Fréttablaðið - 23.03.2004, Side 20
Ótrúlega lítið efni eða haldgóðarheimildir eru um raunverulega
sögu íslensku þjóðarinnar frá lýð-
veldisstofnuninni 1944. Þetta kemur
sér illa vegna þess að svo lítil þjóð
hefur ekki efni á þeirri andlegu
stéttaskiptingu sem nú fer hraðvax-
andi, en það lýsir sér i því meðal
annars að fólk rökræðir ekki um
stjórnmál en segir: Það er sami
rassinn undir þeim öllum!
Hvar eru sagnfræðingarnir? Eru
þeir ekki búnir að skilgreina póli-
tíska sögu lýðveldisins? Jú. Það er
að segja Nei! Tökum Kalda stríðið.
Sagnfræðingarnir tóku að narta í
Kalda stríðið – þó lítið fyrr en eftir
að Ameríkanarnir opnuðu söfnin.
Var þetta allt? Hvar er sú saga
Kalda stríðsins sem Íslendingar
háðu innbyrðis? Hvar er sagan um
framkomu ráðamanna við stóran
hluta þjóðarinnar, meðbræður sína,
atvinnukúgunina, mannréttinda-
brotin og allt hitt?
Þessi saga – grunnurinn að sam-
skiptum heillar þjóðar fyrstu ára-
tugina eftir nýfengið frelsi – er
hvergi skráð. Af hverju?
Hvar er saga fjórflokkakerfisins
sem olli vissri efnahagslegri stýr-
ingu þar sem annarsvegar stærsti
stjórnmálaflokkurinn náði oftast að
halda meginatvinnuvegunum og
löggjafarvaldinu undir sér og hins
vegar opnaði þetta sama kerfi leið
fyrir „vinstri“ stjórnirnar sem
þurrjusu ríkissjóð og skildu eftir
sviðna jörð. Viðreisnarstjórnin var
undantekning og líka Nýsköpunar-
stjórnin – að vissu leyti. Hvar er
sagnfræðin um stjórnmál þessa
tímabils? Svo eru þeir sem segja að
ævisögur forsætisráðherranna séu
besta sagnfræðin.
Nútíminn
Og komum þá aftur að nútíman-
um. Sá sem þetta skrifar er ‘33 mód-
el og aldrei áður hefur mér þótt
möguleikar homo sapiens jafn mikl-
ir og nú. Oft finnst mér sagnfræð-
ingar ekki vera nógu forvitnir. Oft
finnst mér þeir vera slitnir úr
tengslum við atburði nútímans. Og
oft finnst mér þeir svara spurning-
unni um hugsanlega breytingar í
sagnfræðilegri þróun Íslendinga á
þá leið að næstu kosningar gætu
orðið spennandi eins og þeir svara
gjarnan fyrir kosningar. Lítil efna-
hagsleg og pólitísk yfirsýn.
Þess vegna spyr ég nú þá sem
lært hafa upp það að gramsa í gangi
sögunnar, sagnfræðingana, hvort
ekki sé kominn tími til að koma
þeirri spurningu upp á yfirborðið
hvort ekki eigi að reifa þann mögu-
leika að tveir stærstu turnarnir –
Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylk-
ingin – hafi ekki sögulegt hlutverk
við að takast á við þær risavöxnu
nýju aðstæður sem liggur í augum
uppi að eru fram undan. Nú þarf
einstaklinga til að koma í leikinn.
Það þarf raunar fleira. Það þarf
sögulega hugsun sem fólk skilur, ef
við eigum ekki að lenda í sama fjós-
haugnum enn einu sinni. ■
Þessari spurningu er varpað tilþeirra valdhafa sem skortir þá
framtíðarsýn að sjá ekki Reykjavík
fyrir sér í framtíðinni sem mann-
vænlega, skilvirka og lifandi höfuð-
borg.
