Fréttablaðið - 15.07.2004, Blaðsíða 47
FIMMTUDAGUR 15. júlí 2004
nóg að hafa safnað miklu yfir-
varaskeggi, heldur þarf að snyrta
og vaxbera þannig að mottan líti
vel út. „Það er merkilega mikil list
að vaxbera og snyrta. Ég er ekki
mjög góður í að vaxbera en er orð-
inn svolítið góður í að snyrta.
Reyndar snyrtir maður ekkert
síðasta mánuðinn fyrir keppni,
heldur bara á keppnisdaginn. Ég
er ekkert að flassa fyrir keppni
hvað ég hef.“
Auk fyrsta sætisins er verð-
launað fyrir annað og þriðja sæt-
ið, hýjungur ársins er valinn og
vinsælasti strákurinn er valinn af
keppendum. „Keppnin um hýj-
unginn er bara þannig að menn
beri hann vel, það þarf ekki að
vera mikill skeggvöxtur. Rassi
prump hlaut verðlaunin í fyrra
fyrir besta hýjunginn og bar þetta
með stolti. Það er misjafnt fyrir
hvað vinsælasti strákurinn er val-
inn. Í fyrra kusu flestir sjálfan
sig.“
Öllum þeim sem bera yfirvara-
skegg er velkomið að skrá sig á
Sirkus, allt fram til klukkan 19 í
kvöld og liggja umsóknir frammi
á barnum. Þegar hefur rúmur
tugur skráð sig þannig að útlit er
fyrir æsispennandi keppni. „Það
eru um fimm áskrifendur, sem
hafa alltaf keppt, svo er að koma
inn alls konar fallegt nýtt fólk.
Það eru reyndar engar konur en
við lýsum bara eftir þeim. Það eru
örugglega til konur sem eru full-
vaxta karlmenni.“ ■
Keppni
merki karlmennsku
KEPPENDUR Í TOM SELLECK KEPPNINNI Í FYRRA
Keppt verður um glæsilegasta yfirvaraskeggið á Sirkus í kvöld. Sumir keppendur hafa
undirbúið sig fyrir keppnina í heilt ár.