Fréttablaðið - 08.03.2004, Page 2
2 8. mars 2004 MÁNUDAGUR
,,Já það er andlegt og
lifandi þetta starf.“
Rúnar Geirmundsson rekur útfararþjónustu
í félagi við syni sína tvo.
Spurningdagsins
Rúnar, er þetta lifandi starf?
Sólarlagskerfi eða
þrír launaflokkar
Í nýjum samningi Heilsugæslunnar og stéttarfélaga starfsfólks í heimahjúkrun er kveðið á um að
starfsmenn á eigin bílum skuli ganga inn í nýtt aksturskerfi í áföngum. Hinir, sem eru á rekstrar-
leigubílum, fá þriggja launaflokka hækkun.
KJARAMÁL Nýr aksturssamningur
Heilsugæslunnar og starfsmanna
í heimahjúkrun, sem undirritaður
var í gær, felur í sér að þeir
starfsmenn sem
notað hafa eigin
bifreiðar í starfi
hætta því í
áföngum fram
til ársloka 2005.
Þetta kerfi, sem
gengið hefur
undir heitinu
„sólarlagskerfi“ í samningavið-
ræðunum verður aflagt með þeim
hætti að fram í septemberbyrjun
fá starfsmenn 8 kílómetra á vitjun
eins og verið hefur. Þá lækkar
kílómetrafjöldinn niður í sex. Í
marsbyrjun fer hann niður í fjóra.
Hinir sem eru á rekstrarleigu-
bílum fá þriggja launaflokka
hækkun. Allir starfsmennirnir
eiga kost á að fara yfir í það kerfi.
Einnig eiga þeir þess kost að aka
samkvæmt akstursbók.
Starfsmenn sem hætt höfðu
starfi í heimahjúkrun komu sam-
an til fundar síðdegis í gær, þar
sem þeim var kynnt samkomulag-
ið. Var það samþykkt með lófa-
taki.
„Þarna er ekki verið að semja
um kjarabætur heldur aðra dreif-
ingu kjaranna og koma í veg fyrir
að kerfisbreytingar í heimahjúkr-
uninni hafi kjaraskerðingu í för
með sér,“ sagði Ögmundur Jónas-
son formaður BSRB. „Ég held að
ég mæli fyrir munn allra sem
komið hafa að þessu þegar ég segi
að það er mjög mikill léttir að
þessu skuli lokið enda er þetta
afar viðkvæm þjónusta sem mað-
ur getur ekki hugsað til að verði í
nokkru skert. Þess vegna var allt
kapp lagt á að ná samkomulagi hið
fyrsta.
Ég verð að segja að nú hef ég
sannfærst betur um það en
nokkru sinni fyrr hvílíkt kjarna-
fólk það er sem vinnur við heima-
hjúkrunina og hve mikilvægt er
að halda því í störfum.“
„Breytingin mun ekki fela í sér
beinan sparnað, það er ljóst,“
sagði Guðmundur Einarsson for-
stjóri Heilsugæslunnar í gær-
kvöld. „Við gerum okkur hins veg-
ar vonir um talsverða hagræðingu
í starfseminni í framhaldinu,
þannig að þetta er þess virði. Ég
er ánægður með að ná samkomu-
lagi. Ég hefði gjarnan viljað gera
það á lægri nótum en þetta er al-
veg viðunandi.“
jss@frettabladid.is
WASHINGTON, AP Bandaríkjamenn
hafa sent 50 manns til Íraks til að
undirbúa málsókn gegn Saddam
Hussein, fyrrverandi forseta
Íraks, sem grunaður er um stríðs-
glæpi.
Hópurinn samanstendur af
saksóknurum og rannsóknarliði
og mun fara í gegnum þúsundir
blaðsíðna af sönnunargögnum
sem fram hafa verið lagðar gegn
forsetanum fyrrverandi. Starfið
er ætlað í því skyni að auðvelda
Írökum starf sitt þegar Saddam
og samstarfsaðilar hans verða
leiddir fyrir dómstóla.
Bandaríkjamenn leggja ríka
áherslu á að málsóknin sé alfarið í
höndum Íraka en ekki þeirra
sjálfra eða annarra þjóða og vilja
að það sé öllum ljóst.
Hvorki hefur verið greint frá
því hvenær réttarhöldin yfir
Saddam muni eiga sér stað, en
hann náðist 14. desember, né held-
ur hver ákæruatriðin verði. Haft
hefur verið eftir einum helsta lög-
fræðingi Íraka í stríðsglæpamál-
um að réttarhöldin muni jafnvel
ekki hefjast fyrr en undir lok árs-
ins og að Saddam verði jafnframt
ekki sá fyrsti sem sóttur verður
til saka. ■
Bretland:
MI5 velur
lágvaxna
LONDON Breska leyniþjónstan MI5
hefur ákveðið að hætta að ráða
karlmenn sem eru yfir 180 senti-
metrar á hæð til að gegna störfum
á vettvangi. Talið er að hærri
menn dragi að sér of mikla at-
hygli. Konur sem eru hærri en 173
sentimetrar fá heldur ekki inn-
göngu í MI5.
Hávaxnir geta þó enn fengið
störf hjá MI6 sem sér um leyni-
þjónustustörf Breta utan heima-
landsins. James Bond, sem sam-
kvæmt forskrift höfundar skal
vera 190 sentimetra hár, þarf því
ekki að örvænta enda starfar
hann hjá MI6. ■
Flugleiðir:
Sjálfkjörið
í stjórnina
VIÐSKIPTI Framboðsfrestur vegna
stjórnarkjörs í Flugleiðum rann út
fyrir helgi en aðalfundur félagsins
verður á fimmtudaginn. Sjö hafa
gefið kost á sér til setu í stjórninni
en þeir eru Jón Helgi Guðmunds-
son og Hannes Smárason, eigend-
ur Oddaflugs, stærsta hluthafans.
