Tíminn - 13.10.1972, Blaðsíða 7
Föstudagur 13. október 1972
TÍMINN
7
Virðuiegir múlasnar
Virðulegur veiðiklúbbur i
Virginiafylki i Bandarikjunum
hélt kappreiöar þar sem
múlasnar reyndu með sér.
Áhorfendum brá i brún þegar
veðreiðarlistinn barst þeim i
hendur. Efst á honum var frá-
leikurinn McGovern, annar hét
Lynda K. eftir konu hans. Aðrir
múlasnar i keppninni hétu
Jackie Onassis, Martha
Mitchell og aðrir efir nokkrum
framámönnum Demókrata i
fylkinu.
Sumum þótti þetta dónalegt, en
eigendur múlasnanna sögðu að
þessar nafngiftir væru ekkert
verri en að kalla hunda sina
Neró, Sesar, eða öðrum viðlika
nöfnum.
Harnmörg fjölskylda
Hvaða mundur er á að eiga tiu
börn eða nitján, sagði ameriski
verkfræðingurinn Dick Cotter,
þegar hann gekk i það heillaga
með hjúkrunarkonunni Peggy
Lauzon, i siðustu viku.
Cotter á tiu börn, en hann missti
konu sina fyrir hálfu ári siðan,
en hann er nú 45 ára gamall.
Peggy er 42 ára, og missti mann
sinn i fyrra.
Þau hittust fyrst i aprilmánuði
s.l. en þau bjuggu i sömu kirkju-
sókn i Minnesota. Cotter sagðist
aldrei hafa þorað að minnast á
bónorðið ef núverandi kona
hans hefði ekki átt svona mörg
börn. — Hvernig hefði ég getað
boðið nokkurri konu, að sjá um
heimilið með öllum barnaskar-
anum, nema að hún hefði eitt-
hvað að leggja á móti. — Ég er
viss um, segir frúin, aö við eig-
um við sömu erfiðleika að striða
og aðrir foreldrar, bara svolitið
meira af þeim.
Gott verð fyrir steininn
Stjórn Afrikurikisins Sierra
Leone seldi fyrir skömmu þriöja
stærsta demant i heimi,
„Stjörnu Sierra Leone”. Kaup-
andinn var gimsteinakaupmað-
ur i New York. Er demanturinn
968,9 karöt. Kaupverðið er
leyndarmál, en kunnugir segja
að lágmarksverð sé yfir 250
milljónir króna
Ef þú hjálpar manni, sem er i
klipu, máttu vcra viss um, að
hann man eftir þér næst þegar
hann kemst i klipu.
Þegar kona fær ekki þann
mann, sem hún vill, má guð
hjálpa þeim sem hún fær.
Of ung í svallið
Caroline Kennedy, dóttir fyrr-
verandi forseta og Jackie, er nú
14 ára að aldri. 1 sumarleyfinu
brá hún sér til Spánar og var
ekki búin að vera þar lengi,
þegar hún var farin að sjást oft
á íerð með nautabananum
Palomo Linares. Þegar móðir
hennar frétti af þessu og sá
myndir af skötuhjúunum i
blöðum, skipaði hún dóttur
sinni að fara þegar i stað til
Bandarikjanna og hætta öllu
karlaflangsi á Spáni. Dóttirin
hlýddi og er nú við nám i
stúlknaskóla i Massaschussetts.
Geimferðaáætlun
Krakklandsforseta
brást
Þegar Pompidou, Frakklands-
forseti gerði geimfararáætlun i
fyrri viku var henni samstundis
spillt fyrir honum. Nokkrir
bandar. og sovézkir geimfar-
ar voru i siödegisdrykkju hjá
forsetanum, en Bandarikin og
Sovétrikin voru að undirbúa
sameiginlega geimferð árið
1975. Hittust geimfararnir af þvi
tilefni og Pompidou bauö þeim
heim. Sagði hann geimförunum,
að hann vildi gjarnan vera
farþegi með þeim. Frú Pompi-
dou greip þegar fram i, og sagði
að hún hafi ekki verið spurð
álits og harðneitaði að maður
hennarhefði neitt út igeiminna'ð
gera og sist með geimförum
annara þjóðá,
Geimförunum var vel fangað i
Frakklandi og fengu þeir orður.
Dipiomat er maður/sem getur
sannfært konuna sina um, að
minkapels klæði hana alls ekki.
¥ ¥ ¥
Pétur tuggði tóbak og það likaði
forstjóranum ekki. Dag einn
gekk liann til Péturs og sagði: —
þú ert cins og svin, Pétur. —
Tyggja svin tóbak? spurði Pétur
hinn rólegasti.
— Nei, að visu ekki, en....
— Hvor okkar likist þá meira
svini?
¥ ¥ ¥
¥ ¥ ¥
Tveir góðir vinir hittust á götu.
— Jæja, þá er trúlofunin okk-
ar Ellu farin út um þúfur.
— Hvers vegna?
— Þegar við ætluðum i bió i
fyrrakvöld, sagðist ég ekki láta
¥ ¥ ¥
sjá mig með henni, ef hún færi i
þessum hræðilega munstruðu
sokkum.
— En er það öll ástæðan?
— Já, hún var nefnilega ekki i
neinum sokkum.
DENNI
DÆAAALAUSI
Vist er hann ánægður núna, en
biddu bara þangað til hann fær að
vita, að hann veröur að fara i
vinnuna á hverjum degi.