Tíminn - 12.12.1972, Blaðsíða 1
IGMIS
KÆLISKAPAR
RAFTORG
SÍMI: 26660
RAFIÐJAN
SÍMI: 19294
285. tölublað — Þriðjudagur 12. desember — 56. árgangur
2>Aö6éM/it«6(A. á/
RAFTÆKJADÉILD
Hafnarslræti 23
Simar 18395 & 86500
Sleðahundur
á Nesvegi
Þessi mynd er satt aö segja
hvorki tekin við Júkonfljótiö né á
Norður-Grænlandi, enda eru þar
hundabændur svo miklir, að þeir
láta sé ekki nægja minna en heilt
eyki, ætli þeir að bregða sér til
næsta granna, hvað þá ef lengra á
að fara. Hún var bara tekin núna
á sunnudaginn á Nesveginum
okkar, á þeirri totu landsins, sem
er milli Sunda og Skerjafjarðar.
Samt má guð vita nema þarna
sé eiginlega heimskautafari að
leggja af stað I landkönnunarleið-
angur og hafi svo frábært drátt-
ardýr, að hann ætli sér þetta ein-
hunda. Það er að minnsta kosti
ekki að sjá, að þeir félagar kvfði
neinu. ökumaðurinn situr
áhyggjulaus á sleða sinum og
hvutti hringar skottið eins og
hundar gera, þegar þeir finna dá-
litið til sin, og gapir litið eitt, lik-
lega frekar af ánægju en hann sé
orðinn móður.
Timamynd: Róbert
Aldrei hærra
meðalverð
ÞÓ—Reykjavik.
Það má segja með sanni, að
sildarvérðið hafi verið hátt i Dan-
mörku i haust, og hefur hið háa
verð bætt upp trega veiði a.m.k.
hjá einstaka skipi. Veiðin i sið-
ustu viku var mjög treg á Norður-
sjávarmiðum og eru nú mörg is-
lenzku sildveiðiskipanna komin
heim, en þeir bátar, sem seldu
sild i Danmörku fengu mjög gott
verð og hefur það aldrei verið
betra á þessu ári.
Niu bátar seldu sildarafla i s.l.
viku samtals 372 lestir. Þessi afli
seldist á danska markaðnum
fyrir 9.7 milljónir króna og
meðalverðið var 25.93 krónur.
Langhæstu heildarsöluna i sið-
ustu viku var Asberg RE með.
Ásberg seldi 74.2 lestir 9.
desember fyrir 2.5 milljónir og
meðalverðið, sem Asberg fékk
var einnig það hæsta i vikunni eða
33.91 kr. Grindvikingur GK, seldi
einnig fyrir meira en tvær
milljónir, og tveir Akureyrarbát-
ar Súlan og Þórður Jónasson
seldu fyrir á aöra milljón.
Þeir bátar, sem selja i þessari
viku verða sennilega siðustu bát-
arnir, sem selja afla i Danmörku
á þessu ári, en búast má við,að
einhverjir bátar haldi á sildar-
miðin við Hjaltland og i Norður-
sjó eftir áramót,
Mesta innbrota- og skemmdahelgi
í sögu lögreglunnar í Reykjavík
Óhemjuspjöll voru unnin i
fjölda fyrirtækja í Reykjavik um
helgina. Innbrotsþjófar voru viða
aö verki og stálu sums staðar
miklum verðmætum, en annars-
staðar brutu þcir og skemmdu og
áttu sér stað stórátök við hurðir,
skúffur og skápa. Engin leið er að
reikna saman i krónutölu, hve
miklum verðmætum hefur verið
spiilt, en sú upphæð er margföld
miðaö við það, sem stolið var.
Lögreglumenn segja, að þeir
muni ekki aöra eins helgi áður.
Voru kallaðar út aukavaktir
rannsóknarlögreglumanna, og
hafði hópurinn varla tima til að
lcita þjófanna, þvi sifellt bárust
tilkynningar frá fleiri og fleiri
stöðu, þar sem brotizt hafði verið
inn.
Faraldurinn hófst þegar á
föstudagskvöld. Þá var tilkynnt
um innbrot i fjóra bila. Tveir
þeirra voru við Háskólabió, einn
við Lindargötu og einn í Þingholt-
unum. útvarpstækjum var stolið
úr tveim bilanna, þrem flöskum
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem við fengum hjá Þórði Her-
mannssyni hjá ögurvik h.f., er
skuttogarinn ögri væntanlegur til
heimahafnar sinnar Reykjavfkur
i fyrsta skipti i fyrramálið. Þórð-
ur sagði, að ögri hefði lagt af staö
frá Póllandi á föstudaginn kl.
14.30, og ætti hann þvi að koma i
fyrramálið, ef veður héldist gott.
af vodka úr einum og skemmdir
unnar á þeim þriðja.
A laugardagsmorgni kærði
verzlunareigandi innbrot i fyrir-
tæki sitt. Saknaði hann allt að 100
lengja af sigarettum, nokkru
magni af vindlum og rótað var i
skúffum.
Brotin var hurð fyrir heildsölu
John Lindsay i Skipholti og stolið
snyrtivörum fyrir 40 til 50 þús. kr.
að verðmæti.
Tilkynnt var, að bil hafi verið
stolið frá Túngötu. Fannst hann
neðar i götunni. Var þá búið að
aka bilnum á og hann skemmdur.
Farið var inn i vinnuskúr við
Árbæjarskólann og eins i skóla-
húsið sjálft, en ekki er að sjá,að
neinu hafi verið stolið.
