Tíminn - 25.08.1972, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Föstudagur 25. ágúst 1972
Til sölu
að Steðja i
Borgarfirði tvær
ungar kýr og
mjaltarvélar.
B i lllll.
Auglýsið í Timanum
KNN UM
SKATTANA
Ég las fyrir nokkrum dögum
.grein i Timanum um viðræður
blaðamanns Timans við Halldór
Sigurðsson, fjármálaráðherra,
sem snérist aðallega um skatta-
mál eldri kynslóðarinnar i land-
inu. En eins og kunnugt er, hefur
mikið verið kvartað yfir skatt-
byrðum þeirra öldruðu, og það
ekki að ástæðulausu.
Heimilisiðnaður
frá Svíþjóð
Norræna húsið og Heimilisiðnaðarfélag
íslands efna til sýningar á sænskum heim-
ilisiðnaði, dagana 26. ágúst til 10. septem-
ber n.k., i samvinnu við Landssamband
sænskra heimilisiðnaðarfélaga.
Sýningin verður i sýningarsal Norræna
hússins, og verður opin kl. 16.00 - 22.00
laugardaginn 26. ágúst. Alla aðra daga til
og með 10. september verður opið kl. 14.00
- 22.00.
Flestir sýningarmunirnir verða til sölu.
NORRÆNA
HUSIO
Húsmæðraskólinn
LAUGALANDI
Eyjafirði
verður settur fimmtudaginn 21. septem-
ber og starfar til mánaðamóta mai/júni
1973. Skólinn starfar með sama sniði og
undaníarin ár. Enn geta nokkrir nemend-
ur fengið skólavist.
Upplýsingar i sima 13276 i Reykjavik eftir
kl. 5, eða i 02 gegnum Munkaþverá.
Skólastjóri.
Starfsfólk
óskast
Landsbanki íslands óskar eftir nokkrum
konum og körlum til almennra bankastarfa i
Reykjavik.
Vinna hálfan daginn kcmur til greina.
Umsóknareyöublöö og nánari upplýsingar hjá skrifstofu
starfsmannastjóra.
Fannst mér ráðherra taka vel
og drengilega á þeim málum öll-
um og hét úrbótum.
En það eru til fleiri agnúar á
skattalögunum, sem að þeim
öldruðu snúa, sem þurfa leiðrétt-
ingar við, en þarna kom fram i
þessum viðræðum. En það eru
skattamál gömlu sveitabænd-
anna, sem fyrir aldurs sakir
hætta búskapog selja bú sin. Fáir
eða engir þjóðfélagsþegnar munu
vera eins hart leiknir af skatta-
lögunum og þeir. Skal hér tekið
eitt dæmi, til að sýna hversu frá-
leit lög þessi eru gagnvart þess-
um mönnum.
Gamall bóndi, sem búið hefur á
leigujörð hættir búskap vegna
ellihrumleika sins og konu sinnar.
Hann hefur haft allgott bú, sem
hann selur nú. Tuttugu kýr, er
hann selur hverja á fjörtiu þús-
und krónur. Búvélar og tæki selur
hann fyrir áttahundruð þúsund
krónur. Alls selur hann fyrir sext-
án hundruð þúsund krónur. Fyrir
þessa fjárhæð kaupir hann sér
ibúð i nærliggjandi þorpi, og flytj-
ast gömlu hjónin þangað, og ætla
sér að eyða þar ellidögunum.
Bæði eru þau orðin óvinnufær og
hafa litlu fé úr að spila, þvi að það
stóð i járnum með búsöluna og
húskaupin. En þau ætla sér að lifa
sparlega og reyna að láta ellilif-
eyrinn duga sér til framfæris.
Svo allt virtist nú sæmilegt fram
undan hjá þeim.
En Adam var ekki lengi i Para-
dis. Eiftir eitt ár var bónda send-
ur skattreikningur, þar sem hann
var krafinn um hátt á þriðja
hundrað þúsund króna tekjuskatt.
En þessi hái skattur var þannig
tilkominn, að mismunur á sölu-
verði búsins og skattmati á eign-
um búsins á s.l. ári voru taldar
tekjur.
Skal þetta útskýrt nánar:
Siðasta skattmat á kúnum var
12 þúsund kr. á hverri kú, og þvi
allar kýrnar á 240 þúsund kr. Mis-
munur verður þá alls: 560 þúsund
kr. Matsverð á vélunum var 460
þúsund kr. Mismunur þar veröur
þvi 340 þúsund kr. Þessi munur á
matsverði og söluverði búsins
verða þá 900 þúsund kr., sem svo
eru taldar skatt skyldar tekjur.
Sem sagt eignafærslan á búinu
yfir i ibúðina i þorpinu er skatt-
lögð svona gifurlega. Og svo þeg-
ar útsvarið bætist við gæti maður
hugsað sér, að einn fimmti hluti
af eignum búsins færi i opinber
gjöld.
Eins og sýnt hefur verið hér
fram á, nær skattheimta þessi
náttúrulega ekki nokkurri átt.
Hér eru bókstaflega teknar eignir
af fátækum gömlum og tekjulaus-
um mönnum. Hér þarf sannlega
leiðréttinga við.
Ég vil að siðustu taka það fram,
að ég ber það traust til núverandi
rikisstjórnar, að hún taki þessi
mál til rækilegrar athugunar og
rétti hlut gömlu uppgjafa sveita-
bændanna i landinu.
Siðan ofanritað var skrifað
voru gefin út bráðabirgðalögin
um skattheimtu hjá ellilifeyris-
þegum.
En þau breyta tiltölulega litlu i
þessu tilfelli.
Einn af þeim öldruðu.
Kennarar
Einn kennara vantar við barnaskóla
Selfoss. Upplýsingar gefur skólastjóri
Leifur Eyjólfsson, simi 99-1498
Skólanefnd.
iil
miólkur
LtuiUgevmur
Bœndur
á Norðurlandi
i samvinnu við
Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri, og
Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi,
efnum við til kynningar á Mueller-mjólkurkæli-
geymum — sem hér segir:
Akureyri
Sýningarstaður:
Sýningartími:
Véladeild KEA við Glerárgötu
Laugardaginn 26/8 kl. 14-22
Sunnudaginn 27/8 kl. 9-22
Mánudaginn 28/8 kl. 9-22
Blönduós
Sýningarstaður:
Sýningartimi:
Sláturhús KH, Blönduósi
Miðvikudaginn 30/8 kl. 9-22
Fimmtudaginn 31/8 kl. 8-22
Föstudaginn 1/9 kl. 9-12
Sýndar verða tvær gerðir
Mueller-mjðlkurkæligeyma,
sem fáanlegar eru i
mismunandi stærðum.
Ennfremur Mueller-Matic
alsjálfvirka þvottakerfið til
hreinsunar á mjólkurkæli-
geymum.
Nú þegar eru fleiri hundruð
Mueller—mjólkurkæligeyma í
noktun hjá íslenzkum bændum
aðallega á Suður- og Vestur-
landi — og víðtæk reynzla er
fengin af notkun þeirra við
hérlendar aðstæður.
Sölustjóri okkar verður á
sýningunum og veitir hann
ýtarlega upplýsingar um
Mueller—mjólkurkæligeyma,
þeim sem þess óska.
Notið þetta tœkifœri til þess að kynna yður kosti
MUELLER-MJÓLKURKÆLIGEYMANNA
jQ/tá£éa/kvéla/t A/
Suðurlandsbraut 32 — Simi 86-500 — Reykjavík