Tíminn - 20.10.1972, Blaðsíða 19

Tíminn - 20.10.1972, Blaðsíða 19
TÍMINN Föstudagur 20. október 1972. 1? Stadion Framhald af bls. 16. fyrsta leikinn gegn Stadion og máttu þola stórt tap, eða 29:19. I næsta leik Stadionliðsins, mætti það tslandsmeisturunum Fram, sem var allan timann sterkari aðilinn og sigraði Stadion verð- skuldað með 4ra marka mun, 12:8. Sjaldan eða aldrei hefur Þorsteirm Björnsson, sýnt jafn góða markvörzlu og gegn Stadion — svo léttilega varði hann skotin frá leikmönnum danska liðsins, að það var oft á tiðum, eins og hann væri að verja skot frá smá- strákum og leikmenn Stadion voru eins og börn i höndunum á Framliðinu, sem lék mjög sterk- an varnarleik og voru þeir Sigur- bergur Sigsteinsson og Guðjón Jónsson stekustu varnarmenn Fram. Þó að Framliðið hafi sigrað Stadionliðið 1967, þá má ekki reikna liðinu öruggan sigur gegn Stadion, þegar liðin mætast i Laugardalshöllinni efitr viku, en óneitanlega væri gaman ef sama sagan endurtekur sig frá siðustu heimsókn Stadion til tslands. Ef sú saga á að endurtakast, þá verður Framliðið að taka á öllu sem það á og leikmenn liðsins verða að berjast fram á siðustu sekúndu. Þriðji og siðasti leikur Stadion 1967 var gegn FH og lauk leiknum með sigri FH 20:18. SOS. Tónskáld Framhald af þls. 11. svo kannski búizt við þvi, að verkið verði flutt einu sinni eða svo — einhvern tima, og siðan ekkert meira. En það er sama: Maður verður samt að gera þetta. — Hvers vegna er það svo nauðsynlegt? — Ég veit, að ég hef ákveðna hæfileika til þess að semja. Þá hæfileika verð ég að nota. Við get- um sagt, að þetta sé min pólitiska barátta. öll list, jafnvel þótt hún virðist fjarstæðukennd i formi sinu, er i eðli sinu hápólitisk — það er að segja þjóðfélagsleg i innsta eðli sinu. Ég hef fyrir löngu sannfærzt um það, að mig langar ekki til þess að starfa á vegum pólitisku flokkanna hér á Islandi, til þess eru þeir of likir hver öðr- um, þegar inn úr yztu skelinni er komið. Nei, eina leiðin fyrir mig i bili er að vinna á minum einka- grundvelli og reyna að vinna þar eins gott verk og ég get i þeirri von, að það verði einhvern tima seinna einhverjum öðrum til upp örvunar. — Er nú samt ekki gaman að glima við tónlistina, þótt þú segir að verkið sé bæði erfitt og van- þakklátt? — Jú, vist hefur það lika sina ánægju. En þetta er erfið vinna, einkum vegna þess, að ég get ekki látið mér nægja einföld og auð- veld verkefni. Það fullnægir mér ekki að skrifa skemmtileg og falleg smálög. Ég hef að visu gert þetta. Ég skrifaði fyrir nokkrum árum dálitið af lögum við islenzk kvæði, en mér finnst ég ekki geta haldið áfram á þeirri braut. Hitt veit ég, að þegar maður vinnur að erfiðum verkefnum, þá er árangurinn vafasamari. Engu að siður finnst mér það heiðarlegra að glima við vandann, en að sneiða hjá honum. — Varstu ungur, þegar þú byrjaðir að semja tónlist? — Já, ég var smákrakki, þegar min fyrstu lög urðu til. En ég er ekki að segja að það sé á neinn hátt merkilegt. Aftur á móti samdi ég talsvert, þegar ég var á milli tiu og fjórtán ára. Þá kom talsvert hlé, og ég