur á vinsælda- listanum meðal ungra söngvara á ttaliu. — Er hann ekki dásam- legur, sagði Caroline við móður sina, þegar hún kom heim með plötuna undir hendinni. — Ég ætla sko að læra itölskuna af honum. Svo fór hún og setti plötuna á fóninn og hlustaði á ástasönginn á plötunni hvað eftir annaö. Nú er hún oröin yfir sig ástfanginn af þessum da- samlega söngvara, en Gi- anni veit ekki, að hann er sjálfur orðinn itölskukennari. Hér sjáiö þið mynd af átrúnaðargoðinu og svo er önnur mynd af Caroline í tennis. Skógur á Suður- skautinu Fyrir um 250 milljónum ára var Suðurskautslandið skógi þakið segir próf. M. Ravítsj i skýrslu frá 16. sovézka Suðurskauts- leiöangrinum. Þar segir og,að i Prins Charles fjöllum, sem eru um 700 km inn i landi, og eru eini hluti meginlandsins, sem ekki er undir ishellu, hafi fundizt trjásteingerfingar og af- steypur af laufblöðum og grasi. Enn er það bók um Hughes Staðið hefur yfir i New York réttarrannsókn vegna enn Ánægður drottningarmaður Hann er greinilega mjög hress i bragði hann Henrik maðurinn hennar Margrétar prinsessu, ef dæma má af þessari mynd, en hér er hann með Anju Silja, heimsþekktri þýzkri óperusöng- konu, sem nýlega kom til Dan- merkur, og söng þá á góð- gerðarsamkomu i Kronborg. Anja kom til Danmerkur til þess að syngja þar, af þvi að hún hefur alltaf haldið mjög mikið upp á Danmörku og Dani, eða allt frá þvi að hún var tiu ára, og kom þá fram i fyrsta sinn i Dan- mörku. Hún hefur sungið viða um heim, og alls staðar notið mikilla vinsælda. einnar bókar, sem á að vera um Howard Hughes, eða að minnsta kosti fjalla að einhverju leyti um hann. Sá, sem hefur orðið að svara flestum spurningum vegna þessarar bókar er Robert P. Eaton, sjötti eiginmaður leikkonunnar Lana Turner. Bókin heitir My Life and Opinions, eða Lif mitt og skoðanir, og er Robert P. Eaton ritstjóri bókarinnar en út- gefandinn er Best Books Press. Kaflar hafa verið birtir úr bókinni i timaritinu Ladies Home Journal, og var það gert i febrúar s.l. Þar birtist t.d. frásögn af þvi, hvernig Eaton fékk rétt til þess að birta „minningar” þessa vellauðuga manns. Gættu að, hvað þú segir Maður nokkur hefur verið sektaður fyrir að bölva á al- mannafæri i Brunswick i Georgiu i Bandarikjunum. Maðurinn hafði orðið að stöðva bil sinn á aðalbraut til þess að koma i veg fyrir^ að hann æki yfir hund, sem hafði hlaupið út á götuna. Maðurinn hallaði sér út um bflgluggann og æpti nokkur velvalin orð á eftir hundinum, en i þvi bar að lögregluþjón, sem sektaði manninn fyrir ó- sæmilegt orðbragð á almanna- færi. Hringdi og fékk sekt Tuttugu og þriggja ára gömul hjúkrunarkona i Versölum i Frakklandi hringdi i sama simanúmerið eitt þúsund sinnum á 19 dögum en hætti svo. Hún var ákærð og dæmd til þess að greiða 400 franka sekt. Hjúkrunarkonan, Claude Ferr- and, sagði fyrir rétti, að hún hefði veriö að reyna að ná sam- bandi við fólk, sem hún kynntist i frii sinu, en þegar þau svöruðu i simann var hún alltaf of feimin til þess að þora að tala, og þess vegna lagði hún tólið á. Ástfangin af söngvara Þegar Caroline Kennedy var nýlega á Capri með móður sinni DENNI DÆMALAUSI ,,Mér er alveg sama, þvi pabbi minn ræður lika viö afa þinn!”

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.