Fréttablaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 32
Bakþankar
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
Af fólki og
fyrirsögnum
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Mér finnst svo gaman að lifa, seg-ir skólaskotta og hendist inn úr
dyrunum með rautt nef og snjóinn á
eftir sér. Er það eitthvað skemmti-
legra í dag en í gær? spyr móðirin
sljó og myndi að sjálfsögðu vita
svarið ef hún staldraði við og reyndi
að hugsa eitt andartak eins og tíu
ára. Auðvitað, segir stelpustýrið.
Sérðu ekki snjóinn? bætir hún við
hissa, skiptir um vettlinga og þrífur
snjóþotu úr geymsluhillu svo svefn-
pokar og tjaldhælar hrynja yfir
hana. Þar með er hún þotin, en móð-
irin sest við eldhúsborðið og sér í
blöðunum að veðurguðirnir muni
skola snjónum niður um holræsin
með suðaustansudda næstu daga.
BLAÐABUNKINN segir athyglis-
verða samtímasögu. Í portúgölsku
fjallaparadísinni við gljúfrin dimmu
fá ítalskir þá snilldarlegu hugmynd
að rukka lélega bílstjóra og klaufska
starfsmenn fyrir skemmdir á vinnu-
vélum. Þá er nú lag að rukka ítalska
og aðra fyrir náttúruskemmdir og
gæti sá reikningur orðið nokk hærri
en sá sem vesælir verkamenn áttu að
standa skil á vegna beyglaðra skurð-
grafa og dældaðra vörubíla.
STÓRSTIRNI fjölmiðlanna eru lík-
flutningamenn, eiturlyfjasalar og
barnaníðingar sem baða sig í sviðs-
ljósinu á forsíðum líkt og kvik-
myndastjörnur. Þeir gefa greinar-
góðar lýsingar á hugðarefnum sínum
og dómstóll götunnar hefur þegar í
stað störf líkt og múgur á miðalda-
torgum við gapastokka og fallaxir.
Lögregla og dómsvald situr ráðvillt
og rótar í pappírsfjöllum – veit ekki
lengur hvað eru málsgöng og hvað
eru forsíðufréttir gærdagsins. Allt í
þágu almennings, segja glaðbeittir
ritstjórar og rugla saman skemmt-
anagildi og upplýsingargildi.
Á ÖÐRUM stað í blaði reyna fram-
sæknir að koma aftan að sjálfum sér
með því að láta Orkuveituna kaupa
Símann og koma þannig í veg fyrir
að hann fari úr almenningseigu.
Framsæknir stjórnarliðar verða að
kvitta fyrir símasölu, en með því að
orkustjórinn beisli sinn hvíta gæðing
má ná fram skemmtilega tvíþættri
stefnu í málinu í anda tvöfaldrar
flokkslínu. Skondin skilaboð, hugsa
ég, fer í lúffur og bomsur og arka út
í snjóinn til fundar við mín áhyggju-
lausu afkvæmi sem hnoða lífsgleð-
inni í stóra snjókerlingu og setja á
hana húfu og trefil.
Allir farþegar, sem mæta í innritun fyrir kl. 6 að morgni, fá páskagjöf
og njóta sértilboða í verslunum flugstöðvarinnar.
Þeim sem mæta á einkabílum fyrir kl. 6 býðst jafnframt að geyma
bílinn frítt í tvo sólarhringa á bílastæði Securitas.
Þeir sem taka rútu Kynnisferða kl. 4.45 fá 15% afslátt.
Miðar eru afhentir í innritunarsal og í afgreiðslu Securitas á bílastæðum.
Athugið að innritun hefst kl. 5.00.
Tilboðið gildir til 12. apríl.
Það er vor í lofti í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Dagana
frá 31. mars til 12. apríl verða verslanir á svæðinu með
spennandi tilboð á ýmsum vörum.
tilboðsdagarí Leifsstöð
Morgunstund gefur gull í mund
– sérstakur glaðningur fyrir árrisula
Fylgstu me› dagskránni
WWW.NORDUR.ISLÁTTU fiIG EKKI VANTA!
s k í › a l ö n d i n
s u n d l a u g a r n a r
m e n n i n g i n
h l j ó m s v e i t i r n a r
g i s t i s t a › i r n i r
v e i t i n g a h ú s i n
...og allt hitt!