Fréttablaðið - 23.03.2004, Síða 39
ÞRIÐJUDAGUR 23. mars 2004 39
Kynnir íslenskan
veruleika erlendis
Ég samdi tilkynningu og sögu-bút og sendi þeim á News-
shopper. Þeim leist svo vel á
þetta að þeir ætla að gera mig að
þeirra eina erlenda pistlahöf-
undi,“ segir Ólafur Þór Eiríksson,
sem heldur úti heimasíðunni Net-
saga.is þar sem hann birtir hug-
leiðingar og sögur eftir sjálfan
sig. Aðspurður um hvað hann
muni skrifa á hinum erlenda vef
segist hann eiga fullt af efni á
Netsögu. „Svo ætla ég að taka
skemmtileg viðtöl við hina og
þessa. Þetta verður kjörið tæki-
færi til að auglýsa íslensk fyrir-
tæki, svona óbeint. Þetta er tæki-
færi sem maður fær bara einu
sinni á ævinni.“
Fyrsti pistill Ólafs mun birtast á
næstu dögum. „Þeir eru að undir-
búa kynningu á mér og gera þetta
flott. Mig vantar svo ljósmyndara
sem á fullt af myndum, til að kynna
íslenskan veruleika. Þetta er ólaun-
að starf eins og er en gæti breyst
síðar meir. Á móti munu þeir leyfa
mér að kynna netsögu út um allt,
þar sem ég skrifa bæði á íslensku
og ensku.“ ■
Lárétt: 1hamlar, 6ára,7uú,8tt,9ugg,10ill,
12ljá,14kol,15ós,16ár, 17ást,18knýr.
Lóðrétt: 1hatt,2art, 3ma,4augljós,5rúg,9
ull,11forn,13ásta,14kák,17ár.
Lárétt: 1 kemur í veg fyrir, 6 geislabaugur,
7 í röð, 8 tveir eins, 9 hræðslu, 10 slæm,
12 amboð, 14 eldsneyti, 15 ármynni, 16
tímabil, 17 heit tilfinning, 18 þrýstir á.
Lóðrétt: 1 höfuðfat, 2 gott eðli, 3 skóli, 4
sýnilegur, 5 matjurt, 9 reyfi, 11 gamall, 13
konunafn, 14 fálm, 17 tímabil.
Lausn:
1
6 7
8 9
14
16 17
15
18
2 3 4
1311
10
12
5Lee Hall eldar
með Elvis á Akureyri
Leikskáldið Lee Hall, höfundurEldað með Elvis og Billy Elliot,
hefur þegið boð Halls Helgasonar,
framleiðanda sýningarinnar Eldað
með Elvis, um að sækja Ísland
heim. „Ég sendi nú boð um það leyti
sem við vorum að frumsýna en
svarið var að berast núna,“ segir
Hallur. „Sýningin hefur fengið góða
dóma og mælst vel fyrir hérna og
það gerir það kannski meira spenn-
andi fyrir höfundinn að kíkja en
hann verður viðstaddur hátíðarsýn-
ingu á Eldað með Elvis í Samkomu-
húsinu á Akureyri þann 7. apríl.“
Hallur segir að Hall sé væntan-
legur til landsins 2. apríl og ætli sér
nokkra daga til að skoða sig um en
með honum í för verða eiginkona
hans, Beeban Kidron, og tvö börn
þeirra. Kidron er þekktur kvik-
myndaleikstjóri og er um þessar
mundir að leggja lokahönd á aðra
myndina um Bridget Jones.
„Mér skilst að hann hafi eytt
einu sumri hérna, á Mývatni, þegar
hann var krakki en veit annars ekk-
ert hvað hann var að gera.“ ■
Netið
ÓLAFUR ÞÓR EIRÍKSSON
■ Gerist gestapistlahöfundur á breska
vefmiðlinum newsshopper.co.uk
ÓLAFUR ÞÓR EIRÍKSSON
Heldur úti netsaga.is hér á landi og stefnir
á útrás á breska vefmiðlinum newsshopp-
er.co.uk
HALLUR HELGASON
Bauð Lee Hall, höfundi Eldað með Elvis,
að kíkja á uppsetninguna á verkinu á Ís-
landi. Hall hefur þekkst boðið og er vænt-
anlegur um mánaðamótin.