Fréttablaðið - 15.03.2004, Page 13
12 15. mars 2004 MÁNUDAGUR
■ Lögreglufréttir
KANNAR SPRENGJUÁRÁS
Íraskur lögreglumaður stingur á sig
skammbyssunni áður en hann heldur inn í
fatabúð í Bagdad skömmu eftir að spreng-
ing varð þar í gær. Vitni sögðu mann með
plastpoka hafa farið inn í búðina og flýtt
sér strax út aftur. Fáeinum sekúndum síðar
heyrðist sprenging, sem varð búðareigand-
anum að fjörtjóni.
STJÓRNMÁL „Fjórflokkurinn verður
að minnka og við að stækka. Með
fleiri flokkum kemst á virkara lýð-
ræði,“ sagði Guðjón Arnar Krist-
jánsson, formaður Frjálslynda
flokksins, í setningarræðu á mál-
efnaþingi flokksins í gær.
Guðjón Arnar sagði áratuga völd
sömu flokka minna á flokksræði
gamla Sovétsins, ráðstjórn sem réði
þinginu og afgreiddi aðeins sín mál.
„Góð mál stjórnarandstöðu eru
fótum troðin árum saman en efni
þeirra að hluta einstöku sinnum sett
í ráðherrafrumvörp löngu síðar,“
sagði Guðjón Arnar.
„Til þess að brjóta upp veldi fjór-
flokksins verður Frjálslyndi flokk-
urinn að halda velli og stækka yfir
10 prósenta fylgi,“ sagði formaður-
inn og bætti við að markmiðið væri
að breyta völdum í íslensku þjóðfé-
lagi, þannig að í framtíðinni yrði
tekið mið af sjónarmiðum fleiri
flokka. Lýðræði verði meira en
flokksræði og ráðherravald minna.
„Nú segi ég að það sé von mín og
trú að í 12% eigum við að stefna.
Þetta er hægt,“ sagði Guðjón Arnar
Kristjánsson. ■
Óréttlætanlegt illvirki
Hryðjuverkin í Madríd á Spáni á miðvikudaginn hafa kostað 200 mannslíf og á annað þúsund
eru sárir. Sú kenning hefur komið fram að hryðjuverkasamtökin al-Kaída hafi með sprenging-
unum verið að refsa Spánverjum fyrir aðild þeirra að Íraksstríðinu.
HRYÐJUVERK Mögulegt er að
hryðjuverkasamtökin al-Kaída
beri ábyrgð á hermdarverkunum í
Madríd á Spáni á miðvikudaginn
þegar 200 manns létu lífið eftir
sprengjuárásir á þrjár lestar-
stöðvar. Allt að því 1500 slösuðust.
Í fyrstu var talið að ETA, aðskiln-
aðarhópur Baska, hafi staðið á
bak við árásirnar. Spænskum
stjórnvöldum bárust í hendur á
laugardagskvöld myndbandsupp-
taka af manni sem segist vera á
vegum al-Kaída en hann lýsir því
yfir að verknaðurinn hefði verið
framinn í hefndarskyni fyrir þátt-
töku Spánverja í Íraksstríðinu.
Stjórnvöld á Spáni hafa leitað
liðsinnis Evrópuríkja til þess að
bera kennsl á manninn.
Fréttablaðið leitaði eftir við-
brögðum fulltrúa stjórnmála-
flokkanna við þessum fréttum.
sda@frettabladid.is
Handlyftarar
Dalvegur 6-8 · 201 Kópavogur · Sími 535 3500 · Fax 535 3519
tjorvi@kraftvelar.is · www.kraftvelar.is
Lyftigeta 2,3 tonn
Sterkbyggðir
og öruggir
Standard
Quicklift
kr
kr
48.515,-
55.966,-
m/vsk
m/vsk
FRÁ UNDIRRITUN SAMNINGA
Nýgerðir kjarasamningar bæta kjör þeirra
lægst launuðu en betur má ef duga skal
segja frjálslyndir.
Landsráð frjálslyndra:
Dugar ekki til
framfærslu
STJÓRNMÁL Hækkun lægstu launa,
atvinnuleysisbóta og aukinn líf-
eyrisréttur launþega eru jákvæð
skref til betri afkomu fólks á
vinnumarkaði. Þrátt fyrir það
vantar ennþá að lágmarkslaun og
bætur dugi til framfærslu, segir í
ályktun frá Landsráði Frjálslynda
flokksins sem þingaði um helgina.
