Fréttablaðið - 28.06.2004, Blaðsíða 1
● tékkar komnir í undanúrslit
EM í Portúgal:
▲
SÍÐA 23
Baros afgreiddi
Dani
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
MÁNUDAGUR
BÚIST VIÐ 10 ÞÚSUND MANNS
Landsmót Hestamanna verður sett á
Hellu í dag. Búist er við að gestir verði
við tíunda þúsund.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
NORÐURLANDIÐ EINNA BEST
Bjart með köflum vestan og norðan til.
Einhver væta seinnipartinn með vestur-
ströndinni. Súld eða rigning suðaustan til.
Fremur milt. Sjá síðu 6.
28. júní 2004 – 174. tölublað – 4. árgangur
OLÍULEKI GÆTI VALDIÐ MIKLU
TJÓNI Súrálsflutningaskip strandaði á
skeri út af Straumsvíkurhöfn. Málið er litið
alvarlegum augum enda gæti olíuleki úr
skipinu valdið miklu tjóni á lífríkinu í
grennd. Sjá síðu 2.
GEORGE W. BUSH Í TYRKLANDI
Mótmæli og hótanir hafa sett svip á
heimsókn Bush til Tyrklands þar sem hann
tekur þátt í fundi NATO. Sjá síðu 7.
GÓÐ ÚRSLIT Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
segir úrslit sameiningarkosninganna tveggja
sem fram fóru samhliða forsetakosningun-
um á laugardag mjög góð. Sjá síðu 10
NÆSTI KAFLI AÐ HEFJAST Eftir inn-
rás og hernám eru Írakar að fá völd í eigin
hendur. Bráðabirgðastjórnin tekur við gríð-
arlegum vandamálum sem herja á íraskt
þjóðfélag. Sjá síðu 12.
36%50%
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 20
Sjónvarp 28
Kristján Vídalín Jónsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Líflegar
bóndarósir
● hús ● fasteignir
Rósa Erlingsdóttir:
▲
SÍÐA 16
Margir spaugilegir
afmælisdagar
● 34 ára í dag
Þórhallur Heimisson:
▲
SÍÐA 30
Notar sumarið til
að skrifa um stríð
● örlagaríkar orustur
ISTANBÚL, AP Atlantshafsbandalagið
ætlar að veita íröskum hermönn-
um þjálfun, að því er Jaap de
Hoop Scheffer framkvæmdastjóri
NATO sagði í gær á leiðtogafundi
NATO í Tyrklandi.
Hugmyndin er sú að senda bæði
leiðbeinendur í þessu skyni á vegum
NATO til Íraks og gefa íröskum her-
mönnum kost á að koma til NATO-
ríkja til þess að fá þar þjálfun.
Ágreiningur er þó enn milli
Bandaríkjanna og annarra NATO-
ríkja um það hversu viðamikil
þátttaka bandalagsins verður.
„Ég get ekki gefið upp nein
smáatriði varðandi fjölda ennþá,“
sagði de Hoop Scheffer.
Frekari upplýsingar fást þó
væntanlega þegar leiðtogar
NATO-ríkjanna 25 samþykkja til-
lögur um þessa þjálfun á fundi
sínum í Istanbúl í dag.
Frakkar og Þjóðverjar segjast
hvorugir ætla að senda neina her-
menn til Íraks, en vilja frekar
taka þátt í að þjálfa íraska her-
menn annars staðar.
„Það er samkomulag um að
NATO hjálpi til við þjálfun en
Frakkland hefur ennþá áhyggjur
og fyrirvara um þátttöku NATO
sem slíks,“ sagði Catherine
Colonna, talskona Jaques Chiracs
Frakklandsforseta.
