Fréttablaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 40
Bakþankar
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
Friðarstríð
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Sá sem lýsir yfir stríði á ekki von áfriði, þvert á móti kallar hann eftir
stríði, leggur það til að stríð ríki frem-
ur en friður. Bandaríkjaforseti verður
seint sakaður um skynsamlegt orðaval
og margir eiga ennþá erfitt með að
kyngja því er hann lýsti yfir stríði
gegn hryðjuverkum. Í fyrstu virtist
það barnsleg yfirlýsing, gerð til að
friða múginn og skapa sér vinsældir á
við ofurhetjur kvikmyndanna sem æða
á vit ævintýra og stráfella illmenni.
Stríðsyfirlýsing gleður stríðelskandi og
hættulega óvini og veitir heimild til að
fara með herlið hvert sem er til að
sprengja og splundra. Sé mannkyns-
sögunni lauslega flett hefur þó alltaf
komið á daginn að það er dýrkeypt að
styðja styrjaldir.
NÆR TVÆR vikur eru liðnar frá
skelfilegum hryðjuverkaárásum á
Madrid. Misvitrir spekúlantar hafa
tjáð sig fjálglega og býsnast yfir því
að hryðjuverkamenn stýri nú niður-
stöðum kosninga. Samkvæmt því
áttu spænskir kjósendur að hunsa þá
staðreynd að stjórnvöld reyndu að
leyna því fram yfir kosningar að hin
illræmdu al-Kaida samtök stæðu að
baki árásunum. Samkvæmt því áttu
Spánverjar að kjósa yfir sig sömu
stjórn þrátt fyrir að níutíu prósent
þeirra væru andvíg aðild Spánar að
innrás í Írak.
VANDASAMASTA verkefni lýð-
ræðiselskandi þjóða er að virða lýð-
ræðið, hvað sem á dynur, og virða
niðurstöður kosninga. Í því felst sú
grundvallarhugsun að bera virðingu
fyrir kjósendum og þeim skoðunum
sem þeir láta í ljós með atkvæði
sínu. Að lýsa því yfir að hryðju-
verkamenn hafi komið nýjum herr-
um til valda á Spáni er óheyrileg
vanvirðing við lýðræðislega hugsun
og sýnir á sorglegan hátt hve litla
trú stöku stjórnmálamenn hafa á al-
mennum kjósendum. Það er
skammarlegt að íslenskir ráðsmenn
hafi uppi slíkar yfirlýsingar.
HUGURINN er hjá Spánverjum.
Víða meðal staðfastra þjóða hefur nú
verið boðað mun hertara eftirlit með
almenningi. Myndavélar fylgjast
með fólki, líkamsleitir eru fram-
kvæmdar á götum úti, hvatt er til ná-
unganjósna, stóri bróðir er að störf-
um. Tortryggni, ótti og hræðsla eru
áhrifamiklir fjötrar enda er for-
skriftin að vestan – stríð fyrir friði –
svo mótsagnakennt sem það kann nú
að hljóma. ■
trulofun.is