Tíminn - 04.10.1972, Blaðsíða 3
TÍMINN
3
M ií)\ ikudagiir 4. október 1972.
Hábæjarkirkja
vígð á sunnudag
SB—Reykjavik
Hábæjarkirkja i bykkvabæ
verður vigð á sunnudaginn kl. 2.
Biskup tslands. herra Sigurbjörn
Einarsson vigir kirkjuna. en
vigzluvottar verða Sveinn
Ogmundsson fyrrum prófastur,
sr. Sigurður Hattkdal. prófastur á
Bergþórshvoli. Árni Sæmunds-
son. Bala og Hafliði Guðmunds-
son i Búð.
Smiði Hábæjarkirkju hófst árið
1967 og hafa heimamenn unnið
hvert einasta handtak sjálfir.
Ragnar Emilsson arkitekt
teiknaði kirkjuna.
Sóknarnefndin væntir þess að
burtfluttir bykkvabæingar og vel-
unnarar kirkjunnar verði við-
staddir vigsluna.
Nemendum
fækkarí MA
Gufuaflsstöðin í Námaskarði. A myndinni sjást fjnrar af sex borholum. sem þarna eru í gangi.
STP-Reykjavik
Menntaskólinn á Akureyri var
settur á sal sunnudaginn 1. októ-
ber. og hófst athöfnin klukkan
fjögur siðdegis. Nýr skóla-
meistari, Tryggvi Gislason, hefur
nú tekið við stjórn, en Steindór
Steindórsson. sem gegnt hafði
embættinu að mestu siðan 1966 lét
af störfum i sumar. Varð hann
sjötugur þann 12. ágúst s.l. Hinn
nýskipaði skólameistari hefur
undanfarin fjögur ár starfað sem
lektor við háskólann i Björgvin i
Noregi.
1 skólanum verða i vetur 490
nemendur, og er það um það bil
20nemendum færra en i fyrra. Er
ástæðan einkum sú, að stofnaðar
hafa verið menntadeildir við
héraðs- og gagnfræðaskóla á
Norður- og Austurlandi, en
þangað sækja margir nemendur,
sem annars hefðu komið i þriðja
bekk menntaskólans.
Kennt verður i tuttugu bekkjar-
deildum, og eru fastir kennarar
tuttugu og sjö. Eins og áður hefur
verið greint frá hér i blaðinum
verður tekið upp áfangakerfi við
skólann i vetur. 1 frétt, sem birtist
i blaðinu 15. september, var sagt
frá þvi i sambandi við hið nýja
áfangakerfi, aðekki yrði komið á
önnum i M.A. eins og i öðrum
menntaskólum, heldur myndu
áfangaprófin dreifast yfir allan
veturinn. Nú hefur hins vegar
verið horfið frá þessu ráði, og
mun vetrinum verða skipt i þrjár
annir. 1 lok hverrar annar verða
tekin áfangapróf eða annapróf,
sem skera úr um um hæfni
nemenda til þess að halda áfram
námi á næstu önn.
Áður hefur verið minnst á það
nýmæli skólanna i vetur að
fela daglega stjórn heimavistar
vistbúum sjálfum, og breytt
fyrirkomulag mötuneytis, þar
sem selt verður laust fæði i stað
fasts, eins og áður var.
— Að lokum ber að geta þess, að
Jón Árni Jónsson, yfirkennari,
hefur verið settur aðstoðarskóla-
meistari, conrektor.
Gufustöðin í Námaskarði reynist vel
- margt bendir til, að slíkar stöðvar séu mjög hagkvæmar
Stp~ Reykjavik
I fyrrasumar keypti Orku-
stofnun jarðhitaréttindi og afnot
af landi á öllu jarðhitasvæðinu i
Námaskarði i Mývatnssveit og
Kröflu af eigendum Reykjahliðar
lands. Hljóðuðu kaupin upp á 10
milljónir kr. en þó fylgdi þeim sú
kvöð, að landeigendur notuðu
peningana til að byggja hitaveitu
til þéttbýlissvæðisins við Reykja-
hlið. Hefur þessi hitaveita þegar
verið gerð.
