Tíminn - 28.11.1972, Blaðsíða 3
Þriöjudagur 28. nóvember 1972
TÍMINN
3
Kaupfélagsstjórar sátu á fundum i fyrri viku. Þessi mynd var tekin sl. iaugardagsmorgun, er þingflokkur Framsóknarmanna var á fundi meö
kaupfélagsstjórunum, þar sem til umræðu voru helztu hagsmunamál samvinnuhreyfingarinnar. — Ljósmynd GE TIMINN.
150 tonn af svartolíu í sjóinn í Neskaupstað
— dauður fugl á fjörum — oliu rak út fjörðinn
BG—Neskaupstað
Mávar, æðarkollur og ýmsar
andategundir hafa farið ilia. og
talsvert er um dauðan fugl á
fjörum við Neskaupstað, en sem
kunnugter, þá fóru 150-170 tonn af
svartoliu i sjóinn þar eystra að-
fararnótt laugardags.
Svartolian fór i sjóinn á tima-
bilinu frá klukkan þrjú um
nóttina til sjö um morguninn, en
menn höfðu farið um þetta svæði
um þrjú leytið um nóttina.og
klukkan sjö um morguninn kom
kyndari til vinnu sinnar i sildar
bræðslunni. Þá blasti við mann-
inum stór oliufláki,og sá hann þá
hvar oliurör frá birgðageymi
hafði farið i sundur, þar sem það
liggur yfir læk. Maðurinn brá
skjótt við og stöðvaði hann oliu-
streymið með þvi að skrúfa fyrir
stoppkrana á geyminum.
1 birgðageyminum voru um
1000 lestir af svartoliu, og þegar
búið var að mæla yfirborðs-
hæðina i geyminum.kom i ljós, að
úr geyminum höfðu runnið a.m.k.
150 tonn.
Algjört logn var á Neskaupstað,
þegar olian rann i sjóinn, en er
leið á morguninn kom vestan
andvari, og barst olian út með
firðinum og lenti hún utan i
bryggjur og upp i fjörur. Þá
þegar fór að bera á dauðum fugli i
fjörunum, og menn óttuðust.að
mikið tjón kynni að hljótast af
völdum oliumengunar, og
reyndar er sá ótti enn fyrir hendi.
Á sunnudaginn hvessti af suð-
vestan, og þá rak oliuna alla út
með firðinum að norðanverðu, og
vita menn ekki hvert olian hefur
farið. Það var ljót sjón að sjá
oliuna á Norðfirði, svartir flekkir
Sölu- og sýningarsalur
28 fyrirtækja
Vöruskrá
Gluggar
Svalahurðir
Einangrunargler
Miðstöðvarofnar
Rafmangsþilofnar
Innihurðir
Útihurðir
Bylgjuhurðir
'Bflskúrshurðir
Viðarþiljur
Loftklæðning
Einangrunarplast
Ilreinlætistæki
Blöndunartæki
Polyureþan-einangrun
Byggingapanilar
Frysti & Kæliklefar
Hitaveitulagnir
Eldhúsinnréttingar
Fataskápar
Sólbekkir
Elshúsborð
Eldhússtólar
Skólaborð
Stólar
Gluggakappar
Gluggatjaldabrautir
Gluggatjöld
Kæliskápar
Frystiskápar
Þvottavélar
Uppþvottavélar
Eldavélar
Eldavélasett
Frystikistur
Eldþúsviftur
Hitunardúnkar
Handrið
Dælur
Lofthreinsitæki
Vinnuhlifar
Gólfdúkar
Veggklæðning
Teppaflisar
Teppi
Eldvarnarhruðir
Málmhurðir
Eldvarnarplötur
Þakrennur
Þakkilir
Loftventlar
Silicone
utanhúsmálning
Þakjárn
Þakpappi
Steypustyrktarjárn
Saumur
Múrhúðunarnet
Timbur
Pípur
Nótavir
Bindivfr
Þak-þéttiefni
Hleöslusteinar
Milliveggjasteinar
Gangstéttarhellur
IDNVERK HF.
|_ALHUÐAJ3YeGINGAWÓNUSTA_j
Engin álagning.
Aðeins þjónusta.
NORÐURVERI
v/Laugaveg & Nóatún
Pósthólf 5266
Stmar: 25945 4 25930
voru allsstaðar með nyrðri hluta
fjarðarins. Fjörurnar eru ekki
eins ljótar og i fljótu bragði hefði
mátt halda. Lognið, sem var á
firðinum.var þess valdandi, að
olian lenti ekki hátt upp i fjörur-
nar eins og farið hefði ef eitthvert
brim hefði verið við ströndina.
1 gær, mánudag, sást ekki
dauður fugl i Neskaupstað, en
samt var mikið af fugli.sem var
illa haldinn, og þvi getur farið
itla.
Talið er fullvist að rekja megi
orsök óhappsins til fannfergis.
