Fréttablaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 23. mars 2004 Já, ráðherra ÁSuðurnesjum hefur ekki veriðráðherra frá stofnun lýðveld- isins. Ég hef það á tilfinningunni að ríkisvaldið sé orðið því vant að lítið þurfi að þjóna þessu svæði. Nú á síðustu árum hefur þetta verið mjög áberandi og framkoma nokkurra ráðherra tekið af öll tví- mæli hvað þetta varðar. Suðurnesin hunsuð Við skulum hugsa okkur að Stokksnesið, sem nú hefur verið yfirgefið af Bandaríkjaher, myndi tungu sem skipti miðjum Hornafjarðarbæ. Utanríkisráð- herra er búinn að taka við land- inu og hagnast um hundruð milljóna á þeim viðskiptum. Ágætu Suðurnesjamenn, sjáið þið það fyrir ykkur ef staðan væri þessi að utanríkisráðherra byði þetta land út til hæstbjóð- anda? Ég þarf ekki að hugsa mig lengi um, landið hefði verið af- hent án gjaldtöku og greiddar bætur fyrir, jafnvel hefði verið þakkað fyrir afnotin. En af því að nikkelsvæðið er á milli Kefla- víkur og Njarðvíkur telur utan- ríkisráðherra sjálfsagt að við greiðum háar fjárhæðir fyrir landið sem tekið var eignarnámi og sáralítið greitt fyrir það á sínum tíma. Ekki dugar að benda á að fyrrverandi landeig- endur hafi átt forkaupsrétt því ráðherra, sem gat skipt landinu upp í kvótasvæði norður og suð- urhluta og haft Hornafjörð með norðurhluta sem gaf 20% meiri kvóta, ætti ekki að vera í vand- ræðum með að semja við land- eigendur um framreiknað verð fyrir landið. Ríkisvaldið er orðið svo vant að hunsa okkar lands- hluta að engu tali tekur. Stuðla þarf að jöfnuði Nú nýverið taldi iðnaðar- og viðskiptaráðherra nauðsynlegt að jafna flutningsgjald á raf- orku með því að skattleggja m.a. Suðurnesin en varð að láta í minni pokann vegna harðfylgis HS og OR. Hvað er jöfnuður í huga ráðherra? Nú nýverið var úthlutað úr nýsköpunarsjóði 550 milljónum, þar af fóru 400 millj- ónir í kjördæmi ráðherra og ekki nóg með það, þetta kom henni algerlega á óvart en ein- hver kynni að halda því fram að þetta séu innherjaviðskipti. Nú vill hún fella niður flutnings- gjald á sementi og get ég verið því sammála í meginatriðum en ég efast um að ráðherra beitti sér í þessu máli ef sementsala væri t.d. frá Húsavík í stað Helguvíkur, hvað þá ef Sements- verksmiðja ríkisins væri starf- andi. Eitt er víst, að ekki verða þessir ráðherrar vændir um að vera hér á atkvæðaveiðum, ljóst er að þeir leggja allt sitt traust á gullfiskaminni kjósenda. Ef það er vilji ráðherra að stuðla að jöfnuði þá eru hæg heimatökin í þeim efnum t.d. að jafna lífeyr- isréttindi, jafna atkvæðisrétt, jafna styrki og greiðslur á landshluta svo fátt eitt sé nefnt. Því miður blasir allt annar veruleiki við flestum lands- mönnum, því þingið sýndi hug sinn í verki svo ekki verður um villst í eftirlaunamálinu, fyrir- hyggjan nær oft ekki út fyrir eigin hagsmuni sem kemur vel í ljós í þessu máli. Reykjavíkur- borg líður fyrir Reykjavíkur- flugvöll, hundruðum milljóna er varið til endurbóta á flugvellin- um jafnvel þó vélskóflukjaft- arnir bíði á hliðarlínunni til að moka honum í burtu en mörgum þingmönnum finnst þetta hent- ugt. Gaman væri að fá saman- burðartölur á fjárveitingum og styrkjum til dæmis á Eyjafjarð- arsvæðinu og Suðurnesjum, þá kemur sennilega í ljós hvað er jöfnuður í hugum ráðamanna. Það má margt læra af slíkum samanburði og hver er að greiða niður fyrir hvern. Ef til vill eru þingmenn okkar fjórðungs- drættingar þegar miðað er við Eyjafjarðarsvæðið, en ástæðan er einföld, við höfum aldrei átt málsvara á ríkisstjórnarfundi, til þess þarf ráðherra. Ráðherra af Suðurnesjum Nú á haustmánuðum verða hrókeringar á ráðherrastólum og gefur það ekki tilefni til bjartsýni fyrir okkur Suður- nesjamenn. Það væri mikil bót fyrir kjósendur og lýðræðið ef ráðherraefni væru tilgreind á framboðslistum, landið gert að einu kjördæmi og hagur heildar- innar hafður að leiðarljósi en eins og málum er nú komið er ráðherra margra þingsæta virði. Framganga Eyjafjarðar- ráðherranna undirstrikar græðgisvísitöluna og vanhæfni þeirra til að vinna að hag heild- arinnar. Hér gefst nú kjörið tækifæri til að rétta af margra áratuga slagsíðu og tilnefna ráð- herra af Suðurnesjum. ■ Umræðan STURLAUGUR ÓLAFSSON ■ skrifar um ráðherraleysi á Suðurnesjum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.