Nokkara holur hafa verið
boraðar i Námaskarði. t upphafi
voru boraðar 3 rannsóknarholur,
aö sögn Karls Ragnars verkfr.
hjá Orkustofnun, en þær eru
ekki nýttar. Siðan voru boraðar 6
holur, sem allar eru nýttar. brjár
þeirra eru tengdar Kisiliðjunni,
en hinar eru tengdar gufuknúinni
raforkustöð á vegum Laxár-
virkjunar, sem reist var fyrir
þrem árum. Stöðin skilar 3,3
kilóvöttum og er tengd inn á orku-
veitusvæði Norðurlands. Hefur
hún reynzt vel og gert það að
verkum, að hægt hefur verið að
halda Kisiliðjunni gangandi,
þegar rafmagnsskömmtun frá
vatnsaflsstöðinni i Laxá helur
verið i Mývatnssveit.
Að sögn Karls Ragnars eru ekki
áformaðar frekari boranir i
Námaskarði i bráö, né heldur á
Kröflusvæðinu, en þar hefur
ekkert verið boraðenn sem komið
er.
Gufustöðvar virðast vera
ódýrar i uppbyggingu og skila
ólikt meira orkumagni heldur en
samsvarandi vatnsaflsstöðvar. 1
áa'tlun um gufustiiðvar. sem
Orkustofnun hefur gert, kemur
fram, að gufustöð. sem væri liu
sinnum minni og þar af leiðandi
tiu sinnum lægri i stofnkostnaði
en Sigölduvirkjun, gæti þó skilað
eins miklu orkumagni. Má þvi
a'tla, að ráðizt verði i gerð gufu-
stöðva i Iramtiðinni og það
óhemju jarðhitamagn sem tsland
býr yfir, nýtt, en sem stendur er
stöðin i Námaskarði sú eina i
landinu sinnar tegundar.
Dráttarvél með hagaplóginn i eftirdragi.
Ljósmynd: Siguröur llreiðar.
Hagkvæmt iarðvinnslutæki
llagaplógur heitir verkfæri,
sem reynt hefur verið viða um
Borgarfjörð undanfarin fjögur ár.
i siðustu viku var fréttamönnum
boðiö að kynna sér hann og þá
reynslu, sem bændur hafa af
honuiii haft.
Kunnugt er, að viða um land er
mýrlendi svo blautt, að það nýtist
skki til beitar augljóslega
2T mikið hagræði af þvi, ef
takast mætti aö purrxa pao ao
þvi marki. að það verði að not
hæfum bithaga. Framfræsla
sliks lands er þó dýr og fyrir-
hafnarmikil, þar sem helzt
verður til hennar beitt skurð-
gröfum, auk þess sem djúpir
skurðgröfuskurðir verða iðulega
dauðagildrur fyrir búpening og
koma i veg fyrir eðlilega umferð
um landið. Skurðir hagaplógsins
gera hvorugt, þeir eru 60-70 sm.
breiðar aðofan og aðeins 45sm.á
dýpt. Strenginn leggur plógurinn
upp á annanhvornbakkanni hálfs
metra fjarlægð frá skurðinum.
Plógur þessi er hingað kominn
fyrir milligöngu Haraldar Arna-
sonar, verkfæraráðunauts
Búnaðarfélags tslands og Bjarna
Arasonar, ráðunauts Búnaðar-
sambands Borgarfjarðar, en þeir
fóru sumarið 1967 til trlands og
Skotlands að kynna sér fram-
ræslu mýrlendis. Arangur þeirrar
ferðar var sá, að þessi skozki
plógur var keyptur hingað. Auk
Búnaðarsambands Borgar-
fjarðar er tilraun með plóginn
kostuð af Landnámi ríkisins,
Vélasjóði rikisins og Land-
græðslunni.
Sumarið 1968 voru plægðir með
plógnum 134 km á 15 jörðum og
næsta sumar 156 km á30jörðum.
t fyrra var viðkomandi bændum
sendur listi með spurningum um
reynslu þeirra af þessari fram-
ræslu. Svör bárust frá röskum
75% þeirra, og höfðu þeir samtals
látiðplægja 84% skurðanna. Allir
voru jákvæðir gagnvart nytsemi
plógsins og töldu skurði hans litla
sem enga hættu fyrir búfé. Við
lagningu þéirra þarf þó að gæta
þess, að þeir grafist ekki af vatni,
og er svo ákveðið varðandi úttekt
á þeim i nýútkominni reglugerð
með Jarðræktarlögunum, en á
siðasta þingi var samþykkt, að
framræsla með hagaplóg skuli
njóta sama framlags af opinberu
féog framræsla með vélgröfnum
skurðum.
