Fréttablaðið - 23.03.2004, Qupperneq 38
23. mars 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Rocky
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Tjaldur.
Grétar Hallur Þórisson.
Joseph-Guy Ropartz.
Úrval af
sængurfatnaði
til fermingargjafa
og annarra
tækifærisgjafa
Skólavörðustíg 21,Reykjavík
Sími 551 4050
SKULDBINDING
VIÐ EFNUM LOFORÐ
OKKAR
s. 564 2910 • www.sos.is
Bókmennta-
tryllar seljast vel
Þetta gengur svona líka stórkost-lega,“ segir Snæbjörn Arn-
grímsson um sölu á Da Vinci lyklin-
um í Danmörku, en Bjartur hefur
útgáfuréttinn þar. „Við vorum
reyndar að detta úr öðru sæti í það
fjórða á einum metsölulistanum en
bókin heldur annars staðar öðru
sætinu og hefur verið þar síðan í
nóvember. Við erum líka búnir að
selja hana í bókaklúbb í Danmörku
þar sem hún fer í 30.000 eintökum í
júlí, þannig að við getum ekki verið
ánægðari.“
Bjartsmenn ætla að halda áfram
á svipuðum slóðum því þeir hafa
tryggt sér útgáfuréttinn á Íslandi,
Noregi og í Danmörku á bókinni
Klúbbur Dantes eftir Matthew
Pearl, og mun hún koma út í þessum
þremur löndum í haust. „Þetta er
bókmenntatryllir sem hefur verið á
metsölulistum þar sem hann hefur
verið gefinn út. Þetta er bók
kannski í svipuðum dúr og DaVinci,
en mun meira bókmenntaverk.“
Líkt og aðrir í útgáfubransanum
eru Bjartsmenn nýkomnir frá mik-
illi bókamessu í Bretlandi og vill
Snæbjörn lítið segja að svo stöddu
um það hvort Bjartur hafi nælt sér
í áhugaverða titla þar. Hvað sem úr
því verður sóttu forsvarsmenn for-
lagsins Faber & Faber hart að
Bjartsmönnum að þeir kæmu út í
haust til að taka einn fótboltaleik á
milli bókaforlaganna og það er
aldrei að vita hvað gæti komið út úr
þeim leik. ■
Þessi pastaréttur þarna er sannur viðbjóður! Ég hef séð
uppþornaðar grænar rækjur sem voru meira freistandi!
Og maður þarf að vera þokkalega þreyttur á lífinu til
að prófa þessa gráu pizzu þarna! Þetta er eins og
fornmaðurinn sem var grafinn úr ísnum í Ölpunum!
Og hvað má bjóða ykkur?
Bækur
DA VINCI LYKILLINN OG
KLÚBBUR DANTES
■ Bækur sem seljast vel
SNÆBJÖRN ARNGRÍMSSON
Stefnir á fótboltaleik Bjarts gegn bókaforlaginu Faber & Faber í haust. Það hlýtur að verða
leikur dvergsins við risann.
Miðasala fyrir tónleika Pixieshefst ekki fyrr en á morgun
en samt er um helmingur þeirra
miða sem í boði eru þegar seldur.
Þannig er mál með vexti að miða-
sala á tónleika þýsku tölvupopp-
aranna í Kraftwerk hófst í gær en
þar býðst æstum Pixies aðdáend-
um að kaupa sér miða á Pixies um
leið og þeir kaupa miða á
Kraftwerk-tónleikana.
Það er ljóst að flestir þeirra
sem hyggjast sjá Kraftwerk á
sviði í Kaplakrika hafa notfært
sér þennan möguleika en síðdegis
í gær höfðu 1.500 miðar selst á
Kraftwerk-tónleikana og 1.200
miðar á Pixies.
Alls eru 2.500 miðar í boði á
tónleika Pixies og þar sem einnig
verður hægt að kaupa Pixies-miða
með Kraftwerk-miðum í dag má
reikna með að lítið verði eftir þeg-
ar miðasalan hefst formlega á
miðvikudaginn. ■
Pixies-miðarnir rjúka út
PIXIES
Miðar á tónleika sveitarinnar voru í gær
seldir með miðum á tónleika Kraftwerk
og flestir sem keyptu miða á Kraftwerk
tóku miða á Pixies í leiðinni.