Sú ákvörðun stjórnvalda og
borgaryfirvalda að eyðileggja
framtíðarbyggingarland höfuð-
borgarinnar í Vatnsmýrinni með því
að leggja sex akreina ofanjarðar
stofnbraut er óskiljanleg. Hún er
óskiljanleg í ljósi þess að vitað er að
flugvöllurinn í Vatnsmýrinni á eftir
að fara hvort sem það verður á
næstu 5 árum eða árið 2024. Reykja-
vík á tækifæri sem fæstar höfuð-
borgir eiga, þ.e. 330 hektara land
sem, þegar flugvöllurinn fer, er
nánast ósnortið land. Þetta land ætti
að skipuleggja heildstætt miðað við
byggðina umhverfis og tengsl við
miðborgina.
Með góðu eða illu
Ekki alls fyrir löngu lýstu „fjár-
sterkir aðilar“ yfir áhuga sínum á
að byggja verslunarmiðstöð í mið-
bænum. Hvað segja þeir um að 40-
50 þúsund íbúar framtíðarbyggðar í
Vatnsmýrinni verða aðskildir frá
herlegheitunum? Ef borgaryfirvöld
og samgöngumálaráðherra fá vilja
sínum framgengt verður byggð í
Vatnsmýrinni eins og hvert annað
úthverfi í Reykjavík þar sem íbúar
verða að fara í bílinn sinn til að
sinna erindum.
Einu rök hins opinbera fyrir
þessari svokölluðu „færslu
Hringrautar“ eru að rýmka þurfi
fyrir Landspítala - háskólasjúkra-
húsi. Ef af verður þá verða framtíð-
arbyggingar LSH byggðar á um-
ferðareyju á milli gömlu Hring-
brautar og þeirrar nýju. Notalegt og
heilsusamlegt umhverfi fyrir sjúk-
linga og starfsfólk!
Um næstu mánaðamót munu
borgaryfirvöld opna tilboð í lagn-
ingu þessa malbiksmannvirkis sem
á eftir að skilja framtíðarbygging-
arsvæðið í Vatnsmýrinni frá
nærliggjandi hverfum með þriggja
metra háum hljóðmönum sitthvoru
megin brautarinnar. Þessi fram-
kvæmd er 30 ára gömul hugmynd
og núna skal hún framkvæmd með
góðu eða illu.
Skammsýni
Hvernig stendur á því að yfir-
völd hér á landi fylgjast ekkert með
því sem er að gerast varðandi þróun
borga í þeim löndum sem við mið-
um okkur oft við? Hvað veldur
þeirri þröng- og skammsýni sem
ræður varðandi þessa ákvörðun?
Hvers vegna má ekki nota tímann
til að gera heildarskipulag fyrir
svæðið og kanna aðra möguleika
eins og t.d. að leggja Hringbrautina
í stokk fyrir gegnumumferð eða
bíða þar til flugvöllurinn er farinn
og leggja þá stofnbraut í útjaðri
byggðarinnar? Hvað liggur á?
Þriðjudaginn 30. mars kl. 17.00
gefst kjörnum fulltrúum okkar
kjósenda tækifæri til að svara þess-
um spurningum á opnum borgara-
fundi sem stendur til að halda á veg-
um Átakshóps höfuðborgarsamtak-
anna og Samtakanna um betri
byggð í Tjarnarsal Ráðhússins. Von-
andi sjá sem flestir borgarbúar sér
fært að mæta á fundinn. Skipulags-
mál snerta líf allra.
Þeim sem eru nettengdir er bent
á að skoða slóðina http://jens.open-
hand.net/hringbraut/ ■
Stór mynd af skjaldarmerki Al-þingishússins birtist á forsíðu
Fréttablaðsins 5. mars og minnir
okkur á að ýmislegt hefur gleymst
í umróti liðins tíma. Það er nefni-
lega vitlaust merki á þessu virðu-
lega húsi. Þar getur ennþá að líta
danska skjaldarmerkið með kór-
ónu Kristjáns konungs 9. í stað ís-
lenska merkisins með táknum
landvættanna.