Hagaplógurinn er tengdur við
venjulega beltadráttarvél, og til
þess að hún fljóti betur um mjög
blautt land, lét Búnaðarsamband
Borgarfjarðar bolta þykka eikar-
battinga á belti vélarinnar.
Battingarnir ná verulega út fyrir
venjulega breidd beltanna og
auka þannig til muna hæfni vélar-
innar i votlendi. Þessi útbúnaður
mun að likindum hvergi vera
notaður annars staðar.
Bjarni Arason ráðunautur við
eitt plógfarið. Ekki þarf vitnanna
viö um það, að þarna er jarðagi
mikill.
Athugasemd
Björns Jónssonar
Mbl. birti i gær svohljóðandi
athugasemd frá Birni Jóns-
syni alþingismanni og forseta
Alþýðusambands tslands:
„Samtök frjálslyndra og
vinstri inanna tóku upp þann
báttá nýafstöðnum landsfundi
sinum að liafa hann opinn
fréttainönnum allra fjölmiðla.
Þotta tel ég góða og gagnlega
nýbreytni og nokkurs þvi um
vert, að þessi tilraun verði til
eftirbreylni öðrum flokkum.
Slikt hlýtur þó að verða mjög
liáö þeirri reynslu sem nú fæst
um heiöariegan og hlut-
drægnislausan fréttaflutning.
i sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins I. þ.m. þykir mér
sem frásögn blaðsins af ræðu
minni á þinginu daginn áður
gefi ranga hugmynd um mál-
flutning niinn og iiinniæli og
þó sérstaklega I stórfyrirsögn
á litsiðu blaðsins, en hiin gefur
til kynna, að ég liafi talið likur
á að SKV lia'tti hráðlega
stuðningi við rikissljórnina.
Ilið rétta er, að ég lagði I ræðu
minni áherzlu á stuðning við
rikissljórnina, en sagði liins
vegar, efnislega, að aldrci
vrði fullyrt um stjórnarsam-
starf langt frani i tiinann og
laldi óliklegt, að nokkur lands-
fiindarinanna gæti fullyrt um
eitthvert eilifðarfy Igi við
ráðuneyti ólafs Jóhannesson-
ar. Itikisstjórnir ka'inu og
fa'iu en stefnurnar lifðu. Þess
vegna va-ri sú tillaga, sem hér
var rauld um fyrirfram-
ákviirðun óstofnaðs sainein-
aðs flokks um fylgi við núv.
rikisstjórn alger fásinna og
fjarstæða. Slikt yrði að
ákvarðast af þcim flokki þeg-
ar stofnaöur hefði verið og sú
ákvörðun að takast útfrá þvi
stjórnmálaáslandi, sem þá
kynni að rikja.
i þessu sambandi minnti ég
lika á, að enn væri óséð hvern-
ig iniklir efnahagsiirðugleik-
ar. sein nú voru augljósir yrðu
leystir á komandi vetri og
kann óhnitmiöaö orðalag mitt
um það efni að vera nokkur af-
siikun fyrir risafrélt Morgun-
blaðsins, en rétt hefði þá lika
verið að geta þcss, að ég sagöi,
að auðvitað vonuðum við i
SFV, að þau mál leystust far-
sællega.
Með þiikk fyrir hirtinguna,
sem ég vona að Mhl. Ijái álika
virðulcgt rúin og frétt sinni s.l.
sunnudag."
Óskhyggja Mbl.
Eins og áður segir birti Mbl.
þessa athugasenid Björns
Jónssonar i gær, cn hinsvegar
varð það ekki við þeirri ósk
lians að velja henni eins virðu-
legt rúm og það valdi fréttinni,
sem átti að gcfa til kynna, að
hann væri orðinn andsnúinn
rikisstjórninni. Af forustu-
grein Mbl. virðist svo Ijóst, að
það geri sér nokkra von um,
að Samtökin vcrði til þess að
fella rikisstjórnina. Þetta er
ekki ný óskhyggja hjá Mbl.
Það batt á sinum tima miklar
vonir viö þaö, að Samtökin
myndu hafna aðild að núver-
andi rikisstjórn. Sú von þess
varð að engu, enda hljóta þeir,
sem i einlægni vilja vinna aö
sameiningu og samstarfi i-
haIdsandstæðinga, að vera
manna óliklegastir til að ger-
ast samherjar Mbl. gcgn
rikisstjórninni.
Þ.Þ.