Tíminn - 15.08.1972, Síða 20
Samtök sex
milljón verzl-
unarmanna
halda
stjórnarfund
hérlendis
KJ-Reykjavik
Á miðvikudaginn hefst í
Reykjavik stjórnarfundur
6 milljón manna heims-
samtaka — Alþjóðasam-
bands verzlunarmanna.
Fundinn sitja 30 manns,
auk áheyrnarfulltrúa frá
islandi, og mun formaður
Landssa mbands ísl.
verzlunarmanna, Björn
Þórhallsson, ávarpa
fundinn.
Formaður samtakanna
er Englendingur Allan að
nafni, en framkvæmda-
stjóri samtakanna er
Erich Kissel, og eru aðal-
stöðvarnar i Sviss.
Fundurinn verður haldinn
í Kristalssal Hótel Loft-
leiða.
Mikið slys í
Biskupstungum
ÓV-Reykjavik
Um klukkan 5 á sunnudags-
mörgun varð mjög harður
árekstur rétt austan við brúna
yfirTungufljót i Biskupstungum
og slösuðust þar 5 manns mikið,
þar af einn mjög alvarlega.
Tveir bilar þar úr sveitinni,
jeppi og fólksbifreið, rákust á,
en vegna meiðsla ökumanna og
farþega var ekki hægt að taka af
þeim skýrslur i gær, og þvi
Íiggja ekki fyrir nákvæmar frá-
sagnir um aðdraganda slyssins.
Einn maður, likast til ökumaður
fólksbilsins, slapp með skrámur
og fékk hann að fara heim að
lokinni rannsókn á slysadeild
Borgarspitalans i Reykjavik.
Hinir 5 eru enn á sjúkrahúsi,
eins og áöur segir, en bilarnir
eru báöir taldir ónýtir, að sögn
lögreglunnar á Selfossi.
Bréf til Angelu
Davis um pólítíska
fanga í
Tékkóslóvakíu
— sjá b/s. 9
Rolf Hiidrich ræðir við Alfgrim (Arna Arnason) um eitt atriöi myndarinnar fyrir upptöku. Sitjandi er
Reter Hassenstein kvikmyndatökumaður (Tímamynd — Gunnar)
KVIKMYNDUN BREKKU-
KOTSANNALS HAFIN
l»M-Reykjavik
Nú eru Brckkukotsmenn byrj-
aðir á kvikmyndatökunni. Fyrstu
atriðin voru lekin I gær, i „stúdió-
inu” sem hcfur verið sett upp inni
i Skeifu. Ekki vcrður hægt að
hyrja tökuna á útiatriðunum fyrr
en rætist úr vcðri, og sólin byrjar
að skina aftur. Fyrsta atriðið sem
var kvikmyndað, er þcgar Alf-
grimur kemur upp á fjósloftið og
liittir þar Garðar Hólm.
Þegar Arni Arnason (Álfgrim-
ur) var spuröur að þvi, hvort
hann væri ekki taugaóstyrkur
þegar fyrsta atriðið var kvik-
myndaö, sagði hann það ekki
vera. En þegar þyrfti aö taka
sama atriðiö upp allt að 20 sinn-
um á æfingum, áöur en leikstjóri
og kvikmyndatökumenn væru
ánægöir, þá væri taugaóstyrk-
leikinn farinn að segja til sin.
Starfsfólk viö kvikmyndunina eru
frá 80-120 manns, þá eru smiðir,
málarar og allt annaö hjálparfólk
meðtaliö.
Um 60% myndarinnar veröur
tekin úti, en 40% inni. Búist er viö
aö töku myndarinnar verði lokið i
septemberlok, en þar geta veöur-
guðirnir sett strik i reikninginn.
Myndin mun væntanlega verða
frumsýnd um svipaö leyti i sjón-
varpi, bæði i Þýzkalandi og á Is-
landi. Frumsýning mun sennilega
fara fram um jólaleytiö. Rolf
HSdrich hefur gert um 50 myndir
og þvi enginn viðvaningur i kvik-
myndagerö. Hann sagðist hafa
áhuga á að gera aöra kvikmynd á
tslandi og þá um hið nútima ts-
land.
Hadrich sagðist vera mjög
ánægður með hina ungu leikara
sina, en hvorki Arni (Alfgrimur),
sé Sigrún (fröken Gúdmundsen)
hafa leikið áður.
Lcikstjórinn Uolf Hádrich, þjóöleikhússtjórinn Svcinn Einarsson og aöstoðarmenn fyrir upptöku fyrsta
atriðisins. (Timamynd — Gunnar)
Námsmaður
varð efstur
- á hraðskákmóti SSÍ
Haukur Angantýssson, sem
á vetrum er við nám i Þýzka-
landi, varð efstur á hraðskák-
mótinu, sem Skáksamband ts-
lands gekkst fyrir i skák-
klúbbnum i Útgarði/Glæsibæ
á laugardaginn. Fékk Haukur
22 vinninga af 27 mögulegum
og að auki 13.500.- kr., sem
væntanlega koma sér vel á
vetri komanda. t öðru sæti
varð Friörik Ólafsson, stór-
meistari, með 21 vinning og
6.750 krónur, Ingi R. Jóhanns-
son, alþjóðlegur stórmeistari,
varð þriðji með 20 1/2 vinning
og 4.500 krónur og dómarinn i
heimsmeistaraeinviginu, Lot-
har Schmid, stórmeistari,
varð fjóröi með 19 vinninga og
2.250 krónur.
t A-riðli kepptu 28 og tefldu
allir við alla, eina skák á 5
minútum: samtals 27 umferð-
ir. Næstir Schmid að vinning-
um urðu júgóslavneski stór-
meistarinn Janosevic og Guð-
mundur Pálmason með 18 1/2
vinning og Benóný Benedikts-
son, Björgvin Viglundsson og
Jón Hálfdánarson með 17 1/2
vinning hvor. Alls voru 27.000
krónur i verðlaun i A-riðli og
gaf þær Jón Viglundsson,
bakarameistari.
