Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.03.2004, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 23.03.2004, Qupperneq 24
Neytendasamtökin: Margvísleg þjónusta Neytendasamtökin bjóða upp áýmiss konar þjónustu fyrir neytendur. Árgjaldið er 3.400 krónur og hægt er að sækja um aðild á vefnum. Meðal þess sem stendur félags- mönnum til boða er Neytenda- blaðið, sem kemur út fjórum til fimm sinnum á ári, og aðgangur að fyrri tölublöðum á vefnum. Félagsmenn fá einnig fullan aðgang að vef Neytendasamtak- anna, en þar eru greinar, gæða- og markaðskannanir sem aðeins birtast á vefnum á læstum síðum. Þeir félagsmenn sem ekki hafa aðgang að Netinu geta fengið slíkt efni sent í pósti endur- gjaldslaust. Rit Neytendasamtakanna og neytendasamtaka í nágrannalönd- unum standa félagsmönnum til boða á góðu verði. Neytendasamtökin bjóða einnig félagsmönnum aðstoð leið- beininga- og kvörtunarþjónust- unnar ef vandamál koma upp eft- ir að kaup hafa farið fram. Félags- menn NS geta fengið viðtal hjá lögfræðingi samtakanna í Reykja- vík eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu samtakanna, www.ns.is ■ Sæll Vilhjálmur. Ég svaraði spurningunni um 20% vextina í blaðinu 24. febrúar síðastlið- inn og læt það duga. Áhrif verðtryggingar og verðbóta á lán skal ég hins vegar útskýra nánar. Það er rétt hjá þér að verð- trygging er það sama og kaupmáttar- trygging. Þar með er hins vegar ekki nema hálf sagan sögð því verðbætur á lán vinna nákvæmlega eins og vaxta- vextir. Verðbætur reiknast sem hlut- fallsleg hækkun á höfuðstóli og leggj- ast á höfuðstól og svo koll af kolli eins og vaxtavextir. Tökum dæmi: Vísitala láns hefur hækkað úr 227,2 í 228,4 eða 1,2 stig milli afborgana. Það gerir 0,53% hækkun á láninu ásamt áfölln- um verðbótum. Þessi hækkun leggst nær óskipt á höfuðstólinn. Næsta hlutfallslega hækkun vísitölu reiknast svo af lán- inu ásamt þessum 0,53% verðbótum. Því er, með öðrum orðum, verið að reikna vexti á vexti en það heitir vaxtavextir. Þetta er einnig skýringin á því hvers vegna verðtryggð lán hækka að öllu jöfnu fyrstu tvo þriðju af lánstímanum þrátt fyrir reglulegar afborganir. Verðtryggt lán verður því miður dýrara en óverðtryggt lán vegna þess- ara vaxtavaxta áhrifa verðbótanna. Tökum dæmi af tveimur 8 milljóna króna lánum til 40 ára sem greitt er af mánaðarlega. Annað er verðtryggt með 6,0% raunvexti, hitt er óverð- tryggt með 8,65% nafnvexti sem gefa sömu raunvexti, verðbólga er 2,5% út lánstímann. Eftir 40 ár hefur verð- tryggða 8 milljóna króna lánið kostað 36,1 milljón en það óverðtryggða 28,6 milljónir. Þessa útreikninga er hægt að skoða betur í fréttadálknum á h e i m a s í ð u n n i www.fjarmalafrelsi.is. Kveðja, Ingólfur Hrafnkell Sæll Ingólfur Las pistil þinn í blaðinu og þótti hann nok kuð skondinn. Nokkur atriði finnst mér þ urfa leiðréttingar eða áréttingar við. Í fyrsta lagi eru nánast engar líkur á a ð finna nokkurs staðar áreiðanlega 20% árs- ávöxtun fjármuna ... Í öðru lagi eru verðbætur allt annað en v axtavextir. Verðbætur tryggja einfaldleg a að lán sé greitt til baka í jafnverðmætum k rónum og þær sem upphaflega voru lán aðar ... Vextir og vaxtavextir eru svo annað mál og stærðfræðilega ótengt verðbótunum. Í þriðja lagi er verðtrygging engan vegi nn jafn slæm og margir halda. Allir lán veit- endur vilja verja fé sitt gagnvart verðb ólgu. Sú vörn kemur annað hvort fram s em sér- stök verðtrygging lánsins eða með því a ð innifela áætlaða verðbólgu í vaxtaprós entunni eins og tíðkast um óverðtryggð lán ... Ve rðtryggð lán eru sem sagt að jafnaði ódý rari, og munar þar talsverðu þegar um er að ræð a löng lán á borð við húsnæðislán. Í fjórða og síðasta lagi stendur ekki til a ð taka upp breytilega vexti þann 1. júlí þ egar Íbúðabréf koma í stað Húsbréfa ... Með kveðju, Vilhjálmur Þorsteinsson Verðbætur vinna eins og vaxtavextir INGÓLFUR HRAFNKELL INGÓLFSSON ■ félagsfræðingur og leiðbeinandi á nám- skeiðum Fjármála heimilanna svarar hugleiðingum um vexti og verðbætur. Ég gerði þau á síðasta ári. Þákeypti ég íbúð norður