samdi miklu minna, allt fram um tvitugt. Þegar ég var nitján ára, var ég i Köln i Þýzkalandi. Þá var ég svo heppinn að geta verið við frum- flutning á pianókonsert eftir John Cage, sem orðið er sigilt verk i þeim stil. Það var ákaflega gaman og nýstárlegt að sjá John Cage standa fyrir framan hljóm- sveitina og veifa höndunum i hring, en hver hljóðfæraleikari lék eins og honum sýndist, en pianóleikari, sem heitir Davið Tudor, hann lék bæði yfir pianóinu, undir þvi og alls staðar. Auðvitað þótti þetta óskaplega undarlegt, og flestir voru á einu máli um. að hljómsveitar- stjórinn, sem stóð og veifaði höndunum i hring, væri hið mesta fifl. En þetta var sem sagt á þeim tima, þegar ég hafði gaman af svona hlutum, og ég skemmti mérágætlega. 1 þetta sama skipti kynntist ég tónskálinu Nam June Paik. sem er Kóreubúi. Hann kom einu sinni hingað til Islands, hélt þá tónleika i Lindarbæ og hneykslaði marga ákaflega. En þegar við kynntumst i Köln, þarna um árið, bá var hann að út- skýra verk sin fyrir mér. Það gerði hann meðal annars með þvi að hlaupa um herbergið með epli og opinn hnif i höndunum, en ég sat úti i horni, dauðhræddur, og vissi ekki, hvað verða myndi næst. —En svo hefur þú þróazt frá þessum smekk unglingsáranna? — Það liðu mörg ár og ég samdi ekki neitt. Svo var það núna fyrir eitthvað þrem árum eða svo, að ég fór aftur að skrifa og byrjaði þá á þvi að semja islenzk smá- lög, eins og ég sagði áðan. En nú held ég, að ég sé á góðri leið með að taka þar upp þráðinn, sem fyrr var frá horfið. Heldurðu ekki, að þetta tóm- stundagaman rhuni fylgja þér fram á efstu ár og ef til vill verða þin eina iðja, þegar fram i sækir? — Ég vil nú helzt snúa þessu við. Ég vil heldur segja, að tóm- stundagaman mitt sé að vinna hjá IBM, þótt sú vinna sé fram- kvæmd á milli klukkan niu og fimm á daginn. Aðalstarf mitt er aftur á móti að semja tónlist, þótt það sé mest megnis unnið á kvöldin. Ég kveð svo Elias Daviðsson og konu hans, Kristinu Jónsdóttur, lækni, og þakka þeim ánægjulega stund. —VS. Víkingur Framhald af bls. 16. ir úr hópnum , voru að láta sig hverfa smám saman, enda orðnir glorhungraðir á þvi að rölta á milli matsölustaða og góna innum glugga, á fólk, sem var að gæða sér á kræsingum. Á þessu sést, að Vikings- liðið, er ekki allt of hrifið að móttökum Stadionmanna i Kaupmannahöfn. Það getur verið sárt, að félagslið, sem hefur komið hingað til lands- ins og fengið fullkomna þjón- ustu, snúi bakinu við islenzk- um félagsliðum, þegar þau heimsækja liðin, sem þau hafa haft svo mikið fyrir, til að gera ferðir þeirra hér á Islandi, sem ánægjulegastar. Nú i næstu viku koma for- ráðamenn Stadion, með leik- menn sina til íslands, til að leika gegn Fram i Evrópu- keppninni i handknattleik. Það kostar ekkert að stinga þvi að forráðamönnum Fram, svona i lokin: Það er algjör óþarfi, að bjóða svona ógest- risnum félögum upp á allt það finasta hér i Reykjavik — það er betur farið með peningana, i þarfari hluti, en að láta Dani vera að éta þá út. SOS. fl víðavangi afrabTsha3ld búa sig undir gæzlu stærra svæðis.