Tíminn - 16.07.1972, Page 9
Sunnudagur 16. júli 1972
TÍMINN
9
'
JT. f A " * " '
r J, 3
*■' : lir S I" !! *' *
Menningarlegur hani
Ibúar þorpsins A1 Munecar á
Suður-Spáni eru geínir fyrir aö
fá sér einn litinn, að minnsta
kosti annað slagið. Hið sama
gerir haninn Pepe, sem er bú-
settur á bar einum i þorpinu.
Pepe fær sér gjarnan einn björ i
morgunsárið, en er siðan
bindindishani til kvölds. Þá taka
gestir að streyma á barinn og
bjóða Pepu upp á allt það vin,
sem hann fýsir að drekka.
En það sem verra er; Pepe er
farinn að reykja lika. Einhver
kveikir i fyrir hann og stingur
siðan vindlingnum i gogg hans.
Eigandi Pepes kveðst hafa
fengið aragrúa tilboða i þennan
einstaka menningarfugl, en
upphæðirnar eru ekkert svim-
andi. ^
Tafla og krít á salernin
Akveðið hefur verið, að koma
fyrirstórri töflu og heilmiklu af
krit á almennings-kvennakló-
setti i bænum Wonthaggi i
Astraliu. Astæðan er sú, að þar
hefur orðið að kosta til 500
áströlskum dollurum i að mála
og laga veggi og loft og hreinsa
burtu dónalegar teikningar og
alls konar krass, en kvenfólk;
það sem notar salerni þessi
verðist vera haldið einstaklega
mikilli krasslöngun. Yfirvöld
vona, að eftir aö taflan er komin
á salernin megi gera ráð fyrir,
að konurnar, sem þangað komi
láti sér nægja að prýða hana
með teikningum sinum og skrif-
finnsku.
Hefur slöngu
félaga
Kannski eiga einhverjir ts-
lendingar sem leggja leið sina
til Kaupmannahafnar og fara á
Dyrehavsbakkann eftir að sjá
þessa þrenningu. Stúlkan heitir
Guðrún, þó sennilega sé hún
ekki islenzk. Hún hefur það að
starfa að fækka fötum á
skemmtistað einum á
bakkanum, en að leikfélaga
hefur hún slönguna, sem hefur
vafið sig hér um háls hennar, og
sömuleiðis um háls dansks
gamanleikara, sem einnig
skemmtir á sama skemmtistað.
Ekki er karlinn neitt sérlega
hrifinn af slöngunni, en Guðrún
er greinilega hin rólegasta,
enda vön atlotum slöngunnar.
Stjúpan og stjúp-
dóttirin
Þær eru farnar að kunna vel við
hvor aðra Jackie Onassis og
stjúpdóttir hennar Christina,
sem er 21 árs gömul, búin að
skilja við fyrsta manninn sinn,
og aftur komin heim til föður
sins og stjúpmóður. Þær fara
gjarnan út að skemmta sér á
kvöldin og sækja nætur-
klúbbana stift, að þvi er sagt er.
Christina hlær hér mikinn og
lætur skina i hvitar og sterkleg-
ar tennurnar. Hún er greinilega
búin að ná sér aftur eftir tauga-
striðið og taugaveiklunina i
hjónabandinu.
1 I' 'í . ilil H, „ jt lif » S* J
• ■ 0I
....|# d "
DENNI_____
DÆMALAUSl!
,,Ef hann væri kráka, þá væri ég
nú ekki hræddur viö hann,
en.