Tíminn - 21.11.1972, Blaðsíða 6
6
TÍMINN
Certina-DS:
úrið,
sem þolir
sitt af hverju!
Guðmundur P. Valgeirsson, Bæ, Trékyllisvík:
Mýrarljós og hrævareldar
Certina-DS, algjörlega áreiöan-
legt úr, sem þolir gífurleg högg,
hita og kulda, í mikilli hæö og á
miklu dýpi, vatn, gufu, ryk.
Ótrúlegt þol, einstök gæöi. Lítiö
á Certina úrvalið hjá helztu
úrsmíöaverzlunum landsins.
Skoðið t.d. Certina-DS
Chronolympic Chronograph,
sérstaklega högg- og vatnsþétt,
ryðfritt stál, þrír teljarar fyrir
sekúndur, minútur og klukku-
tíma Svört eða hvít skífa.
Certina-DS, úr fyrir áræöna.
Certina-DS Chronolympic
Chronograph, sérstaklega
högg- og vatnsþétt, ryöfrítt stál,
þrír teljarar fyrir sekúndur,
mínútur og klukkutíma. Fæst
meö svartri eöa hvitri skífu.
Certina-DS fæst, ásamt úrvali
Certina úra, hjá helztu úrsmíöa-
verzlunum landsins.
CERTINA
Certina Kjjrth Fréres SA
Grenchen/Switzerland
Morgunhlahih mun hafa orftift
l'yrst til ah vokja athygli á kulda-
logum ummælum og
aftdróttunum Más Féturssonar er
hann lét falla i garð Steingrims
llermannssonar á þingi
Samhands ungra framsóknar-
manna, sem haldið var á Akur-
eyri 1. til :i. septemher s.l., enda
Mhl. þótt i þeim nokkur fengur.
Gefur Már þar i skyn, að
Steingrimur vinni Kramsóknar-
flokknum til óheilla i sinu kjör-
dærrii- Vestfjarðakjördæmi- og
lætur að þvi liggja. að fylgistap
það sem flokkurinn varð fyrir þar,
sé Steingrimi Ilermannssyni að
kenna og vinnuhrögðum hans.
Að vonum þótli Steingrimi ómak-
lega að sér vegið og ur nokkru
launsátri þar sem hann sat ekki
þetta þing og var hvergi nær-
staddur. Kitaði hann stutta grein
i Timann þann 4. oklóher. Benti
hann þar á, með hógværum
riikum, að erfitt væri að halda
uppi tviskiplri stjórnmála l'élags-
slarl'semi- eldri og yngri- i
lámennum og dreifðum hyggðar-
liigum. Æskilegra væri, að yngri
og eldri menn ynnu saman að
sameiginlegum áhugamálum. Sú
hel'ði orðið þróunin á Vestfjörðum
og gefizt vel og mætti það verða
iiðrum til cftirhreytni.
Kkki gal Már unað þessum
riikum en hafnar þeim þó ekki
með iillu. Kemur nú i ljós, að
honum hal'i verið l'leira i hug
þegar hann har fram ásakanir
sinar á hendur Steingrimi á
lyrrnefndu þingi, en harmur eínn
yfir að ungir framsóknarmenn af
Veslfjiirðum voru ekki þátt-
takendur i þvi þinghaldi. Birtir
hann nú i Timanum, þann 15.