Það var harla lítið um það meðan Sjálfstæðisflokkur- inn fór með þessi mál i 12 ár samfleytt. Nú hefur Sjálfstæð- isfiokkurinn hins vegar feikna áhuga á, að Landhelgisgæzian verði stórefld og það þegar i stað,- Þá hefur hvalveiðiskip verið tekið leigunámi, eins og kunn- ugt er. Það er stórt skip, sem vonir eru bundnar við að muni koma að góðu gagni við gæziu- störfin. — TK. GrvAani laudiA \ KOnmm fí 'BIJNAÐARBANKI ' ISLANDS Ný tækni Helmingi fleiri við akstur aærur til Póllands — Bretar kaupa 300 tonn ef innýflum í myrkri Nýkomnir eru norðan úr landi þeir Pétur Sveinbjarnarson framkvæmdastjóri UMFERÐ- ARRÁÐS og Baldvin Þ. Kristjánsson félagsmálafulltrúi Samvinnutrygginga. Mættu þeir á aðalfundum klúbbanna ÖRUGGUR AKSTUR á Hólma- vík, Hvammstanga og Blönduósi, en sóttú auk bess heim Héraðs- skólann að Reykjum I Hrútafirði og Kvennaskólann a Blönduósi, og töluðu þar um umferðarörygg- ismál og tryggingavernd I nútlma þjóðfélagi. Kynnti Pétur m.a. i máli og myndum nýja tækni i sambandi við akstur i myrkri. Munu yfir 250 manns hafa hlustað á þá félaga i þessari ferð. Stjórnir klöbbanna voru á öll- um þessum stöðum endurkosnar, og eru formenn þeirra sem hér segir: 1 Strandasýslu Grimur Bene- diktsson bóndi á Kirkjubóli. 1 Vestur-Húnavatnssýslu Sigurður Eiriksson vélvirki og i Austur- Húnavatnssýslu Þórir Jóhanns- son deildarstjóri. „Gegn hervaldi, gegn auðvaldi" SB—Reykjavik Búvörudeild SIS undirritaði i siðustu viku samning um sölu á 80-100 þúsund gærum til fyrir- tækisins Skorimpex i Póllandi. Eru þetta um helmingi fleiri gærur en Pólverjar keyptu i fyrra, en þá voru þær 45 þúsund. Afgreiða á allar gærurnar fyrir áramót. Þá heldur búvörudeildin áfram , að selja Færeyingum frosið kjöt og hafa alls selzt þangað um 180 tonn, sem afgreiðast beint frá Við guðsþjónustu i Bústaða- kirkju nú fyrir skömmu afhenti frú Auður Sveins altarissilfur, hina fegurstu gripi, og lýsti við það tækifæri hlýhug gefenda til kirkju sinar. Er hér um að ræða kaleik, sem frú Auður og fjölskylda hennar gefa til minningar um Axel L. Sveins, sem var formaður sóknarnefndar Bústaðasóknar frá stofnun safnaðarins fyrir tuttugu árum og Austurlandshöfnum. Þá hafa verið seld yfir 100 tonn af nýju kjöti til Danmerkur, þar af um 40 tonn til Grænlandsverzlunar- innar. Er það siðan flutt til Græn- lands um danskar hafnir. Undanfarið hafa farið stórar sendingar af innyflum, þ.e. lifur, nýrum og lungum, til Bretlands. Alls hafa selzt þangað um 300 lestir og er kappkostað að koma öllu magninu til Bretlands eins fljótt og auðið er, ef koma skyldi til löndunarstöðvunar vegna landhelgismálsins. helzti oddviti um félagslegt starf. Patinudisk gefa hjónin Sigriður Axelsdóttir og Guðmundur Hans- son, en hann tók við af Axel Sveins sem formaður safnaðar- ins, og loks var þriðji gripurinn stór og mikil kanna, sem gefin er af konum úr Kvenfélagi Bústaða- sóknar. Fyrr i sumar hafði Kven- félag Þórshafnar, Færeyjum, afhent kirkjunni patínuöskju að gjöf. Bústaðakirkju berast veglegar gjafir Sjálfkjörið var í nefnd þá, sem á að sjá um hátiðahöld stúdenta 1. desember, en