Aðrir nýir í stjórninni verða
Hreggviður Jónsson og Ragnhild-
ur Geirsdóttir.
Þeir Benedikt Sveinsson, Jón
Ásgeir Jóhannesson og Pálmi Har-
aldsson hafa einnig gefið kost á sér
til áframhaldandi setu í stjórn. ■
ARNAR JENSSON
Þremenningarnir voru í yfirheyrslum um
helgina.
Neskaupstaðarmálið:
Frekari
gagna aflað
LÖGREGLUMÁL „Það hefur verið
aflað frekari gagna eftir að hníf-
urinn fannst í höfninni á Nes-
kaupstað, en það er ekkert sem
við getum gefið upp,“ sagði Arn-
ar Jensson hjá embætti ríkislög-
reglustjóra um gang rannsókn-
arinnar varðandi líkfundinn á
Neskaupstað.
Arnar sagði að verið væri að
vinna í gögnum og sýnum sem
tekin hefðu verið á þeim stöðum
þar sem hefði verið leitað. Sýni
vegna hnífsins sem fannst í Nes-
kaupstaðarhöfn hefðu ekki ver-
ið greind enn sem komið er.
Hann sagði enn fremur að lög-
reglan útilokaði ekki enn að
fleiri gætu verið viðriðnir málið
en þeir þrír sem nú sitja í gæslu-
varðhaldi. Hann sagði að rætt
hefði verið við þá um helgina, en
kvaðst ekki tjá sig efnislega um
yfirheyrslurnar né það sem þar
kæmi fram. ■
Breytingar á styrkjum til landbúnaðar:
Grænar greiðslur framtíðin
BÚNAÐARÞING Boðað var til breyt-
inga á styrkjum til íslensks land-
búnaðar við setningu Búnaðarþings
í gær.
„Styrkjum til íslensks landbún-
aðar verður smám saman að beina
á aðra sporbraut,“ sagði Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra er
hann boðaði svokallaða grænbók
landbúnaðarins, sem hann sagði
stefnumótunarbók um almenna
þróun starfsumhverfis landbúnað-
arins og opinbers stuðnings næstu
15-20 árin.
„Á alþjóðavísu er verið að fara
fram á að stuðningur við landbún-
aðinn verði meira í grænum
greiðslum þar sem hugað er að
dýravelferð, hollustu matvælanna
og meðferð á móður jörð, náttúr-
unni,“ segir Guðni. „Grænbók land-
búnaðarins myndi varpa ljósi á það
hvernig ríkisvaldið, landbúnaður-
inn, ráðgjöfin og skólarnir koma að
þessari nýju sýn til þess að efla og
styrkja tækifæri þessa lands.“
Hann sagði að fleira væri land-
búnaður en ær og kýr og opinber
stuðningur gæti fallið til fleiri þátta
en nú tíðkast.
„Sjálfsagt fækkar þeim sem búa
með ær og kýr en það er svo margt
nýtt sem við höfum verið að koma á
fót, hvort sem það er landgræðsla,
skógrækt eða ferðaþjónusta. Sjá
má dæmi um þessa þróun á hesta-
og hrossabúgörðum sem hafa á ör-
fáum árum þróast í að verða at-
vinnuvegur.“
Hann benti á að nú þegar væru
komnar fram margar nýjar greinar
sem gætu orðið að atvinnuvegi ef
nauðsynlegur stuðningur veittist,
bæði hvað varðar ráðgjöf og
menntun og jafnvel einnig stuðning
frá hinu opinbera. ■
FRÁ SETNINGU BÚNAÐARÞINGS
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra boðaði breytingu á styrkjum til íslensks landbún-
aðar í takt við það sem gerast mun í Evrópu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
BIÐIN Á ENDA
Starfsfólk í heimahjúkruninni klappaði fyrir nýgerðum samningi stéttarfélaga sinna og
Heilsugæslunnar í húsakynnum BSRB í gær.
„Breytingin
mun ekki fela
í sér beinan
sparnað, það
er ljóst.
GUÐMUNDUR EINARSSON
Segist sáttur við nýtt samkomulag.
SADDAM HUSSEIN
Bandaríkjamenn hafa sent 50 manns til
Íraks til aðstoðar við undirbúning málsókn-
ar gegn Saddam Hussein sem grunaður er
um stríðsglæpi.
Stríðsglæpir í Írak:
Undirbúa mál gegn Saddam
Kjötmarkaður að ná sér:
Erfitt ár
að baki
LANDBÚNAÐUR Síðasta ár var mjög
erfitt ár fyrir íslenskan landbúnað
að sögn Ara Teitssonar, fráfarandi
formanns Bændasamtaka Íslands,
á Búnaðarþingi í gær.
„Erfiðleikarnir stöfuðu fyrst og
fremst af því hve alvarlegt fall var
á kjötmarkaði,“ sagði Ari. „Verð til
framleiðenda náði lágmarki í byrj-
un síðasta árs og er rétt að komast
í jafnvægi að nýju nú rúmu ári síð-
ar.“ Hann segir að líkur séu á að
kjötmarkaðurinn haldist stöðugur
á þessu ári. ■