Tíminn - 22.10.1972, Blaðsíða 16

Tíminn - 22.10.1972, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Sunnudagur 22. október 1972 Sigvaldi Hjálmarsson: Að kunna ekki að vera annað en þræll VIÐ LIFUM á undarlegum tima. Ungt fólk, og raunar líka aldnir, berjast fyrir friði og ekki siður með ofbeldi en öðru. Friður, sem komið er á með of- beldi, hvers konar friður er það? Auövitaö bara ofbeldi og þar með ófriður! Hvernig stendur á vaxandi of- beldi, óeirðum og skemmdafýsn? Stafar slikt af þvi, aö menn eru nú ekki hýddir opinberlega eða gerð- ir höfði styttri fyrir smámuni? Ég held ekki. Bönn og harka hafa aldrei megnað að venja fólk af neinu, ekki einu sinni þá , sem fyrir hegningunni urðu, hvað þá hina.sem aðeins fengu aðhorfa á. Morðingja ofbýður ekki, þótt hann sjái aftöku. Það eru þeir, sem ekki eru morðingjar, sem ofbýður. Auövitað stelur ekki þjófur, sem búið er að hengja, né heldur drepur sá, sem búið er að koma fyrir kattarnef. En útrýmingar- aðferðin er samt skammgóður vermir. Til hafa þeir verið, sem ætluðu að útrýma illu með illu, út- rýma fjendum samfélagsins með stáli og blýi. En þeirra ráð dugðu ekki betur en svo, að sjálfum var þeim vanalega útrýmt á eftir! Ognaumaster fólk lakara i dag en áður, spurning hvort nokkurn tima hefur verið jafn mikið af góðu fólki, ungu og öldnu. Hitt er samt augljóst, að nú ber meira á geðveiklunarlegum ofsa en áður, og óánægju með sjálfan sig — og þeir eru ekki beztir i þvi efni, sem hafa það bezt. Hvað er það i samfélagi nútim- ans, sem stefnir þróun mála i þessa átt? Fyrir fimmtiu, sextiu árum var erfiðara að lifa en kannski ekki eins vandasamt að vera til. Fólk dó yngra, fleiri uröu sjúk- dómum að bráö, og meira þurfti á sig að leggja til að hafa sóma- samlega i sig. En að lifa við slik skilyrði er ekki sérlega vandasamt. Vandinn kemur með frelsinu og frelsið með efnum og tima. Það er vandi að vera frjáls, alveg eins og það er vandi að vera vitur. Það er mikil speki i orðum Hávamála, að „snoturs manns hjarta verður sjaldan glatt”, ábyrgð, áhyggjur og vandi aukast i réttu hlutfalli við möguleikana. En þau skilyrði gera lika mann- inn að manni. Vegna betri lifsafkomu eykst mannfjölgunin, lika i þeim lönd- um, þar sem skortur rikir. Fólks- fjölgunin á Indlandi stafar mest af stórlega hækkuðum meðal- aldri. Og mikilli fjölgun virðist alltaf fyígja óviðráanleg sjálfs eyðingartilhneiging hjá öllum dýrategundum, hvernig svo sem það er skýrt. En það, sem mestu skiptir að minum dómi, það sem raunveru- lega gerir vandasamara að vera til i dag en fyrir fimmtiu eða sextiu árum, ellegar fyrir öld — eru tómstundirnar. Þá voru tómstundir óþekkt fyr- irbrigði. Þá var heldur ekki til neinn leiði. Hann kom, þegar fólk fór að hafa tima og geta valið um, eða verið i óvissu, hvort það ætti að gera þetta eða hitt. Hefurðu hugsað úti það, að leiði er ekkert annað en að vera óviss, hvað maður á að gera? Ég sit og geri ekki neitt, og ég er ekki viss um, að ég eigi að sitja og gera ekki neitt, kannski á ég heldur að gera eitthvað annað? Þettá er leiði. Ef ég á hinn bóginn þessa stundina er handviss um, að ég eigi ekkert að gera — er enginn leiði. Fólk veit ekki i dag, hvað það á að gera við sinn afgangstima. Það fer að velta vöngum yfir þefsum afgangstima og leiðist. Þar á eftir fer það að velta vöng- um yfir þeim tima, sem fer i að vinna fyrir sér — og þá fer þvi lika að leiöast vinnan! Það er eins og fólk skilji ekki, að það þarf allt öðruvisi lifsinn- stillingu, þegar það getur ráðið tima sinum sjálft, heldur en þegar það er þrælar (sjálfs sins eða annarra). Það kann ekki að vera frjálst, kann ekki að vera annað en þræl- ar. Þar er rót meinsemdarinnar. Og þá gripa menn til örþrifa- ráða, gera eitthvað, sem er alger- lega gagnslaust. Iðulega er það lika skaðlegt — mikið eða litið skaðlegt eða mannskemmandi á einn eða ann- an hátt. Flestir vinna vond verk af vandræðum með sjálfa sig. Væri ekki hollt að athuga það nánar? En svo er þetta, sem er gagns- laust en ekki skaðlegt. Slikt heitir tómstundaiðja og er skipulögð og studd af almannafé. Hvaða vit er t.d. i að fara með spýtu uppi sveit með spotta á öðr- um endanum og svo þar á ein- hvern krók — og reyna með þeim hætti að ná silungi eða laxi upp úr ám úr þvi unnt er að gera þetta sama i grænum hvelli með nert? Hvaða vit er i frimerkjasöfnun? Hvaða vit er i söfnun eldspýtu- stokka? 