1 B-riðli kepptu 50 manns.
Þar voru tefldar 7 umferðir
eftir Monrad-kerfi, 2 skákir á
10 minútum. Þar uröu efstir
Kristinn Johnson og Jörundur
Hilmarsson með 11 vinninga
hvor og kusu þeir að skipta
verðlaununum, 5000 krónum,
á milli sin. Þriðji i B-riðlinum
varð Björn Vikingur með 10
1/2 vinning og fjórði Björn
Halldórsson, með 10 vinninga.
Skákstjóri var Jóhann Þórir
Jónsson, útgefandi og ritstjóri
timaritsins SKAK.
Stór og góð skel
á nýju miðunum
SB-Reykjavik
Vélbáturinn ölver leitar nú
skelfisks á Breiðafirði. 1 fyrri
viku fundust mjög góð mið úti á
firðinum og hafa Stykkishólms-
bátar farið þangað til veiða,
þegar gefið hefur, en þeir geta
ekki veitt skelfisk svo utarlega i
jafn slæmum veðrum og innar.
Skelin, sem bátarnir komu með af
nýju miðunum er ein sú stærsta
og bezta sem veiðzt hefur i
Breiðafirði.
ölver var i gær að leita á svo-
nefndu Breiöasundi, en var ekki
kominn að, er við höfðum sam-
band viö Stykkishólm i gærkvöldi,
svo ekki liggur fyrir árangur af
þeirri leit. ölver mun leita skel-
fisks i Breiðafirði næstu vikur.
„Ég trúi því ekki fyrr ég tek á”
að þetta sé rétt haft eftir hjá fréttastofunum, sagði Einar Agústsson utanríkisráðherra
Eins og erlendar fréttastofur
hafa skýrt frá afhenti Einar
Agústsson utanrikisráöherra
John McKenzie, sendiherra Breta
á tslandi, orðsendingu i lok
siðustu viku, varðandi samræður
islenzku og brezku rikis-
stjórnanna um úlfærslu fiskveiði-
takmarkanna. i frcttatilkynningu
frá utanrikisráðuneytinu segir
svo uin þessa orðsendingu:
,,I orðsendingunni er fyrst og
fremst itrekað, að islenzka rikis-
stjórnin sé reiðubúin að halda
áfram viðræðum. Minnt er á, að
af tslands hálfu hafi verið lögð
megináherzla á tvö grundvallar-
atriði málsins: Að viðurkennt
væri að réttur islenzkra skipa til
veiða utan 12 milna yrði meiri en
réttur annara skipa og að ts-
lendingar hefðu ótviræðan rétt og
fulla aðstöðu til að framfylgja
þeim fiskveiðireglum sem samið
yrði um. Þareð ekki hefðu fengizt
við þessu ákveðin svör af Breta
hálfu, hefði islenzka rikisstjórnin
ekki getað brey.tt tillögum sinum
um réttindi til handa brezkum
skipum. Nú teldi islenzka rikis-
stjórnin hinsvegar, að hún hefði
fengið jákvæðar undirtektir varð-
andi þýðingarmikil atriði málsins
og i trausti þess að fallizt verði á
framangreind tvö meginatriði
vilji hún taka fram eftirfarandi
varðandi atriði sem lögð hefir
verið mikil áherzla á af Breta
hálfu.
1) tslenzka rikisstjórnin er
reiðubúin til viðræðna um að
veiöiheimildarsvæðin fyrir
brezka togara nái upp að 12 milna
mörkunum á ýmsum svæðum.
Frávik yrðu þó þar sem bönnuð
yrði veiði fyrir islenzka togara
jafnframt. Þessi regla er við það
miðuð, að þá gildi þau ákvæði i
fyrri tíllögum tslands, sem gera
ráð fyrir aö aðeins tvö af sex
svæðum verði opin á sama tima
fyrir brezk skip.
2) Tillögum tslands um skipa-
stærð yrði breytt þannig, að skip
upp að 180 fetum á lengd eða um
það bil 750 — 800 brúttó rúmlestir
að stærð fengju veiðiheimildir, en
stærri skip ekki og engir frysti-
togarar og engin verksmiðjuskip.
3) Samningstimabilið yrði til 1.
júni 1974.”
t hinum útlendu fréttastofu-
fregnum var sagt, að brezka
stjórnin teldi litlar breytingar
felast í þessari orðsendingu, þótt
hún kynni að geta leitt til nýrra
viðræðna. Timinn átti viðtal við
Einar Ágústsson utanrikisráð-
herra i gær um viðbrögð Breta og
lét hann svo ummælt:
— Mig furðar á að sjá þá full-
yrðingu hafða eftir embættis-
mönnum i brezku ráðuneyti, að
hér sé ekki um neina breytingu að
ræða, frá fyrra tilboöi. Ég trúi þvi
ekki fyrr en ég tek á þvi, að það
sé rétt eftir haft.”