Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.03.2004, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 23.03.2004, Qupperneq 14
FORSETINN Stjórnarskráin kveður meðal annars á um rétt forseta Ís- lands til að neita að skrifa undir lög. Frá stofnun lýðveldisins hafa forsetar Íslands hins vegar aldrei notað þennan stjórnarskrár- bundna rétt sinn. Ef forseti neitar að undirrita lög er viðkomandi mál borið undir þjóðaratkvæða- greiðslu en þar til niðurstaða hennar er ljós gilda lögin þó að forsetinn hafi ekki staðfest þau. Mikil umræða hefur spunnist um hlutverk forseta Íslands síð- ustu mánuði, ekki hvað síst hinn stjórnarskrárbundna rétt hans til að neita því að staðfesta lög. Á mánudaginn þegar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, til- kynnti að hann hygðist sækjast eftir áframhaldandi setu á for- setastóli, sagðist hann hafa hug- leitt það nokkrum sinnum að vísa málum til þjóðaratkvæðis. Í Sjón- varpinu á fimmtudaginn nefndi Ólafur Ragnar síðan tvö dæmi. Hann sagði að leitað hefði verið til hans í það minnsta tvisvar frá ár- inu 1996 og hann beðinn að neita því að staðfesta lög. Hann sagðist hafa verið beðinn að undirrita ekki lög sem heimiluðu virkjun við Kárahnjúka árið 2002 og lög sem Alþingi setti vegna öryrkja- dóms Hæstaréttar árið 2001. Hann sagði að í hvorugt skiptið hefði hann talið ástæðu til að verða við þessum óskum. Vandséð hvenær forseti á að neita Vinstrihreyfingin – grænt framboð var bæði mótfallin virkj- un við Kárahnjúka og lögum á ör- yrkja. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segist hins vegar ekki vilja svara því hvort forsetinn hefði átt að neita því að staðfesta lögin. „Það er mjög umdeilt meðal stjórnmálamanna og fræðimanna hvort þessi réttur forsetans sé raunverulega til staðar eða aðeins að forminu til,“ segir Steingrímur J. „Ég skildi nú ekki endilega for- setann svo að hann hefði verið af einhverri alvöru að velta því fyrir sér að vísa þessum málum til þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég skildi hann frekar þannig að hann hefði talið sér skylt að taka við áskorun- um um slíkt frá almenningi og fara yfir þær á þeim grundvelli. Ég held að í hvorugu tilfellinu hafi mótmælin verið jafn hávær og þegar EES-samningurinn var samþykktur. Vissulega hefðum við viljað þjóðaratkvæðagreiðslu um Kárahnjúka og við lögðum það til en það var fellt og þar með voru okkar úrræði tæmd sem þingmanna.“ 14 23. mars 2004 ÞRIÐJUDAGUR MÓTMÆLI Í PAKISTAN Andstæðingar ríkisstjórnarinnar í Íslama- bad söfnuðust saman í gær til þess að mótmæla þáttöku Pakistans í leit að Osama bin Laden og öðrum al Kaída-lið- um sem dveljast við landamæri Pakistans og Afganistans. Þingmenn allra flokka nema VG: Vilja þjóðfánann í þingsal ALÞINGI „Hvernig má það vera að innan veggja Alþingis, hvar rætt er um eflingu, vegsemd og gildi þingsins sjálfs, skuli þjóðfáni vor ekki hafinn til vegs og virðingar?“ spyrja flutningsmenn þingsálykt- unartillögu um þjóðfána Íslend- inga í þingsal Alþingis. Fyrsti flutningsmaður tillögunn- ar, Guðmundur Hallvarðsson, Sjálf- stæðisflokki, hefur ítrekað vakið máls á því að þjóðfáninn ætti að vera í þingsal. Flutningsmenn tillög- unnar eru auk Guðmundar 12 þing- menn úr öllum flokkum nema Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sem vildu að sögn Guð- mundar ekki eiga aðild að tillögunni. Töluverðar umræður voru um hvort þjóðfáninn skyldi vera í þingsal, bæði árið 2001 og 2002. Guðmundur Hallvarðsson flutti tvívegis tillögur þar um en þær fengust ekki afgreiddar. Nú segir hann að líkur á að málið nái í gegn hafi aukist. Í greinargerð með tillögunni er bent á að þjóðfánar annarra ríkja séu mjög áberandi við forsæti eða í ræðustól. Flutningsmenn telja það mjög við hæfi að þjóðfáni Íslendinga skipi veglegan sess í þingsal Al- þingis. Það yrði hinu háa Alþingi til sóma, sem og þjóðfána vorum til vegs og virðingar. ■ Umdeildur málskotsréttur Forsetinn íhugaði að beita málskotsrétti þegar Alþingi heimilaði virkjun við Kárahnjúka og setti lög á öryrkja. Formaður Vinstri grænna segir umdeilt hvort málskotsrétturinn sé raunverulegur. Fyrrum heilbrigðisráðherra segir eðlilegt að forsetinn hugsi sig um áður en hann staðfesti lög. SVONA MÁ SYNDA Baksundið er bannað í Blackburn en bringusundið leyfilegt. Ensk sundlaug: Bönnuðu baksundið BLACKBURN, AP Sundmenn í Daisy- field-sundlauginni í Blackburn í norðvesturhluta Englands mega ekki lengur fara í baksund þegar mikið er að gera í lauginni. „Við takmörkum þá tíma þegar leyfilegt er að fara í baksund til að koma í veg fyrir hættulega árekstra. Við hefðum talið að fólki væri annt um öryggi sitt og ann- arra og grípum því til fyrirbyggj- andi aðgerða,“ sagði Kate Holl- ern, starfsmaður borgarráðsins sem bannaði baksundið á háanna- tímum. Hún segir þó að þeir sem brjóti gegn banninu verði ekki lögsóttir. ■ Ríkisskattstjóri: Skilafrestur framlengdur SKATTFRAMTÖL Tæplega 50 þúsund framteljendur höfðu skilað skatt- framtölum sínum vefrænt til Rík- isskattstjóra á hádegi í gær og rúmlega 44 þúsund höfðu sótt um framlengdan frest til 2. apríl næstkomandi. Tekin hefur verið sú ákvörðun að lengja almennan skilafrest sem renna átti út í gær- kvöldi til miðvikudagsins 24. mars til að jafna álag í lok frests- ins og þar sem dreifing framtala dróst lengur en áætlað var í upp- hafi. ■ Dauði Díönu prinsessu: Karl prins yfirheyrður? LONDON, AP Yfirmaður Scotland Yard segist vera undir það búinn að yfirheyra Karl Bretaprins varðandi dauða Díönu prinsessu. Verið er að rannsaka slysið, aðal- lega ásakanir milljarðamærings- ins Mohamed Al Fayed, sem telur dauða Díönu og sonar síns Dodi Fayed hafa verið morð. Fyrrver- andi yfirlögregluþjónn hjá Scotland Yard, John Stalker, hefur sagt að Karl prins ætti að svara fyrir ásakanir í bréfi Díönu þar sem hún segir ítrekað að til standi að myrða hana. Sir John segist vilja ljúka þessari rannsókn fyrir árslok. ■ HEIÐURSVÖRÐUR Lögreglumenn standa heiðursvörð og bera þjóðfánann við setningu Alþingis. Fánann er hins vegar hvergi að sjá inni í þingsaln- um sjálfum, hvorki við setningu Alþingis né á þingfundum.. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.