1 sjálfri sér hefur þess konar iðja ekkert gildi — nema i áhrif- um sinum á manninn, sem vinnur verkið. Það er svo sem ekki litið gildi, ef vel er að gáð, getur kannski hindrað,aðhann verði vitlaus eða gjalti á vegum úti. Hér er komið 'til skjaianna alveg nýtt viöhorf gagnvart gildi verka. Þvi var ekki til að dreifa, þegar öll verk voru aðeins bar- átta fyrir að hafa i sig. Þá var gildi þeirra aðeins eitt, matur. Hér eftir hafa verk tvenns kon- ar gildi: annars vegar að afla nauðsynja ásamt öðru viður- kenndu notagildi fyrir heildina, hins vegar áhrifin á manninn, sem vinnur verkið. Við skulum ræða svolitið nánar um þetta siðara gildi. Ef gildi tómstundastarfa liggur i þvi að hafa áhrif á manninn, þá ætti ekki að vera álitamál, að nauðsynlegt sé, að þau hafi sem allra beztáhrif: geri manninn til langframa hamingjusamari án þess að skapa öðrum óhamingju, valdi ekki tjóni, geri vandræða- mann skárri og góðan dreng betri. Er þetta kannski akur, sem við látum i órækt yfirleitt? Til að mynda gerir það engan óhamingjusaman, þótt einhver rjátli af sér leiða og óánægju með sjálfan sig með þvi að dútla við frimerki eða eldspýtustokka. En að mölva og eyðileggja, útsvina mannvirki, sletta graut á annað fólk og þar frameftir göt- um — allt þetta gerir aðra óhamingjusamari og sennilega lika þann, sem vinnur, vþi þetta er einsog að Kugga ofan á hendur á sjálfum sér. Auðvitað er skemmdafýsn runnin af leiða, miklum og sjúk- legum leiða, mikilli óvissu um, hvað maður á að gera. Slikt hjálpar heldur ekki til að bæta heiminn, þótt það sé stund- um látið i veðri vaka. Þessi verk eru oftast unnin af sjúklegum hvötum i blóra við hreyfingar, sem eru i eðli sinu göfugar og vilja i raun bæta heiminn. Þú verður að vera i góðu skapi, ef þú ætlar að bæta heiminn. Annars kemurðu engu i fram- kvæmd öðru en geðvonzkunni. Drykkjuskapur og önnur eitur- lyfjanautn er sannarlega tóm- stundaiðja, einhver útbreiddasta tómstundaiðjan nú á dögum. Hún stafar af mikilli óvissu um, hváð maður á að gera, og er flótti frá þvi vandamáli, sem frelsi leggur manni á herðar. Menn, sem verða sliku að bráð, upplýsa að þeir hafa ekki manndóm til að vera frjálsir menn. Þetta eru dæmi um vonda tóm- stundaiðju. Og áfram i sama dúr: Skemmtistaðirnir eru ekkert annað en tómstundastofnanir, fyrirferðarmestu tómstunda- stofnanir landsins. Og hvaða tómstundaiðja fer þar fram? Svo er látið heita sem það sé dans — sem i eðli sinu er allra þokkalegasta dútl og getur aukið gleði. En þetta er alrangt, dans er lit- ill hluti af þvi, sem fram fer á skemmtistöðum. Skemmtistaðirnir eru drykkju- búllur. Þar hafa menn leyfi til að drekka frá sér vitið og haga sér eins og asnar, án þess að vera kallaðir asnar, og borga stórfé fyrir til menningarmála! Ekki verður sagt að slík iðja hafi góð áhrif á neinn — nema ef hann þarf endilega að sleppa sér, sem þá er eitt dæmið enn um bælt og óheilbrigt sálarlif. Og hvað um útvarp og sjón- varp? skiptir sú tómstundaiðja ekki töluverðu máli, sem menn fá þannig upp i fangið með þvi að horfa á sjónvarp og hlusta á út- varp? Hvaða áhrif hafa glæpa- myndirnar, sem nú eru komnar inn á hvert heimili? (Ég vil taka fram, að mér sýnist tilfinning for- ráðamanna þessara stofnana fyr- ir ábyrgð sinni stórvaxandi). En miklar þakkir á iþrótta- hreyfingin skilið. Hún bjargar áreiðanlega mörgum mannslifum og miklum mannlegum verðmæt- Framhald á bls. 19 ■ i !■■■■■! HflPP dræUi PramsóhnarflDhhs VINNINGAR: Opel Record árgerð 1973 — Kr. 605.000,00 Opel Kadett árgerð 1973 — Kr. 475.000,00 DREGIÐ 18. NÓVEMBER Tekið á móti skilum i skrifstofu happdrættis- ins, Hringbraut 30, og á afgreiðslu Timans, Bankastræti 7.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.