A laugardagskvöld bar óboðinn
gest að dyrum i mannlausri íbúð
við Framnesveg. Þar sem dyrnar
voru lokaðar mölbraut aðkomu-
maður hurðina rótaði i ibúðinni i
leit að verðmætum, en húsráð-
endur segjast einskis sakna af
eigum sinum.
Kl. 6 á sunnudagsmorgni var
Þá spurðum við Martein Jóns-
son, framkvæmdastjóra Bæjarút-
gerðarinnar, um komu skuttogar-'
ans Bjarna Benediktssonar, sem
verið er að smiða á Spáni. Mar-
teinn sagðist ekki geta sagt. ná-
kvæmlega um komu togarans, en
taldi, að ekki liði langur timi
þangað til skipið gæti lagt af stað i
heimsiglinguna. j>ó
tilkynnt um innbrot i Alþýðu-
brauðgerðina. Var gluggi brotinn
og skriðið þar inn. Hurðir fyrir
skrifstofuherbergjum voru fyrir
þjófunum og voru þeir vega-
tálmar fjarlægðir á hefðbundinn
hátt. Mikið var rótað á skrifstof-
unni og talsverðu stolið af
gömlum koparpeningum. Auk
þess roguðust innbrotsþjófarnir
út með 7 eggjabakka.
Rúða i útstillingarglugga Úra-
og skartgripaverz1unar
Magnúsar E. Baldvinssonar,
Laugavegi 12, var brotin. Sá, sem
það gerði,teygði hendina inn um
gatið og náði 22 úrum. Verðmæti
þeirra er samanlagt um 70 þús.
kr.
Verst var aðkoman i skrifstofum
i húsi Nýja Biós við Lækjargötu.
Þar var rótazt um i skrifstofum
margra fyrirtækja allt neðan úr
kjallara upp á fimmtu hæð.
Brotnar voru upp hurðir að
skrifstofugöngunum á öllum
hæðum. Einnig voru brotnar
nokkrar hurðir milli herbergja,
en alls voru mölbrotnar 12 hurðir
i húsinu, auk skápahurða. 1 öllum
skrifstofunum voru unnin gifur-
leg skemmdarverk. Skápahurðir
og skrifborðsskúffur voru
sprengdar upp Skjöl og skrif-
stofugögn voru á rúi og stúi um öll
herbergi. Þrátt fyrir allan þennan
óhemjudugnað var litlu eða engu
stolið, enda voru innbrotsmenn
auðsjáanlega i peningaleit, en
fundu enga.
Snemma um morguninn hand-
tóku lögreglumenn grunsam-
legan pilt, sem var á ferði i mið-
borginni.
Var hann með koddaver i hendi
og i þvi voru nær 7 þús. kr. i
skiptimynt. Um siðir játaði hann
að hafa stolið peningunum i
Slippnum, en þar var enn eitt inn-
brotið. Einnig játaði hann á sig
innbrotið i heildsölu John
Lindsay, og lét þar ekki staðar
Mikil sprenging varð i bil á
móts við Gljúfrastcin i Mosfells-
sveit á laugardagskvöld. öku-
maður var einn i bilnum. Hann
komst út, en föt hans loguðu.
Daginn eftir lézt maðurinn af
vöidum brunasára á Landspital-
anum. Hann hét Björgvin
Gunnarsson, 32 ára gamall bila-
viðgerðarmaöur. Björgvin var
fráskilinn og lætur eftir sig fjögur
börn. Hann bjó hjá móður sinni að
Skúlagötu 74.
Rannsóknarlögreglan i Hafnar-
firði hefur málið til rannsóknar.
Ekki er hægt að segja með vissu,
hvernig á sprengingunni stó®,!en
liklegast er talið, að bensingufa
hafi myndazt i bilnum og neisti
kveikt i henni. Var spengingin svo
öflug, að allar rúður bilsins
sprungu. Björgvin hentist út úr
bilnúm og logaði þá i fötum hans.
Sjónarvottur var að slysinu.
Jón Gunnar Oddsson, sem er 22
ára gamall háskólanemi, var
staddur að Gljúfrasteini. Klukkan
23.45 gekk hann út á hlað með
hund til að viðra dýrið. Veitti
numið, heldur sagðist hann lika
hafa verið á ferð i öllum -
hæðunum i Nýja Biói. Þótti með
ólikindum, að piltur hafi verið
Frh. á bls. 15
hann þá athygli bfl, sem kom ofan
af heiðinni. Við Grænhól, rétt ofan
við Gljúfrastein, hægði billinn á
sér eða stanzaði. Allt i einu varð
sprenging, og maðurinn hentist út
og billinn stóð i ljósum logum. Jón
hljóp til, og var þá Björgvin staö-
inn upp, en eldur logaði i föt-
unum. Jón lagði hann niður og
slökkti eldinn i klæðum mannsins
i snjónum, hljóp siðan inn og
hringdi á hjálp. Fór strax út aftur
og lá þá maðurinn á jörðinni, og
var aftur farið að loga litillega i
fötum hans. Björgvin var mállaus
og gat ekkert sagt um slysiö, en
hélt meðvitund að þvi er bezt varð
séö. Var hlynnt að slasaða mann-
inum eftir getu meðan beðið var
eftir sjúkrabil. Var Björgvin
siðan fluttur á Landspitalann, en
lézt þar.
Billinn, sem sprengingin varð i,
er af Cortina—gerð, árgerð 1966.
Stúturinn á bensingeymi bilsins
er inni i honum, og aö öllum lik-
indum hefur bensinguf.u lagt út
um hann og inn i bilinn, þar sem
neisti hefur kveikt i og valdið
sprengingunni .-O Ó
ÖGRIKEMUR
Bíll sprakk og öku
maðurinn lézt
Sennilegt, að bensíngufa hafi fyllt bílinn