kosningar áttu að fara fram i dag. Aðeins einn listi var lagður fram og kalla aðstand- endur hans sig „Velvakendur.” I dreifibréfi, sem þeir dreifðu um háskólann og ber yfirskriftina „Gegn hervaldi, gegn auðvaldi”, segir m.a.: „Fyrsta desember i fyrra gerðu vinstri menn i háskól- anum brottför hersins að baráttu- máli dagsins. Nú ári siðar er knýjandi nauðsyn, að málið verði tekið upp á nýjan leik og þá nýj- um tökum og ekki sizt frá nýjum sjónarhóli og I viðara samhengi.” 1 dreifibréfinu er einnig getið um efnahagsbandalög, sem tæki auðvaldsins til heimsyfirráða, en þau geri auðhringum hinna þró- uðu þjöða kleift að fjárfesta i hin- um vanþróuðu löndum. Ræðumenn á hátiðinni fyrsta desember verða Þorsteinn Vilhjálmsson elðisfræðingur, Guðrún Hallgrimsdóttir mat- vælafræðingur og Ragnar Arna- son háskólanemi. Aðstoð við Portúgal fordæmd A vegum Sameinuðu þjóðanna starfar sérstök nefnd að þvi að reyna að útrýma kynþáttamis- rétti. Nýlega fjallaði þessi nefnd um ástandið i nýlendum Portúgala i Afriku og kemur fram i niðurstöðum hennar, að sivax- andi hluta opinberra útgjalda i nýlendunum er varið til striðs- reksturs. Með öðrum orðum, þjóðirnar bera kostnaðinn af þeim kúgunaraðgerðum, sem þær eru beittar. Striðsreksturinn hefur það og i för með sér, segir nefndin, að ibúarnir á þessum svæðum eru sviptir pólitiskum réttindum. Þá fordæmdi nefndin þá aðstoð sem nokkur lönd, — einkum og sér i lagi aðildarriki AtlandshafsbandalagsinS láta Portúgal i té. Happdrætti Framsóknarflokksins Vinningarnir i happdrætti Framsóknarflokksins eru að þessu sinni tvær giæsiiegar bifreiðar, Opel Rekord og Opel Kadett sportbifreið, báðar af árgerð 1973. Verðmæti þeirra beggja er ein milljón og átta- tiu þúsund krónur. Útdráttur fer fram 18. nóv. n.k. Allir trúnaðarmenn happ- drættisins hafa nú fengið miða til sölu og er slikur trúnaðar- maður i hverjum einasta kaupstað og hreppi á landinu. A afgreiðslu Timans, Banka- stræti 7 eru einnig seldir mið- ar i lausu og i allmörgum blaðsöluturnum i Reykjavik, svo og á skrifstofu happ- drættisins, Hringbraut 30. A afgreiðslu Tfmans, skrifstof- unni Hringbraut 30 og hjá trúnaðarmönnum er einnig tekið á móti skilum fyrir heimsenda miða. Framsóknarfóik er eindreg- ið hvatt tii þátttöku i miða- kaupum til styrktar flokks- starfseminni og trúnaðar- tnenn sér i lagi til að vinna rösklega að sölu miðanna. ( | I | I Tíminner peningar l | Auglýsid' : i TÉmanum i Núverandi formaður sókn- arnefndar, Ásbjörn Björnsson, færði gefendum þakkir fyrir höfð- ingsskap þeirra og rausn, og fagnaði þvi, hve margir vildu veg kirkjunnar mikinn og létu stuðn- ing sinn ekki ná til orðanna einna. Stór sendi- ferðabifreið Ford I) 300 árgerð 1966, til sölu. Stöðvarleyfi getur fylgt. Upplýsingar i sima 14164 á kvöldin. VIPPU - BfLSKÚRSHURÐIN Lagerstærðir miðað við múrop: Hæð: 210 sm x breidd: '240 sm 210 - x - 270 sm Aðrar slærðir smlOaðar eftir beiðnt QLUGGAS MIDJAN SiÍumúla 12 - Simi 38220 HÖFUM FYRTR- LIGGJANDI HJÓLTJAKKA 6. HINRIKSSON SÍMI 24033.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.