Fréttablaðið - 23.03.2004, Page 12
23. mars 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Stjórnarformaður SÍF:
Vill síður sameina á Íslandi
VIÐSKIPT „SÍF hefur ekki aðhyllst
fullkomlega skoðanir annarra um
heildarsameiningu félaganna en
við bentum hins vegar á það þeg-
ar í september að mikil sóknar-
færi fælust í sameiningu á sviði
fullvinnslu,“ sagði Ólafur Ólafs-
son, stjórnarformaður SÍF, á aðal-
fundi félagsins. SÍF keypti á dög-
unum 23% hlut í samkeppnisfyr-
irtækinu SH af Íslandsbanka.
Ólafur segir það orka tvímælis að
sameina sölukerfi á Íslandi og
þær skrifstofur félaganna sem
nær eingöngu versli með íslensk-
an fisk. „Það er hætta á því að við
það finnist íslensku framleiðend-
unum valkostum þeirra hafa
fækkað um of og samkeppni ekki
nægjanlega virk. Við höfum því
ekki lagt á það áherslu að félögin
verði sameinuð sem slík,“ sagði
Ólafur.
Ólafur benti á að stórir hluthaf-
ar innan Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna hefðu lengi sýnt
áhuga á að selja hlutabréf sín í
félaginu. Með kaupunum í SH
vildi stjórn SÍF leggja áherslu á
áhuga og væntingar um að hlut-
hafar félaganna taki höndum sam-
an um að efla stöðu íslenskra
sjávarútvegsfyrirtækja enn frek-
ar á erlendri grundu. ■
PALESTÍNA Á þriðja hundrað þúsund
Palestínumenn fylgdu Ahmed Yass-
in, stofnanda og trúarlegum leið-
toga Hamas-samtakanna, til grafar
eftir að Ísraelsher réð hann af dög-
um í flugskeytaárás þar sem hann
var að koma frá bænastund í mosku
í Gaza-borg í gærmorgun. Yassin og
sjö aðrir létu lífið í árásinni, sem
samtök Palestínumanna hafa heitið
að hefna grimmilega. Hamas-sam-
tökin vöruðu í fyrsta skipti við því
að þau kynnu að ráðast gegn Banda-
ríkjunum, nokkuð sem þau hafa lát-
ið ógert hingað til.
Auk þeirra sem fylgdu Yassin til
grafar efndu tugþúsundir til mót-
mæla á Vesturbakkanum og Palest-
ínustjórn lýsti yfir þriggja daga
þjóðarsorg.
Fjórir Palestínumenn til viðbót-
ar létust í átökum við Ísraela og
einn að auki þegar sprengja sem
hann var með sprakk í höndum
hans. Arabi lagði til þriggja Ísraela
með hnífi í strætisvagni í Tel Aviv
en óvíst er hvort það tengist dauða
Yassins.
Óttast að átök harðni
Óttast er að víg Yassins verði til
þess að átök Ísraela og Palestínu-
manna harðni enn. Palestínumenn
hafa hótað hefndum og sagði einn
leiðtoga Hamas að fjöldi manns
hefði boðið sig fram til sjálfs-
morðsárása gegn Ísraelum. Þeir
yrðu sendir af stað með tíð og tíma.
Ísraelar lokuðu landamærunum
að hernumdu svæðunum af ótta við
hefndarverk. Hermönnum var
fjölgað á Gaza-svæðinu og viðbún-
aður öryggissveita aukinn í Ísrael.
flugfelag.is
EGILSSTAÐA
6.099kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
ÍSAFJARÐAR
5.000kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
AKUREYRAR
5.099 kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
flugfelag.is
24.-30. mars
VOPNAFJARÐAR/
ÞÓRSHAFNAR
7.400kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
GRÍMSEYJAR
6.400 kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
F
LU
2
40
83
03
/2
00
4
Börn, 2ja–12 ára, í fylgd með fullorðnum,
greiða 1.833 kr. aðra leiðina.
ÓLAFUR ÓLAFSSON
Stjórnarformaður SÍF telur vera hættu á því
að sameiningar sölufyrirtækja innanlands
fari illa í framleiðendur. Hann vill meiri
samvinnu í fullvinnslu á erlendum mörk-
uðum.
LÍK YASSINS BORIÐ TIL GRAFAR
Rúmlega 200.000 Palestínumenn eru taldir hafa fylgt andlegum leiðtoga Hamas-samtakanna til grafar.
LEIFARNAR SKOÐAÐAR
Yassin var í hjólastól sínum á leið frá
bænastund þegar flugskeyti hæfði hann.
Hér virða vegfarendur leifar hjólastólsins
fyrir sér.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Víg Hamasleiðtoga
vekur ótta um óöld
Ísraelar réðu Ahmed Yassin, trúarlegan leiðtoga Hamas-samtakanna, af
dögum. Forystumenn samtakanna hóta hefndum og segja fjölda manns hafa
boðið sig fram til sjálfsmorðsárása til að hefna vígsins.