Telja frjálslyndir að með undir-
skrift kjarasamninga á almennum
vinnumarkaði séu það enn á ný
launamenn sem leggja grunn að
vinnufriði næstu fjögur árin og
eyða óvissu. ■
EIGUM AÐ STEFNA Í 12%
Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins, segir nauðsynlegt að flokk-
ur sinn fari yfir 10% múrinn. Þannig kom-
ist á virkara lýðræði. FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Málþing Frjálslynda flokksins:
Flokkurinn stækki yfir 10%
Sólveig Pétursdóttir, formaður
utanríkismálanefndar Alþingis:
Vígvöllurinn
færist nær
Þetta eru fyrirlitlegar og mis-kunnarlausar aðgerðir. Ekki
er enn vitað
hver ber
ábyrgð á þess-
um hræðilegu
verkum en það
hefur verið
bent á bæði
ETA og al-
Kaída. Það
skiptir auðvit-
að máli að
komast að
hinu sanna
sem fyrst. Það að svona glæpa-
menn séu til og geti athafnað sig
er auðvitað bein ógn við um-
heiminn allan.
Það hefur verið bent á það að
séu þetta verk al-Kaída þá séu
þetta mestu óhæfuverk þeirra,
svo vitað sé, síðan 11. septem-
ber 2001 í New York, og nú er
vígvöllurinn enn nær okkur eða
í miðri Evrópu.
Það virðist ljóst af fréttum að
öryggisvarsla um alla Evrópu
og víðar mun stóraukast í kjöl-
farið hvort sem verknaðurinn
tengist Írak eða ekki.“ ■
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar:
Ætti ekki að
koma á óvart
Þetta ætti engum að koma á óvart.Það lá fyrir strax skömmu eftir
að innrásar-
stríðið í Írak
hófst að hryðju-
v e r k a m e n n
lýstu yfir að
þeir myndu
freista þess að
hefna stríðsins
grimmilega. Þar
með vofði alltaf
sú ógn yfir að
þau ríki sem
sendu hermenn
til Íraks kynnu að verða skotspónn.
Það hefur nú gerst.
Þetta er hins vegar óafsakanleg-
ur og fordæmanlegur verknaður
sem sýnir hversu hættuleg samtök-
in eru og undirstrikar nauðsyn þess
að gengið sé milli bols og höfuðs á
þeim. Það var kolröng ákvörðun og
ólýðræðisleg hjá íslenskum stjórn-
völdum að styðja Bandaríkjamenn í
þessu máli. Þrátt fyrir ódæðið á
Spáni tel ég ekki líkur á því að augu
hefnarverkamanna beinist hingað.
Auðvitað verða stjórnvöld þó að
vera við öllu búin í þessu efni sem
öðrum.“ ■
Halldór Ásgrímsson,
utanríkisráðherra:
Snertir
okkur öll
Það er engin leið að segja neittum slíka hluti fyrr en spænsk
yfirvöld hafa
staðfest hvað
þarna hefur
gerst. Fram
hafa komið
getgátur en
það er sama
hvaða samtök
um er að ræða,
þetta er hræði-
legur atburður.
Enginn get-
ur réttlætt að
myrða saklausa borgara á þennan
hátt, sama við hvað er að eiga og er
sjálfsagt að taka þátt í að berjast
gegn því. Þetta snertir okkur öll,
snertir allan heiminn.
Okkur ber að taka þátt í barátt-
unni gegn hryðjuverkum.“ ■
HALLDÓR
ÁSGRÍMSSON
SÓLVEIG
PÉTURSDÓTTIR
ÖSSUR SKARP-
HÉÐINSSON
Steingrímur J. Sigfússon,
formaður VG:
Aðferða-
fræðin röng
Það var nú strax önnur kenn-ingin sem uppi var að þessi
hryðjuverk
t e n g d u s t
Í r a k s s t r í ð -
inu. Spænsk
s t j ó r n v ö l d
héldu þó
lengi í kenn-
inguna um að
ETA væri að
verki. Mér
finnst þó að-
a l a t r i ð i ð
vera að því
miður er heimurinn ekki að
verða öruggari, heildur þvert á
móti. Verið er að nota kolrang-
ar aðferðir í því sem kallað
hefur verið baráttan gegn
hryðjuverkum. Það hefur ekki
skilað neinu að henda sprengj-
um á Afganistan og Írak. Það
er alveg ljóst að andúðin á
Bandaríkjamönnum er farin að
beinast að þeim þjóðum sem
stóðu með þeim í Íraksstríðinu
eins skelfilegt og það er.
Stefna Bandaríkjamanna er
vandamál og æsir upp það hat-
ur sem er til staðar fyrir.“ ■
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
LÍKAMSÁRÁS Til ryskinga kom
þegar nokkrir menn reyndu að
komast í partí í íbúðarhúsi í
Keflavík aðfaranótt sunnudags.
Íbúi þar vildi ekki hleypa þeim
inn og enduðu átökin með því að
hann puttabrotnaði. Lögregla var
kölluð til og fór maðurinn í lækn-
isskoðun. Árásarmennirnir létu
sig hins vegar hverfa áður en
lögreglan kom á vettvang.
SAMSTAÐA GEGN HRYÐJUVERKAÓGNINNI
Milljónir Spánverja sýndu samstöðu sína gegn hryðju-
verkum með því að fara út á götur á föstudagskvöldi.
Í gærmorgun voru einnig víða mótmæli gegn skorti á
upplýsingum frá stjórnvöldum vegna atburðanna.