októher, einhverja þá ógeðs-
legustu grein, sem maður hefur
séð, fulia af dylgjum og
ásökunum á Steingrim fyrir
stiirl' hans i þágu Framsóknar-
l'lokksins. l.ætur hann sér ekki
nægja þá lullyrðingu, að Stein-
grimur hafi unnið Vestfirðingum
og Framsóknarflokknum í þvi
Sölu- og s] 28 fvrirt/Pl /ningarsalur rio
4.0 IjllllCUI Vöruskrá IJd
Gluggar Eldavélasett
Svalahurðir Frystikistur
Einangrunargler Eldluisviflur
Miðstöðvarofnar Ilitunardúnkar
Kafmangsþilofnar llandrið
Innihurðir Dælur
Útihurðir Uofthreinsitæki
Bylgjuhurðir Vinnuhlifar
•Bilskúrshurðir Gólfdúkar
Viðarþiljur Veggklæðning
I.oftkiæðning Teppaflisar
Einangrunarplast Teppi
Hreinlætistæki Eldvarnarhruðir
Blöndunartæki Málmhurðir
Polyureþan-einangrun Eldvarnarplötur
Byggingapanilar Þakrennur
Frysti & Kæliklefar Þakkilir
Hitavcitulagnir I.oftventlar
Eldhúsinnréttingar Silicone
Fataskápar utanhúsmálning
Sólbckkir Þakjárn
Elshúsborð Þakpappi
Eldhússtólar Steypustyrktarjárn
Skólaborð Sauinur
Stólar Múrhúðunarnct
Gluggakappar Timbur
Gluggatjaldabrautir Pipur
Gluggatjöld Nótavir
Kæliskápar Bindivir
Frystiskápar Þak-þétliefni
Þvottavélar llleðslustcinar
Uppþvotta vélar Milliveggjasteinar
Eldavélar Gangstéttarhellur
IÐNVERK HF.
ALHLIDA BYGGiNGAÞJÓNUSTA
Engin áiagning.
flðeins þjónusta.
NORÐURVERI
v/Laugaveg & Nóatún
Pósthólf 5266
Símar 25945 & 25950
kjördæmi hið mesta ógagn heldur
hrúgar hann saman stóryrðum og
svikahrigzlum um hann og
önnur störf hans i þágu Fram-
sóknarílokksins. - 011 sú ritsmíð
hendir til þess, að Má falli
hógværar rökstuddar umræður
ekki vel i geð. — Svo fáranlegur
er málílutningur hans, að hann
gerir mörmum upp þær heimsku-
legu hugmyndir, að þeir standi i.
þeirri trú að Steingrimur
llermannsson sé bæði fulltrúi T
bæjarstjórn ísaf jarðarkaup-
staðar og i hreppsnefnd Garða-
hrepps. Sýnir þetta hvað
maðurinn gengur langt i fjar-
stæðulullum málflutningi, ef mál-
flutning skyldi kalla. - t greinar
lok er þó eins og hann komi til
sjálfs sin og verði ljóst i hvert
óefni komið er fyrir honum. —
Berserksgangurinn rennur af
honum og hann barmar sér i lokin
yl'ir að þetta skuli vera komið i
blöðin. Knda er augljóst, að þegar
kom að þvi, að hann þurfti aö
verja málstað sinn á þeim vett
vangi, hefur maðurinn algjörlega
misst vald á skapi sinu.
l>að ler ekki milli mála, að
mörgum mun hafa hnykkt við
þegar þeir sáu ásakanir Más á
Steingrim og störf hans og fundið
löngun hjá sér til að leggja Stein
grimi lið, þegar svo ómaklga var
að honum vikið. En þeir, sem
utan við .orustuv. stjórnmálanna
standa og þekkja ekki grannt til
allra málavaxta, eiga óhægt að
leggja fram þaö lið, sem þeir
vildu og til betri vegar mættu
l'æra. - Kn það skal hér strax
fram tekið, að Má Péturssyni
skjátlasl stórlega, ef hann heldur
sig þess umkominn, að rægja
vinsældir og l'ylgi af Steingrimi
Ilermannssyni i kjördæmi hans
og einnig meðal framsóknar-
manna almennt, enda fæ ég ekki
séð hverjum tilgangi það þjónaði,
ef það tækist. Eitt er þó vist, að
það þjónar ekki hagsmunum eða
velgengni Framsóknarflokksins,
heldur eykur það óvinafagnað.