Rörið liggur á kafla þvert yfir
læk, og i miðjum læknum hafði
verið byggður steinstólpi til að
hatda þvi uppi. Rörið fór i sundur
rétt við stólpann og mun rafsuða
hafa slitnað, þar sem rörið var
skeytt saman.
Sildarvinnslan á Neskaupstað
fær oliu frá BP oliufélaginu.og nú
eru menn frá BP væntanlegir til
Neskaupstaðar til að kanna, hvað
hægt sé að gera til að ná oliunni
aftur, enda var það engin bót, að
oliuna skyldi reka út úr Norðfirði,
hún getur átt eftir að vera skað-
valdur lengi, ef eitthvað verður
ekki að gert.
Amerískar
KULDA
úlpur
Sendum i
póstkröfu
STÆRÐIR:
BARNA 6-12
UNGLINGA 14-20
FULLORÐINNA 36-46
Laugavegi 76
Hverfisgötu 26
Simi 1-54-25
Viðræður við Breta
t gær hófust samninga-
viðræður þriggja islenzkra
ráðherra, þeirra Einars
Agústssonar, Lúðvfks
Jósefssonar og Magnúsar
Torfa Ólafssonar, við
samninganefnd brezku
stjórnarinnar undir forsæti
Lady Tweedsmuir, aðstoöar-
utanrikisráðherra.
t siðustu viku fjöigaði mjög
erlendum landhetgisbrjótum
við tsland, en skv. tatningu
Landhelgisgæzlunnar voru 114
erlend veiðiskip umhverfis
landið dagana 22.-23.
nóvember. Þar var um aö
ræða 81 togara frá Bretlandi
og Vestur-Þýzkalandi, er voru
að ólöglegum veiðum innan
fiskveiðiiögsögunnar. Brezku
togararnir, sem voru samtals
(>2,voru flestir að veiðum á
Strandagrunni og i Norð-
fjaröardýpi. Þýzku togararnir
voru flestir út af Vestfjöröum.
Einar Agústsson, utanrlk
isráðherra, mótmælti á föstu
dag við brezku rfkisstórina
yfirgangi brezkra togara við
islenzk fiskiskip á miðunum
norður af Vestfjörðum. Frá
þeim atburðum hefur verið
sagt i islenzkum fjölmiðlum
ogbrezkum.en þær frásagnir
voru mjög ósamhljóöa. Bretar
skelltu allri skuld á tslend-
inga. Eitthvað mun brezka
utanrikisráðuneytið hafa
kannað málið, og kom þvi
fram varfærin yfirlýsing tals-
manns ráðuneytisins um, að
hugsanlegt væri, að frásögn
brezku sjóin annanna af
atburðarásinni á miðunum við
tsland hefði ekki verið að öllu
leyti rétt. Segir það sina sögu
um sannleiksgildi fréttanna i
brezkum fjölmiðlum.
Þegar brezka sendinefndin
kom liingaö til lands á sunnu-
daginn, sagði Lady Tweeds-
muir við fréttamenn, að
islenzka landhelgisgæzlan
myndi ekki hafa afskipti af
brezkum veðiskipum innan
50 miina markanna meðan
samningaviðræðurnar i
Reykjavik stæðu yfir.
Ólafur Jóhannesson, for-
sætisr&ðherra, gerði athuga-
semd við þessi ummæli frúar-
innar og sagði, að óhugsandi
væri, aö hún gæti hermt eitt-
hvert slikt ioforð upp á
ábyrgan islenzkan aðila.
Þvert á móti vildi hann enn
itreka þá áskorun til Breta að
kalla alla landhelgisbrjóta út
fyrir 50 milna mörkin meðan á
sa mninga viðræðum stæði.
Það væri skoðun Islenzku
rikisstjórnarinnar, að það
gæti stuðlað að samkomulagi
og myndi lýsa vilja Breta tii
samkomulags.
Árekstrar við v-þýzka
Um hádegisbilið á laugar-
dag klippti varðskip á annan
togvir vestur-þýzks togara 38
mílur suðaustur af Stokksnesi.
Kvöldið áður höfðu islenzk
fiskiskip kvartað undan
ágangi vestur-þýzkra togara á
þessum miðum. Varðskip fór
á staðinn og skipaöi
togurunum út fyrir 50 milna
mörkin og hlýddu þeir allir að
lokum, en togarinn Arcuturus
sýndi mesta mótþróann. Þessi
togari var svo aftur kominn á
sömu slóðir morguninn eftir
og sinnti þá ekki skipunum
varðskipsins um að halda út
fyrir mörkin. Var þá klippt á
annan togvir togarans. Var
þetta i fyrsta skipti, sem varð-
skip beitir klippunum gegn
vestur-þýzkum togara.
Vonandi tekst að finna sam-
komulagsgrundvöli á
fundinum i Reykjavik i dag.
Bráðabirgðasamkomulag
þjónar tvim ælalaust hags-
munum bæði Breta og Islend-
inga. En Bretar verða að gera
Framhald á bls. 19