Tíminn - 10.09.1972, Blaðsíða 7
Sunnudagur 10. september 1972
TÍMINN
7
Slöngum innan 16 ára
bannaður aðgangur
Dyravörður i kvikmyndahúsi i
Av
bænum Belem i Brasiliu
harðneitaði að hleypa náunga
nokkrum inn i bióið, vegna þess
að hann var með litla boaslöngu
vafða um handlegg sér. En bit
slöngutegundar þessarar er
baneitrað. Slöngueigandinn
mótmælti og sagði að slöngunni
sinni langaði til að sjá myndina
og i lögum stæði ekkert um, að
slöngum væri meinaður að-
gangur að kvikmyndahúsum.
En dyravörðurinn lét ekki
snúa á sig, en benti þessum um-
hyggjusama eiganda eitur-
kvikindisins, að myndin væri
bönnuð innan 16 ára en slangan
væri i mesta lagi tveggja ára.
Þessum salomonsdómi var ekki
hægt að mótmæla og slangan
fékk ekki að sjá kvikmyndina.
★
Bústnar
prinsessur
1 fyrradag birti Spegillinn
mynd af kynbombunni Anitu
Ekberg, sem ekki þótti neitt
smástykki á sinum tima, en það
voru hreinustu smámunir
miðað við það sem nú er. En
Ekberg unir glöð við sitt og
segir að öll þau ósköp af kilóum,
sem bætzt hafa á hennar fagra
likama geri hana bara enn eftir-
sóknarverðari i augum karl-
manna.
En það eru fleiri fagrar og
frægar konur, sem verða að láta
sig hafa það að eldast og
breytazt i útliti samkvæmt þvi. 1
dag birtir Spegillinn myndir af
tveim konungbornum persón-
um, sem voru dáðar um allan
heim fyrir fegurð, og enn vekja
þær athygli hvar sem þær fara,
þótt ekki sé nema vegna stöðu
sinnar i mannfélaginu.
Myndirnar voru teknar á bað-
ströndum Miðjarðarhafsins i
sumar. Til vinstri er Grace
Kelly, prinsessa af Mónakó,
sem áður var dáð leikkona og
augnayndi karla sem kvenna.
Aldur prinsessunnar er
leyndarmál, en hún hefur alið
manni sinum tvö börn og má
vera að það hafi haft einhver
áhrif á vaxtarlagið.
Hin myndin er af Margréti,
Englandsprinsessu, sem kölluð
var fegusta prinsessa i Evrópu
á'ður en hún lagðist i barneignir,
en hún á þrjú börn. En það er
enginn ungur fram á elliár, og
eru prinsessur þar engin undan-
tekning.
Tveir golfleikarar voru fastir
við 14. holuna. þvi tvær konur áttu
i erfiðleikum með 15. holuna.
— Farðu til þeirra og spurðu,
hvort við megum ekki spila fram-
hjá þeim. sagði annar. Hinn fór,
en kom aftur að vörmu spori.
— Nei, það gengur ekki. Þetta
eru konan min og viðhaldið og
þær mega ekki sjá mig. Spurð þú
þær heldur.
Þá fór hinn og kom bráðlega
aftur. — Já.mikið er þetta litill
heimur, sem við búum i....
Alldrukkinn herramaður
staulaðist eftir gangstéttinni og
mætti ungri stúlku.
— Segðu mér, ljúfan. Hvað er
ég með margar kúlur á enninu?
— Þrjár, svaraði stúlkan undr-
andi.
— Gott. Þá eru bara fjórir
staurar eftir heim.
Konur geta þjáðst á margvis-
legan hátt...en aldrei i þögn.
Af hverju ertu að klóra þér?
Af þvi ég er sá eini, sem veit,
hvar mig klæjar.
Einkaritarinn: — Það er hérna
maður, sem vill að þér segið frá
leyndardóminum að velgengni
yðar.
Forstjórinn: — Er það blaða-
maður eða leynilögreglumaður?
Á fæðingardeildinni: — Það er
maður þarna frammi, sem viil
gjarna sjá nýfæddan son sinn. Er
einhver krakkinn vakandi?
-Valborg. Siðan stelpan fór að
læra á hörpuna, er ég ekki viss
um, að mig langi til Himnarikis,
þegar ég dey.
DENNI
DÆAAALAUSI
Gina fæddist hér, en hún var búin
til á italiu.