Á allra vitorði er og almennt
viðurkennt, að Steingrimur Her-
mannsson hefur sýnt meiri
árvekni en nokkur annar af þing-
mönnum Vestfjarðakjördæmis,
að öðrum ólöstuðum , um málefni
Framsóknarflokksins i kjör-
dæminu og hvorki sparað tima né
fyrirhöfn til að það starf mætti
verða sem árangursrikast fyrir
flokkinn og framkvæmdir f kjör
da'minu. Hann hel'ur ferðazt
meira um kjördæmi sitt en aðrir
þingmenn þess, i þvi skyni, að
kynna sér áhugamál manna og
þarlir byggðarlaga og sifellt
hoðinn og búinn til að vinna að
Iramgangi þess, sem þeim mætti
verða til framdráttar og hags-
bóla. Að bera honum á brýn
vanrækslu og sinnuleysi um vel
ferðarmál þess og flokksins eru
þvi hrein öfugmæli, sem enginn
gal látið sér til hugar koma að
flokksbróðir léti frá sér fara. —
Ilvað okkur Árneshreppsbúa
snertir. er það sannast sagt, að
hann er sá eini af þingmönnum
kjördæmisins. sem hefur látið sjá
sig hér að kosningum afstöðnum.
Hann hefur haldið árlega l'undi
með okkur, gert okkur grein fyrir
framgangi mála á mjög skil
merkilegan hátt og kynnt sér
helztu áhugamál okkar og leitast
við að fá fram það, sem við
teldum mest aðkallandi okkur til
hag'sbóta i eríiðri lifsbaráttu
okkar hér á nyrztu slóðum og
unnið okkar máluna það gagn,
sem i hans valdi hefur staðið.
Fyrir hans forgöngu sjáum við
lika hylla undir uppfyllingu óska
okkar og vona á ýmsum sviðum.
Enda nýtur Steingrimur
almennra vinsælda hér og þær
vinsældir ná langt út fyrir raðir
flokksmanna. Þær verða ekki af
honum rægðar með geipi einu
saman.
Hvað er það þá, sem hrindir Má
út í þessa herferö á hendur
Steingrimi? Spyr sá er ekki veit.
Þvi verður ekki svarað af mér til
neinnar hlitar, en þó gerð nokkur
tilraun til að leita orsakanna.
Það er á allra vitorði að SUF
undir forustu Más Péturssonar
hefur barizt fyrir nýrri flokka-
skipan og verið reiðubúið til að
leggja þann flokk, sem þeir hafa
talið sig til, niður og mynda
annan nýjann. 1 þeirri hugsjón
sinni hafa þeir haft að leiðarljósi
þá „Hrævarelda” sem lýst hafa
umhverfis Hannibal Valdimars-
son og hans fylginauta og nú eru
að leiða þá fylkingu i náðarfaðm
hægrikrata Alþýðuflokksins með
ihaldsgæðinginn Gylfa Þ.
Gislason i broddi fylkingar. — Af,
ætterni Más og uppruna mætti
ætla að hann sé kappsf. og vilji
ógjarna láta af sinu, þó i óefni sé
komið. Þykir okkur, sem
álengdar stöndum, ekki óliklega
til getið, að Má hafi fundizt Stein-
grimur ekki nógu þægur ljár i
þúfu og litt hrifinn af þeirri her
leiðingu, sem flokkurinn átti i
vændum, ef SUF menn fengju
að ráða ferðinni og þvi leiðzt út i
þessa ófæru, til að swla hug sinum
með einhverjum hætti. — Ekki er
þvi að leyna, að mér og fleiri þyk
ir Má og fél. hans hafi sýnt
flokki sinum litinn þegnskap með
brölti sinu og til þeirrar brota-
lamar i flokknum megi rekja
rætur þess fylgistaps, sem
flokkurínn hlaut i siðustu
kosningum, jafnt hér á Vest-
fjörðum og annarstaðar. Mætti
Már þvi lita sér nær, þegar hann
leitar orsakanna til þess hvernig
kosningarnar fóru hér i
kjördæminu og viðar en hann
hefur gert i skýrslu sinni á áður-
nefndu þingi og i grein sinni þann
15. október. — Það verður þó að
vona, að það fylgi, sem tapaðist
Framsóknarflokknum skili sér
aftur, a.m.k. hér á Vestfjörðum
þegar menn átta sig og sjá að þar
var aðeins um „Mýrarljós" að
ræða, þar sem þeir héldu skæra
leiðarstjörnu upprunna á
stjórnmálahimin sinn.