á Akur- eyri sem ég er mjög ánægður með. Anton Sölvason Bestukaupin? Vatn er hollasti drykkurinn og hér á landi erum við svo heppin að vatn úr krana er afar ljúffengt. Með því að drekka alltaf vatn með matnum og ekki keypta drykki sem eru þar að auki óhollir eins og gos er til dæm- is getum við sparað alveg heilan helling. Hálfs lítra gosflaska kostar 150 krónur. Ef ein slík er drukkin á degi hverjum eru það 54.750 á ári. Margfaldað með fjórum verður upphæðin 219.000, sem er ansi há tala í heimilisbókhaldinu. Ekki spillir að það er miklu hollara að drekka vatn en gos - þannig spar- ar maður líklega tann- læknakostnaðinn síðar meir. Það er ekki ónýtt. fjármál o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um f jármál heimilanna Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: fjarmal@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is Skuldir heimilanna: Vanskilin fyrst Fólk í greiðsluerfiðleikum er oftkomið í þrot með úrræði. Ráð- gjafastofa heimilanna aðstoðar fólk sem á í verulegum erfiðleik- um. Á heimasíðu ráðgjafastofunn- ar, www.rad.is, eru líka ýmsar greinar, gagnlegar upplýsingar og spurningar og svör. Hvaða skuldir er skynsam- legast að greiða niður fyrst? Þær skuldir sem eru með mest- um kostnaði fyrir þig. Á vanskil leggjast dráttarvextir, sem eru 17% í dag, ásamt innheimtu- og lögfræðikostnaði, ef skuldin er komin í lögfræðiinnheimtu. Það er því best að greiða vanskilin fyrst niður og síðan veltukort og yfirdrátt, þar sem þessar skuldir bera yfirleitt hærri vexti en skuldabréf. Yfirdráttarheimild breytt í lán Þegar þú tekur lán borgar þú lántökukostnað og stimpilgjöld, einnig ert þú að borga innheimtu- kostnað (seðilgjöld) við hverja greiðslu. Gott er að fá upplýsing- ar hjá fjármálastofnunum um hvað lánið mun kosta og hvað heimildin mun kosta ef þú greiðir hana niður með reglulegum greiðslum og meta út frá því hvort það borgi sig að breyta yfir- dráttarheimildinni í lán. ■ Hvernig sparar þú? Aldrei farið á „kortaflipp“ Dúfa Einarsdóttir söngkona er af„gamla skólanum“, alin upp við að fara vel með peninga og segir meginregluna að flýta sér ekki of hratt að eignast alla hluti. „Það situr í mér úr uppeldinu að fara vel með. Heima hjá mér skorti aldrei neitt en það var heldur ekkert bruðlað. Þetta geta börn lært af foreldrum sínum. Ég held að vandinn hjá unga fólkinu sé að það vill hafa allt full- komið þegar það byrjar að búa. Það kaupir of mikið og safnar ekki, heldur tekur á lánum.“ Eiginmaður Dúfu var í háskóla þegar þau byrjuðu sinn búskap og Dúfa vann allan daginn. „Við keypt- um fyrstu íbúðina 27 ára og byrjuð- um á að kaupa bara lítið, svo var bætt við smám saman.“ Dúfa tók strax þann pól í hæðina þegar kortin urðu almenn að brenna sig ekki á þeim og nota þau varlega. „Ég hef aldrei farið á „kortaflipp“,“ segir Dúfa hlæjandi. „Ég legg inn á debetkortið mitt og skammta mér. Oftast er ég þó með peninga þegar ég versla inn. Maður verður meðvit- aðri þegar maður borgar með bein- hörðum peningum, það er meira eins og verið sé að rífa úr manni hjartað að borga með peningum en korti,“ segir hún og hlær hjartan- lega. „Annað sem ég spara á er að kaupa sjaldan tilbúinn mat heldur elda frekar sjálf. Mitt sparnaðarráð til ungs fólk myndi vera að flýta sér ekki of hratt. Börn þurfa til dæmis ekki að eiga alla hluti og engum er greiði gerður með að þau eigi her- bergi full af dóti sem þau hafa litla ánægju af.“ edda@frettabladid.is DÚFA EINARSDÓTTIR SÖNGKONA Var alin upp við að fara vel með peninga og flýta sér hægt. Hún notar peninga frekar en kort við innkaupin og kaupir sjaldan tilbúinn mat. Tilboð: GSM- áfyllingar Framt til 1. júní 2004 er tilboð áGSM-áfyllingum í KB Net- banka og hraðbönkum. Ef fyllt er á farsímainneign hjá Símanum fyrir að minnsta kosti 2.000 kr. fylgir 300 kr. SMS-inneign. Sú inn- eign gildir innan kerfis Símans í 6 vikur. Þáttakendur geta líka unnið ýmsa vinninga: GSM-myndavéla- síma, miða fyrir tvo á Korn og 5.000 kr. inneignir á Frelsi. ■ DREKKTU VATN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.