Fréttablaðið - 30.03.2004, Síða 12

Fréttablaðið - 30.03.2004, Síða 12
30. mars 2003 ÞRIÐJUDAGUR flugfelag.is EGILSSTAÐA 6.400kr. Flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og ÍSAFJARÐAR 5.400kr. Flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og AKUREYRAR 5.500 kr. Flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og flugfelag.is 31. mars - 6. apríl VOPNAFJARÐAR/ ÞÓRSHAFNAR 3.200kr. Flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Akureyrar og GRÍMSEYJAR 3.200 kr. Flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Akureyrar og ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S F LU 2 40 83 03 /2 00 4 Börn, 2ja–12 ára, í fylgd með fullorðnum, greiða 1.833 kr. aðra leiðina. Kenneth D. Peterson selur Norðurál: Einarður og vel liðinn NORÐURÁL „Við munum sakna Kenn- eths D. Peterson. Hann hefur verið ákaflega vel liðinn sem stjórnandi og eigandi fyrirtækisins. Hann er einarður og traustur, og ekki síst vinnusamur, og er annt um bæði fjölskyldu sína og starfsmenn,“ seg- ir Ragnar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri hjá Norðuráli. Peterson, eigandi Columbia Ventures Corporation, sem meðal annars rekur Norðurál, hefur nú selt allt hlutafé í Norðuráli til Cent- ury Aluminum Company, en tæp- lega sex ár eru liðin frá því álverk- smiðjan hóf rekstur á Grundar- tanga. „Ég hef verið mjög ánægður með íslenskt fjárfestinga- og við- skiptaumhverfi og ég útiloka ekki frekari fjárfestingar hér á landi. Ég hef ekki tekið ákvörðun um það hvernig söluandvirðinu af Norður- áli verður varið,“ segir Peterson. Kenneth D. Peterson, sem er lið- lega fimmtugur, hefur dvalið tölu- vert á Íslandi vegna fjárfestinga sinna og reglulega hafa eiginkona hans og tvö börn verið með í för. Fjölskyldan býr í Vancouver í Was- hington-ríki í Bandaríkjunum, en þar eru jafnframt höfuðstöðvar Col- umbia Ventures Corporation. „Hann hefur haldið utan um reksturinn hjá Norðuráli á mann- legan hátt og flestir sem hafa kynnst honum hafa verið mjög ánægðir með samstarfið við hann,“ segir Ragnar Guðmundsson. ■ Arnaldur Indriðason um velgengnina í Þýskalandi: Óneitanlega óvenjuleg staða BÆKUR „Jú, það er óneitanlega óvenjuleg staða að vera búinn að undirrita samning um tvær óskrifaðar bækur, en ég vona að ég komist yfir það,“ sagði glæpa- sagnahöfundurinn Arnaldur Ind- riðason sem í gærkvöldi kom heim frá Þýskalandi eftir vel heppnaða upplestrarferð. „Við- tökurnar voru geysilega góðar en almennt virðist vera mjög mikill áhugi fyrir norrænum glæpasög- um í Þýskalandi. Nú hefur Ísland bæst í þann hóp.“ Það er þýska bókaforlagið Lübbe sem hefur tryggt sér út- gáfurétt á tveimur ósömdum bók- um sem Arnaldur hefur í smíðum og hefur auk þess keypt útgáfu- rétt á öllum útgefnum bókum Arnaldar. „Norðurlöndin eiga ágæta glæpasagnahöfunda sem rutt hafa brautina fyrir mig, en svo hjálpar eflaust líka mikil ást Þjóðverja á öllu því sem íslenskt er. Ég held að sé að finna hluta skýringarinnar á því hversu vel mér hefur tekist að höfða til Þjóð- verja, en svo er það náttúrlega Er- lendur. Hann hefur einhvern ómótstæðilegan sjarma sem dreg- ur lesendur að sér.“ ■ Erfið sambúð við sendiráð Gatnamálastjóra hefur borist fjöldi athugasemda vegna fyrirhugaðra breyt- inga á götustæðum fyrir framan bandaríska sendiráðið á Laufásvegi. Mikill skortur er á bílastæðum í götunni. Íbúar eru orðnir langþreyttir á ástandinu. SKIPULAGSMÁL Íbúar við Laufásveg eru afar ósáttir við fyrirhugaðar breytingar á götustæðum fyrir framan bandaríska sendiráðið. Gatnamálastjóra hefur borist fjöldi athugasemda frá íbúum á svæðinu og verður málið rætt á fundi samgöngunefndar á þriðju- daginn kemur. „Bandaríska sendiráðið hefur óskað eftir því að fá að breyta bíla- stæðunum sem þeir eiga rétt á fyr- ir framan sendiráðið og setja blómaker til að hindra að þar sé lagt,“ segir Sigurður I. Skarphéð- insson gatnamálastjóri. Einnig stendur til að setja upp hraðahindr- anir á gatnamótum Laufásvegar við Skálholtsstíg og Skothúsveg og opna Laufásveg aftur til suðurs. „Götunni var lokað til bráðabirgða af öryggisástæðum en það eru allir sammála um að það fyrirkomulag getur ekki gengið til frambúðar.“ Málið hefur verið afgreitt í samgöngunefnd og tillögurnar lagðar fyrir íbúa á svæðinu. „Frá íbúunum hafa komið rökstudd mótmæli og áhyggjur, einkum vegna bílastæðamála.“ Fjallað verður um þessar athugasemdir á fundi samgöngunefndar. „Við reynum auðvitað að leysa málið þannig að allir geti við unað,“ seg- ir Sigurður. Ástþrúður Kristín Jónsdóttir er ein þeirra íbúa sem gert hafa at- hugasemdir við breytingarnar. „Þriðjungur stæðanna í götunni til- heyrir bandaríska sendiráðinu og það er mjög lítið pláss eftir fyrir aðra íbúa,“ segir Ástþrúður. Hún hefur áhyggjur af því hvar þeim bílum verður komið fyrir sem fram til þessa hefur verið lagt í stæðin fyrir framan sendiráðið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem skipulagsbreytingar sem tengjast sendiráðinu valda Ástþrúði óþæg- indum. Bakdyr og gluggar á íbúð hennar snúa nú út í port sendi- ráðsins en henni er óheimilt að fara þangað. Hún segist hafa orð- ið fyrir gríðarlegu ónæði vegna öryggisgæslunnar við sendiráðið en borgaryfirvöld synjuðu beiðni hennar um styrk til að fá hljóðein- angrað gler. „Það er mikið búið að ganga á. Ég er búin að leita ým- issa leiða en maður kemur alls staðar að lokuðum dyrum. Það virðist ekki vera neinn vilji til að leysa þetta mál.“ Ástþrúður segist vera orðin langþreytt á ástandinu. „Ég hef reynt að selja íbúðina mína en hún er óseljanleg. Ég vil koma mér í burtu en ég get það ekki.“ bb@frettabladid.is LAUFÁSVEGUR Nú þegar er mikill skortur á bílastæðum við Laufásveg á milli Skálholtsstígs og Skothúsvegar. Stæðunum mun fækka enn frekar þegar sett verða blómaker fyrir framan bandaríska sendiráðið. ARNALDUR INDRIÐASON Arnaldur segir leynilögreglumanninn Erlend hafa sjarma sem höfði til lesenda. KENNETH D. PETERSON Eigandi Norðuráls hefur nú selt fyrirtækið, en sex ár eru liðin frá því álversmiðjan tók til starfa á Grundartanga. „Ákaflega vel lið- inn stjórnandi,“ segir framkvæmdastjóri hjá Norðuráli um Peterson.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.