Inn i ásakanir sinar á Steingrim
vefur Már ágreining, sem hann
telur hafa verið milli SUF og
Steingrims um val á erindreka
Framsóknarflokksins. Ei þekki
ég til þeirra mála. Gæti þó trúað,
að hér væri málsgrundvöllurinn
jafn ótraustur og i öðrum mál
flutningi hans. Ég ætla ekki að
ræða hæfileika Atla Freys, þvi að
þann mann hefi ég aldrei séð eða
iieyrt getið fyrr en nú, að Már
leiðir hann i sviðsljósið. Hins
vegar hygg ég, að vel hafi tekizt
til um vai til þessa starfs þar sem
Kristinn Snæland varð fyrir
valinu og munu þeir ófáir, sem
þakka Steingrimi Hermannssyni
þá ráðstöfun, ef hann hefur ráðið
þar um i likingu við það, sem Már
vill halda fram. Kristinn Snæland
hefur á undanförnum árum vakið
á sér athygli með skeleggum
greinum og gagnrýni á
„Viðreisnarstjórnina” meðan
hún var og hét.
Vöktu greinar hans almenna
athygli svo að enginn lét þær
fram h[á sér fara sem á annað
borð fylgdist eitthvað með. Bar
margur þá von i brjósti að þeim
manni yrði falið meira starf til
áhrifa fyrir Framsóknarflokkinn,
en að skirfa þá pistla þó góðir
væru. Ég mun þvi ekki hafa verið
einn um það, að fagna heilshugar
þegar það fréttist, að Kr.
Snæland væri ráðinn til starfa
hjá Frs.flokknum sem erindreki
hans. — Slikur maður hlýtur að
geta komið mörgu góðu til leiðar
fyrir flokkinn. Þætti mér ekki
óliklegt að áras Más á Steingrim
fyrir þennan þátt færi á sömu leið
og hinar, þannig að hún snerist i
höndum hans og.yrði honum
sjálfum til hnekkis, en Steingrimi
til framdráttar. Von ég að Atli
F>eyr sé sá drengur að fara ei i
fýlu, þótt annar væri tekinn fram
yfir hann. — Framsóknarflokkur-
inn þarf á mörgum góðum
mönnum að halda til að tryggja
sér aukið fylgi og örugglega þann
sess i islenzkum stjórnmálum,
sem þjóðin þarfnast, ef vel á að
fara. Það ætti að nást, ef
samhugur rikti milli yngri og
eldri manna flokksins og allir
legðust á eitt i þvi efni. — Það er
að visu ekki nýtt, að ungum
mönnum finnist þeir einir eiga
heiminn. Ef vel á að fara mega
þeir þó — ekki loka augum fyrir
þvi að fleiri eru menn en þeir, og
einnig þvi, að þeir eru ekki ávallt
ungir. Aldur færist yfir þá eins og
aðra menn og þess vegna ekki
langt að biða, að aðrir komi fram,
sem vilja vikja þeim út i horn
Eitt er það þá, sem eftir
stendur: Með áras sinni á
Steingrim hefur Már unnið það
eitt,aðefla óvinafagnað og vekja
úlfúð og tortryggni i garð þess,
sem einna mest gagn hefur unnið
þeim málstað, sem báðum ætti að
vera hugleikið að vinna til gagns
— Vonandi er ,að Már láti hér
staðar numið og láti niður falla þá
herferð, sem hann i augsýnilegri
bræði, hefur hafið á hendur Stein-
grimi Hermannssyni. Vegna
ætternis Más munu flestir ætla
að nokkurs drengskapar megi af
honum vænta, þrátt fyrir þessa
fruntalegu árás. Megi honum svo
vel farnast og nokkuð af þessu
læra.
Bæ. 20 október ’72.
Guðm. T. Valgeirsson
SANDVIK
snjónaglar
SANDVÍK SNJÖNAGLAR veita öryggi í
snjó og hólku. Látið okkur athuga gömlu
hjólbarðana yðar og negla þá upp.
Skerum snjómunstur í slitna hjólbarða.
Verkstæðið opið alla daga kl. 7.30 til kl. 22,
GÚMMIVNNUSTOFAN HF.
SKIPHOLTI 35 REYKJAVÍK SÍMI 31055