Fréttablaðið - 30.03.2004, Side 18
heilsa o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um hei lbr igðan l í fsst í l
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: heilsa@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is
Umboðsaðili: Ýmus ehf.
Arnheiður Sigurðardóttir
hjúkrunarfræðingur B.Sc IBCLC
Sími 564-3607 Fax 5643608
ymus@islandia.is
www.saat-corp.com www.ymus.is
• Sjálfvirk og þægileg mæling með því að
bera mælinn að enni og gagnauga í allt
að 2,5 sm fjarlægð frá húð.
• Mælir á örfáum sekúndum.
• 8 mælingar í minni.
• Nákvæmni samkvæmt
ASTM stöðlum, CE merktur.
Hitamælir sem sýnir örugga
mælingu án þess að snerta
barnið / einstaklinginn!
NoTouch Hitamælir
Útsölustaðir: Lyfja, Plúsapótek, Lyfjaval í Mjódd og Móðurást, Kópavogi
Hnykklækningar lofa góðu:
Höfuð, herðar,
hné og tær
Kírópraktor meðhöndlar ýmisvandamál sem tengjast stoð-
kerfi líkamans. Meðferðin byggir á
liðlosun, snöggum hreyfingum sem
hefur áhrif á hreyfigetuna í liðnum
sjálfum. Stundum er liðurinn læstur,
en meðferðin hefur áhrif á tauga-
boðin frá hryggjasvæðinu og þannig
líka á vöðvana sjálfa,“ segir Katrín
Sveinsdóttir, formaður Kíróprakt-
orafélags Íslands. „Við notum einnig
mjúkvefjameðferð eins og stað-
bundið nudd, sem teygir á vöðvum
og veitum ráðleggingar um beitingu
og líkamsþjálfun.“ Þrátt fyrir að
kírópraktor meðhöndli fyrst og
fremst vandamál í mjóbaki og stoð-
kerfi líkamans, tekur meðferðin á
fleiri þáttum.
Flestir leita til kírópraktora
vegna verkja í baki (vöðvabólga,
þursabit, klemmdar taugar, brjósk-
los) en þó kemur fleira til. „Höfuð-
verkir koma gjarna frá hálsliðum og
stafa þá af álagi og ertingu á taug-
um, sem koma út í hálsinum og get-
ur það valdið spennu í hálsi frá
vöðvum. Kírópraktor getur með-
höndlað slíkt.“
Meðferð byrjar á viðtalstíma,
þar sem farið er yfir sjúkrasögu,
ásamt því sem skjólstæðingur fer í
skoðun. Fyrsti tíminn tekur um það
bil 30–45 mínútur en framhaldsmeð-
ferð innan við hálftíma. Fyrir kemur
að röntgenmyndir eru teknar og í
sumum tilfellum, er sjúklingur
sendur annað eftir að greining hefur
farið fram. „Að baki menntun
kírópraktors liggur fimm ára há-
skólanám, þar af tveggja ára sér-
hæfing. Áherslur hvers og eins eru
lítillega frábrugnar, en meðferðin er
í grófum dráttum þó alltaf sú sama.“
Starfsgreinin er upprunnin frá
Bandaríkjunum og er yfir hundrað
ára gömul. Fyrsti kírópraktorinn tók
til starfa hér á landi árið 1976 og
fékk starfsleyfi frá heilbrigðisráðu-
neytinu sama ár. „Af einhverjum
ástæðum eru margir hræddir við
meðferð kírópraktora og stafar sá
ótti af gróusögum. Þó er engin
ástæða til að óttast meðferð hjá
kírópraktor, því ef meðlimur hefur
hlotið rétta menntun, er skjólstæð-
ingur ávallt í góðum höndum.“ ■
Lengi býr að
fyrstu gerð
Fyrir stuttu síðan kom ung stúlkatil mín eftir mataræðisfyrirlest-
ur á byrjendanámskeiði í jóga sem
ég held reglulega og sagði mér að-
eins frá afa sínum. Sá er rúmlega
níræður og hefur reykt alla sína
ævi. Af nýlegri röntgenmyndatöku
að dæma bera lungu hans þess eng-
in merki. Ég vil síst af öllu gefa
gömlu þjóðsögunni um níræða
reykingamenn byr undir báða
vængi. En þegar öllu er á botninn
hvolft má búast við að eldri reyk-
ingamönnum fækki þegar fram í
sækir. Eftir 20–30 ár er mjög líklegt
að fáir ef nokkrir verði eftir á aldr-
inum 80 til 90 ára sem hafa reykt
alla sína ævi. Ástæðan er einföld.
Ungt fólk virðist vera að uppskera
„syndir feðranna“ í dag og við sjá-
um lifnaðarhætti foreldranna koma
niður á annarri, þriðju og fjórðu
kynslóð reykingamanna sem virð-
ast ekki byggja á þeim trausta grun-
ni sem gamalt reykingafólk í dag
stendur enn á. Tilfellum kransæða-
stíflu hjá reykingafólki milli 30 og
40 ára hefur til dæmis fjölgað mjög
ört og sannast þá hið gamla mál-
tæki: lengi býr að fyrstu gerð. Erfð-
ir, mataræði og hreyfing ganga
hönd í hönd og út
frá þeim máttar-
stólpum er hægt
að áætla, að hluta
til, þann skaða sem
hlýst af annarri hegðun, til
dæmis reykingum, áfengisneyslu,
eiturlyfjaneyslu og sykurneyslu.
Þessa dagana nýt ég þess heiðurs
að minn helsti jógaleiðbeinandi,
Yogi Shanti Desai, er staddur hér á
landi. Yogi Shanti er lifandi sönnun
þess að grunnþættir erfða og lífern-
is hafa mikil áhrif á líðan efri ára.
Hann hefur stunda jóga frá því
hann var átta ára og verður 65 á
þessu ári. Hann hefur varla hrörnað
í samanburði við jafnaldra sína í
Bandaríkjunum. Ekki veit ég hver-
su lengi hann lifir en þó veit ég að
lífsgæði hans munu verða betri en
margra jafnaldra sökum fyrir-
hyggju foreldra hans og kennara.
Hver og einn verður að taka afstöðu
til þess hvað hann vill gera fyrir sig
og sín börn. Í ljósi þessara hugleið-
inga ber mér skylda til þess að hjál-
pa afkomendum mínum að byggja
sterkan grunn að heilbrigðu líferni.
Hvað gerist í framhaldi af því veit
ég ekki. Ég geri bara mitt besta. ■
KATRÍN SVEINSDÓTTIR
Ótti við kírópraktora stafar af þrálátum gróusögum.
Líkamiog sál
GUÐJÓN
BERGMANN
■ jógakennari og
rithöfundur, skrifar
um andlega og
líkamlega heilsu.
Áhrifaríkasta aðferðin til að draga úrlíkum á því að þyngjast er að fá sér
staðgóðan morgunverð áður en haldið
er út í daginn. Stöðugt fleiri rannsókn-
ir sýna fram á þetta. Nýleg rannsókn
sem unnin var við háskólann í
Massachusetts í Bandaríkjunum sýnir
að þeir sem ekki borða morgunmat
heima hjá sér áður en þeir fara í vinnu
eru fjórum til fimm sinnum líklegri til
að verða of þungir en hinir sem borða
morgunmat reglulega heima hjá sér.
Lifi morgunmaturinn