Fréttablaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 25
25ÞRIÐJUDAGUR 30. mars 2004
159.990 TÖ
LVA
6.990 pren
tari
5.990 stól
l
5.990 borð
59.990
frítt
frítt
frítt
SkeifunniSmáralindAkureyri
TILB
OÐ
#2 HP Compaq NX9005 A2500+
• AMD Athlon XP-Mobile A2500+
• 15" XGA, upplausn 1024x768
• 256MB DDR RAM (mest 1GB)
• Harður diskur: 40GB
• Combo drif 24x DVD/CD-RW
• 64MB ATI Mobility Radeon
• Netkort: Innbyggt 10/100
• Mótald: Innbyggt 56K (V.92)
• Tengi: 2 USB, S-Video Out, Firewire, PS/2
• Parallel, Serial, VGA,
• Rafhlaða: 8 Cell LiIon
• Rafhlöðuending allt að: 2,5 klst.
• Þyngd: 3,1kg
PRENTARI •
TÖLVUBORÐ •
SKRIFBORÐSTÓLL •
ALLT NEMA HERBERGIÐ SJÁLFT
Keflavíkingar
Íslandsmeistarar
Keflavíkingar urðu Íslandsmeistarar í körfuknattleik kvenna í ellefta
sinn á sextán árum – sigruðu á öllum fimm mótunum í vetur.
KÖRFUBOLTI Keflavíkingar urðu
Íslandsmeistarar í körfubolta
kvenna í ellefta sinn á sextán
árum þegar þeir sigruðu ÍS 85-
56 á heimavelli í gærkvöldi.
Keflavíkingar urðu fimmfaldir
meistarar í vetur en þeir sigr-
uðu einnig í deildakeppninni,
bikarkeppninni, fyrirtækja-
bikarkeppninni og í leik meist-
ara meistaranna.
Jafnræði var með liðunum
lengi vel og leiddi ÍS 17-15 eftir
fyrsta leikhlutann en Keflavík-
ingar höfðu forystuna í leikhléi,
39-32. Staðan var orðin 59-44
fyrir Keflavíkinga eftir þriðja
leikhluta og þeir unnu síðasta
leikhlutann 26-12.
Keflvíkingar luku leiknum,
og þar með leiktíðinni, með
glæsilegum hætti. Þeir settu
niður tíu af síðustu sextán
þriggja stiga skotunum. Svava
Ósk Stefánsdóttir fór mikinn á
þessum kafla og skoraði fjórar
þriggja stiga körfur. Hún skor-
aði alls nítján stig á níján mínút-
um og var stigahæst í liði Ís-
landsmeistaranna. Erla Þor-
steinsdóttir skoraði sextán stig
og tók þrettán fráköst en Birna
Valgarðsdóttir skoraði fjórtán
stig. Erla Reynisdóttir lék mjög
vel og skoraði ellefu stig og átti
ellefu stoðsendingar en Marín
Karlsdóttir skoraði tíu stig.
Anna María Sveinsdóttir skor-
aði óvenju lítið, aðeins fjögur
stig, en hún tók sautján fráköst,
stal boltanum fimm sinnum og
gaf fimm stoðsendingar.
Alda Leif Jónsdóttir skoraði
ellefu stig fyrir ÍS og gaf átta
stoðsendingar en Casie Lowman
skoraði ellefu stig og Hafdís
Helgadóttir sjö. Lovísa Guð-
mundsdóttir skoraði sex stig og
gaf sex stoðsendingar en Svana
Bjarnadóttir skoraði fimm stig
og náði níu fráköstum. ■
LEIKIR
19.15 Oddaleikur Grindvíkinga og
Keflavíkinga í undanúrslitum
Intersport-deildarinnar í körfu-
bolta. Leikurinn verður í Grinda-
vík.
SJÓNVARP
18.00 Olíssport á Sýn.
19.00 Intersport-deildin í körfu-
bolta á Sýn. Bein útsending
21.20 Lífið í NBA á Sýn. Þáttur um
körfuknattleiksmanninn Jón Arn-
ór Stefánsson.
22.00 Olíssport á Sýn.
22.30 Supercross á Sýn.
Enska landsliðið:
Beckham
meiddur
FÓTBOLTI David Beckham leikur ekki
með Englendingum gegn Svíum annað
kvöld. Beckham meiddist á kálfa í 5-1
sigri Real Madrid á Sevilla. Hann
mætti engu að síður í æfingabúðir
enska liðsins í gær en hélt aftur heim
eftir læknisskoðun. Englendingar
leika einnig án Michaels Owen, As-
hleys Cole og Kierons Dyer, sem eru
meiddir og án Sols Campbell, Pauls
Scholes, Garys Neville, Waynes
Bridge og Franks Lampard sem verða
hvíldir. Talið er að Shaun Wright-
Phillips leiki í stað Beckhams, verði
hann orðinn góður af ökklameiðslun-
um, og að Steven Gerrard eða John
Terry verði fyrirliði liðsins. ■
A-landslið karla í handbolta:
Frakkar unnu með
sex marka mun
HANDBOLTI Frakkar sigruðu Íslend-
inga 27-21 í landsleik í handbolta í
Mans í Frakklandi í gærkvöldi.
Staðan var jöfn, 12-12, í leikhléi.
Guðmundur Guðmundsson
landsliðsþjálfari sagði að liðið hefði
leikið mjög vel í fyrri hálfleik og
var hann sérstaklega ánægður með
sóknarleikinn. Jafnræði var með
liðunum upp í 14-14 en þá skoruðu
Frakkar fjögur mörk í röð. Sóknar-
leikur íslenska liðsins var ekki nógu
agaður á þessum kafla og fékk liðið
á sig hraðaupphlaup sem færðu
Frökkunum þessa forystu.
Fjögurra marka munur hélst
næstum út leikinn en þegar mínúta
var til leiksloka leiddu Frakkar 25-
21. Íslenskar sóknir fóru forgörðum
á lokamínútunni en Frökkum tókst
að bæta við tveimur mörkum og
sigra 27-21. Guðmundur sagði að
munurinn hefði verið fullmikill í
lokin og að fjögurra marka munur,
sem var lengst af í seinni hálfleik,
hefði gefið réttari mynd af leiknum.
Íslenska liðið var talsvert breytt
frá EM í Slóveníu og fengu margir
ungir leikmenn tækifæri í gær. Ró-
bert Gunnarsson, Ásgeir Örn Hall-
grímsson og Einar Hólmgeirsson
fengu til dæmis góðan tíma til að
spreyta sig og og Arnór Atlason
kom inn á í lokin.
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði
fimm mörk, Snorri Steinn Guðjóns-
son fjögur, Ásgeir Örn Hallgríms-
son og Dagur Sigurðsson þrjú hvor,
Einar Hólmgeirsson tvö og Einar
Örn Jónsson, Gylfi Gylfason, Ragn-
ar Óskarsson og Róbert Gunnars-
son eitt.
Liðin leika að nýju í Lorient ann-
að kvöld. ■
hvað?hvar?hvenær?
27 28 29 30 31 1 2
MARS
Þriðjudagur
ÍSLANDSMEISTARAR
Erla Þorsteinsdóttir, fyrirliði Keflavíkinga, fagnar ellefta Íslandsmeistaratitli Keflavíkinga.
GUÐJÓN VALUR SIGURÐSSON
Skoraði fimm mörk gegn Frökkum í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N