Merkjaskiptin hafa nú dregist í
tæp 60 ár. Þvílíkur trassaskapur.
Þetta er þeim mun raunalegra
sem skriður komst á málið árið
1990 og smíði nýs merkis var fyr-
ir forgöngu Árna Gunnarssonar
forseta neðri deildar langt komin
þegar árar voru lagðar í bát og
gefist upp við verkið. Um þetta
má lesa í Morgunblaðinu laugar-
daginn 28. febrúar síðastliðinn og
fylgir greininni mynd á forsíðu af
steypumóti nýja skjaldarmerkis-
ins. Þar kemur einnig fram að
ástæður fyrir þessum sinnaskipt-
um voru tvær, annars vegar and-
staða sumra þingmanna og á hinn
bóginn neitun Húsfriðunarnefnd-
ar. Þetta er þeim mun furðulegra
sem afstaða beggja þessara hópa
er gjörsamlega óverjandi eins og
hér skal sýnt fram á með fáeinum
orðum.
Tákn danska
konungsvaldsins
Núverandi skjaldarmerki er
tákn danska konungsvaldsins sem
ríkti öldum saman yfir Íslandi allt
til ársins 1944, en þá sleit þjóðin
konungssambandi við Danmörku,
stofnaði lýðveldi og varð sjálf-
stætt ríki. Það er því bæði lágkúra
og hin grófasta móðgun við
lýðveldi okkar og alþjóðareglur að
setja Alþingi og neyða þjóðkjörna
fulltrúa til að gegna þingstörfum
áfram undir danskri kórónu eins
og ekkert hafi í skorist! Er hægt
að búast við að almenningur virði
og meti lýðræðið að verðleikum
þegar stjórnvöldin sjálf láta sér í
léttu rúmi liggja þótt siglt sé
þannig undir fölsku flaggi? Og
það gerum við einmitt á meðan
danska skjaldarmerkið trónir á
Alþingishúsinu. En jafnframt
ruglum við ýmsa erlenda gesti á
Austurvelli í ríminu sem sjá sér til
undrunar að Ísland er konungsríki
eftir því tákni að dæma sem prýð-
ir þinghúsið. Þetta er fáránlegt og
hneykslanlegt í senn hvernig sem
á málið er litið. Þingmenn ættu
því að krefjast þess að lokið verði
við gerð skjaldarmerkisins sem
fyrst og vera stoltir af að veita því
verki stuðning sinn.
Skjaldarmerkið á
Þjóðminjasafni
Það kemur á óvart að Húsfrið-
unarnefnd skuli hafa sett sig á
móti merkjaskiptunum. Sé það rétt
virðist hún telja sig hafa meira
vald og vera æðri stofnun en sjálft
Alþingi! Neitun þýðir einfaldlega
að Alþingi er húsnæðislaust því að
skammlaust er ekki hægt að starf-
rækja það undir danskri kórónu,
það gengur engan veginn upp. Þá
eru tveir kostir fyrir hendi: Annað
hvort þarf að byggja nýtt Alþingis-
hús eða Húsfriðunarnefnd hlýtur
að draga neitun sína til baka. Þar
sem nýlega er búið að reisa dýrar
byggingar í tengslum við Alþingis-
húsið væri óskynsamlegt að skipta
á þessu stigi um Alþingishús. Og
þó Húsfriðunarnefnd hafi gert
marga góða hluti má minna á að Al-
þingi er lifandi stofnun sem þarf
svigrúm og tækifæri til nauðsyn-
legra breytinga sem óviturlegt
væri að hindra. Danska skjaldar-
merkið ber þess vegna að taka
ofan hið bráðasta og koma því fyr-
ir á öndvegisstað í Þjóðminjasafni.