Þótt leiðtogar Evrópuríkjanna
í NATO hafi þannig samþykkt að
taka þátt í þjálfun íraskra her-
manna er samt langt frá því að
þeir gangi jafnlangt og banda-
rísk stjórnvöld vildu, því þau
höfðu gert sér vonir um að
NATO-ríkin sendu fjölmennt lið
til Íraks til þess að koma á reglu
þar í landi. ■
FORSETAKJÖR Forseti Íslands og for-
sætisráðherra eru á öndverðum
meiði um túlkun úrslita í forseta-
kosningunum sem fram fóru í fyrra-
dag. „Ég er mjög þakklátur fyrir
þennan mikla stuðning. Það eru af-
gerandi úrslit að fá 85 prósent at-
kvæða samkvæmt þeim mælikvörð-
um sem við Íslendingar höfum not-
að í áratugi. Úrslitin eru einnig af-
gerandi þegar skoðaðir eru aðrir
mælikvarðar sem menn vilja nú allt
í einu beita. Þessi úrslit veita mér
sterkt umboð til að starfa áfram á
þeim grundvelli sem ég hef gert,“
segir Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, um kosningaúrslitin.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
hefur sagt að úrslitin hljóti að vera
forsetanum áfall og hyldýpisgjá sé
nú milli forseta og þjóðar. „Ég er
ósammála þeirri túlkun,“ segir Ólaf-
ur Ragnar. „Ég er nokkurn veginn
viss um að ef Davíð Oddsson hefði
sjálfur verið í framboði og fengið 85
prósent atkvæða og stuðning
tveggja þriðju allra sem fóru á kjör-
stað þá myndi hann telja það mikinn
og góðan sigur, ef ekki glæsilegan.
Sú ákvörðun mín að vísa fjölmiðla-
frumvarpinu til þjóðarinnar skapaði
harða gagnrýni frá áhrifamestu
mönnum þessa lands og elsta blað-
inu í landinu sem hófu mikla atlögu
gegn mér. Við þær aðstæður sem
hafa ríkt í þessum kosningum væri
það talinn ótrúlegur sigur í flestum,
ef ekki öllum, lýðræðisríkjum
heims að fá svo mikinn stuðning.“
Ekki náðist í Davíð Oddsson í gær,
en hann er á leiðtogafundi NATO í
Tyrklandi.
Ólafur Ragnar segir atlöguna
gegn sér hvorki hafa verið harðari
né hvassari en hann átti von á. „Ég
bjóst við að þessum öflum yrði
meira ágengt því þau eru kraftmik-
il og hafa öflugt málgagn sem beitti
sér af mikilli hörku. Þessir aðilar
hafa haft sterkt bakland í íslensku
samfélagi en uppskeran er minni en
ég átti von á.“
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í
stjórnmálafræði, segir forsetann
ekki sitja á friðarstóli en það sé
álitamál hvort úrslitin séu góð fyrir
sitjandi forseta. Þorbjörn Brodda-
son, sérfræðingur í fjölmiðlafræði,
segir að sá harði tónn sem verið hef-
ur milli Morgunblaðsins og forset-
ans í málinu sé óvenjulegur.
Sjá nánar á síðu 4 og 6.
kolla@frettabladid.is
Harðar deilur um
túlkun úrslitanna
Æðstu ráðamenn þjóðarinnar eru á öndverðum meiði um hvernig túlka beri niðurstöðu
forsetakosninga. Forsetinn segir úrslitin afgerandi á alla mælikvarða en forsætisráðherra
segir að úrslitin hljóti að vera forsetanum áfall.
Skoðanakönnun:
Þriðjungur
vill að Siv víki
RÁÐHERRAR Samkvæmt skoðana-
könnun Fréttablaðsins telur
þriðjungur landsmanna að Siv
Friðleifsdóttir eigi að víkja úr
ráðherraliði Framsóknarflokks-
ins þegar flokkurinn missir eitt
ráðuneyti yfir til Sjálfstæðis-
flokksins 15. september næst-
komandi. Könnunin var fram-
kvæmd síðastliðinn þriðjudag
og var hringt í 800 manns.
„Það er svo sem ekki við öðru
að búast, umhverfisráðuneytið
er að færast til Sjálfstæðis-
flokksins og ég ímynda mér að
sumir telji að ákveðið sé að ég
víki,“ segir Siv Friðleifsdóttir
umhverfisráðherra um niður-
stöðurnar.
Sjá á síðu 8.
DAVÍÐ OG BUSH Á NATOFUNDI Í TYRKLANDI Davíð Oddsson forsætisráðherra og George W. Bush áttu í hrókasamræðum þegar
leiðtogar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins stilltu sér upp fyrir myndatöku í Istanbúl í Tyrklandi í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi:
NATO tekur þátt í þjálfun Írakshers