Reisn og sjálfsvirðing
þjóðarinnar
Bæði Morgunblaðið og Frétta-
blaðið eiga þakkir skildar fyrir
að hafa hreyft við þessu máli og
þannig minnt okkur á hverju er
ólokið í þessum efnum. Því meir
sem málið er skoðað kemur betur
í ljós að það er stærra í sniðum en
virðist við fyrstu sýn, því að það
varðar reisn og sjálfsvirðingu ís-
lensku þjóðarinnar sem seint
verður metin til fjár.
Alþingismenn! Látið nú hend-
ur standa fram úr ermum og ljúk-
ið skjaldarmerkjaskiptingunni
með sameinuðu átaki, ykkur til
sæmdar og landi og þjóð til
heilla. ■
Bætiflákar
Er hjakkaður niður
„Við hverju er að búast þegar
fjölmiðlar bjóða ekki upp á
málefnalegar umræður? Ég
hef beðið um eftirlitsmenn frá
OECD til að fylgjast með
kosningabaráttunni því fjöl-
miðlarnir keppast við að
hjakka niður framboð mitt á
ómálefnalegum grundvelli.“
–––––––––––––––––––––––––––––
Fylgi Ástþórs Magnússonar mælist rétt
rúmt prósent í nýrri skoðanakönnun
Fréttablaðsins þar sem spurt var: Hvern
viltu sjá sem forseta á næsta kjörtíma-
bili?
20 23. mars 2004 ÞRIÐJUDAGUR
■ Af Netinu
Hvað liggur á?
Dalvegur 6-8 · 201 Kópavogur
Sími 535 3500 · Fax 535 3519
tjorvi@kraftvelar.is
www.kraftvelar.is
Vökvaknúnar
rafstöðvar
Fyrir gröfur,
bíla og báta
• Tengjanlegar við öll
vökvakerfi
• Nýtir þann vélbúnað
sem fyrir er
• Léttar og taka lítið pláss
samanborið við ljósavélar
• Sjálfvirk tíðni- og spennustilling
• Fáanlegar frá 3,5-70 kVA
• Ýmiss annar búnaður
fyrir vökvakerfi fáanlegur
Verð kr 428.663,-
með vsk.
Tími til að leysa frá skjóðunni?
Umræðan
TORFI GUÐBRANDSSON
■
skrifar um skjaldarmerki Alþingishússins.
Umræðan
HRAFN SÆMUNDSSON
■
skrifar um skort á sagnfræði.
Umræðan
DÓRA
PÁLSDÓTTIR
■
skrifar um
skipulagsmál.
Skjaldarmerki
Alþingishússins
Of seint í rassinn gripið
„Ég þekki nokkur kaldhæðin
kvikyndi sem finnst gaman að
dissa hitt og þetta. Gæti jafn-
vel verið að ég sé einn þeirra.
Það fyndnasta við svona lið er
að það verður hreinlega brjál-
að ef einhverjum dirfist að
dissa það. Því var ég ekkert
alltof hress þegar þetta barst í
gær: Sæll Gunni ég hef sjaldan
heyrt í eins lélegum söngvara
eins og þú ert eg er búin að
vera í músikk síðan 1967 þú
mátt eiga það að slá allt út ég
hlustaði á þig í gær í sjónvarp-
inu, fyrirgefðu en ég varð að
tjá mig. Sendandi var einhver
Kolla út í bæ og ég svaraði
auðvitað í hita augnabliksins
og sagði að hún væri sjálf lé-
leg. Það hefði auðvitað verið
mun sniðugra að svara engu og
gefa þannig í skin að bréfið
hafi ekki skipt mig neinu, en
þá aðferð nota margir þó það
sé örugglega allt á suðupunkti
innra með þeim. Einnig hefði
verið upplagt að koma með
eitthvað snappí eins og „Takk
fyrir það, alltaf gaman að vita
hvað geðveikum kellingum
sem kunna ekki að nota
punkta eða kommur finnst um
mig“ (tók mig 12 tíma að finna
þetta upp), en það er of seint.“
DR. GUNNI Á VEF SÍNUM THIS.IS/DRGUNNI.